Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.04.1898, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.04.1898, Síða 1
Verð árgangsins (minnst 48 arka) 3 kr.; erlendis 4 lcr., og í Ameríku doll.: 1,20. Borgistfyrirjúní- luánaðarlok. ÞJÓÐVILJINN UNGrl. -..=[- SjÖUNDI ÁS8AN8US. -- --i—RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =|te<6g-!-- ísAFIKÐI, 29. APRÍL. Vppsögn skrifleg, ó- gild nema komin sé til útgefanda fyrir 30. dag júnímánaðar. 18 9 8. Yildi glíma, en gat ekki. I 16. tölublaði „ísafoldaru ritar ein- liver Guðm. Bergsson greinarstrif, og kveður aðaltilgang hans vera að leiðrétta það, sem skakkt sé í grein minni um Feilberg og búnaðarskólana, er stóð i „Þjóðv. unga“ í vetur. En þessum aðal- tilgangi sinum nær maður þessi svo vel(!), að hann leiðréttir ekki eitt einasta atriði í grein minni. Það, sem höf. þykir eink- um að grein minni, er það, að hún sé hlutdræg gegn Ólafsdalsskólanum og for- stöðumanni hans. Til þess að sanna það, ver hann miklum liluta þessarar ritsmið- ar sinnar í orðréttar þýðingar á þeim köflum úr ritlingi Feilbergs, er honum þykja einna lofkenndastir um Ólafsdals- skólann og forstöðumann hans. En það vill svo óheppilega til fyrir höf., að grein mín, sem hann þykist vilja leiðrétta með þessum köflum, tekur einmitt fram sömu atriðin, sem þeir aðallega eru um, og sem Feilberg sérstaklega hrósar Ólafs- dalsskólanum og hr. Torfa Bjarnasyni fyrir. Þessi atriði eru jarðyrkjuverkfæra- smiðjan, bókasafnið, áburðargeymslan, skozku ljáirnir og hin praktiska land- búnaðarstarfsemi lierra Torfa. Grein min átti að eins að vera stutt ádrepa af rit- lingi Feilbergs, sérstaklega af áliti hans á búnaðarskólum vorum, og fyrir því gat ekki verið að tala um orðréttar þýð- ingar á neinuin kafla honnar, að undan- teknum niðurlagsatriðunum. En þessi ofan- greindu atriði tók jeg sérstaklega fram af því, að Ólafsdalsskólinn liafði þau fram yfir hina skólana. Þótt túnslóttur sóu meiri í Ólafsdal en á hinum skólunum, inunu fáir telja þeim skóla það til gildis i'ram yfir hina, þegar þess er gætt, að þessi stofnun or lang-elzt allra biinaðar- skóla hór á landi, og hefir lengst notið opinbers styrks. Þau ummæli höf., að jeg einna sizt láti þenna skóla og forstöðumann hans njóta sannmælis, eru því hrein og bein ósarmindi, eins og hver getur sóð, sem les grein mína, og nennir að bera hana saman við ritling Feilbergs. Þótt höf. ekki skilji ummæli Feilbergs um Hvanneyrarskólann, þá verður hann að haia það svo búið, að þar ’eru að áliti Feilbergs* vandaðastar byggingar, og sum önnur áhöld, sem ekki eru við hina skól- ana, og allt sórlega vel um gengið, en hvorki Feilberg nó mér gat komið til hugar, að álasa Ólafsdalsskólanum í nokkru með þvi, að minnast á þetta. Hann er og getur verið jafn ágætur fyr- ir það. Þá þykir höf. það hvað á móti öðru, að jeg vilji fækka búnaðarskólunum, en auka þó hina verklegu búnaðarkennslu, og kveður ekki aðra eu skriptlærða munu skilja þá kenningu. En drýgindin. Það munu flestir skilja, að tveir búnaðarskól- ar, með sama eða enda ríflegri fjárstyrk en 4, geti betur fullnægt ætlunarverki sínu, en hinir núverandi 4 skólar, sem láta nemendur sina mikinn hluta hins stutta námstíma fást við allt önnur störf, en búfræðisnáminu tilheyra. Fækkunar- tillaga mín er ekki gerð í neinu sparn- aðarskyni, heldur til að reyna að tryggja landinu sem bezta búnaðarkennslu, bæði verklega og bóklega; og tveir búnaðar- skólar vel úr garði gerðir geta fullnægt þörfum vorum, hvort sem litið er á fólksfjölda, landsháttu, búnaðarháttu eða samgöngur. Þetta hefir enginn hrakið, allra sízt þessi piltur. Hann virðist ekki gota komið því inn í höfuðið á sór, að fáir duglegir búnaðarskólar geti gert meira gagn, en margir, þar sem flest or af vanefnum, og kennsla bæði verklog og bókleg tómt kák og tildur. Yór þurfum ekki 4 búnaðarskóla til að kenna bændaefnum vorum að taka upp mó, fara lestaferðir og sjóferðir, slá og raka, og gjöra önnur þau verk, sem lærð verða á liverju heimili; en vór þurfum búnaðarskóla, sem nota hinn stutta sumartíma meira til verklegrar jarðyrkju, og praktiskrar búfræði, en hingað til hefir tíðkast á búnaðarskólum vorum. Landbúnaðurinn hefir litið gott af því, þótt reglugjörðir búnaðarskólanna telji svo og svo margar námsgreinir, ef þaðan koma margir, sem lítið kunna í því, sem talið er að kennt só á búnaðarskólunum, opt af því að svo miklu af námstímanum hefir verið varið til annarlegra starfa. Það er ekki gott að sjá hvar höfúnd- urinn les út úr grein minni rangsleitni og getsakir við búnaðarskólastjóra vora. Þótt hann gangi út frá því sem gefnu, sem nú ekki er, að jeg beini því helzt að búnaðarskólastjórum vorum, að þeir hafi haft áhrif á skoðanir hr. Feilbergs á fækkun búnaðarskólanna, þá var það siður en svo, að þeim væri með því gerð nokkur óvirðing. Hver, sem skoðun þeirra er á þessu atriði, var ekki nema rétt og sjálfsagt af þeim, að reyna að fá jafn merkan mann og hr. Feilberg á hana. Það er hverjum manni skylt að afla sér fylgis með hverju því, sem hann telur rótt og gott. Allt hjal höf. um rang- sleitni mína gegn búnaðarskólastjóruin vorum ber því ekki vott um annað, en stakan skilningsskort á því, sem hann ritar um. — Jeg þakka höf. fyrir tilsögnina i dönsk- unni, jeg læri af honum það, sem jeg hefi ekki heyrt fyrri, að orðið „fáeinir11 só „fornafnu(!). En leiðrótting hans er ekki eyris virði, þvi að frásögn hr. Feilbergs um strandferðirnar verður álíka rétt, hvernig sem höf. vill þýða orðin „et par maanederu, þegar þess er gætt, að strand- ferðir voru einmitt það árið sem Feilberg ferðaðist hér, frá þvi í marz og þangað til í nóvember, eða um 9 mánuði. Sé rótt að kalla það „et par maanederu af árinu, þá má lika kalla alla 12 mánuði ársins því nafni. Samning kennslubóka í búfræði telur höf. því nær ókleyft verk fyrir búnaðar- skólastjórana, slíkt verði að gjörast af þeiin, sem eingöngu geti gefið sig við því starfi. Hingað til liefir það nú verið talið svo sem sjálfsagt í hverju landi, að skólakennslubækur væru samdar af skóla- kennurum, enda mun svo vera um allan fjöldan af slíkum bókum, að þær eiga

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.