Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.03.1896, Side 3
Þjóðviljinn ungi.
79
V, 20.
ýmsra helztu kauptúna landsins, til þess að gera
hlindum og sjóndöprum hægra fyrir, að sækja
hann að ráðum, og veitti alþingi fé nokkurt 1
þessu skyni.
Ferðalagi þessu hefir nú hr Björn Ölalsson
átormað að haga þannig, að hann fer af stað úr
Rvik með „Vestu“ 30. apríl næstk., og dvelur
hér á ísafirði, unz „Laura“ fer héðan suður 7.,
maí; og i arlnan stað fer hann með „Vestu“ 11.
júni suður um land til Seyðisfjarðar, og þaðan
aptur með „Botníu“ 27. júní.
Fisklskip strandar. Fiskiskútan „Sturla“,
eign Sturlu kaupmanns Jónssonar í Reykjavík,
rakst á sker fram undan Alptanesi, og varð að
strandi. Skipið var keypt i Englandi i fyrra
fyrir 12 þús. krónur, en var nú í sjó-ábyrgð
fýrir 9 þús. krónur.
Sýslufundur Isíirðinga.
Eins og getið var um í siðasta nr.
blaðs vors hélt sýslunefndin i Isafjarðar-
sýslu aðal-fund sinn hér í kaupstaðnum
5.—7. þ. m., og voru þessi helztu mál-
in, er nefndin hafði til meðferðar:
I. Sveitaverzlun. Ekki voru það færri
en ti umsóknarbréf um sveitaverzlunar-
leyfi, sem sýslunefndinni bárust að þessu
sinni, og synjaði nefndin þeim öllum*,
með þvi að hún mun hafa litið svo á,
að sveitaverzlanir þessar myndu flestar,
'—ef þær kæmust á fót—, að eins verða
eins konar útibú kaupmanna, auka blaut-
fiskssölu, og annað ráðleysi ýmsra hér-
aðsbúa í verzlunarsökunum, sem naumast
þykir þó bætandi á.
II. Pbstferðir. Sýslunefndin taldi
æskilegt, að á póstferðunum hér innan
’sýslu væru gjörðar þessar breytingar:
að aukapóstur sé látinn ganga frá
Hesteyri að Höfn við Horn, eptir
komu aukapóstsins frá ísafirði til Hest-
eyrar, :
að aukapóstur sá, er nú gengur frá
Arngerðareyri að Melgraseyri, verði
látinn ganga alla leið að Snæfjöllum,
að aukapóstur sé látinn ganga frá Þing-
eyri að Hrauni í Keldudal, eptir komu
ankapóstsins frá Isafirði að Þingeyri,
uð aukapóstur sé látinn ganga frá
Holti ytír Valþjófsdal, út á Ingjalds-
sand, eptir komn aukapóstsins frá Ísa-
firði að Holti, og
að aukapósturinn frá ísafirði að Botni
i Súgandafirði só látinn ganga að Botni
í hvert skipti, eptir kouiu aðalpóstsins
tjl ísafjarðar.
III. Fiskiveiðamál. Út af tillögum,
'f!r sýslunefndinni bárust, um ýmsar breyt-
*) TJmsækenduvnir voru; Jón bóndi Ein-
arsson á Garðstöúum, hreppstjóri G. A. Eiríks-
Hon á borfinnsstöðUui, Hálfdán bóndi Örnólfsson
j Meirihlið, Guðm. bóndi Rósinkarsson i Æðey,
Guðm. H. Finnbjörnsson, bóndi k Sæbóli, og
búsmaður Betúel Betúelsson í Höfn.
ingar á fiskiveiðasamþykkt þeirri, er nú
gildir i norður-hluta Isafjarðarsýslu, á-
lyktaði sýslunefndin, að skipa 5 manna
nefnd, til þess að ihuga, hvaða breyting-
ar á sainþykktinni kynnu að vera æski-
legar, og skyldi nefnd þessi hafa lokið
því starfi sínu fyrir næsta aðal-fund sýslu-
nefndarinnar. I nefnd þessa voru kosn-
ir: Sig. Stefánsson, Árni Sveinsson,
Guðm. Sveinsson i Hnifsdal, Jón Guð-
mundsson í Eyrardal og Guðm. Rósin-
karsson í Æðey*.
Nokkrir menn i Dýrafirði og í Önund-
arfirði liöfðu og óskað, að gjörð væri
samþykkt um fiskiveiðar á opnum bát-
um þar vestra, en sýslunefndin áleit rétt,
að mál það biði, unz sýsluskiptingin er
komin i kring.
IV. I stjórn „styrktarsjóðs handa
ekkjum og börnum Isfirðinga, er i sjó
drukkna11, vóru endurkosnir: A. {3yeins-
son, Sig. Stefánsson og Skúli Thoroddsen.
V. Skip un lœknah <raðanna. Am tin að-
ur hafði með bréfi 2. jan. þ. á, leitað
álits sýslunefndarinnar urn breytingar á
lækna-skipuninni, og samþykkt.i því sýslu-
nefndin að lýsa því yfir, að henni gæti
ekki hugkvæmzt, að neinar breytingar
á rmverandi skipun lækna-héraðanna hér
í sýslu gæti verið til bóta, nema því að
eins, að fjölgað sé læknuin; en til þess
að læknaskipunin í sýslunni verði svo,
að vel megi við una, þá sé rétt, að skipta
sýslunni i 5 lækna-héruð þannig:
Fyrsta héraðið nái yfir Auðkúlu-,
Þingeyrar- og Mýra-hreppa, með bústað
á Þingeyri.
Annað héraðið nái yfir Mosvalla- og
Suðureyrar-hreppa, með bústað á Flateyri.
Þriðja héraðið nái yfir ísafjarðarkaup-
stað, Eyrar-, Hóls- og Súðavikur-hreppa,
með bústað á Isafirði.
Fjórða héraðið nái yfir Ögur-, Nauteyr-
ár-, Reykjarfjarðar- og Snæfjalla-hreppa,
með bústað utarlega á Langadalsströnd.
Fimmta héraðið nái yfir Grunnavikur-
og Sléttu-hreppa, með bústað á Hesteyri.
VI. Ishús. Hnifsdælingar sóttu um
styrk.úr sýslusjóði til íshúss-byggingar,
en sýslunefndin áleit, að auðvelt. hlyti
að vera, að fá nægilegt, fé til jafn þarf-
legs og ábatavænlegs fyrirtækis á annan
hátt, og synjaði þvi um styrkinn.
VII. Styrkur til lindindis. Bindind-
isfélagið „Dagsbrún14 á Isafirði liafði sótt
ura 400 kr. styrk úr sýslusjóði til bygg-
ingar fundarhúss, og veitti sýslunefndin
félaginu 50 kr. í þessu skyni.
VIII. Gufuhátsferðir um lsafjarðar-
*) Æskilegt væri, aó nefnd þessi lyki störf-
utn sínum sem allra fyrst, svo að mönnum
gæfist kostur á, að ihuga tillögur hennar som
rækilegast, og það því fremur sem margir munu
nú þegar gefa nefndinni töluvert liornauga
Ritstj.
djúp. Á sýslufundinum kom fram tillaga
um það, að reyna að fá gufubátsferðir
um ísafjarðardjúp, ef gufubátsferðir í
Vestfirðinga fjórðungi ekki kæmust á í
ár, og samþykkti sýslunefndin í því skyni:
1. að sýslunefndin kjósi 3 menn með ó-
takmörkuðu umboði til þess, ef ekki
verður af hinum fyrirhuguðu amts-
gufubátsferðum þetta ár, að seraja við
kaupmann Arna JónSson um ferðir,
fárgjöld og flutningseyri, og annað er
að gufubátsferðum um Djúpið lýtur.
2. að sýslunefndin veiti Arna Jónssyni
800 kr. úr sýslusjóði yfirstandandi ár,
ef samningar komast á um ferðir þessar.
3. að sýslunefndin fari þess á leit, að fá
svo mikinn styrk, sem unnt er, af fé
því, sem á nú gildandi fjárlögum er
veitt til gufubátsferða í Vestfirðinga
fjórðungi, til þessara ferða um Djiipið,
og skal allur sá styrkur, er væntan-
lega fæst úr landssjóðnum, ganga til
Árna Jónssonar með sömu skilyrðum,
eins og áður er greint.
í nefnd þá, er getur um undir 1.
tölul. kaus sýslunefndin síðan: Guðm.
Sveinsson, Sig. Stefánsson og Sig. Briem.
IX. Jiefareiðar. Ut af þar að lútandi
fyrirspurn Amtmanns, lýsti sýslunefndin
því yfir, að lienni ekki gætu hugkvæmzt
neinar heppilegri ráðstafanir, eða aðferð,
til eyðingar refum í ísafjarðarsýslu, en
refaveiðareglugjörð sýslunnar til tekur.
X. Enyinn fjárkláði. Út af fyrir-
spurn Amtmanns i bréfi 28. jan. þ. á.,
Viðvíkjandi þvi, hvaða ráðstafanir sýslu-
nefndin áliti, að gera þyrfti gegn fjár-
kláða, lét sýslunefndin það álit í ljósi,
að bezt væri að spara sér allar slíkar
ráðstafanir, með þvi að fjárkláði muni
ekki eiga sér stað hér í sýslu.
XI. Styrlmr til dyralœknis. Sarn-
kvæmt beiðni frá Hólmyeiri Jenssyni frá
Tiingu í Önundarfirði, sem dvalið hefir
i Noregi í vetur, til þess að kynna sér
dýralækningar, samþykkti sýslunefndin
að veita honutn 100 kr. styrk úr sýslu-
sjóði til framhalds námi.
XII. Ný yfirsetukrenna lu'ruð. Sam-
þykkt var að skipta Grunnavíkurhreppi
í 2 yfirsetukvenna héruð, og ráði Skorar-
heiði takmörkunum. — Nýtt yfirsetu-
hérað skal og stofnað vestra, er nái yfir
Ingjaldssand í Mýrahreppi, Mosdal og
Valþjófsdal i Mosvallahreppi.
XIII. Veyabœtur. Til vegabóta veitti
sýslunefndin alls 2350 kr., og eiga 850
kr. af þeirri upphæð að ganga til sýslu-
vegariris á Breiðadalsheiði, 200 kr. til
Rafnseyrarheiðar og 150 kr. til Gemlu-
fallsheiðar, en hitt er biitað niður milli
hreppanna, samkvæmt „hreppa-politík-
inni“ gömlu, að hver hreppur vill endi-
lega reyna, að krækja sér í eitthvað.
XIV. Aloyurnar vaxa. í fyrra var
jafnað niður til sýsluþarfa 1508 kr. 38 a.,
en í ár verður niðurjöfnunar-gjaldið 2529
kr. 40 a., eða 40 aurar á hundraðið.