Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Blaðsíða 3
III, 22. Þjóbviljinn ungi. 87 marzm.; hann var áður útgefandi „Tím- ansu og „íslendingsu yngri. 16. april andaðist í Stykkishólmi Hjörtur Jónsson liéraðslæknir, fæddur 28. apríl 1841. Látnir eru og ný skeð Iíaflidi bóndi Eyjolfsson í Svefneyjum, 0g PáJl bóndi Ingimundarson í Mýrartungu, faðir Gests heitins Pálssonar skáhls. Ekkjan Steinunn Helgadóttir á Lamba- stöðum í Garði er og nýlega látin, 80 ára að aldri; hafði hun búið á Lamba- stóöum í 57 ^ ^ sí5ustu árin sem ekkja pptir rnann sinn, Helga heitinn Helgason. Látinn er og ný skeð Ólaftir GuS- laugsson frá Hliðarhúsum, faðir sira Þórð- ar Olafssonar á Gerðhömrum. í Stykkishólmi er og ný látin Anna Magdalena Thorlacius, ekkja Árna heitins Thorlaciusar kaupmanns. „Inílnenzase-veiliiri heíir vald- ið all-miklum manndauða hér í sýslu, og þvi miður ekki enn séð fyrir endann, enda þótt pest þessi virðist nú heldur i rénun. Auk þeirra, sem getið var í siðasta blaði voru, liafa oss borizt fregnir um þessi mannalát: 18. þ. m. andaðist liér í kaupstaðnum ekkjan Margrít Aradottir, og s. d. and- aðist unglingspilturinn Oli Karl Niélsson. 21. þ. m. andaðist og ekkjan Mikka- tina Eyjdlfsdbttir hér í bænum; hún var •lóttir síra Eyj. Kolbeinssonar, er síðast ^ar prestur að Eyri í Skutulsfirði, og Var hún komin á níræðis-aldur; maður hennar var Ásgeir heitinn Jónsson, kaup- maður á Isafirði. 19. þ. m. andaðist í Engidal í Skut- ulsíirði konan Hdlldöra Kristín Halldbrs- dbttir, uin fertugt; liún var kona góð og mikilhæf, og lifir hana bóndi hennar, Sveinn bóndi Ólafsson í Engidal, og Kjú bórn þeirra. 21- þ. rn. andaðist Kristján Kjartans- son í Búð í Hnífsdal, efna-maður og merkis-maður, um sjótugt; ekkja hans er Elín Ossursdóttir, systir Sigríðar í Búð, en dóttir þeirra Ingibjórg, kona Guðm. Sveinssonar í Hnífsdal. 22. þ. m. andaðist og í Hnífsdal Þor- rarður bóndi Sigurðsson á Bakka, um sjótugt; hann var efnamaður og dugand- is bóndi á fyrri árum, en hafði nii legið rúmfastur 6 siðustu ár æfinnar; ekkja hans er Elizabet Kjartansdóttir, s.ystir Kristj. heitins Kjartanssonar. 23. þ. m. andaðist að Tungu í Skut- ulsfirði Jbn Gttðmundsson, tengdafaðir Jóns bónda Jónssonar, sem þar býr, og og var hann á sextugs-aldri. Nýlega andaðist og i Hnífsdal Páll Pálsson, bóndi að Eyri i ísafirði, og hafði hann verið þar til sjóróðra. 11. þ. m. andaðist í Þernuvík i Og- urhreppi konan Sænnn Hannesdbttir, dótt- ir síra Hannesar Arnórssonar, er síðast var prestur að Stað í Grunnavík, og lif- ir maður hennar, Halldór Jónsson, prakt. læknir í Inn-Djúpinu. Aí Langadalsstróndinni er sagt lát Mbesesar bónda Illugasonar á Múla. I Bolungarvík er ný dáinn Einar bóndi Þorláksson á Kroppstóðum, 43 ára; var hann þar við róðra; svo hafa og látizt það í Víkinni: ekkjan Sigríður Sig- urðardbttir að Meirihlið, tengdamóðir Ben. heitins Gabríels, sem drukknaði á siðastliðnum vetri, og Kári húsmaður Ólafsson á Mólum. Að Bæjum á Snæfjallaströnd er og ný dáin ekkjan EYaahet Bjbrnsdöttir, 78 ára að aldri. Úr Grunnavíkur-sókn er sagt lát ekkjunnar Mar'm Þorvaldsdbttur á Faxa- stöðum, móður Þorv. oddvita Símonarson- ar; og enn hafa orðið lát nokkurra gam- almenna, sem hér eru eigi talin. -----!©«---- Frá máláþrefi Björns ritstjbra. Af þess- um fjórum svo nefndu meiðyrðamálum, sem ritstjóri „Isafoldar11 hefir höf'ðað gegn ritstjóra „Þjóðv. unga“, er það að segja, að þau eru enn öll óútkljkð fyrir „rétti“ Larusar „dómara“. í tveim málunum hafði Lárus „dómari“ veitt Sk. Th. mánaðarfrest, til þess að gagnkæra Björn fyrir sáttanefndinni i Keykjavík, og þótt- ist því Sk. Th. geta gengið að þvi vísu, að sér yrði eigi neitað um framhalds frcst þann, som til þess þyrfti, að gagnstefna umboðsmanni Bjarnar liér vestra; en ekki rættist sú gata hans, því að enda þótt Lárus „dómari“ ekkert hefði á móti því, að Sk. Th. gagnkærði Björn fyrir sáttanefndinni, þá n e i t a ð i hánn um hálfs- mánaðar frest til gagnstefnunnar til réttarins. Og í þriðja aukaréttarmálinu, þar sem Sk. Th. stóð með vottorð um árangurslausa sátta- tilraun í höndunum, var honum neitað um hálísmánaðar frest til gagnstefnunnar, og það þótt hann hefði áður alls engan írest í málinu fengið.* *) Það var annars undarleg tilviljun, að rétt um sama leyti, sem Lárus „dómari“ kvað upp þessa merkilegu úrskurði, barst hingað vestur 20. nr. „ísafoldar“, og hafði að færa Nú stendur svo á, að greinar þær, sem Björn ritstjóri hefir lögsótt fyrir, eru að eins svar-greinar gegn íllyrðum, sem áður höfðu staðið um Sk. Th, i „Isafold“; og hinn velvísi „dómari“ hefir þvi úrskurðað rétt að vera, að Björn komi fram ábyrgð á hendur Sk. Th. fyrir það, að hann var svo djarfur að srara íllkvitnis- árásum Bjarnar, en að Sk. Th. skuli á hinn bóginn ekki fá að gagnstefna Birni, þó að hann áreitti hann að fyrra bragði; málshættinum: „Sá veldur mestu, sem upphafinu veldur“, ætti því líklega bezt við, að snúið væri við, svo að sett væri orðið „minnstu“ fyrir „mestu“. Annars verður fróðlegt að vita, hvort æðri dómar álíta Lárus bæran um að fjalla um þessi mál, og staðfesta þann úrskurð hans, er hann neitaði að víkja úr dómara-sæti; mörgum mun að minnsta kosti þykja það ærið óviðlelldið, að maður, sem eins og Lárus, hefir í vetur fyrir opinberum rétti látið bóka þau ummæli, að „Þjóðv. ungi“ væri „götublað“ og brugðið rit- stjóra hans utn „götudrengja tiltektir“, skuli ætla sér að sitja í dómara-sæti, og dæma um saknæmi greina i því blaði, sem hann hefir fellt svo niðrandi og strákslegan dóm um, eða yfir höfuð sitja í dómara-sæti yfir þeim manni, sem hann í vetur hefir fyrir rétti meðal annars látið bóka um, að væri „marghrjáður krossberi“, „pislarvottur“, „laungáfaður“, „einfalt tyro júris“, og sem hann „áliti svo óheiðarlegan, að hann vonaði, að sú ógæfa ætti ekki á daga sína að drifa, að hann þyrfti að eiga við hann orðastað11 og fl. o. fl., sem þessi menntaði(!!) embættismað- ur(!) hefir úr sér ausið, til þess að svala óvildar- og heiptar-hug sínum til Sk. Th. Töluverða skemmtun vakti það fyrir rétt- inum 19. f. m., að umboðsmaður Bj. J. sá sér það hyggilegast, að kannast hreinskilnislega við það, að Björn ritstjóri hefði sagtósatt í 58. nr. „ísafoldar“ f. á., og þvi væntanlega fyllilega réttmæt orð þau, er Sk. Th. hafði haft um þá aðferð furstans í 26. nr. „Þjóðv. unga“ II. árg., að hann hefði logið upp á amtmann, landshöfð- ingja og mann einn á Isafirði. Vitnaleiðslurnar, út af kæru- mála-þrefi Lárusar gegn kaupstaðarbú- unurn þremur, köfnuðu að mestu leyti i „influénzau-veikinni, með þvi að annað veifið hómluðu veikindi setudómai-ans, en annað veifið veikindi vitnanna, þar sem flestir lágu i þvógu; og þegar svo veikin fór að réna, þá var hinum stefndu neitað um frekari frest, og fórust þann- ig fyrir öll vitnaleiðslu-mál þau, sem stefnt hafði verið til i ýmsum hrepp- um umhverfis Isafjarðardjúp, og vitni urðu að eins leidd hér á ísafirði. „I3arsnúðismáliðK, sem hr. Guðm. bóndi Sveinsson i Hnífsdal höfðaði gegn Lárusi Bjarnason, er nú fyrir nokkru lagt í dóm, og hafa eigi fengizt lögfull- ar sannanir á Lárus, sem hefir haldið alveg sömu lagavizkuna, eins og í úrskurðunum stendur.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.