Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 04.12.1897, Síða 2
42
Þjóðviljinn ungi.
„0!“ svaraði hann, og yppti öxlum „eittlivað
fjarska lítilfjörlegt, sem yður myndi aldrei detta
í hug, að geta upp á; það er um notkun vatns-
gufunnar". Jeg fór að hiœgja, og hélt þá leið-
sögumaður okkar áfram: „Þessi maður heitir
Salomnn de Caus, og kom hingað frá Normandiin
fyrir 4 árum, til þess að sýna kónginum þessa
uppfundningu sina, en kardínálinn visaði þessum
vitlausa manni burtu, án þess hann fengi áheyrn.
— En Salomon þessi lét nú ekki hugfallast
fyrir það, heldur elti hann kardínálann á rönd-
um, svo að hann varð loksins svo dauðþreyttur
á vitleysunni úr honum, að liann lét setja liann
á Bicótre, og þar hefír hann nii setið í 3 '/2 ár“.
— Worcester lávarði var fylgt til klefa hans, og
kom hann þaðan aptur mjög hugsandi, og sagði:
„Vissulega er hann vitskertur nú; ógœfan og
fangaklefinn hafa breytt skynsemi hans; en
fyrir það hvílir áhyrgðin á yðar þjóð, því að
þegar þér settuð þenna mann í klefann, hafíð
þér svipt mesta hugvitsmann aldarinnar frelsi
sinu“.
Arið 1663, eða 22 árum eptir að þetta gjörð-
ist, lýsir Worcester lávarður í riti sínu „Century
of Inventions" (Uppfundninga-öldin) guíuvél,
sem hann sjálfur hafði fundið upp.
Arið 1681 kom uppfundning Papin’s til sög-
unnar, og gufuvél Savery’s var gjörð árið 1098;
og loks var það árið 1712, sem Thornas Newcomen
hjó til gufuvél sina, sem notuð var í meira en
öld, og frá þvi ári reikna menn upphaf gufu-
aldarinnar.
Gull úr' silfri. Maður einn í New York, dr.
Stephan H. Emmens, hefír ný skeð fundið upp
aðferð til þess, að búa til gull úr silfri; en sá
er ókosturinn á, að aðferð þessi er sögð svo
kostnaðarsöm, að uppfundning þessi geti ekki
orðið að liði.
Grafnir lifandi. í Ternowsky í héraðinu
Tíraspol í landareign Rússa hefir myndazt trú-
flokkur einn, er telur það guði þóknaniegt, að
leggja á sig ýmis konar pínslir og kvalir, og
hafa nokkrir safnaðarmeðlimirnir meðal annars
fundið upp á því, að láta múra sig inn í veggi,
eða grafa sig lifandi. — Rússneska stjórnin hefir
nú skorizt í málið, og er mælt, að 30—40 manns
hafi fyrirfarið sér á þenna hátt.
„Níhilistar“ hafa þeir þingmenn vorir einu
nafni verið nefndir, sem öndverðir risu gegn
stjórnarskrárumhótunum 4 síðasta þingi. — Orð-
ið „níhilisti" er dregið af latneska orðinu „nihil“,
sem þýðir „ekkert“, og felst því í „níhilista“-
nafninu sú politiska stefna þessara þingmanna,
að þeir vilja í raun og veru engar stjórnarskrár-
hreytingar hafa.
A Rússlandi hefir „níhilista“-nafnið, sem
kunnugt er, verið haft í allt annari merkingu,
um mjög svæsinn byltingaflokk, og hafa þeir
flokksbræður á íslenzku máli stundum verið
kallaðar „gjöreyðendur11, og er þó sú þýðing
mjög óheppileg.
En í þessari rússnesku merkingu hefir auð-
vitað engum komið til hugar, að kalla isl. þing-
mennina „níhilista", heldur að eins í ofan
greindri merkingu.
------------
ísafirði 4. dec. ’97.
Tíðarfar einkar óstöðugt og veðrasamt,
ýmist norðangarður eða suðvestan ofsaveður.
Sjálfsmorð 25. f. m. hengdi sig maður -í
fjárliúsi í Minnihlíð i Bolungarvík. — Mað-
ur þessi liét Magnús Jónsson, tæpra 19 ára að
aldri, og var ijármaður hjáBjarna bóndaMagn-
ússyni i Minnihlið.
Strákapör og óknjttir. Hér i kaupstaðnum
hefir i vetur mjög verið kvartað undan ýmis
konar óknyttum og gi-ipdeildum, sem framið
er á næturþeli, og er vonandi, að lögreglú-
stjórninni takist sem fyrst að komast fyrir,
hverjir að þessu eru valdir, svo að kaupstaður-
inn verði friðaður fyrir þeim óþjóðalýð.
Skipafregnir. Gufuskipið „Pervie“, skip-
stjóri E. Rasmussen, lagði af stað héðan til
útlanda 30. f. m., fermt fiski frá verzlun Á
Ásgeirssonar.
Sáma dag sigldi héðan seglskipið „Asta“,
skipstjóri Petersen, með fisk frá Leonh. Tang’s
verzlun, consul H. S. Bjarnarson o. fl.
Kvefþyngsli mikil ganga hér vestra um
þessar mundir, og stafa að líkindum af hinum
sífelldu ofsaveðrum og umhleypingum.
Hitt og þetta.
Nýlega var maður tekinn fastur í Chicago
fyrir fjölkvæni; hann átti 6 konur, og hafði 6
heimili, með þvi að engin konan vissi afhinni.
— Þégar hann var tekinn fastur, komst það og
upp, að hann stóð i bréfaskiptum við ýmsar
ungar stúlkur, sem hann ætlaði sór að eiga.
Pjölkvænismann þenna hefir nú annar mað-
ur fengið lausan úr varðhaldi um stund, gegn
all-mikilli ijáráhyrgð, og ferðast með hann, og
sýnir hann í ýmsum stórborgum Ameríku, og
græðir á því stórfé.
Uppboðsauglýsing.
Föstudaginn þann 17. dec. kl. 11. £
h. verður að ísafirði haldið opinbert upp-
boð á ýinsum búðar- og pakkhús-varn-
ingi, svo sem 2—300 tn. af ýmislegri
matvöru, caffi, sykur, vínföng, tóbak,
smjör, fiskilinur og aunglar, og margt ann-
að íleira. Langur gjaldfrestur, liklega
til næstu kauptíðar, gegn borgun í pen-
ingum, fiski þurrum, ull og dún, sem og
innskrift, hjá kaupmönnum, er innköll-
unarmaður tekur gilda.
Isafirði 30. nóvemb. 1897.
II- S. Bjarnarson.
Fyrir fólkið!
Hefir Leó Eyjólfsson á ísafirði til nægar
byrgðir af öllu, er tilheyrir reiðskap; einn-
ig eru til sjóskór, enn þá ódýrari, en áður,
ljómandi falleg belti fyrir karlmenn og
kvennmenn, o. fl.
Enn fremur tek jeg forn reiðtýgi til
VII, 11.
aðgjörðar, sem æskilegt væri, að kæmu
sem fyrst, áður en verkefnin þrjóta.
Hús til sö!u á ísafirði.
Hús, sem er á stærð 101/., X 9J/2 al.,
nýtt og vel vandað að öllum frágangi,
með góðri lóð, fæst keypt — Gróðir borg-
unarskilmálar. — Lysthafendur snúi sér
til Trausta Vigfússonar- snikkara á Isafirði.
Skiptafundur.
Mánudaginn 20. desemberm. næstkom-
andi verður haldinn skiptafundur í dán-
arbúi Jónasar sál. Jónssonar frá 8vansvík
á skrifstofu sýslunnar, og verða skipti
þá væntanlega til lykta leidd. Fundur-
inn hofst kl. 11 f. h.
Sýslumaðurinn i ísafjarðarsýslu, so/u 1897.
H. Hafstein.
Skiptafundur.
Mánudaginn 20. desbr. næstkomandi
kl. 5 e. h. verður á skrifstofu sýslunnar
haldinn skiptafundur í dánarbúi Sigur-
borgar Jónsdóttur frá Mölum í Bolung-
arvík, er andaðist 17. júlí þ. á., ogverða
þá skipti væntanlega til lykta leidd.
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, 30. nóv. 1897.
H. Hafstein.
Skiptafundur.
Þriðjudaginn 21. desbr. næstkomandi
kl. 11 f. h. verður á skrifstofu bæjarfóget-
ans á Isafirði haldinn skiptafundur í
þrotabúi Óla F. Asmundssonar, og verður
þá eptir 37. gr. skiptalaganna framlögð
skrá yfir skuldir þær, sem sagt hefir verið
til, og, að svo miklu leyti sein hægt er,
yfirlit yfir fjárhag búsins.
Bæjarfógetinn á ísafirði 30. nóv. 1897.
H. Hafs t ein.
Skiptafundur.
Þriðjudaginn 21. desbr. næstkomandi
verður kl. 5 e. h. haldinn á skrifstofu
sýslunnar skiptafundur í dánar- og þrota-
búi Pálma Arnasonar frá Bæjum í Snæ-
fjallahreppi, og verða skipti þá væntan-
lega til lykta leidd.
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu, 30. nóv. 1897.
H. Hafstein.
Fiixoste sltnxi cliiinwislt
Export Kaífe Surrogat
er hinn ágætasti og ódýrasti kaffibætir,
sem nú er í verzlaninni. Fæst hjá kaup-
mönnum á Islandi.
F. Hjortli & (’o. Kaupmannahöfn.