Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.06.1900, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.06.1900, Blaðsíða 4
92 Þjóðviljinn. XIY, 23. Beynii 1 nfji, egta litarW, M|lii B u c h’s. Nýr egta (lemantsyartur litur I Nýr egta dökkblár litur — — kálf-blár — | — — sæblár — Allar þessar 4 nýju litartegundir skapa fagran egta lit, og gerist þess eigi þörf, að látið sé nema einu sinni í vatnið (án „beitze“). Til heimalitunar mælir verksmiðjan að öðru leyti fram með sínum viður- kenndu, öflugu og fögru litum, sem til eru í alls konar litbreytingum. Fást hjá kaupmönnum hvívetna á Islandi. Buch’s litunarverksmiðja, Kaupmannahöfn V. Stofnuð 1842 Sæmd verðlaunum 1888. Þykir ykkur það nokkur í'urða, kæru land- ar, þótt slík yflrvöld aíli sér fremur litiliar virðingar eða álits hjá þeim, er undir slíku verða að búa. ísafirði 20. juní 1900. Samson Eyjólfsson. —— Verzlun. í verzlunarskýrslu frá Kaupmannahöfn, dags. 1. júní, segir, að horfúr með fisksölu séu þá eigi sem bezt- ar, með því að aflinn í Finnmörk sé þá orðinn miklu meiri, en um sama leyti í fyrra. I fyrra varð afli Norðmanna alls um 34 milj. fiska, og þó að aflinn væri 1. júní alls og alls orðinn að eins um 30 milj., þótti þá þegar fyrirsjáanlegt, að í vertíðalokin i Finnmörk (um mánaða- mótin júní og júJí) myndi afli Norðmanna vera orðinn töluvert meiri, en í fyrra, enda segja síðustu fregnir, um miðjan júní, að góð aflabrögð hafi þá enn hald- jzt í Finnmörk. Af þessu leiðir, að kaupendur eru mjög tregir á að kaupa, eins og nú stend- ur, vilja heldur biðloka, og sjá hverju fram fer, og verðið fer lækkandi. Hér við bætist og, að töluvert af fiski, bæði norskum og íslenzkum, liggur óselt frá fyrra ári. í Kaupmannahöfn var dálítið af vest- firzkum smáfiski ný skeð selt á 42 kr. sk//., og stór hnakkakýldur jagtafiskur á 68—72 kr., en sunnlenzkur jagtafiskur á 63 kr. U11. í fyrra var borgað fyrir hvíta og sunnlenzka vorull 48 —53 pd., en fyr- ir beztu norðlenzka ull 59—61 e., og þykir mjög hæpið, að þetta verð haldist í ár. L ý s i stendur í svipuðu verði, sem í fyrra: ljóst hákarlslýsi á 28—31 kr., brúnt á 24—28 kr., þorskalýsi ljóst á 27—30 kr., brúnt á 24—28 kr., og sels- lýsi á 28—30 kr., allt fyrir 210 pd., og eptir lit og gæðum. Æðardúnn stendur svipað, sem í fyrra. Lambskinn hafa stórum lækkað í verði, og miklar birgðir liggja óseldar frá fyrra ári. Ekki í vandræðum. Snæfellsnes- sýslubúar verða, sem betur fer, ekki í neinum vandræðum, þótt þeir fari eigi af fleðuskap að senda Lárus Bjarnason til alþingis, þar sem þeim býðst nújafn dugandi þingmannsefni, sem ritstjóri Eínar Hjörleifsson er. Hr. Einar Hjörleifsson hefur, sem kunnugt er, átt góðan þátt i ýmsum þeim málum, er nú standa á dagskrá hjá þjóð vorri, svo að þinginu myndi verða það góður vinningur, ef hann yrði kosinn. Isafirði 30. júní 1000. Tiðarl'ar. Síðan síðasta nr. blaðsins kom út, hefur haldizt sama blíðviðristíðin, sem fyr í þessum mánuði, en jörð þó tekið fremur litl- um gróðri, vegna sífelldra þurrka. í þessari viku hefur þó verið þokumugga öðru hvoru. — • -j- 1. þ. m. andaðist fyrrum bóndi i Neðri- Breiðadal Guðmundur Yaldimar Guðmundsscm, um þrítugt. — Hann var tvíkvæntur, og hét fyrri kona hans Jónínci Jónsdóttir, og eru tvö börn þeirra hjóna á lífi; en seinni kona hans, er hann kvæntist í fyrra haust, og nú lifir hann. er Guðrún Guðmundsdóttir, hálf-systir Jóns Guðmundssonar vegfróða á Grafargili í Önundarfirði, og áttu þau hjón ekki barna. — Guðmundur beitinn var einkar vandaður mað- ur, og drengur góður. 20. þ. m. andaðist að Hlíð í Álptafirði stúik- an Klín Jónsdðttir, um sextugt, systir Bjarna Jónssonar, fyrrum bónda á Seljaiandi. — Hún dó úr lungnabólgu. Aflabrögð hafa nú um hríð verið mun treg- ari í Djúpinu, nema góðir róðrar öðru bvoru á sildbeitu, ef sótt hefur verið út á yztu fiski- mið Bolvíkinga, enda er nú almenningur að hætta róðrum. Strandferðaskipið „Ceres“ kom bingað norð- an um land 27. þ. m., og lagði aptur af stað héðan suður að kvöldi sama dags. f Að kvöldi 22. þ. m. andaðist að Uppsöl- um hér í sýslu Guðmundur smiður Jónsson, fyrrum bóndi að Uppsölum, en siðan lengi hús- maður þar; 88 ára að aldri. Konu sína Halldóru Asgeirsdóttur, prests Jónssonar á Rafnseyri, missti hann árið 1881. ■— Þeim hjónum varð alls 6 barna auðið, og eru nú að eins þrjú þeirra á lífi: Kristín, kona Rögnvaldar bónda Guðmundssonar á Uppsölum, Þnríðnr, gipt Ólafi hreppstjóra Jenssyni i Meiri-Hattardal, og Jónína, sem er ógipt á Uppsölum. Guðmundur sálugi var greindur maður, og fróður um margt. A sama heimili andaðist og síðasta upp- stigningardag ekkjan Óslc Þorsteinsdóttir, er ver- ið hafði hjú Rögnvaldar bónda á Uppsölum í 19 ár, vönduð og guðhrædd kona, og var hún 58 ára, er hún dó. — Maður hennar, er hún bjó skamma hríð saman við, hét Eysteinn Ein- arsson, og drukknaði hér 4 SkutiJsfirði f'yrir rúmum 10 árum. Skipakomur. 27. þ. m. kom gufuskipið „Á. Ásgeirsson“ frá útlöndum, fermt salti tií verzi- unar Á. Ásgeirssonar. 26. þ. m. kom skn. „Guðrún“ frá Kaup- mannahöfn, fermd vörum til ritstjóra blaðs þessa. Meðal farþegja, er héðan fóru með „Ceres“ í þessari ferð, voru: héraðslæknir Þorvaldur Jóns- son til Reykjavíkur og verzlunarmaður Arni Riis til Stykkishólms. Aldrei, segja Aðalvíkingar, að veriðhafijaín mikil brögð að yfirgangi útlendra fiskimanna þar á Víkinni, sem i vor, og hafa þeir eklri að eins spillt þar aflabrögðum, heldur og einnig veiðarf'ærum manna. Alls einu sinni hafði varðskipið „Heimdall- ur“ strunsað þar fram hjá, en þá var þar enga útlenda fiskimenn að sjá, var þvi líkast, sem þeim væri fullkunnugt um ferðir gæzluskips- ins, og höfðu því haft sig í burtu þaðan rétt í þann svipinn. Tvö herbergi fást til Jeigu nú þegar. Kitstjóri vísar á. Jarðepli og laukur o. fl. fæst í verzluninni í Læknisgötu. Enn fremur ný kominn þakpappi, glervörur ýmiskonar, og miklar birgðir af bomesístumpum. Prjónvörur: barnakjólar, kvenn- og krakka-skyrtur o. fl. Öundmagar vel verkaðir keypt- ir háu verði. — Sömuleiðis enskur fiskur („Wardsfiskur“). Tvö seglskip verða á ferðinni um Djiipið í sumar. Spekulaní. Undirritaður sendir skip um ísafjarð- ardjúp um naiðjan júlí, og selur þá ýms- ar vörur, með óvanalega góðu verði, gegn þurrum fiski, ull og peningum út í hönd. Dvergasteini 28. júní 1900. C íi i-l I \ Jrlei'liifson. Eptir að jeg í fleiri ár hefi þjáðst af magaveiki, og árangurslaust leitað fleiri lækna, fór jeg fyrir rúmu ári, að reyna hinn heimsfræga Kina-lífs-elexír frá hr. Yaldemar Petersem í Friðrikshöfn; og eptir að jeg hafði eytt úr fjórum flöskum fann eg stóran bata. Hefi eg siðan, við stöðuga brúkun þessa ágæta ineðals, getað unnið án verkjar, en finn þó ávallt, að eg ekki get verið án þessa heilsubitters, sem gaf mér heilsu mína aptur. Kasthvammi, pr. Húsavík í Þingeyjarsýslu. Sigtryggur Kristjánsson. Iiiina-lifs-elexii*inn fæst hjá flestum kaupmönnum á Islandi. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elexír, eru kaupendur beðn- 'TT- ~y » ir að líta vel eptir þvi, að —standi á flöskunni í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðan- um: Kínverji með glas í hendi, og firma nafnið Yaldemar Petersen, Nyvej 16 Kjöbenhavn. PRBNTSMIÐJA ÞJÓDVILJANS

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.