Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.07.1899, Page 3
VIXI, 44.-45:
Þjóðviljinn ungi.
175
gosdrykki, og hár tollur á alla bittera og
kynjalyf.
14. Fundurinn skorar á alþingi að
leggja káan toll á útlendar landbrinaðar-
afurðir, einkum smjörliki.
15. Fundurinn skorar á alþingi að
tolla allar vefnaðarvörur og tilbúinn
fatnað.
16. Fundurinn skorar á alþingi að
koma á fót kennslu i dýralækningum i
Reykjavik, með sérstöku tilliti til kandí-
data frá læknaskólanum, og að þeim
mönnum, sem, að loknu því námi, stunda
dýralækningar, verði veittur árlegur dá-
lítill styrkur úr landssjóði.
18. Fundurinn skorar á alþingi að
styðja að alþýðumenntun landsins með því:
a, að stofna fastan kennaraskóla, vel út-
búinn með húsnæði og áböldum
b, að veita þeim, sem útskrifast afkenn-
araskólanum, með sæmilegum vitnis-
burði, forgangsrétt að kennaraembætt-
uin við barnaskóia og sveitakennslu.
c, að veita allt að 20 kennurum styrk
til utanfarar sumarið 1900 á kennara-
fund Norðurlanda, og til að kynna sér
skóla erlendis, ailt að 200 kr. kverjuin.
d, að setja strangari skilyrði fyrir styrk
til barnaskóla og umgangskennara, svo
sem að veittur sé styrkur annars stað-
ar frá til kennslunnar, að kennara
ráðningin sé fast ákveðin o. s. frv.
e, að sýslufélögum þeim, er vilja koma
upp hjá sér unglingaskóla, sé gjör
kostur á, að reisa húsin á kostnað
landssjóðs, gegn því, að sýslufélögin
haldi skólanum við.
19. Eptir langar umræður samþykkti
fundurinn með 18 atkv. gegn 11 svo
hljóðandi fundarályktun:
„Fundurinn skorar á þingmann kjör-
dæmisins, að fylgja ekki. frv. því, sem
kennt er við dr. Válty, og sem kom
fram á síðasta þingiu
Fleira kom ekki til umræðu.
Fundi slitir.
Turfi Bjarnason, Bogi Sigurðsson,
(fundarstjóri.) (skrifari.)
Þingmálafuiidur í Ólai'svik.
Samkvæmt fundarboði þingmannsins
var, til þess að ræða ýms þingmál, hald-
inn fundur 22. júní í Ólafsvík. Þing-
maðurinn setti fundinn, og skýrði frá
tilgangi sínum með fundarboðinu. Fund-
arstjóri var kosinn í einu hljóði umboðs-
maður Einar Markússon, og skrifari Einar
Þorkelsson. Fundurinn varaði rúmar 5
stundir; rúrnir 4 tygir manna sóttu hann.
I þessum málum var gengið til at-
kvæða:
1. Stjörnarskrármáliif. Eptir rúmra 2
stunda umræður, var samþykkt svo lát-
andi ályktun, frá síra Helga Arnasyni,
með öllum samhljóða atkvæðum:
a, Fundurinn lýsir óánægju sinni og
gremju yfir sundrungu og árangurs-
lausu þrefi í stjórnarskrármálinu.
b, Fundurinn skorar á alþingi að taka
því tilboði stjórnarinnar, er fram kom
á síðasta þingi, ef það stendur' enn
til boða.
2. Samgöngumádið. Eptir nokkrar um-
ræður samþykkti fundurinn með öllum
atkvæðum þessa ályktun:
a, Fundurinn skorar á alþingi að veita
sams konar styrk á næsta fjárhagstíma-
bili og síðasta þing veitti til gufubáts-
ferða um Breiðafjörð, þó með þvi skil-
yrði, að ferðirnar verði eigi færri en
5 á ári.
b, Fundurinn skorar á alþingi að veita
ekki fé á næsta fjárhagstímabili til
akbrauta.
8. Landbúnaður. Þessi ályktun sam-
þykkt með öllum atkvæðum:
Fundurinn skorar á alþingi að styrkja
landbúnaðinn, sem nú virðist standa
veikum fótum, sem allra mest, bæði
með fjárveitingu og lögum.
4. Sérstök lánsstofnun. 1 einu hljóði
samþykkt svo látandi ályktun:
Fundurinn óskar, að alþingi gangist
fyrir því, að sérstök lánsstofnun til
eflingar verklegum fyrirtækjum komist
sem fyrst á fót.
5. Þjódjardasala. Eptir nokkrar um-
ræður, samþykkt í einu liljóði:
Fundurinn skorar á alþingi að halda
áfram þjóðjarðasölunni.
6. HeiJbrigðisniál. Með öllum atkvæð-
um samþykkt, eptir litlar umræður:
Fundurinn skorar á alþingi að semja
lög, sem innihaldi ströng hegningará-
kvæði við broturn á alrnennum heil-
brigðisreglum.
7. Vínsölubann. T einu hljóði sam-
þykkt þessi ályktun:
Fundurinn skorar á alþingi að banna
alla áfengissölu hér á landi, nema sem
lyf eptir læknisráði.
8. Löggilding hafna. Samþykkt með
öllum atkvæðum:
Fundurinn óskar, að alþingi löggildi
Sandalegu á Snæfellsnesi.
9. Hafna- og lendinga-bœtur. Samþ.
með öllum atkvæðum:
Fundurinn skorar á alþingi að veita
leyfi til þess, að mannvirkjafræðingur
landsins skoði Rlfsós, og segi álit sitt
um, hversu hann verði umbættur, svo
þar yrði öruggt skipalagi, jafn framt og
alþingi áætli í næstu fjárlögum hæfi-
lega upphæð til umbóta Rifsósi.
10. Kosningarréttur. I einu hljóði
samþykkt:
Fundurinn skorar á alþingi að rýmkva
svo kosningarréttinn, að eigi sé hann
bundinn við tillög til sveitar, né önnur
álika óeðlileg takmörk, svo og fjölgi
kjörstöðum að miklum itmn þannig, að
sérhver kjósandi fái notið kosningar-
réttar á varnarþingi sínu.
11. Lœknaskipimarmádið. Svo látandi
ályktun samþ. með öllum atkvæðum
gegn 1.
Fundurinn skorar á alþingi að svo
framt það eigi samþykkir frumvarp
það, er stjórnin kann að koma með, þá
séu laun aukalækna hækkuð upp í
1500 kr. að minnsta kosti.
12. Bankamál. Samþykkt svo hljóð-
andi áskorun í einu hljóði:
Fundurinn skorar á alþingi að rann-
saka aigerðir bankastjórans, hvað snert-
ir húsbygginguna og fleira.
Fleiri mál voru tekin tii umræðu, en
eigi leidd til lykta.
Fundi slitið.
Einar Markússon. Einar Þorkelsson.
Þing'miílafundur Mýrainanna.
Árið 1899, 22. dag júnímán. var hald-
inn þingmálafundur fyrir Mýrasýslu í
Galtarholti. Þingmaður kjördæmisins
hafði boðað til hans. Fundarstjóri var
kosinn Magniís Andrésson, fyrrum prófast-
ur á Grilsbakka, en skrifari Jóhann prest-
ur Þorsteinsson i Stafholti. Fundarmenn
voru 27.
Þessi mál voru tekin fyrir:
1. Menntamád og skölamál. Eptir nokk-
urar umræður var með samhljóða atkvæð-
um allra fundarmanna samþykkt svo
látandi niðurlagsatriði:
Fundurinn kannast við, að sönn mennt-
un sé aðal-undirstaða allra þjóðþrifa, en
hann álitur að rneir sé undir því komið,
hrernig skólarnir séu, en undir því, hve
margir þeir séu, og nú, þegar samgöng-
ur á sjó og landi eru orðnar miklu
greiðari, en áður, .ætlar fundurinn að
heppilegra sé, að hafa ekki nema 2
búnaðarskóla, og að eins 1 gagnfræða-
skóla, er styrktir séu af landssjóði, og
skorar fundurinn alvarlega á alþingi,
að fgölga ekki skólutn eða skólakennara-
embœttum að svo stöddu.
2. Stjórnarskrármádið. Eptir langar
umræður var gerð og samþykkt svo lát-
andi niðurlags-ályktun í einu hljóði:
Fundurinn álitur stjórnarbót í sömu
átt og kostur var á frá stjórninni 1897
nægja fyrst um sinn, og vera helzt
við hæfi þjóðarinnar, og skorar þvi á
næsta alþingi, að reyna að fá henni
framgengt; þó vilja 10 fundarmenn, að
það sé gert að beinu skilyrði, að 61.
gr. stjórnarskrárinnar sé haldið óbreyttri.
3. Fádœkramád. Fundurinn var með-
mæltur þeirri breytingu á þurfamanna-
löggjöfinni, að hver maður eigi allt frá
16 ára aldri þar sveit, er móðir hans átti
lögheimili, þá er hann fæddist. Að binda
sveitfesti við lögheimili manns, er liann
verður sveitarþurfi, álítur fundurinn óhaf-
andi; fátækrafiutningsákvörðununum álít-
ur fundurinn eigi þörf að breyta. Að
öðru leyti álítur fundurinn réttast, að
stjórnin leggi fýrir þingið nýtt frumvarp
til fátækralöggjafar.
4. Fundurinn skorar á þingið, að semja
frumvarp, er felli sem fyrst horfellislögin
frá 26. febr. 1898 úr gildi.
5. Fundurinn skorar á alþingi, að sam-
þykkja frumvarp það, er frézt hefur að
stjórnin muni leggja fyrir þingið um
þjóðveg frá Borgarnesi til Stykkishólms.
6. Fundurinn óskar, að alþingi semji
lög þess efhis, að ljósmæðrum verði laun-
að úr landssjóði.
7. Fundurinn óskar, að þingið geri
það, sem unnt er, til að efla landbúnað-
inn, svo sem með þvi, að veita búnaðar-
félögum ekki minni tjárstyrk, en að und-
anförnu, og sérstaklega með því, að royna
að útvega markað fyrir afurðir landsins.
8. Lánsstofnun álítur fundurinn ísjár-
verða, meðan ekki bætist úr markaðs-
leysinu.
9. Fundurinn óskar, að þingið bæti
úr göllum, sem eru á lögum um tilbún-
ing verðlagsskráa.
10. Fundurinn óskar, að þingið
breyti með lögum friðunartíma á álptum
þannig, að hann veröi frá 1. apríl til 15.
sept. ár hvert, og að bannað verði að
taka álptaregg.
11. Fundurinn skorar á þingið, að
gera þá breyting á vegalögunum, að fela
sýslumönnum innheimtu sýsluvegagjalds