Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.01.1895, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.01.1895, Blaðsíða 4
44 Þjóbviljinn tjngi. IV, 11. Bjarnason, og var vinnurnaður á Holta- stöðuin. I síðastl. des. drukknaði unglingspilt- ur í Lagarfljóti; hann var frá Hóli i Út- héraði. Maður drukknaði og ný skeð í Hofs- vatni í Fljótum í Skagafjarðarsýslu, fór ofan um ís. ---*»-=®SS3SS>-«>«- ý 31. okt. f. á. andaðist Jóhann bóndi Jónsson á Höllustöðum í Reykhólasveit, eptir 17 daga legu i lungnabólgu. Hann var fæddur á Spena í Miðfirði 1833, og ólst upp hjá móðurbróður sínum Magnúsi sál. Magnússyni, er lengi bjó rausnarbúi á Óspakseyri í Bitru. A j óladaginn 1858 gekk hann að eiga ungfrú Onnu Gitð- mundsdóttur frá Bjarneyjum, er nú lifir mann sinn; varð þeim hjónum 5 barna auðið, og dóu 2 þeirra í æsku, en 3 eru upp komin, öll mannvænleg; Magnús búfræðingur, Sigurður söðlasmiður og Kristrún. Þau hjón voru fyrst 4 ár fyrir norð- an, eitt ár við bú á Óspakseyri, en hin árin búlaus; en eptir það bjuggu þau jafnan i Reykhólasveitinni, fyrst á Tind- um í 2 ár, á Kambi i 6 ár, og síðan 1871 á Höllustöðum; byrjuðu þau hjón búskap blásnauð, en með dugnaði og fyrirhyggju tókst þeim að komast undir all-góð efni. Jóhann heitinn var að mörgu merkis- maður, greindur vel, búhöldur góður, gestrisinn og greiðvikinn; og harða vet- urinn 1881, var hann einn af helztu bjargvættum sveitar sinnar, bæði með hey og matbjörg; hann bætti og mjög ábýlisjörð sína, svo að fáir leiguliðar munu hafa gjört honum fremur í þeirri grein; í hreppsnefnd sat hann og eitt kjörtímabil, en var að öðrn leyti eigi við opinber störf riðinn. Þ. Þ. ísafirði 22. jan. ’95. l’íðarfar. Síðasta yiku-tíma hafa optast verið stillur og hreinviðri, en frost nokkurt, stundum allt að 10 gr. á Reaumur. A gset iiflal) riigð hafa verið í flestum verstöð- unum hér við Djúpið alla síðustu vikuna, enda sjógæftir daglega, svo að mikill afli hefir borizt á land, og Djúpið sagt fullt af flski inn fyrir Ögurhólma, og er það þó sjaldgæft um þennan tíma krs. Sild hafa og Ögurnesingar o. fl. aflað til muna i lagnet, og jafnan verið mokfiski k hana, og stundum verið tví-róið á dag; hér við Djúpið mk því heita mesta árgæzka, að því er afla snertir. ý 3. þ. m. andaðist Sigríður Hannes- dóttir, kona Kristjáns bónda Jónssonar á Kollsá í Grunnavikurhreppi, hátt á sjötugs aldri; hún var dóttir síra Hannesar heitins Arnórssonar Grunnvíkinga prests, góð kona og mikils metin af þeim, er hana þekktu. Slys. í Unaðsdal á Snæfjallaströnd vildi það slys til fyrir skömmu, að 4 ára gamall drengur datt ofan í pott með sjóðandi vatni, og skaðbrenndist á baki og holi, svo að tvísýni var talin um líf barnsins, er síðast fréttist. Kaupfálags-fundur. Það auglýsist hór með, að áðal-fundur „kaupfélags Isfirðingau verður haldinn á Isafirði laugardaginn 2. febr. næstk. (á kyndilmessu), eða næsta virkan dag að færu veðri, og liefst kl. 11 f. h. heyrandi er til sölu hja undirrituðum fýrir mjög lágt verð. ísafirði 18. jan. 1895. S. S. Alexíusson. Fjármark Kristins Guðlaugssonar á Meira-Garði er: sneitt a. h. fjöður fr., sýlt v. fjöður a. Brennim. Kr. G. J"eg undirskrifaður geri við úr og klukk- ur, og tek vægari borgun, en venja hefir verið hér á Isafirði að undan förnu. A ftmdi þessum verður, meðal ann- ars, rætt um vörupantanir og fiskloforð kaupfélagsmanna fyrir yfirstandandi ár, og er einkar áríðandi, að allir deildar- fiilltrúar sæki fundinn. ísafirði 2. jan. 1895. Skúli Thoroddsen, p. t. kaupfélagsstjóri. Magnús Jónsson, cand. jur., innheimtir skuldir, flytur mál, og gefur lögfræðislegar leiðbeiningar. Heima frá 12—2 og 5—7 e. m. Verkstofa mín er á „Hotel Isafjord“ hér í kaupstaðnum. ísafirði 21. jan. 1895. Sigurður A. Kristjánsson. Jörð til ábúðar. Frá næstk. fardögum fást til ábúðar 11 hundr. f. m. í jörðinni Tungu i Firði í Önundarfirði. Semja má við B. R. Kristjánsson á ísafirði. PRENTSMIÐJA WÓDVILJAN.S UNGA. Adr.: Bankastræti nr. 9, Keykjavik. . «4-- ©9ooa©o®sr3?®cs®í?a®o0®©o®oe©©D©©o»®©®»soe®to®e®s®®e«®®«®« § ! | N o v m a 1 - k a, f f i frá verksmið|unni „Körrej j lland“ J cr, að áliti allra þeirra, sein reynt hafa, liið | bezta kaifi í sinni röð. § IVonnal-kaffl er bragðgott, hollt og nærandi. 5 IVormal-liafil er dnjgra, en venjulegt kaffi. O TVoimml-kafjli er að öllu leyti eins gott, eins og hið dýra, 2 brennda kaffi. Eitt pund af Normal-kaffi # endist á móti l’/o pd. af brenndu kaffi. S IVor*mal-lcaflfi fæst í ftestum búðum. * Einka-útsölu hefir: Í Thor. E. Tulinius, H Strandgade, Xo. 12, J Kjobenhavn, C. • TVT Selur nð eins kaupmönniun! OO———————— i i Sköiten „Lydiana“ 20 tons með til-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.