Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1894, Qupperneq 2
86 Þjóðviljwn ungh. Iir, 22. um í vor, því að það gaspur hennar hefir auðvitað ekki minnstu agnar-vitund að þýða, nema hvað það sýnir, hve fast hún er bundin við klafann. Og þessi rembingur blaðsins verður einnig enn þá barnalegri og broslegri, þegar þess er gætt, hverjir þeir eru, sem „ísafold“ leggur einkum á móti í þess- um langloku „leiðurum14 sínum. Það eru þeir Hannes ritstjóri Þor- steinsson, síra Sigurður Stefánsson, ritstjóri þessa blaðs, og búfr. Bj'árn Bjarnarsun, menn, sem ritstjóri „í$afoldar“ hefir vit- anlega lagt i einelti árum saman, enda er það og óbilugt merki á all-flestum politiskum bamskiptingum, að þeir bata þá megnast, sem óðrum fremur fylgja fram líkum skoðunum, sem þeir, — bam- skiptingarnir —, hófðu sjálfir, áður en „andinn11 hljóp í þá; þeim sárnar það auðvitað óskópin óll, að allir skuli ekki mótmælalaust fylgja, og dást að, þeirra fallega(!) dæmi. „Sníttu þér, Snúinn-raptur, og snáfaðu heim aptur“ sagði tróllskessan við Ólaf, að þvi er þjóðsögnin greinir. En vér viljum í einlægni ráða það ritstjóra „ísafoldar“, að leggja eigi í leiðangur með það, sem bann má vita, að allir skynsamari og betri menn lands- ins gera ekki annað, en gamna sér að, eins og raunin mun vitni gefa, að því er alþingiskosninga „leiðarana“ snertir. —-w -- tJtlenrtax* fréttir, sem síðast hafa hingað borizt, lierma það, að nú sé loks lokið bráðabirgða-fjárlaga ástandinu í Danmórku; böfðu hægri menn og miðl- unar-flokkurinn jafnað með sér öll ágrein- ings-atriði í fjárlógunurn, og þau svo blotið samþykki beggja þingdeildanna um mánaða-mótin marz og apríl. — Mælt er og, að á orði sé, að Estrups- ráðaneytið leggi niður völdin á komandi bausti. Látin er og sagður Ludvig Kossutli, hin alkunna frelsis-hetja Ungverja; hann andaðist í bænum Turín á Italíu 20. marz. þ. á., og var kominn yfir nírætt (fæddur 16. sept. 1802). Lík hans var flutt til Buda-Pest, hófuðborgar Ung- vTerja, og jarðað þar með mikilli viðböfn á kostnað bæjarins. Uppreistin í Brazilíu, sem Mello hers- höfðingi stýrði, má nú heita niður bæld. —-tSrsaa-if- VIÐ MANNTALIÐ, sem tekið var & Ind- landi árið 1891, taldist svo til, að þar í landi væru 12 milj. manna lesandi og skriíandi, en 246 milj. kynnu hvorki að lesa nó skrifa. PENNY er elzta enska peninga-myntin, sem sögur fara af, og var eina myntin, sem Engil- Saxar höfðu; nafnið er dregið af germanska orðinu „pfant“ = pantur, veð. — Aðalbjartur, konungur í Kent (560—616), lét slá silfur-penny, en Játvarður I. (1272—1307) lét slá þá úr gulli; úr kopar voru þeir fyrst slegnir 1797, og árið 1860 var farið að hafa þá úr „bronze“. NÝ BÓKSÖLU-AÐFERÐ. Bóksali í Ame- riku hefir tekið upp þá bóksölu-aðferð, að hann selur fyrst bókina fyrir hið ákveðna bókhlöðu- verð, en kaupandi á rétt á, að skila bókinni aptur fyrir helming verðs, þegar hann hefir lesið hana; aptur selur svo bóksalinn bókina fyrir nokkru minna, en hið upprunalega vei'ð, og kaupandinn skilar henni svo aptur, eí hon- um svo sýnist, fyrir helming verðs; og þannig gengur sala þessi koll af kolli, svo að bóksal- inn fær að lokum margfalt verð fyrir sum ein- tökin. Prof. R. E. GARNER hefir um liríð hafst við suður í Afriku, og lagt þar stund á apa- mál; hólt fiann ný skeð fyrirlestur um ferð sína í Englandi, og fullyrti þar, að aparnir hefðu sórstakt mál, og gætu spjallað hver við annan. EPTIR AFTÖKU Vaillants, sem sprengi- vélinni kastaði inn í þingsal Frakka, sendu „anarkistar11 í Lundúnum skjal til Carnot for- seta; var það stýlað til „morðingjans Carnot11, og endaði með þessum orðum: „Þú hefir tekið höfuð Vaillant’s. og við skulum taka höfuð þitt í staðinn“. Slysfarir syöi':i. 7. apríl þ. á. varð skiptapi frá Eyrarbakka, og drukkn- uðu þrír inenn, allir kvæntir; Þórarinn Arnbjarnarson á Selfossi, Oddgeir Vigfús- son (sýslumanns heitins Thorarensens) á Hæli og Sigurður Arnason á Mörk. 11. s. m. varð annar bátstapi frá Eyr- arbakka, og drukknuðu þar tveir menn: Pátl Andrísson í Nýjabæ, hálf-bróðir sira Magnúsar Andréssonar á Gilsbakka, og annar maður, Ásgrímur að nafni. Sliipf6tx*öxiíl- 7. apríl þ. á. strand- aði i Garðinum skipið „Franciske“, fermt salti til „kaupfélags Rosmhvalaneshrepps“; mönnum varð bjargað. Frétzt hefir og, að skipið „Palmen“, eign Leonh. Tang’s, hafi strandað í Stykk- ishólmi. Það hafði komið ineð vörur til Clausens verzlunar þar. Menn komust allir af, og farmi mest-óllum bjargað. Settriv prófastur. Síra Einar Jónsson í Kirkjubæ í Hróarstungu er sett- ur prófastur í Norður-Múlasýslu í stað síra Sig. Gunnarssonar, er í vor tekur við Helgafells-prestakalli. IIv rerirnír „Geysir“ og „Strokk- ur“ eru nú seldir írskum manni, James Craig að nafni, og fylgja þar með hver- irnir „Blesi“ og „Litli Geysir“ ásamt 650 Q] fóðmum af landi; kaupverðið var 3000 kr. Settur héraðslælinir. Cand. med. Tómas HeJgason, sonur síra Helga heitins Hálfdánarsonar, er settur læknir í Snæfellsnessýslu í stað Hjartar heitins Jónssonar. Aðstoðarprestur. síra Þór- arinn prófastur Böðvarsson í Górðum, sem að vonum er tekinn að lýjast, hefir nú kjórið sér aðstoðarprest, cand. theol. Júlíus Þórðarson. AMð prestskosninguna, sem fram á að fara í Glaumbæjar-presta- kalli í Skagafirði, verða þessir i kjóri: síra Hállgr. Thorlacíus á Ríp, síra Jónas Jónasson á Hrafnagili og síra Tómas Björnsson á Barði. >I;niimlnt. Með strandferðaskipinu „Thyra“ frótt- ust ýms mannalát, er flest stafa af „in- fluenza“-veikinni, og skal hér getið nokk- urra hinna nafn-kenndustu, sem látizt hafa. 2. apríl andaðist H rmannms Elías Johnson á Velli i Rangárvallasýslu; hann var fæddur á ísafirði 17. des. 1825, og voru foreldrar hans Jón verzlunarstjóri Jónsson (fl827) og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir, sein síðar giptist Ámunda bónda Halldórssyni á Kirkjubóli. Her- inannius heitinn var sýsluinaður Rang- vellinga frá 1861, unz hann 1890 fekk lausn frá embætti. 5. apríl andaðist í Borgarnesi kona Helga verzlunarstj. Jónssonar, Rristín að nafni, dóttir Eggerts stúd. Waage í Reykjavík. Páll gullsmiður Egjólfsson, sem lengi var veitingamaður á Geysi í Rvík, and- aðist að Skálholti í Biskupstungum 30.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.