Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.04.1901, Page 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.04.1901, Page 5
XV 15.—16. Í>JÓB VILJINN. 61 Athugasemd við æfisögu barnaskólans í Norður-Aðalvík. í 7.—8. tölublaði „Þjóðviljanau, 23. f. m. 1901, er all-ýtarleg æiiaaga barna- skólana á Látrum í Norður-Aðalvik; en þótt hún sé löng, þá sannast samt, að sagan er eigi nema hálfsögð, þegar einn segir frá. í allri þessari æfisögu hefur lent við þá hugmynd hjá hreppsbúum: 1. Að hvergi sé svo þéttbýlt í hreppnum, að hægt sé að koma fyrir svo mörg- um börnum, sem sveitarfélagið þyrfti að láta kenna árlega, nema með því meiri erfiðleikum og kostnaði. 2. Að skólinn myndi eigi verða sóttur, svo vel sem þyrfti, þegar til lengdar léti, bæði vegna samtaka- og félags- leysis, sem ávallt lýsir sér livervetna manna á milli, og vegna báginda ein- staklinganna annarsvegar, svo að skól- inn gæti því orðið þeim, er eigi geta notað hann, að byrði. Höfundi „Þjóðv.u-greinarinnar hef- ur nú farið svo, vegna þessarar miklu aðsóknar, sem hann lýsir, að sé að skól- anum, að hann gleymír, eða vill ei telja nema sjálfan sig við barnakennslu, þar sem þó má fullyrða, að einn farandkenn- ari er í Grunnavíkursókn, og á Sléttu er heimakennsla um hönd höfð nú, eins og verið hefur að undantornu i átta ár sam- fleytt, ýmist allan eða hálfan veturinn, og kennarinn ráðinn, ýmist af sóknar- nefnd eða hreppsnefnd. Jeg er mjög hræddur um, að aðsókn að barnaskólanum á Látrum verði mest og bezt fyrst, á meðan hann er nýr, og ei komnir í ljós ávextimir, þar sem mönnum er mjög títt að aðhyllast það nýja, en hverfa svo frá því síðar, líkt og þegar búnaðarfélag var stofnað fyrst hér í hreppnum; þá fengust nógir, bú- andi og búlausir, til að ganga í fýrnefnt félag, og var furðanlega mikið starfað í því fyrstu þrjú árin. enda þótt búnaðar- félagið væri þá talið undir lélegri stjóm; en siðan bætt var úr því, og góð stjórn fékkst, hafa félagsmenn lagt árar í bát, og ekkert látið vinna í nefndu félagi, enda þótt góð árferði hafi verið, nú sem fyr, og hafa jafn vel eigi hirt um að mæta á opinberum fundum félagsins, sem opt hafa verið boðaðir. Eg hefi líka sannfrétt, að húsráðend- ur á Látrurn hafi eigi getað tekið fleiri börn til húsnæðis, en þau, er nú eru, og þó eru mörg börn til, sem þyrftu kennslu, sem enn verður eigi komið á skólann. Af framan greindum ástæðum sést það ljóst, að ef barnauppfræðingu í Aðalvík- ur-prestakalli ætti að vera borgið, þá þyrfti annað hvort að ráða 2 farandkenn- ara, sem kenndu í hreppnum hjá þeim, er ei geta notað nefndan skóla, eða að tveir skólar væru i prestakallinu á þeim stöðum, sem ijölbyggðastir eru, og myndi það þykja ærinn kostnaður. Margur mun nú má ske segja. að betra sé 1 barnaskóii en enginn, og það játa jeg lika. En mun hann vinsæll hjá þeim, sem verða að gjalda til hans á einhvern hátt, en geta eigi notað hann þótt þurfi, og verða því að kosta upp á’ heimakennslu, svo sem enginn skóli væri? Nú í undan farin ár hafa farandkenn- arar verið hér í hreppnum 3, og stund- um 4, og hefur sú kennsla gefizt heldur vel, og þá kennslu tel eg hægasta að nota í þessum strjálbyggðu hreppum. Það er gott, að geta reist skóla þar, sem þéttbýlt er, og þar gjörir hann líka mest gagn, á næstu lieimilunum. En ef menn, sem eigi hafa hlutdeild í þessum barnaskóla á Látrum i Norður Aðalvík, tækju saman höndum, til að reisa annan barnaskóla, t. d. á Hesteyri, eða í Yest- ur-Aðalvik, hverra myndi þá verða, að sjá um hann, eða gjalda til hans, nema þeirra, er hafa stofnsett hann? Það er hætt við, að þeir fengu ekki að hafa sam- eign eða samlagssjóð, eins og kirkjurnar bérna í prestakallinu, og þá myndu breppsbúar eigi styrkja annan, ef tveir væru, en sleppa hinum. Ritað í marz 1901. Brynjblfur Þorsteinsson. ———"-vvgxoo*------ hafirði 10. apríl 1901. Tíðarfar. 30. f. m. skipti um tið, og gerði þá norðangarð, er stóð í 5 daga, með all-mik- illi frosthörku. allt að 12 stigum (Reaumur) suma dagana. En á skírdag (4. þ. m.) dró úr frostinu, og gerði stiilt veður um bænadagana, en gekk síðan aptur til norðanáttar. -j- 2. þ. m. andaðist hér í kaupstaðnum, eptir 10 daga legu í heilabólgu, ungfrú Mar~ grét Olafsdóttir, 22 ára að aldri, fædd á Sela- kirkjubóli í önundarfirði 13. okt. 1878, þar sem foreldrar hennar Ólafur Ólafsson og Elín Hall- dórsdóttir, húshjón hér 1 kaupstaðnum, bjuggu þá búi. Margrét sáluga var fríðleiksstnlka, siðprúð og vönduð. Skarlatssóttin er nú íarin að stinga sér 94 sinnar, og baka sér þannig háð og fyrirlitningu manna — allt þetta hlýtur að hafa vakið hjá henni sára gremju, og að hafa rekið hana til þess, að grípa til óyndisúrræða Svona leið nú það, sem enn lifði nætur. En er dagur rann, komu tveir lögregluþjónar til hallarinnar, til þess að taka ráðskonuna fasta. Greifinn hafði kært hana um skjala- og bréfa-fals. En er opna skyldi herbergið, var hurðin tvilæst að innanverðu. Það var nú barið og kallað, en alit var kj'rrt þar inni, sem fyr. Loks var þá hurðin mölvuð upp, og þar lá þá veslingurinn — örend. Hún hafði hengt sig. Hér og hvar í herberginu lágu peningar og dýr- gripir, og taldist svo til, að þetta væri allt um 80 þús- und króna virði. Öllu þessu hafði henni tekizt að hnupla frá greif- anurn, eða næla sér hjá honum á 20 árum. — — — Eptir það er glæpakvendi þetta hafði nú kveðið upp dóminn yfir sjálfri sér, sem fyr er lýst, rættust nú þær óskir, sem Margrét hafði beðið til forsjónarinnar, að rætast mættu, er hún hyrfi heim aptur til föðurheim- kynnanna. Þeim feðginunum bar nú ekkert á milli. Þau lifðu saman glöð og ánægð, sem í gamla daga, og var eigi að sjá, sem neins andstreymis væii nú í bráðina að vænta. En það er gömul reynzla, að dutlungar örlaganna tlífa ekki þeim, sem ánægðaatir eru, fremur en öðrum. 87 skorin, og mætti stýla bréfið til: „Barónsfrúar W ..., poste restante, i H ... “ Bréf þetta var fyrir greifann, sem reiðarslag. Hann varð alveg gagntekinn af sorg og söknuði. Það var ekki það eitt, sem þungt lagðist á hann, að hann liafði nú misst einka-dóttur sína, síðustu hu$g- unina í mótlætinu, heldur öllu fremur hitt, að hann hlaut að líta svo á, vegna þess hve kuldalega bréf þetta var orðað, að dóttur sinni hefði í raun og veru aldrei þótt neitt vænt um sig. Eugu að síður gat hann þó ómögulega fengið það af sér, að lirinda barni sinu frá sér. Hann fékk þvi ungfrú Hagedorn all-mikla fjárupp- hæð i hendur, fal henni, að senda Margréti fé þetta, og rita henni, að bréf hennar hefði nær komið sér í gröfina, en engu að síður mætti hún þó vænta fyrirgefningarinn- ar, ef hún kæmi tafarlaust heim aptur með manni sínum. Auðvitað sveikst þessi svívirðilega óþokka-kind alveg um þetta. Peningunum stakk hún í sinD eigin vasa, og ritaði Margréti að eins örfáa,r línur, þar sem hún tilkynnti henni, að greifinn hetði svarið þess ðýran eið, að dóttir sin skyldi aldrei framar fyrir sín augu koma, og að bréf frá henni skyldu jafnan verða send aptur um bæl óupp- rifin, ef hún dirfðist að skrifa. — Ungfrú Hagedorn hafði nit komið ár sinni svo vel fyrir borð, að hún gat nú haldið svívirðu sinni tálmana- laust áfram. Það liðu því eigi margar vikur, áður en hún réð ein öllu á heimilinu, og smám saman tókst henni að fá greifann, sem farinn var að heilsu, og naumast með

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.