Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.03.1900, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.03.1900, Qupperneq 2
42 ÞjÓÐ VILJINN. XIV, 11. unnar, og það því fremur, sem kostur er á góðum leiðarvísi til að spyrja börn eptir þvi. Foreldrum er og miklu tamara, að kenna börnum sínum þá barnalærdóms- bók, er þeir hafa sjálfir lært, heldur en aðrar sem þeir eru ókunnir; er þetta eitt með öðru sem veldur þvi, að tíðar breyt- ingar á barnalærdómsbókum eru ekki sem heppilegastar, þótt reyndar megi segja, að hver sé sjálfráður um, hvaða lærdóms- bók hann láti börn sín læra af þeim bókum, sem leyfðar eru. En aðal-atriðið i þessu efni er auð- vitað það, að sérhver tilbreytni með slik- ar bækur sé til verulegs batnaðar, að nýja bókin taki hinni gömlu að öllu samtöldu fram. Annars verður breytingin að teljast óþörf, og þvi frernu? nýjabrum en nauð- synjaverk. Það er kemur til þessa nýja kvers, þá get jeg fyrir mitt leyti ekki séð, að hér sé breytt til batnaðar, eða, að það taki Helga-kveri nokkuð fram sem barna- lærdómsbók á Islandi. Kver þetta er heldur ekki ætlað börn- um á Islandi; það er samið og lagað eptir þörfum þeirrar þjóðar, sem það er ætlað. Að visu má segja, að kristindóm- urinn sé og eigi að vera hinn sami hjá hvaða þjóð sem er, en framsetning hans í slíkum bókum sem þessum verður að vera mismunandi, til þess að hún sé löguð eptir sérstökum ástæðum og at- vikum hjá hverri þjóð. Kver þetta er ætlað þjóð, sem bæði hefur góða alþýðu- skóla og vel menntaða barnakennara, auk prestanna. Hvorugt þetta eigurn vér Islendingar enn sem komið er. Það er því alveg rétt, sem „Verði ljós“ segir, að kver þetta gerir töluvert hærri kröfur til barnakenn- aranna, en ætlast má til, að allur þorri þeirra hér á landi geti fullnægt. Það er eflaust góð skólabók, en það er nokkuð annað, en vera hentug heim- ilis kennslubók á Islandi, þar sem svo mjög skortir góða kennslukrapta. Bók- in verður þar að segja nemendunum fleira, heldur en þegar hann auk hennar á kost á daglegri fræðslu kennara, er bætir það upp, sem bókina vantar. Eg verð að játa, að mér finnst kver þetta víða allt of stuttort fyrir oss; það nefnir ekki all-margar trúar og siðfræðis- hugmyndir, sem Helga-kver útlistar all- ítarlega, og telja má hverjum kristnum manni fulla þörf á að vita deili á. — Jafn vel annað eins höfuðatriði kristin- dómsins eins og bænin, er ekki nefnd á nafn þar, sem talin eru náðarmeðul kirkj- unnar (sbr. bls. 34, 154. gr.). En það er lika miklu styttra en Helga- kver, og það hef jeg þegar heyrt talinn kost á því. í minum augum er það nú enginn kostur fram yfir Helga-kver, sem engu, enda lítt greindu bami, er ofætlun að læra. En kver þetta er að vísu nokkuð lengra en það sýnist. í því er mjög víða að eins vísað til heilagrar ritningar, án þess að tilfæra orð hennar í kverinu sjálfu. Því að eins hefur höfundur kversins sett þessar til- vitnanir, að hann hefur ætlast til, að nem- andinn kynnti sér þessar ritningargrein- ar, og talið það nauðsynlegt til uppbótar stuttleika kversins sjálfs. Börn, sem þetta kver læra, verða því stöðugt að hafa ritninguna við hendina, til að læra í henni hinar tilvitnuðu greinar. Eptir þessu skilst mér, að prestarnir verði að ganga. Þetta má að því leyti teljast kostur við kver þetta, að börnin verði ritning- unni handgengnari, en nú gjörist; en eg ottast fyrir, að hér lendi að mestu við áminningar prestsins; ritningin verði jafn lítið lesin eptir, sem áður, og kristindóms- þekkingin að því leyti ófullkomnari ept- ir þessu kveri, sem þar er sleppt mörgum ritningargreinum, sem höfundur þess hef- ur þó ætlast til, að lærðar væru, og sem höfundar hinna eldri kvera hafa tekið upp í þau. Þessi tilbreytni eykur kennuram og prestum eigi all-litla erfiðismuni, þótt það eigi reyndar ekki fremur við þetta kver, en önnur ný. Verði það nokkuð almennt notað, samhliða eldra kverinu, gengur töluvert meiri tími til barnaspurn- inga, heldur en þegar ekki er nema ein barnalærdómsbók notuð, án þess að upp- fræðing ungmennanna verði fyrir það nokkuð meiri. Eg fyrir mitt leyti get ekki séð þörf á þessari lærdómsbók, en eg er, ef til vill, of lílill nýbreytinga maður í þessu efni. S. St. Ádrepa af lýsing lifnaðarháttanna hér á landi á síðari hluta 18. aldar. í eptirmælum 18. aldar, kemst hinn mikli þjoðskörungur og ættjarðarvinur Magnús conferentsráð Stephensen svo að orði um lifnaðar- og búnaðar-háttu landa sinDa: „Margföld prakt, óhóf og eyðslusemi hefúr innleitt margfalldan dýrleika, og uppsvelgt víða allt, nema munaðaráhöld- in ein. Veit eg að margir telja munað- arlíf og óhóf almennings, sem merki og afleiðingu góðs ástands, en langtum viss- ari afleiðing móðins yfirdrottnunar eptir útlendra sið, og merki óráðs mun þetta reynast. — .... Óráð í búnaðarháttum tel eg:* að synir mínir hafa svo umbreytt all-víða búskaparformi sínu frá minu náttúrlega og gamla, að ekki geta nú lengur þrifist á innlendum matmæla- og fatnaðar-föngum, sem fyrri, og að miklu leyti án útlendra útsjúgandi kornvara-, klæða- og kram-kaupa, við hvör öll eigin atorkusemi niðurkæfist, eD óhóf og ó- mennska fylla hennar sess. Þetta vottar *) o: ísland. Eptirmælin eru framsett í nafni íslands. bezt sívaxandi kornvara-innflutningur ár hvert hingað, og kramsins sömuleiðis, en undir eins armóður allra þeirra héraða, hvar þessa mest við þarf, eða venja krefúr, þegar mörg uppsveitahéruð enn í dag sýna, að lítils, sárlítils af öllu þessu við þurfi, af því þeir enn halda við fornum búnaðarháttum, einkum góðri jarðar- og fjárrækt, halda við sparsemi og hófsemi, en hylla miður fína möðinn*. Þar kaupir góður bóndi litið eða ekkert af mjöli, krami og óþarfa. Mjólk og skyri, smjöri og kjöti, tólg, ullu og skinn- um af búi sínu, fær hann árlega heima hvergi nærri öllu eytt, en auk þess litla, er hann til nauðsynja við þarf, getur hann töluvert selt og grætt til uppeldis, og til aðstoðar börnum sínum; með hon- um læra þau sjálf að vinna sín eigin snotru og þokkalegu föt af fénaðarins ullu, og þau sóma sér langtum betur, en fína móðins áður áminnsti fatnaður, við hvörn, og endalaus mjöls-, krams- og munaðarvarningskaup, hinir aldrei nema i velti-árum ná heim, og eignast fæstir álnarvirði afgangs; flestir armóð og skuld- ir. — .... Búsæld og ánægja krýnir því likra sveita lifnaðarháttu heillum og heiðri, fyllir lönd mín fénaði og auðlegð, fjölg- ar býlum, búendum, skattbændum, jarð- eigendum, yðju og atorkumönnum, mann- eskjum yfir höfuð, og þær gefa hinum verðugt dæmi, sem með gagnstæðri bún- aðaraðferð setja alla þeirra von til ens stopula sjávarfengs, sem jafn vel i góðum árum gjörir ekki betur en hrökkva, til fyr greindra mjöls-, krams- og munaðar- kaupa, en leyfir fæstum enn síður í bág- um árum afgang frá skuldum. Menn lifa þar ríkmannlega um tima, margir bændur til jóla, margir skemur. Þar setja þeir mesta von sína til kúa, en halda fátt sauðfé og illa. Bregðist hinna burður, heyjafengur, eða heyjanýting, er mjólk og björg öll farin, kýrnar áður fallnar, en af veit; af fáu, ílla höldnu og arðlitlu sauðfé, er ullin í kaupstað seld, lítið því eða ekkert af henni unnið. Líf- ið eyðist í ómennsku, snatti og yðjuleysi, sulturinn er þeim samferða, jarðar- og penings-rækt fellur nokkrum þeirra erfið, þeir yfirgefa því jörð og búskap, og flykkjast út að sjó í tómthús, yðja þar ekkert, nema þá fáu róðrardaga, sem gefst um árið á stuttum vertíðum. Þeirra litli og stopuli afli er það allt, af hvörju takast á fæði og fatnaður hvörs hyskis. Hvað á brestur bætir nokkrum útsjúg- andi kaupavinna hjá verkafólksfáum bú- endum, frá hvörjum hinir hlaupa úr vistum í þurrabúðurámennslcu* og hægð, svo jarðir verða ekki fyrir fólkseklu upp- unnar, eða fénaður forsorgaður..... Purrabúðalíf tel eg því í mörgum sveitum, sunnan- og vestan-vert, nœstu eða aðra stærstu orsök til míns armóðs og bág- inda* þar nema í beztu árum, af því það raunar er sú sama uppspretta til yðju- leysis og óráðvendnis hjá mörgum, til *) Auðkennt af höf.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.