Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.07.1899, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.07.1899, Qupperneq 2
174 Þ.jóðviljiw ukqi. ym, 44.-45. sitja við stýrið, er Dreyfus verður sýkn- aður, því að þá er við að búast, að Frakk- ar uni eigi öðru, en að tekið verði dug- lega i lurginn á þeira, sem verið hafa við klækina kenndir. Ókominn var Dreyftis heira, er síðast fréttist, en átti fýrst að stiga í land í borginni Brest, og höfðu íýlgismenn hans ýmsan undirbúning, til þess að gera við- tökurnar sem hátíðlegastar og áhrifa- mestar. — — — Ekki lýkur enn ófriðinum ú FUipps- eyjnm, og segja síðustu fréttir, að eyjar- skeggjar hafi þegar þrengt mjög kosti Ameríkumanna, svo að þeir haldist nú að eins við í Manila, og eigi það her- skipum sínum að þakka, að Aqninaldo hafi ekki einnig tekizt að reka þá úr þessu síðasta hæli. — Ætla menn, að Bandamenn komist ekki lijá því, að senda að minnsta kosti 100 þús. manna, tii aukningar herliði sínu þar á eyjunum, ef takast skuli að koma þar á friði. — — Vinnufallið („Lock-outu) stendur enn yfir í Danmörku, og fuliyrt, að tala verk- inanna, er atvinnulausir ganga, nemi nú 60 þús. — Hafa aðrir verkamenn iagt á sig mikla skatta, alit að þriðjungi viku- launa, til þess að hjálpa stéttarbræðrum sínum, en þó þrengir nú svo að þeim, að búist er við, að þeir verði þá og þeg- ar að gefast upp, og láta vinnuveitendur skapa sér kjörin. — |>ingkosning Rangvcllinga. Síra Eg’g'crt sér sitt óv.cnna líj j óstgæði Ií,ans>-vcllj n ga Sighvatur í stað Sighvats „Valtý/kan“ samþykkt. Eins og áformað hafði verið, var kjör- fundur Bangvellinga haldinn að Hvoli 17. júni síðastl., og höfðu báðir fiokkar haft viðbúnað mikinn og iiðsafnað á und- an kosningunni. Kom það þá brátt í ijós í atkvæða- smöluninni, að hugir manna þar í kjör- dæminu hneigðust svo mjög að stjórnar- tilboðinu frá 1897, að fýrirsjáanlegt þótti, að síra Eggert Pálsson, er stjórnarskrár- andstæðingarnir studdu, gæti á engan hátt náð kosningu, ef skoðanir manna um stjórnarskrármálið fengju úrslitum að ráða. Nú voru góð ráð dýr, og var það því ráðs tekið, að treysta á brjóstgœði Karig- vellinga, og var iSighvatur gamli því unnin til þess, að bjóða sig frain í stað Siglivats gamla nafna síns, með því að menn gerðu sér í hugarlund, að ýmsir yrðu þá svo brjóstgóðir, að vilja ekki ergja hann á garnals aldri, úr því búið væri að fá hann í þetta flan. Á kjörfundinum forðaðist Sighvatur gamli sem heitan eldinn, að segja nokk- uð ákveðið um skoðun sína í stjórnar- skrármálinu, og fór þá, svo sem á hafði verið gizkað, að ýrasir kenndu í brjósti um karlinn, og liéldu, að hann bæri það ekki af, ef honum væri hafnað. Kosningin fór því svo, að Sighvatur Arnason í Eyvindarholti var endurhosinh með 194 atlivceðum, en sýslumaður Magn- ús Torfasón hlaut 131 atkvæði. En til þess að sýna, að kosning Sig- hvatar hefði enga politiska þýðingu, en bæri að eins að skoða, sem vott um persónulegt velvildarþel og meðaumkun, þá samþykktu kjörmenn úr öllum hreppum sýslunnar, jafn skjótt er kjörfundi var slitið, rneð meiri hlnta atkvæða, eindregna áskorun til þingmannanna, að fylgja fram stjórnartilboðinu frá 1897. Hvernig þingmenn Rangvellinga verða við þessari áskorun gefur nú tím- inn að sýna, en ódrengilega launar þá Sighvatur gamli vinarþel kjósenda sinna, ef hann bregst þeim i sumar í stjórnar- skrármálinu, og er honum slikur ódreng- skapur tæplega ætlandi. --- ------------ Frá þingmálafundum. Þingmálal'undur Dalamanna. Ár 1899, hinn 23. dag júnimán. var þingmálafundur boðaður af þingmanni Dalasýslu, og haldinn að Ásgarði. Á fundinum mættu 29 manns. — Á fundinum voru þessi mál tekin fyrir: 1. Lesið var upp ávarp frá þingmanni kjördæmisins, sem skýrði frá sjúkdóms- forföllurn, og gat þess vegna ekki mætt. - Fundurinn þakkaði ávarpið, og lýsti virðingu sinni við þingmanninn með því, að standa upp. 2. Kom fram tillaga um að afnema sýsluvegagjald og hreppavegagjald, og var svo látandi ályktun samþykkt í einu hljóði: „Fundurinn skorar á alþingi að breyta vegalögunum í þá átt, að sýsluvega- og hreppavega-gjald sé afnumið, en sýslu- vegir og hreppavegir séu kostaðir af sýslusjóðum og hreppasjóðum, með ár- legu tillagi, er eigi nemi minna, en áðurnefnd gjöld hafa numið að und- anförnu“. 3. Afnám heyjaásetningslaganna. Var samþykkt með rneiri hluta atkvæða, að skora á alþingi, að nema úr gildi nýju heyjaásetningarlögin, en alþingi veiti bændum í hreppum heimild til þess, að gjöra samþykktir um hey- og fóðurbæt- is-forðabúr, og heyjaásetning; einnig um kynbætur á nautpeningi og sauðfénaði og meðferð skepna þannig, að '2/.s hlutar búanda ráði úrslitum. 4. TJm að setja presta á föst lann var samþykkt svo hljóðandi fundarályktun: „Fundurinn skorar á alþingi að afnema allar sóknartekjur til presta, en prest- um sé í þess stað launað úr landssjóði, en landssjóði aptur bættur sá tekjuhalli með óbeinum sköttumL 5. Fundurinn skorar á alþingi, að samþykkja frv. til læknaskipunarlaga ó- breytt. 6. Um lagakennslu. „Fundurinn skorar á alþingi, að semja lög um það, að kennsla á íslenzkum lög- um verði stofnsett í Reykjavík, og að allir þeir, sem tekið hafa lagapróf í Kaupmannahöfn, og vilja gjörast em- bættismenn á íslandi, verði skyldir til þess, að ganga undir eins árs kennslu þar. Enn fremur leyfir fundurinn sér að benda á, hvort yfirréttardómarar landsins gætu ekki haft þessa kennslu á hendi kauplaust". 7. Fundurinn skorar á alþingi að veita fé til brúargjörðar á Laxá, að minnsta kosti jafnt á móti sýslusjóði. 8. Breyting á tilbúningi verðlagsskráa. Þar sem fundurinn verður að álíta, að hinn núverandi tilbúningur verðlagsskráa sé talsvert óheppilegri, en það fyrverandi fyrirkomulag, leyfir fundurinn sér að skora á alþingi, að breyta verðlagsskráa- lögunum i þá átt, að tilbúningur skránna verði falinn nefnd í hverri sýslu, t. d. sýslumanni, prófasti og einum manni, sem sýslunefhdin kýs. — Nefnd þessi skal aðallega taka að eins tillit til þeirra afurða sýslubúa, sem hafa almenn áhrif á efnalegar afurðir þeirra, en þó megi einnig hafa tillit til verðs á útlendum, innfluttum nauðsynjavörum, og árferði yfir höfuð. — En fundurinn vill láta það álit sitt í Ijósi, að æskilegast væri yfir höfuð, að verðlagsskrár væru afnumdar, ef þingið sér sér það fært. 9. Fundurinn skorar á alþingi, að koma því til leiðar, að ferðum „Skál- holtsu verði fjölgað inn á Hvammsfjörð og Skarðsstöð, og að bætt verði við við- komustað á Salthólmavík; en geti þingið ekki fengið þessu framgengt, þá að leita samkomulags við stjórn hins sameinaða gufuskipaféiags, að það haldi uppi ferð- um um Breiðafjörð með litlum, og grunn- skreiðum gufubát. — Fundurinn leyfir sér þá og að skora á alþingi, að fara fram á það við stjórn hins sameinaða gufuskipafélags, að halda áfram að halda uppi strandferðum með „Skálholt14 og „Hólar“, þar sem minni gufuskip ekki geta haft ferðir þær á hendi. — Fundur- inn lýsir því yfir, að hann óskar ekki, að styrkurinn til gufubátsins „Reykjavíku verði endurveittur, þar sem sýslan hafi ekki haft minnsta gagn af ferðum henn- ar, með því fyrirkomulagi, sern verið hefur, en óskar, að styrkurinn, og ef vera þarf aukinn, verði lagður til gufubáts þess, er hið sameinaða gufuskipafélag haldi úti á Breiðafirði sérstaklega. 10. Fundurinn skorar á alþingi, að gjöra allt, sem verður, til þess að útvega betri markað fyrir smjör, sauðfé, ull og kjöt, meðal annars með þvi, að kosta einn, eða fleiri verzlunarráðanauta, og leggi að öðru leyti fram fé til tilrauna í þá átt. 11. Fundurinn skorar á alþingi að styrkja kröptuglega að því, að smjör og ostur geti orðið verzlunarvara. 12. Fundurinn skorar á alþingi að gera sitt ýtrasta til þess, að efla land- búnaðinn á Islandi með fjárframlögum og lagaboðum, þar á ineðal að koma á stofn tiiraunastofnun með jurtagróður og ræktunaraðferð, með því að V6ita áfram styrk til búnaðarfélaga, en láta greiða þann styrk einnig fyrir hlöðubyggingar og haugshúsa, og með því að koma sam- ræmi á milli allra búnaðarskóla landsins, undir einni yfirstjórn. 13. Fundurinn skorar á alþingi að tvöfalda toll á brennivíni, og hlutfalls- lega við það, eptir verði, á dýrari vínum, og að hækkaður verði tollur á tóbaki um 15 aura á hverju tóbakspundi. — Enn fremur að tollur verði lagður á alla

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.