Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.03.1899, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.03.1899, Side 1
V«rð árgangsins (minnst 60 arha) 3 hr. 50 aur.; erltndis 4 hr 50 aur.,og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJÓÐVILJINN UNGI. — 1 ■ 1 '1 ÁTTUNDI ÁB8AN GMJB. «—RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. —* Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dagjúní- mánaöar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 27. ÍSAITHBI, 29. MARZ 18 9 9. trtiönci. Til viðbótar útlendu fréttunum í síð- asta nr. blaðs þessa má geta þessara helztu tíðinda: Bandamenn bafa enn eigi kvatt her- lið sitt heim frá Cnha, og líkar eyjar- skeggjum það ílla, svo að sumar sagnir spá því, að eyjarskeggjar muni grípa til vopna, þegar vora tekur, og freista að reka herlið Bandamanna af höndum sér. Á Filippseyjum hefur Bandamönnum og enn eigi tekizt að koma á friði, og hafa bardagar staðið öðru hvoru í Manila, og þar í grenndinni, ruilli Bandamanna °g eyjarskeggja, sem ekki vilja þýðast nein yfirráð Bandamanna, heldur vinna ættjörðu sinni fullt frelsi. Nýlega skutu Bandamenn á borgina Ouadeloupe þar í eyjunum, bæði á sjó og landi, og biðu eyjarskeggjar þar lægri hluta; en í sumum orustum hefur þeim þó veitt heldur betur. Annars mælast þessar aðfarir Banda- manna mjög misjafnlega fyrir, þar sem þeir hófu ófriðinn gegn Spánverjum i nafni frelsis og réttlætis, en reyna nú að nota sigurinn, til þess að bæla undir sig lönd og þjóðir. I Bandaríkjunum sjálfum heyrast og ýmsar raddir, er mæla fastlega gegn þess- ari nýju stefnu í utanríkispolitík Banda- manna, er Mac Kinley forseti hefur hafið; en svo er að sjá, sem meiri hluti þjóðar- innar hafi þó orðið svo heillaður af sig- urvinningunum og hernaðarfrægðinni, að Bandamenn muni nú drjúgum auka her- skipastol sinn, og fjölga herliðinu svo, að þeir á friðartímum hafi 100 þús. manna undir vopnum.--------- Skipting Kínaveldis. Það er nú naum- ast nema tímaspurning, hvenær Kínaveldi verður tekið til skipta af stórveldunum, og stendur varla á öðru, en að þau komi sér saman um skiptin. — Blaðið „Times“ telur Kínaríki vera að fara í mola fyrir augum manna, og hvetur mjög til þess, að undinn sé sem bráðastur bugur að skiptunum. — Ný skeð hafa og ítalir krafizt þess af Kínverjastjórn, að fá heim- ild til þess, að hafa kolabirgðir og flota- herstöðvar við Sammun-fióa, fá full um- ráð þriggja eyja þar í flóanum, umráð yfir meginhluta héraðsins Chékíang, rétt til að leggja járnbraut frá flóanum upp að Poyany-stöðuvatninu o. fl., og hai’a Kínverjar að vísu tekið því all-þunglega 1 fyrstu, en munu þó eigi þora að synja, enda hafa nú Italir sent herskip nokkur þangað austur, til þess að herða á kröfum smum, og er mælt, að þeir hafi áður tryggt sér samþykki stórveldanna til þessara tiltekta sinna.---— - A Spáni hafa menn á hverri stundu vænt uppreisnar af hálfu Karlunga, er telja Don Carlos rétt borinn til konungs- tignar þar i landi, og hefur kvisazt, að Jaime, sonur Don Carlos’ hafi sézt þar i dularklæðum i ýmsum borgum; en allt gekk þar þó friðsamlega, er siðast fréttist. — Spánverjar hafa nú flutt likkistu Columbusar frá Havana til Sevilla, og eiga jarðneskar leifar hans nú að hvila þar úr þessu. — Toral hershöfðingja, er síð- astl. sumar íramseldi borgina Santiago i hendur Bandamönnum, hafa Spánverjar sett i varðhald, og ætla að höfða gegn honum sakamál fyrir landráð.------------- Á Frakklandi hafa spunnizt ýmsar sögur, út af dauða Felix Faure’s forseta, er sumir vilja eigna Dreyfusféndum, og telja það með likum, að læknis var ekki vitjað, fyr en kl. 8, enda þótt forsetinn sýktist kl. 6. — Sögur þessar eru þó að líkindum á litlum rökum byggðar; en þó kvað lífsábyrgðarfélag það, er Faure hafði tryggt líf sitt hjá (fyrir 25 þús. franka) hafa krafizt opinberrar rannsóknar um dauða-orsökina. 100 þúsundir manna segja menn, að komið hafi, til þess að skoða lik Faure's, meðan hann lá á börunum. M. Fallieres heitir sá, er kosinn var forseti senatsins, er Louhet varð ríkis- forseti. Ranovólo drottning, er Frakkar ráku frá völdum á Madagascar, var ný skeð á ferð i Frakklandi, og hafa nú Frakkar boðið henni, að setjast að i Algier, og leigja þeir þar hús handa henni, og fóru- neyti hennar, fyrir 24 þús. franka á ári, og leggja henni árlega ærið fé til lífs- viðurværis. — — — í Svissaralandi er 24. febr. síðastl. látinn einn af merkustu mönnum þess lýðveldis, Weltí að nafni; hann var fædd- ur í bænum Zurzach í fylkinu Argau árið 1825, og var 6 sinnum forseti lýðveldis- ins, í fyrsta skipti 1869, en síðast 1891. Danir eru nú á ný farnir að hugsa um endurreisingu Kristjánsborgarhallar, er brann árið 1884, sem kunnugt er. — Áætlað er, að byggingin muni kosta um & rnilj. króna, og á þar þá að vera að- setur konungs, ríkisþingsins og hæzta- réttar. Verkföll eru nú farin að gjörast ærið tið í Kaupmannahöfn, og er svo að ráða af nýjustu dönskum blöðum, sem bók- bindarar, slátrarar, katlasmiðir, söðlasmið- ir o. fl. hafi hætt vinnu, eða séu í und- irbúningi til þess, og er tilefnið, sem vant er, óánægja með verklaunin. Kennslumálaráðherra Dana hefur í vetur lagt fyrir rikisþingið frumvarp um stækkun kgl. leikhússins, og er kostnað- urinn til þess áætlaður 1,750,000 kr. Landstjóri Prússa í Slésvík, KÓUer að nafhi, heldur enn fram uppteknum hætti, að visa ýmsum dönskum þegnum burt úr Slésvík, og sæmdi Vilhjálmur keisari hann ný skeð á afmælisdegi sínum stór- krossi arnarorðunnar, svo að sýnt þykir, að brottrekstur Dana sé gjörður að und- irlagi keisarans sjálfs. — Líkar Dönum þetta stór-ílla, sem von er.--------- Bretar hafa enn ekki lokið ófriði sín- um í Súdan, því að AbduUah kalífi, er undan komst i orustunni við Ohdurman, hefur á ný liðsafnað mikinn þar suður í landi, og kvað nú þegar hafa um 10 þúsundir vel vopnaðra hermanna. Bret- ar og Egyptar búa því lið sitt á ný, og er sízt fyrir að synja, að Abdidlah kunni enn um hrið að vefjast fyrir þeim. Á Indlandi eiga og Bretar enn í ó- friði við þjóðflokka nokkra, einkum í Kuram-dalnum; eyddu Bretar þar ný skeð 9 þorpum, tóku 100 fanga, og um 3 þús. stórgripi. Einum merkismanna sinna, HerscheU lávarði, áttu Bretar ný skeð á bak að sjá; hann var staddur i Washington, því að hann var formaður í nefnd þeirri, er skipa skyldi ágreiningi nokkurum milli Bandamanna og Ganadamanna; varð hann snögglega veikur að morgni 1. marz- mánaðar, og var örendur kl.stund síðar. — Sendu Bandamenn herskip með lík lians til Bretlands. 25. febr. síðastl. andaðist og í Lund- únaborg Reuter barón, 77 ára að aldri, fæddur 21. júlí 1821. — Hann stofnaði hraðskeytaskrifstofu þá, er við hann er kennd („Reuters Telegram bureau“), er snemma fékk það orð á sig, að hún flytti mjög fljótar og áreiðanlegar fregnir, enda höfðu flest helztu blöð heimsins viðskipti við þá skrifstofu, svo að íteuter græddi fé, svo að milj. skipti, á fróttaskeytum sínum. Sonur hans, Herhert de Reuter, hefur nú tekið við starfa föður síns. — Balfour ráðherra hefur ný skeð lagt það til á þingi Breta, að stofnaður verði kaþólskur háskóli í Duhlin, en mótmæl- enda háskólinn, sem nú er, fluttur til Belfast, og mælist þessi tillaga vel fyrir á Irlandi, þar sem meginþorri landsbúa er kaþólskrar trúar, nema íbúar í héruð- unum umhverfis Belfast. Veikindi páfans. I öndverðum marz- mán. var Leo páfi all-veikur, svo að margir töldu hann af, þar sem hann er háaldraður maður. — Voru kardínálarnir þegar farnir að stinga saman nefjum um það, hver verða skyldi eptirmaður hans, en þá fór karl að smáskriða saman, og

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.