Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.04.1900, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.04.1900, Blaðsíða 3
XIV, 13. Þjóðviljinn. 51 Kosnir voru: Jón Laxdal með 9 atkv. Síra Sig. Stefánsson með 8 atkv. Pétur Oddsson með 6 atkv. Af hálfu bæjarstjórnarinnar á ísafirði höfðu mætt, verzlunarstjóri Jón Laxdál, bakari Finnur Thordarsen og prófastur síra Þorvaldur Jónsson. — Nofnd þessi gat ekki orðið á eitt sátt, Pétur Oddsson vildi ekkert láta hreifa við samþykktinni að þessu sinni, en þeir Jón Laxdal og síra Sigurður Stefánsson lögðu til, að numdar væru burtu bæði önnur og þriðja gr. samþ. (slægingarbannið og skel- fisksbeitubannið), voru þær tillögur þeirra samþykktar af sýslunefndinni eptir nokkr- ar umræður, og afgreiddi nefndin sam- kvæmt því svo látandi: Frumvarp til samþykktar um ýmisleg atriði, er snerta fiskiveiðar á opnum skipum í Norður-ísafjarðarsýslu og Isafjarðarkaupstað. 1. gr. Enginn, sem stundar fiskiveiðar á opnum skipum i Norður-ísafjarðarsýslu og ísafjarðarkaupstað, má eiga lóðir í sjó frá kl. 9 að kvöldi til kl. 5 að morgni á tímabilinu frá 1. nóvember til l.apríl. Á þessu tímabili má enginn byrja sjóferð til fiskiveiða með lóðum, fyr en kl. 5 að morgni; þó nær þessi ákvörðun ekki til þeirra, sem hafa uppsátur fyrir norðan Rit. Þá er sjóferð byrjuð, þegar skip er á flot sett, albúið til fiskiróðrar, og allir skipverjar komnir upp í það. 2. gr. Á sérhverju skipi, sem stundar fiski- veiðar á svæði þvi, sem samþykkt þessi nær yfir, skal á hverri sjóferð vera inn- anborðs lýsi til bjargráða, að minnsta kosti 4 pottar, og telst það með skipsá- höldum. Sömuleiðis skulu allir formenn skyldir til, að hafa ljós á báti sínum, hve- nær sem þeir eru að veiðum í nayrkri. 3. gr. Enginn má vísvitandi leggja net eða lóðir ofan í veiðarfæri annars manns. Hegning skal þó að eins beitt, að skaði hafi af hlotizt. 4. gr. í sérhverjum hreppi Norður-ísaijarð- arsýslu sé skipuð 3—5 manna nefnd, eptir stærð hrepps og ákvæði hrepps- nefndar, og í Isafjarðarkaupstað 3 manna nefiid. — Kýs hlutaðeigandi hreppsnefnd og bæjarstjórn einn þeirra úr sínum flokki, og skal hann vera oddviti nefnd- arinnar, en hinir skulu vera formenn, og gengst oddvitinn fyrir því, að formenn þeir, sem uppsátur hafa í hreppnum, sjálfir kjósi þá úr sínum flokki í byrjun hverrar vertíðar. Yanræki hlutaðeigend- ur að mæta á fundi þeim, sem boðaður verður í því skyni, skal hreppsnefnd og bæjarstjórn hafa vald til að skipa menn til starfa þessara, og má enginn skorast undan án gildra orsaka, sem hrepps- nefnd og bæjarstjórn eru einar bærar um að meta. Skal nefnd þessi hafa nákvæm- ar gætur á því, að samþykkt þessari sé fyllilega hlýtt. Verði einhver uppvís að þvi, eða ef nefndinni þykir líklegt, að einhver hafi brotið á móti samþykktinni, Wlkynnir hún það hlutaðeigandi yfirvaldi' 5. gr. Sé brotið á móti samþykkt þessari, nema líf liggi við, verður formaður sek- ur um 10—100 kr. eptir málavöxtum. Svo má og gjöra afla upptækan, ef mikl- ar sakir eru. Helmingur sektar falli til fátækrasjóðs þess hrepps, þar sem brotið er kært, hinn helmingurinn til jafnra skipta rnilli gæzlunefndar annarsyegar og upplj óstrarmann s. 6. gr. Þar sem tímatakmörk eru nefnd í samþykkt þessari, skal farið eptir klukku þeirri, sem gæzlunefndin fer eptir, en skylt er henni að annast um, að sú klukka sé svo rétt, sem fong eru á. 7. gr. Samþykkt um ýmisleg atriði, er snerta fiskiveiðar á opnum skipum í Norður- ísafjarðarsýslu og Isafjarðarkaupstað frá 30. júli 1898, skal hér með úr gildi felld. Erumvarp þetta verður lagt fyrir héraðsfúnd í næstkomandi maí mánuði. III. Gufubátsferðir. Ályktað var, að nota hinn framboðna landssjóðsstyrk, að upphæð 2500 kr., til gufubátsferða um Djúpið, var eptir nokkrar umræður sam- þykkt, að kjósa 3 manna nefnd til þess að leita samkomulags við útgerðarmann gufubátsins „Ásgeir litli“, um ferðir um Djúpið á komandi sumri, með líku fyrir- komulagi og að undanförnu og með sama fjárstyrk. — Kosnir voru: Síra Sigurður Stefánsson með 10 atkv. H. Hafstein með 9 atkv. Jón Laxdal með 6. atkv. Af hálfu bæjarstjórnarinnar mættu í þessu máli hinir sömu og í fiskiveiða- málinu. Eptir að nefnd þessi hafði átt tal við útgerðarmann bátsins, skýrði hún frá því, að hún, fyrir sama tillag og að undan- fórnu, hefði fengið lofaðar 28 ferðir um Djúpið, er byrjuðu um miðjan maí og enduðu 6. október. Sýslunefndin sam- þykkti í einu hljóði að ganga að þessu, og var ofan nefndri nefnd falið að semja, ásamt útgerðarmanni, ferðaáætlun fyrir bátinn. IV. Ekknasjóðurinn. í stjórn hans voru kosnir: Próf. Þorvaldur Jónsson með 11 atkv. Síra Sig. Stefánsson með 11 atkv. H. Hafstein með 8 atkv. V. Endurskoðanir reikninga. Til að endurskoða alþýðustyrktarsjóðsreikninga voru endurkosnir: Síra Sigurður Stefánsson, Sira Kjartan Kjartansson, báðir í einu hljóði. Til að endurskoða sýslusjóðs- sýslu- vega- og hreppa-reikninga, var endur- kosinn í einu hljóði: Síra Sigurður Stefánsson. VI. Sveitaverzlunarleyfi. Um sveita- verzlunarleyfi sóttu þeir: Guðm. Hélgi Finnbjarnarson, bóndi á Sœbóli í Sléttu- hreppi, Árni Arnason, bóndi á Osi í Hóls- hreppi, og Pétur Oddsson, sýslunefndarmað- ur í Tröð í Hólshreppi, var þeim öllum veitt hið umbeðna leyfi. Eru þeir þá orðnir 9, sem sveitaverzlunarleyfi hafa í sýslunni, í 4 hreppunum 2 í hverjum. Leyfin voru öll veitt með 8 atkv. gegn 1. (Síra Sig. Stefánssonar.) VII. Stofnun barnaskóla. Hrepps- nefnd Snæfjallahrepps veitt, samkvæmt þar um kominni beiðni, leyfi til að taka allt að 1000 kr. lán gegn veði í tekjum sveitarsjóðsins, til barnaskólabyggingar á Sandeyri eða Berjadalsá. Vni. Sundkennsla. Til sundkennslu í Reykjanesi veitti nefndin 80 krónur, gegn jöfnu tillagi frá landssjóði; sund- kennari hinn sami og að undanfórnu, Asgeir Ásgeirsson frá Arngerðareyri, og er hann ráðinn með eptirfylgjandi skil- málum: 1, Að kennslan byrji ekki seinna en 9. júlí næstkomandi, og standi eigi skem- ur enn einn mánuð. 2, Að minnsta kosti 10 nemendur taki þátt í kennslunni allan timann. 3, Að nemendur séu sem mest vandir við að synda í fötunum, og í sjó, er kring- umstæður leyfa. — 4, Að kennarinn hafi sjálfur stöðugt ept- irlit með piltunum. 5, Að hann í kaup og fæði fái 120 kr. gegn uppfylling ofangreindra skilmála, að afstöðnu prófi. IX. Vegabætur. Alþingi síðasta hafði veitt 2500 kr. til vegagerðar á Breiða- dalsheiði, með því skilyrði, að hlutaðeig- andi sýslufélög leggðu til jafnháa upphæð. Sýslunefndin samþykkti að veita 1000 krónur til þessarar vegagjörðar, með því skilyrði, að sýslunefnd Vestursýslunnar, sem vegabót þessi er einkum gjörð fyrir, veitti 1500 kr., svo að 2500 kr. fáist á þessu ári á móts við veittan landssjóðs- styrk, og að minnsta kosti meiri hluti vegagjörðarinnar verði gjörður á norðan- verðri heiðinni, í framhaldi af hinum nýja vegi við Skutilsfjörð að Seljalandsósi. Til sýsluvegarins á Hesteyrarheiði voru veittar 200 kr. Til viðgerðar á veginum á Dagverð- ardal voru veittar 70 kr. Til hreppavega í Nauteyrarhreppi */3 sýsluvegagjald 34 kr. 37 a. Þessa árs sýsluvegagjald var alls 845 kr. X. Póstmál. Samþykkt að mæla með því, að aukapóstur verði látinn ganga frá Ögri og að Kálfavík við Skötufjörð, ept- ir komu aðalpóstsins að sunnan i hverri ferð. Enn fremur að aukapósturinn að Tröð í Álptafirði, verði látinn fara alla leið að Eyri við Seyðisfjörð í hverri ferð; og loks, að Aðalvíkurpósturinn frá Hesteyri, verði látinn koma við á Sléttu í báðum leiðum, eða að minnsta kosti í norðurleiðinni í hverri ferð. Mörg fleiri smámál hafði fundurinn til meðferðar. — PrestgjaldafrumYarpið. í „Þjóðólfl" og „Fjallkonunni" hofur verið þyrlað upp töluverðum reyk móti frumvarpi því, sem við þingmaður Barðstrendinga fluttum 4 síðasta þingi, um greiðslu 4 prests- og kirku- gjöldum. Okkur kemur auðvitað ekki til hug- ar, að elta allar þær endileysur, sem þar eru bornar fram gegn frumvarpi þessu, sem þingið samþykkti sem lög. Um það fjölluðu og þeir menn 4 þingi, sem miklu betur voru þvi m41i vaxnir, en þessir andmælendur þess hafa tj4ð sig að vera, ef dæmt skal eptir mótb4rum þeirra. En hins vegar vildi eg mœlast til, að þessir góðu menn vildu athuga eptirfylgjandi

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.