Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.02.1900, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.02.1900, Side 1
Verð árgangsins (minnst 52 arkw) 3 kr. 50 anr.; erlendis 4 kr. 50 aur.,og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJÓÐVILJINN. - ■!= FjÓBTÁNDI ÁB8ANUOB. =| -- Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dagjúní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M ÍSAFIRÐI, 21. FEBR. 19 0 0. Prestar á íslandi, og kjör þeirra fyr og síðar. Eptir alþm. S. Stefánsson. IV. Fæstum mun dyJjast, að brýna nauðsyn beri til að bæta hag prestastéttarinnar. Fessi nauðsyn verður því auðsærri, sem hér er ekki einungis að ræða um bót á launakjörum presta, heldur einnig að létta ójafnaðargjöldum af þjóðinni. En það er jafnan auðveldara að sjá brestina, en bæta þá, og á það sér ekki sízt stað um þetta mál. Hér er um þau gjöld að ræða, sem þjóðin hefur búið við í margar aldir; þótt sum þeirra séu löngu orðin úrelt og ósann- gjörn, þá hefur vaninn helgað þau í með- vitund þjóðarinnar, og unnið þeim þá hefð, að þjóðin telur greiðslu þeirra sem aðra vitaskuld, þótt hún í aðra röndina kannist við ójöfhuð þeirra. Það er þvi ærið vandaverk, að hreifa við slíkum gjöldum, því vel getur svo farið, að breytingin þyki til ílls eins, þegar til kemur, og gamla fyrirkomulag- ið verði talið betra; er þá ver farið, en heima setið. Það er þvi betra, að fara hægt, en hratt í sakirnar. En of mikið má af öllu gjöra, og eins af hæglætinu, þar sem um jafn rnikið nauðsynjamál er að ræða, og hér. — Væru þessi gjöld í sjálfu sér sann- gjörn, en réttarvissu vantaði að eins um, hverjir skyldu inna þau af hendi, þá væri einfaldasta, og að voru áliti jafn framt hyggilegasta ráðið, að gjöra þá eina breytingu, að útvega þessa réttarvissu með nýjuin lögum. Vér tölum hér auðvitað um offrið, lambsfóðrið, dagsverkið og lausamanna- gjaldið. En af því gjöld þessi, eins og bent liefur verið á, koma svo ranglátlega nið- ur á gjaldendum, þá er þetta ekki til- tækilegt nema þá rétt til bráðabyrgða, þangað til meiri og fullkomnari bætur kæmust á. Þessi var og tilætlun síðasta þings með lögum þeim, er það samþykkti um breyting á greiðslu þessara gjalda. En úr því nokkuð var hreift við þessum gjöldum, var alveg óhjákvæmilegt, að bæta jafn framt úr þeim roikla ójöfnuði, að heilir flokkar manna sleppa alveg við sum þessi gjöld, þótt allt eins færir séu, til að inna þau af hendi, og hinir gömlu gjaldendur. Þingið gat ekki, að virðing sinni óskertri, látið það ranglæti hlutlaust úr því það skipti sér nokkuð af þessu máli. En gjaldendunum fjölgaði auðvitað uokkuð við þetta. En hvað skeður? Menn eru stórreið- ir þinginu fyiir þessa nýbreytni, og hafa það jafn vel sem átyllu til að segja sig úr þjóðkirkjunni, og það áður en þeir vita nokkuð um, hvort lög þessi nái staðfestingu. Menn vilja heldur hafa réttaróvissuna, ranglætið og ruglinginn í öllum þessum gjöldum, en skýr og ljós lög, töluvert sanngjarnari, en hin gömlu. Þetta ber að vísu vott um mjög lítil- sigldan hugsunarhátt, en það bendir þó á, hvílíkt vandhæfi sé á því, að hreifa við þessum ævar-gömlu lögum. Eptir þvi, sem nú hagar til, mun því annað hvort að gjöra, að láta þessi gjöld haldast óbreytt enn um hríð, eða afneraa þau með öllu. En séu þau afnumin, þá verður þó eitthvað að koma í staðinn; einbvers staðar frá verða prestarnir að fá uppbót fyrir þessar tekjur. A alþingi 1881 var borið upp frum- varp þess efnis, að afnema tíund, offúr, lambseldi og dagsverk, og setja í stað- inn sóknargjald, er jafnað skyldi niður á hina einstöku gjaldendur eptir efnum og ástæðum; ekki gazt þinginu að þess- ari breytingu; var frumvarp þetta fellt frá annari umræðu. Síðan hafa komið fram tillögur um, að leggja lögákveðið gjald á hvern fermd- an mann, í stað þessara gjalda og kirkju- gjaldanna, sem líkt er ástatt með; var kirkjugjaldamál þetta rætt all-ítarlega á tveimur þingum 1891 og ’9B, en fellt að lokum; er enginn efi á, að eins myndi hafa farið með prestagjaldið eptir þessari tillögu, en það komst aldrei inn á þingið. Heldur að hafa gömlu gjöldin, en að- hyllast þessar breytingar. Það virðist því allt benda á það, að ekki muni tiltækilegt, að hreifa neitt við þessum gjöldum til þess, að setja í stað þeirra beinan skatt eða persónulegt gjald. Sú breyting hefur ekki fylgi þings eða þjóðar. Sá hugsunarháttur eflist ár frá ári hér á landi, að vilja losast við alla beina skatta, menn vilja helzt ekki borga einn eyri í landssjóð, eða til neinna opinberra þarfa á þann hátt, heldur með óbeinum sköttum, þótt mörgum sé reyndar mjög ílla við þá líka. Hér skal ekki út í það farið, hve heppileg þessi stefna er, en af þessu er auðráðið, að ekki mun þykja breytt til batnaðar með prestsgjöldin, þótt þeim væri breytt í eitt persónulegt gjald, eður einhvern beinan skatt. Enda er æriim vandi að finna heppilegan grundvöll fýr- ir slíkan skatt. Gæti vel farið svo, að þar yrði seinni villan argari hinni fyrri. En þá er ekki nema eitt til, að setja presta að meira eða minna leyti á föst laun úr landssjóði, og útvega landssjóði það fé, sem til þess gengur með nýjum tollum. Eptir því, sem komið hefur fram í þessu máli nú upp á síðkastið, bæði ut- an þings og innan, mun þetta af mörg- um talið þjóðráð. Á yíÖ og dreif. Það var ekki svo sérlega margt, sem hann vantaði í búskapnum, gamla bónd- ann, sem lýsti búskap sínum með þess- um orðum: „Mig vantaði aldrei nema þrennt í búskapnum: hey, mat og eldiviðu. En það er heldur ekki á þessu að heyra, að karlskepnunni þætti þetta mik- ið tiltökumál. Hann hefur sjálfsagt að öðru leyti, og þrátt fyrir þetta, þótzt all-góður bóndi, og sjálfsagt ekki verri, en svo margir aðrir í sveit hans. — Ef til vill liefur þessi sómamaður ekki verið talinn sérlega mikill bústólpi, en vel getur hann hafa verið talinn íheldri bænda röð. Hvað heyleysið snertir, þá vita allir, að það hefur til skamms tíma hér á landi ekki verið talinn stórvægilegur blettur á búskap bænda, þótt þeir hafi komizt í heyþrot ár eptir ár, og fellt skepnur sínar. Sá blettur hefur líka verið auðþveg- inn af; ekki annað, en kenna guði og tíðinni um heyleysið og hordauðann. Bjargarleysið var svo eðlileg afleiðing af hordauða búpeningsins, að þar bar að sama brunni; guð og tíðin var orsökin. Sama var að segja um eldiviðarleysið; vor-rigningarnar og illviðrin á haustin voru þar fullgildar ástæður. — Þessi skortur var þvi svo afar-eðli- legur, og því fór fjarri, að bóndanum kæmi til hugar, að hann ætti þar annan hlut að máli, en að líða það, sem forsjón- in lagði á hann. Það var afar-þægilegt að hugga sig við þá tilhugsun, þegar ekkert var til að næra menn og málleysingja á. Það var því okkert þvi til fyrirstöðu, að hann væri hreppstjóri í sveit sinni, sáttasemjari, meðbjálpari, og margt fleira. Svo þegar hann safnaðist til feðra sinna, saddur lífdaga, eins og svo mörg rollan hjá honum á vorin, þá minntist klerkurinn þess í loflegri líkræðu, hve mikilsvirtur bóndi og góður og guðræk- inn maður væri burtkallaður til betra lífs. Ef hordauðu skepnurnar hefðu mátt mæla eptir hann, hefðu eptirmælin að visu orðið dálítið öðru vísi.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.