Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.04.1900, Side 4
52
ÞJÓÐVILJINN.
XIY, 13.
spurningar, áður en þeir leggja út i nýjan leið-
angur gegn lögum þessum:
1. Er það réttlátt, að allir húsmenn; þurrabúðar-
menn, kaupstaðarborgarar, lausamenn og
lausakonur, séu iausir við að gjalda dagsverk,
bversu efnaðir sem þeir eru, tíundi þeir að eins
ekki 60 álnir, þar sem allir aðrir í þessari stöðu,
bversu fátœkir sem þeir eru, verða að greiða
gjald þetta tíundi þeir þeir þessa uppbœð?
2. Er það réttlátt, að húseigendur i kaupstöðum
og verzlunarstöðum séu lausir við að greiða
offur, bve mörg þúsund króna virði sem þeir
eiga í húseignum, þar sem aðrir verða að
greiða gjald þetta, ef þeir að eins teljast að
eiga 20 bndr?
3. Er það rétlátt, að allir þeir séu lausir við að
að greiða * lambsfóður, sem ekki bafa jörð til
ábúðar metna til dýrleika, þótt þeir hafi miklu
meiri jarðarafnot og grasnyt, en bœndur sem
gjald þetta verða að greiða?
4. Er það réttlátt, að sá bóndi, sem býr á einu
koti, greiði sama heytoll, og bóndi sem býr
á mörgum jörðum?
Verði þessum spurningum játað með rökum,
þá skal eg fúslega viðurkenna, að lög þessi hafi
litla réttarbót i sér fólgna, en verði það ekki
gjört, öfunda eg andmœlendur þeirra ekkert af
skarpskyggninni eða sanngirninni við gjaldendur
þessara gjalda. <
Aðaltilgangur þessa frumvarps var sá, að fá
skýr lög um greiðslu þessara gjalda, en um
leið reyndi þingíð að jafna mesta ójöfnuðinn í
gjaldskyldunni. Að tekjur presta vaxi nokkuð
verulega við lög þessi, nema ef til vill á stoerstu
kaupstaðarbrauðunum, er einber heilaspuni, og
enga myndi það fremur gleðja, en okkurflutn-
ingsmenn frumvarpsins, kœmist sú breyting
bráðlega á allt launamál presta, er gerði lög
þessi, þótt staðfest verði, sem óvíst er, allsend-
is óþörf.
Vigur 1. marz 1900.
Sigurður Stefánsson.
Frá Bolvíkingum.
í Bolungarvík hefur í vetur vottað
fyrir töluvert meira andlegu lífi, en vana-
lega gjörist í veiðistöðum hér vestra.
Bindindið hefur efizt þar mjög í vetur;
má vera að húsbygging G-oodtemplara
eigi nokkurn þátt í því, með því að nú
er hægt að koma saman til reglulegra
fundarhalda. Eyrir nokkru erogstofnað
þar nýtt félag, er nefiiist „Málfundafé-
lagið“; er aðal-tilgangur þess, að ræða
ýms nauðsynjamáj veiðistöðunnar og hér-
aðsins i heild sinni, og auðvitað, að svo
miklu leyti sem því er hægt, að gang-
ast fyrir framkvæmdum þar að lútandi.
Félag þetta hefur samþykkt reglur fyrir
sig; eru fundir að öllu forfallalausu haldnir
tvisvar'í mánuði, ogoptar, ef annir leyfa-
Á fundum hafa allir félagsmenn málfrelsi
og tillögurétt; hafa ýms mál þegar verið
rædd á fundum þessum, svo sem fiski-
veiðasamþykktarmálið, gufubátsmálið, um
meira hreinlæti og þrifnað á Mölunum
o. s. frv. Fólagsskapur þessi er allrar
virðingar verður, verði eitthvert framhald
af honum, með honurp er mönnum sér-
staklega gefið tækifæri til að íhuga ýms
mál, er miklu geta varðað fyrir hóraðið,
og láta athuganir sínar í ljósi; getur slikt
orðið bæði til að venja menn á að hugsa
dálítið meir um almenn mál, en hingað
til, og sömuleiðis æft unga menn í því,
að setja fram hugsanir sínar. Það er
hvergi hér nærendis hægra að koma á,
og halda við slíkum félagsskap, en í Bol-
ungarvík, þar sem eru saman komin allt
að þremur hundruðum manna úr öllu
Djúpinu og víðar að, og þar eru bæði
þessi, og hver önnur samtök og fólags-
skapur, er miða til að koma í veg fyrir
iðjuleysið og slæpinginn í landlegunum,
mjög þörf. Það er því vonandi og ósk-
andi, að þessi fólagsskapur geti orðið til
þess, að vekja áhuga vermannanna á ein-
hverju veglegra og nytsamlegra, en spil-
um og búðarápi.
I vetur kvað og hafa fram farið kennsla
í landlegum meðal ungra manna, er tek-
ið hafa sig saman um, að nota landleg-
urnar sór til menntunar; hefur Þorgrímur
Sveinsson, realstúdent, veitt ókeypis
kennslu þessa, og er það fallega gjört,
þótt vér á hinn bóginn getum ekki séð,
að það væri ofætlun mörgum mönnum,
að borga slika kennslu, einungis, ef á-
huginn væri almennur.
í báðum þessum tilfellum hefur bind-
indishúsið komið í góðar þarfir, þar hefur
„Málfúndafólagið“ haldið fundi sína og
kennslan farið fram.
Bolungarvík er sjálfsagt ein stærsta,
og að öllu samtöldu bjargvænlegasta
veiðistaðan á landinu; eins og það gleð-
ur alla Djúpmenn, að frétta þaðan um
góðan afla, eins má hitt vera öllum góð-
um mönnum gleðiefni, að vermenn þar
taki sér eitthvað þarflegt fyrir hendur
hina mörgu daga, er veðrið ekki leyfir
þeim að leita sér bjargar á sjónum, og
með stærstu gleðifróttunum þaðan á þess-
um vetri er, auk hins góða afla, sem
lengstum hefur verið þar, vissulega það,
að drykkjuskapur hefur víst aldrei verið
þar jafn lítill og í vetur, sem sjálfsagt
má þakka bindindishreifingunni.
Aðal-styrktarmaður og forgöngumaður
bindindisfélagsskaparins í Bolungarvík er
sýslunefndarmaður Pótur Oddsson í Tröð,
hann er og, ásamt Þorgrími Sveinssyni,
er fyr var nefndur, og Magnúsi bónda
Bárðarsyni í Kálfavík, í stjórn „Mál
fundafélagsins“. —
Minnsta konungsríkið í heiminum. 1 landa-
fræðinni er furstadæmið Monaeo, sem liggur
á landamærum Frakklands og Ítalíu, almennt
talið minnsta ríkið í Norðurálfunni, enda er það
ekki nema ‘jh fy| míla að stærð. Þó er til ann-
að ríki enn þá minna og miklu fátækara en
Monaco, og er þó konungsríki. Kotríki þetta
er ey ein út i Atlandshafi skammt fyrir vest-
an Suðureyjar við Skotland. Ey þessi heitir
St. Kilde, bún er ekki stærri en svo, að það er
rétt mátuleg skemmtiganga umbverfis hana, og
er þó vegurinn slæmur, því vegabætur eru þar
engar í landi. Með góðri sjónpípu má á stund-
arkorni verða all-kunnugur landslagi og lands-
háttum alls konungsríkisins. Þéttbýlt er það
heldur ekki, ibúar eru 2—300. Engin borg eða
bær er í ríkinu, eyjarskeggar, sem eru fiski-
menn, búa víð á dreif um eyna i litlum og lé-
legum kofum; sjálfur konungurinn á enga böll,
hann býr líka í einbverjum kofanum í kóngs-
ríkinu sínu. Annars væri réttara að kalla ríki
þetta drottningarríki en konungsríki, því karl-
maður befur þar aldrei að ríkjum setið. í grund-
vallarlögum ríkisins eru karlmenn alveg úti-
lokaðir frá konungstign, en meykóngar baía þar
jafnan ríki ráðið. Ekki er konungsdómur á St.
Kilde samt arfgengur, heldur er drottning kos-
in af allri þjóðinni; situr bún að völdum, þang-
að til bún giftist; er þá drottning valin að faýju.
Kjörgengar eru að eins ungar ógiptar stúlkur
og ekkjur, sem ekki bafa verið drottningar áður.
Stjórnarfyrirkomulagið er ótakmö rkuð einvalds-
stjórn, en elztu fiskimennirnir eru ráðaneyti
drottningarinnar.
Ekkert hinna stærri ríkja í Norðurálfunni
befur nokkru sinni reynt, að kasta eign sinni
á ey þessa, eða skipta sér nokkurn skapaðan
blut af henni eða stjórnarskipun hennar; bún
befur því aldrei gengið kaupum og sölum milli
stórveldanna, eins og svo mörg önnur kotríki,
til þess hefur konungsriki þetta verið of smá-
vaxið. Eyjarskeggjar eru afkomendur binna
fornu Norðmanna, er fyr á öldum voru fjöl-
mennir um þessar slóðir. Að fjárhagur ríkisins
sé ekki sérlega glæsilegur, sést bezt á því, að
drottningin sjálf hefur ekki önnur laun bjá
þegnum sínum, en fæði og eitthvað utan á sig;
og þó getur borið út af þessu ef ílla fiskast;
verður hún þá alveg að bjargast upp á eigin
spítur. En fiskist vel, ber Hka við að búnfær
nokkra aura fyrir nálar og þess háttar smáveg-
is fyrir sjálfa sig. Drottningunni á St. Kilde
mætti því þykja það kosta kjör, að fá meðal
vinnukonukaup á íslandi, auk heldur meðal
breppstjóra- eða oddvita-laun. Slík konungs-
mata þætti fyrnum sæta í þessu kóngsríki, þar
sem konungurinn getur varla heitið matvinn-
ungur.
Auglýsing.
Það tilkynnist hérmeð vorum heiðr-
uðu viðskiptamönnum, að við sjáum okk-
ur ekki fært framvegis, að kaupa fyrir
stórfisksverð þann fisk, sem ekki heldur
17 pumlunga af gellubeininu, þar sem
það er lægst, og á aptasta sporðlið; þó
munum við, fyrst um sinn, kaupa þil-
skipafisk, sem við þurrkum sjálfir, eptir
sama máli og við höfúm áður keypt hann.
Pingeyri, Dýrafirði 14. febr. 1900.
Aktieselskabet
N. Chr. Grams Handel
v. F. R. Wendel.
BíldMal 12. fefir. 1900,
P. J. Thorsteinsson & Co.
SK andxnavis 1*-
Bxportkaffo surrogat
sem vér höfum búið til í undan farin
ár er nú viðurkennt að hafi ágæta eigin-
legleika.
Kjebenhavn. — F. Hjorth & Co.
Laust yfirsetukonu-umdœmi.
10. yfirsetukonu-umdœmi Norður-Isa-
fjarðarsyslu (Sléttuhreppur norðan Hvestu
að Horni). Þær yfirsetukonur, er kynnu
að vilja sækja um sýslan þessa, eða þeir
kvennmenn, sem kynnu að vilja nema
yfirsetukonufræði í þvi skyni, að takast
á hendur ljósmóðurstörf í þessu umdæini,
sendi skeyti þar að lútandi til undirskrif-
aðs sýslumanns sem fyrst.
Skrifstofu ísafjarðarsýslna 20. marz 1900.
H. Hafstein.
Þakkarávarp.
Við undirrituð, sem fengið höfum að
gjöf frá hr. hvalveiðamanni H. Ellefsen
á Flateyri 200 kr., frá hr. kaupm. L. Tang
50 kr. og frá leikfól. Þingeyrar 91 kr.
25 aura, viljum hér með tjá gefendunum
innilegasta hjartans þakklæti vort fyrir
þessar höfðinglegu gjafir, og biðjum al-
góðan guð að launa þeim fyrir þær.
Meira-Garði og Bakka 22. marz 1900.
Solveig Þörðardóttir, Jón Jónsson,
Guðný Jónsdóttir.
PRENTSMIÐJA PJÓÐVILJANS