Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Page 1
Verð árgangsins (minnst I 40 arka) 3 kr.; í Ameriku I 3 doll. Borgist fyrir júní- I mánaðarlok. DJOÐVILJIM DH6I ——1= Þribji ÁBCtANOUR. =|. =- Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar. M ÍSAFIBÐI, 80. APRÍL. „Leiðararnir“ í „Isafol(l“. —'sr.— Fyrir menii, sem eru því liunnugir, hve fjarri því fer, að „ísafoldu liafi nú orðið nokkur minnstu áhrif á almenn- ings álitið og almennings viljann á landi voru, verður það óneitanlega nokkuð broslegt, að lesa alþingiskosninga-„leið- aranau, sem sendir era með stjórnar- auglýsingunum út um landið í þessu háloíiega(!) blaði. Manni dettur ósjálfrátt i hug sagan af froskinum, sem ætlaði að verða ósköp stór; hann blés og blés, svo að hann tútnaði allur út, og það voru vandræði að sjá hann; en svo endaði sagan, að þessi oflátungs froskur, hann — sprengdi á endanum sjálfan sig. Og það þarf svo sem enga sérlega skarpskygni, til þess að sjá það fyrir, að svipað muni fara um oflátungsháttinn i „ísafold“, þó að hún fylli belginn með vindi. Við kosningarnar í vor heyrast að eins ofur-litlir hvellir, þegar „ísafoldaru- froskarnir springa, einn eptir annan. °g það er líka engin von á því, að óðru vísi fari, því að hvaða heimtingu getur annað eins blað, eins og „ísafold11, átt á því, að geta haft nokkur álirif á almennings-álitið ? „Sýn mér trú þina af verkum þín- um“, sagði postulinn Jakob. Og líkt viljum vér spyrja, hver er pólitisk saga þessa þjóðskórungs(I), er 4safoldu stý rir? Er það saga um staðfasta, einarða °g þrek-mikla baráttu fyrir frelsi og i’éttindum þjakaðrar þjóðar? nei-nei, heldur er það ein af þess- uin — þvi migur aiis epki óvanalegu - íslenzku rauna-sógum, saga um — svihnar vonir. íyrir réttum 20 árum byrjaði Björn ritstjóm sína, — eptir laganáms skip- brotið í Hófn —, og sigldi þá fyrst framan af i kjölfar Jóns hoitins Siffurðs- sonar, enda var það og eini vegurinn í þá daga, til þess að afla blaði hans álits og útbreiðslu. Hann talaði fagurt, og skrifaði eins og „skríllinnu vildi heyra, sem liann nú nefnir því nafni. Og undir þessu þjóðræknis-merki, var svo blaði hans, — með öflugum tilstyrk ýmsra þjóðkjórinna og þjóðrækinna þing- manna —, troðið inn meðal almennings. Þarna var risið upp þjóðblaðið, er margir væntu svo mikils af, og það var álitin helg skylda við ættjórðina, að efla það og styrkja á allar lundir*. En „enginn veit, hvað í manninum býr, nema mannsins andiu. Eptir að hr. Bjórn Jónsson hafði á þennan hátt, — með tilstyrk sér betri manna —, srneygt blaði sinu ofur-liðlega inn hjá almenningi, svo að þar var ekki ineira að „þéna“, þá fór hann að litast um í aðra átt. Og sjá! Þar stóðu stjórnarinnar menn með fulla vasa fjár, „auglýsingarnaru, opinbora prentun, og ýms önnur þessa lieims gæði! Og hr. Bj. J. sá i anda „Mosfelliðu gnæfa við himin, opinberu auglýsing- arnar fylla eyðurnar i „ísafoldu, bók- menntafélags forstöðuna gefa sór prent- un og peninga í vasann, o. fl. o. fl.! Og svo stóðst hann þá ekki freisting- una lengur, vor virðulegi blaða-bróðir! .... Hann fór i „spekulants-túrinnu; en til þess að koma sór i veg, þá varð liann að taka stór-lán, og sókk um hríð i all-miklar skuldir. En, — eins og Islendingar þekkja því miður allt of vel —, sá, sem sökkur sér í skuldir, liann fyrirgjórir opt frelsinu. *) Það þarf engum að verða svara-fátt um það, hvað ritstjóri „ísafoldar11 afrekaði á þessu eina þingi, som hann hefir setið k. — Hann hafði upp úr kraísinu lianda sjálfum sér 950 kr. af landsfé, til þess að gefa út þingfréttir með „ísafold11!! sbr. alþ. tíð. 1879 bls. 1015; en um önnur afrek hans er allsendis ókunnugtl Já, von er, að hann prédiki nú hjartnæmt um það i 20. nr. „lsafoldar“, að „kjósa ekki á þing neina bitlingamenn fyrir sjálfa sig‘\ Hann man til sinna eigin afreka um árið!! Og sú virtist raunin með blaðastjórn Björns, að nú væri margs að gæta, þvi að ekki mátti styggja þenna og heldur ekki hinn, og af þvi leiddi aptur, að ekki mátti hreifa við þessu, og heldur ekki við liinu. Og svo var þá politiska liringförin full-gjör, óðar en varði. Hann var risinn óndverður all-mörgu af þvi, sem hann hafði áður sett á sitt þjóðræknis-merki. Að stjórnarinnar menn, sem sáu, hvað manninum leið á hans politisku vegferð, gerðu fremur að ýta undir hann, en að letja, það láir þeim auðvitað eng- inn, því að þeir gátu þó að minnsta kosti gjört sér þær vonir, að í þeirra liði myndi blað, með „Isafoldaru fortíð, geta orðið all-öflugt vopn, til þess að umhverfa hyggju og hug hinnar íslenzku þjóðar. Það er þetta, sem vór kóllum sorg- lega sógu, að sjá menn, sem virtust hafa hæfilegleika, til þess að geta orðið sjálf- um sér til sóma og öðrum til gagns, um- hverfast í liring, og verða politiskir kar- ar-karlar fyrir tírnann. En þannig gengur það því miður allt of opt á landi voru, að örðugar kringum- stæður, og utan að komandi áhrif, láta verða minna úr mörgum hæfilegleikum, en óskandi og væntandi væri. Með óðrum orðum, það glatast svo margt fræið, eins og síra Jón Bjarnason segir í síðustu „Aldamótumu, sem hafði þó frá byrjun í sér mögulegleikann, til þess að geta náð sínu fullkomnunar tak- inarki. Að menn finni til sárrar meðaumk- unar með slíkum mönnum, það er ekki nema eðlilegt i alla staði, og þess geta þeir vissulega vænzt. En áhrif? Hver talar um áhrif? Eða hvernig geta þeir búizt við því, að geta haft áhrif á nokkra lifandi sálu? Og í líkan máta er það þá einnig ærið barnalegt af „Isafoldu, — eptir sinn politiska skipreika —, að vera að birta „leiðarau, út af alþingiskosningun-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.