Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.10.1901, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.10.1901, Blaðsíða 3
XY 42. Þjóbviljinn. 167 síðastl., lýsti hann trúarástandinu hér á landi mjög hörmulega. „Enga aptur- hvarfshreiíing vSeri að sjá, eða finna“, en andlegur dauði rikti yfir öllu“, svo að slendingar þörfnuðust í fyllsta mát.a „fyrirbæna trúaörau. I öðrum fyrirlestri, sem piltur þessi hélt í Reykjavik ný skeð, kvað hann og hafa ávísað samastaðinn hjá Kölska karli, kunningja sinum, mjög örlátlega, til seðri, sem lægri, rétt eins og eigi hann þar á öllu ráð, og þóttist hann vera „þyrstur í sálir“(!). Yér teljum oss skylt, að vara almenn- ing alvarlega við öllu trúboðsstarfi trú- vinglara þessa, sem reynir að innræta mönnum blinda bókstafstrú, vekja upp helvítisgrýiur, og líkast til að hafa út úr einfelldningum peninga, undir yfirskini trúarinnar, ef hann rekur öfluglega erindi dönsku „ innri-missionarinnar“. ---ooc--------- Hagui- almennings mun nú almennt vera með betra móti í sveitun- um hér við Faxailóa sunnanverðan, þar sem atvinna á þilskipum hefur yhrleitt lánazt mjög vel. — A opna báta aflað- ist og fremur vel síðastl. vetur, í verstöð- unum við Gfarðskaga; en mjög er sá út- vegur nú farinn að verða i smáum stýl, í samanburði við það er áður var. Lánsverzlunin, sem áður blómgaðist í Reykjavík, sem viðar, má nú því sem næst teljast úr sögunni, að þvi er verzl- anirnar í 'Reykjavik snertir, svo að flest- ir láta nú hönd selja hendi, og er sú viðskipta-aðferðin báðum málspörtum mun hentari, og hefur að mun aukið sparsemi og nýtni hjá almenningi. Yfirleitt mun mega fullyrða, að skuld- ir hafi eigi safnazt hjá almenningi á sið- ari árum, en margir höggvið árlega nokk- urt skarð í eldri skuldir, er sköpuðust á „góðu árunum“, svo sem víðar vill við brenna, þar sem lánsverzlun tiðkast. ------------- w Ur höfuðstaðnum. Giptiug' í dóuikirkjunni. Mánudaginn 21. þ. ru. gaf dómkirkjupresturinn saman i hjóna- band þau Þorstein Þorsteinsson, skipstjóra frá Bakkabúð, og Guðrúnu Brynjólfsdóttur frá Eng- .ey. Við hjónavígslu þessa var það nýlunda, að hún fór fram 'í kirkjtmni, því svo mjög eru stofubrullaup farin að tíðkast nú, að þetta er i annað sinn, sem hjón hafa verið gefin saman í Beykiavikurdómkirkju á þessari öld. Eins og geta má nærri, var það mikil hátíð fyrir Yík- urhúa, að sjá þessa athöfn, enda höfðu í þrjú kvöld á undan safnazt hópar af fólki að kirkj- unni, til þess að missa ekki af dýrðinni, ef hrúðhjónin kynnu að finna upp á því, ,að sýna sig eitthvert það kvöld við kirkjudyrnar; en öll þau kvöld var kirkjan lokuð, og hrúðhjónin létu ekki sjá sig, fyrri en á mánudagskvöld kl. (!; en þá var ekki að eins kirkjan, heldur og sund- ið milli hennar og þinghússins orðið svo troð- fullt af fólki, að lögreglulið bæjarins átti fullt í fangi með, að ryðja hrúðhjónunum og boðs- fólkinu hraut, inn í kirkjuna. Hrindingar og ryskingar voru talsverðar í þrengslunum, því allir vildu veitóa sem næstir brúðhjónunum, og svo var mikil forvitni að sjá á sumum andlit- unum, að það var eins og menn ættu örðugt með, að halda augunum kyrrum í höfðinu. Unga fólkið sótti náttúrlega fastast að, og er það eðlilegt, því það þarf að læra, hvernig það á að fara að, ef það finnur einhverntíma upp á því, að láta gipta sig; en eldra fólkið vildi komast ' að líka, má ske til að sjá og heyra, hvort hjóna- vígslu-„ceremóníurnar“ vœru nú hókstafiega þær sömu, og á árunum, þegar það gekk í hjónaband, sællar minningar. — Næstliðinn sunnudag þótti það ekki ástæðulaust, þó dóm- kirkjupresturinn ávítaði söfnuðinn fyrir fram- komu hans við þetta tækifæri, enda kvað hann hafa gefið söfnuðinum rækilega ráðningu frá ræðustólnum. „Frithjof“, fjárfiutningaskip Zöllners, kom hingað 24. þ. m., og fór aptur að kvöldi þann 2fi., með 2689 sauði úr Árnes- og Rangárvalla- sýslum. Með því skipi sigldu þeir Jón Jakohs- son, forngripavörður, og Gunnar Einarsson kaupm., á fund þeirra Zöllners og Vídalíns. — Sama dag (26. þ. m.) fór „Lára“ til útlanda. Með henni sigldi Lárus kaupm. Snorrason frá ísafirði, og úr bænum frú Clausen, og 2 hörn hennar, Páll Jónsson smiður, Einar Er- lendsson snikkari, og nokkrir fleiri. Föstudaginn 25. þ. m. slasaðist Jón Bach- mann, verzlunarm. i Nýhöfn, á þann hátt, að heima hjá sér um kvöldið, hljóp hann upp stiga, sem hann var vanur að leika sér við, að hlaupa í tveimur sporum; en i þetta sinn mis- heppnaðist leikurinn, svo hann datt, og síðu- hrotnaði. Nú er hann sagður á góðum bata- vegi. Strandupphoð. 29. þ. m. var skipið „Thrift“ selt á uppboði, ásamt nokkrum skemmdum vist- um, köðlum o. fl. Skipið sjálft, sem bæði er gamalt og talsvert hrotið, keypti kaupm. Jes Ziemsen, fyrir 600 krónur. Efasamt er, að hon- um muni þykja tilvinnandi, að láta hæta það, og auka með því útgerð sína. í fagnaðar skyni yfir ráðherra- skiptunum héldu vinstrimenn í Dan- mörku hátíð mikla í Kaupmannahöfn 1. sept. síðastl., og sóttu þá hátíð kjörnir fulltrúar úr ílestum sveitum i Danmörku. Yar konungi vorum þá einnig ilutt þakklætisávarp, og las bóndi einn ávarp- ið upp fyrir honum. 224 undir vagninum, fleygði sér fyrir fætur henni, kyssti hönd hennar i ákafa, og vætti hana með heiturn tárum. „Nei ekki svona“, hvíslaði hún all-kvíðin „ekki svona, ekki svona“ -. En nú héldu honum engin bönd. Hann slangraði arminum um mitti hennar, og dró hana að sér, æ ákafar og ákafar. Og er hann leit þá framan í hana, og augu þeirra unættust, þá var, sem hyrfi henni himinn og jörð. Hún hvíldi við brjóst hans, og varir þeirra mættust. Með ósviknum, sæluríkum og æsandi kossi staðfestu þau nú það, sem lengi hafði legið i loptinu. þau voru bundin órjúfanlegum ástarböndum. Sátu þau svo um hrið í legubekknum, hvort við annars hlið. Kvöldið datt á, og myrkrið varð æ meira og meira. í lágum róm sagði hann henni nú alla sögu Maríu Lúcke, frá upphafi til enda. Hann sagði blátt áfram frá öllu, og fegraði ekkert, en lýsti þó eigi sínum eigin tilfmmngum. Stúlkan hlýddi á hann með athygli. Hjá elskendum er ímyndunaraflið ríkt, og veitti henni þvi eigi örðugt, að geta sér til þess, sem hann þagði um. Henni skildist, hve ríkan bústað mannástin, mildin og gæzkan hafði reist sér i hjarta hans, og gramdist þá, er hún hugsaði til smánarorðanna, sem hún hafði heyrt töluð um samband hans og Maríu Lúcke. Hve aumar og brjóstumkennanlegar fundust henni þá eigi þessar manneskjur vera. En er hann hafði lokið sögu sinni, þrýsti hún vör- 221 Engu að siður vildi hann þó gjarna lita hús það i síðasta skipti, þar sem hann hafði dvalið svo opt sér til ánægju. Daginn, áður en hann ætlaði af stað, gekk hann því eptir götunni, fram hjá gömlu linditrjánum, er skyggðu á hús Heinsbergs yfirdómara. Hann mundi vel eptir þeirri stundu, er hann kom i fyrsta skipti i þetta hús. Yeðrið var þá ofur svipað veðrinu, sem nú var. Sólin skein á húsið, og gluggatjöldin voru fyrir gluggunum. Honum fannst hjartað svella í brjósti sér. Hann gekk í hægðum sínum fram hjá húsinu, sneri svo við, og gekk fram hjá því aptur. Að því búnu krækti hann inn í hliðargötu, og sneri svo aptur i þriðja skipti. Honum fannst, að sér væri nú ómögulegt, að fara þaðan, nema hann kastaði þó í síðasta skipti kveðju sinni á ganginn og stigann, þar sem hún hafði svo marg-opt tekið á móti honum. I forstofunni kom hann auga á gömlu postulíns- plötuna, er á stóð „Heinsberg“, með stóru letri. Dyra-bjallan var þar rjett hjá, og — áður en hann vissi af, hafði hann kippt hægt i bjöllustrenginn. Það kom hik á hann; en nú varð það eigi aptur tekið. Hurðinni var hrundið upp, og á þröskuldinum stóð Pálína, steinhissa. „Er yfirdómarinn heima?“ spurði hann, vandræða- legur. „Nei; en ungfrúin er heima“.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.