Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.09.1893, Síða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.09.1893, Síða 4
/ 116 hann aptur, enda vantar sízt sakar-efnin, úr því út í það er farið. Líkast, að úr málaþrefinu því verði svo eins konar bræðrabylta. Kvík, 28. sept. ’93. Skídi Thoroddsen. Bókfregn. Irbók hins ísl. fornleifafélags 1893 er fyrir nokkru komin á prent. í árbókinni er skýrsla um rannsóknir Sigurðar heitins Vigfússonar árin 1889 — ’91, mynd af öxi Skarphéðins, er Rimmu- gýgr nefndist, nokkur bæiarnöfn í Land- námu í ofanverðri Hvítársíðu og Hálsasveit eptir Brynjólf Jónsson, o. fl. „ísu-moð“. Málshöfðun?? Ritstjóri „ísafoldar" er nú líka farinn að skrífa í „Þjóðv. unga“, og vill nm fram allt fá það birt bér í blaðinu, að hann þykist ætla að höfða meiðyrðamál, út af einhverjum um- mælum vorum i 23. nr. „Þjóðv. unga“ þ. á., svo að séð hefir banu þó það blaðið, karlinn. öreinarstúfurinn er svo látandi: Lðgsókn. Með þvíað jeg hefi xannxpurt (!!!)*, að þjer hafið birt saknæm meiðyrði um mig í blaði yðar, 26. tölubl., er út kom í Reykjavík 31. f. m., þá auglýsist hjer með samkv. prentfrelsislög- unum, að jeg hefi gert ráðstafanir til lögsókn- ar gegn yður fyrir þau. Reykjavtk, 22. septembr. 1893. Björn Jónsson, ritstjórí ísafoldar. Til ritstjóra „Þjóðviljans unga“. En „ekki bregður mær vana sínum“, að því er áreiðanlegleikann snertir. Fylgir hverjum, sem fast er við hann. Heppilegar sjálfslýsingar. Það er nú orðið almennt viðurkennt, að lang uppbyggilegustu „leiðararnir" í „ísafold“ séu þessar sjáltslýsingar, sbr. t. d. „sorpblaða“-greinina í síðasta nr., sem ritstjórinn er farinn að leggja all-mikla alúð viði og því er varla vafinn á, að fái menn meira af sams konar fróðlegum lýsingum, þá fjölgar áskrifendum „ísafoldar“ óðum. En það eru ekki allir blaðstjórarnir, sem hafa fundið upp púðrið, ekki allir svo pólitiskir, að þeir skipti ham eptir æti og árstímum. Kaupið þvi „ísafo!d“ eina; ekkert blað hefir nokkru sinni fyr boðið aðra eins kosti! Seyðisflrði 16. sept. ’93: „Héðan er að frétta ágœta tíð í allt sumar. — Heyskapur yfir allt Austurland ágætur, bæði mikil og góð hey; aflinn í góðu meðallagi, og hefði verið ágætur, ef ekki *) Leturbreytingin og upphrópanimar eru gjörðar af oss. Ritstj. ÞJOÐVILJINN UNGI. hefði vantað beitu (síld) í júlí og framan af ágúst, en síðan nóg beita og góður afli, — Fjárprísar enn eigi upp kveðnir". f Halldðr bóndi Einarsson á Rangá í Norð- ur-Múlasýslu, sem óefað mátti teljast einn af merk- ustu bændum austanlands andaðist 17. ágúst þ. á., og var rúmra 70 á,ra; hann var jarðaður 8. sept. í hól á túninu á nefndri ábýlis-og eignar-jörð hans; hafði hann sótt um, og fengið, leyfisbréf til þess. Reykjavík 30. sept. '93. Tíðarfar. 18.—20. þ. m. gerði bér norðan- hviðu, svo að nokkuð snjóaði í byggð, og frost var um nætur; hefir garður þessi þó að líkindum verið mun harðari á Norður- og Vestur-landi. Drukknun. 16. þ. m. varð bátstapi frá Mið- nesi, og drukknuðu tveir unglingspiltar, annar frá Stöðulkoti, en hinn frá Tjarnarkoti; þriðji pilturinn var og á bátnum, en komst á kjöl, og varð bjargað. Unglingar þessir höfðu siglt gapalega, og haft seglin föst á bátnum. 1 niðurjöfnunarnefndina kusu Reykvikingar 15. þ. m. 3 menn til næstu 6 ára: cand. theol. Steingrím Johnsen, séra Jóhann Þorkelsson og úr- smið Magnús Benjamínsson. Dr. Björn Ólsen hefir í sumar rannsakað mál- lyzkur í Þingeyjar-sýslu, og kom aptur hingað til bæjatins 27. þ. m. Gufubáturinn, „Elín“, kom 25. þ. m. ofan úr Borgarnesi með um 50 farþegja, og meðal þeirra Andrés bóndi Fjeldsied á Hvítárvöllurn, séra Jóhannes Lynge á Kvennabrekku, héraðslæknir Páll Blöndal í Stafholtsey, og búnaðarskólastjóri Torfi Bjarna- son í Ólafsdal. Heyskaðar nokkrir höfðu orðið í norðanhryn- unni í þ. m. í Dalasýslu (í Saurbænum) og í Hnappa- dalssýslu (í Miklaholtshreppnum), tapast 20—40 hest- ar af heyi, og þar um, á stöku bæjum. Útgáfu „Þjóðv. unga“ verður haldið áfram á ísafirði, með því að ritstjórinn fer vestur með „Thyra“ í næsta mánnði. Strandferðaskipið „Thyra“, skipstjóri Garde, kom hingað norðan og vestan um land í gær, og á að fara héðan 3. næsta mán. vestur um land, áleiðis til útlanda. Meiðyrðamál amtm. Júlíusar Havsteen gegn Skapta ritstjóra Jósepssyni var tekið fyrir í yfir- dóminum 25. þ. m., og kvað amtmaðurinn hafa lát- ið málfærslumann sinn krefjast þess, að yfirdómari Kr. Jónsson víki dómarasæti í málinu, með því að hann sé í venzlum við Skapta, skyldur konu hans. Mál þetta er risið út af því, að br. Skapti Jósepsson hafði getið þess í „Austra“, að Havsteen amtmaður hefði fengið ofanígjöf hjá ráðherranum fyrir rannsóknirnar gegn meistara Eiríki Magnús- syni; en það kvað vera tilhæfulaust, að amtmað- urinn segir. n, 29. Skálapiltar hafa verið að koma til bæjarins þessa dagana; i lærðaskólanum verða í vetur yfir 90 lærisveinar. Barnaskólinn hér í Reykjavík verður prýðis- vel sóttur í vetur, eins og að undanfórnu, einkum siðan hr. Morten Hansen tók við forstjórninni; í vetur verða börnin á skólanum fráleitt færri, en 200, og er það meira, en nokkru sinni fyr. „Agenta málin“ tvö gegn ritstjóra „Þjóðólfs“, hr. Hannesi Þorsteinssyni, vóru lögð í dóm i lands- yfirréttinum 25. þ. m. Björn Kristjánsson kaupmaður kom hingað frá Hamborg á gufuskipinu „Alpha" 27. þ. m., með ýmsar vörur til Borgfirðinga, og tekur hjá þeim um 900 sauði til útflutnings. Skipið á að fara héðan til Englands. Einn af hvalaveiðagufubátum H. Ellefsens á Flateyri kom hingað snöggva ferð 27. þ. m., og fór aptur vestnr samdægurs. Ókeypis lögfræðislijálp. Eins og í fyrra vet- ur veitir Skúli Thoroddssen þeim, sem hans leita, ókeypis lögfræðishjálp og ráðleggingar á ísafirði á komanda vetri; en þetta nær þó einungis til þeirra, sem eiga heima í ísafjaróarsýslu, eða í ísafjarðar- kaupstað. Fiskprísar enn að lækka í útlöndum, er síðast fréttist. Vottorð. Þá er konan mín hafði nokkra hríð þjáðzt af óreglulegri meltingu ásetti eg mér að láta hana reyna „Kína-lífs-elixír“ lierra Valdemars Petersen’s í FrederiJcshavn. Er hún hafði eytt úr einni íiösku tók matar- lystin að aukast, og við brúkun annarar og þriðju áöskunnar fór henni dagbatnandi en jafnskjótt sem hún hætti að neyta þessa ágæta læknislyfs, jukust veikindin aptur og er eg því sannfærður um, að hún má eigi án þess vera nú fyrst um sinn. Þetta get eg vottað með góðri samvizku, og vil því ráða sérhverjum, sem þjáist af samkynja veikindum, að reyna heilbrigðis- bitter þennan. Skipholti í Ytrahrepp, í janúar 1893. Jón Ingimundsson hreppstjóri. Kína-lífs-elixirinn fæst hjá flestum kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír eru kaupendur beðnir að líta vel eptir því, að Vj, ' standi á flöskunum í grænu lakki og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flösku- miðanum: Kínverji með glas í hendi, og firma nafnið Yaldemar Peterscn, Frcderikshavn, Danmark. FjelagsprentsmiSjan.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.