Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.11.1901, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.11.1901, Síða 1
Verll árgangsins (minnst 1 52 arkir) H kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur.,og í Ameríku doll.: 1.50. \ Borgist fyrir júnímán- ! aðarlok. ÞJÓÐYILJINN. — j= Fimmtándi ÁB9AN«UR. =j ■=— --1—EITST JÓRI: 8KÚLI THOKODDSE N. =='***£•—>- Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- j anda fyrirSO. dagjúní- mánaóar, og kaupandi í samhliða uppsögninni '' borgi skuld sína fyrir blaðið. M 44.—45. !j Bessastöðum, 16. NÓV. 19 0 1. Biðjið ætíð um: Otto Monsteds Danska smjörlíki, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott, eins og smjör. V e r k s m i ð j a n er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu, í samanburði við gæðin. Fæst lijá liíiupmöniiiiiiLim. Útiön<i. Síðan útlendra tíðinda var síðast getið hér í blaðinu, hefur þetta gjört rnark- verðast: Danmörk. Ríkisþing Dana var sett 5. okt. síðastl., og las konungur þá sjálfur upp boðskap sinn til þingsins, er fór i þá átt, að konungur hefði nú orðið við þeim óskum þjóðarinuar, að skipa ráðaneyti, er nyti trausts meiri hluta þjóðarinnar, og vænti hann því, að rikis- þingið myndi styðja ráðaneytið, svo að samvinna þess og þingsins gæti borið sem blessunarrikasta ávexti. I konungs- boðskapnum var enn frernur getið heiztu nýmæla, er ráðaneytið myndi leggja fyr- ir þingið, svo sem lögleiðslu kviðdóma í sakamálum, breyting skattalaga, aukning kosningarréttar í sveitamálum, hagkvæm- ari skipun hermála, o. fl. o. fl. Við þingsetninguna var við staddur Qeory, Grikkja konungur, margt annara ættmanna konungs, útlendir sendiherrar, nýju ráðherrarnir, og þingmenn all-flest- ir. — Töluverða eptirtekt vakti það þó, að Estrup og Nellemann gamli voru eigi við staddir, munu eigi hafa kunnað sór geð til þess, að horfa með eigin augum á breytinguna, sem á er orðin. Konungsboðskapnum svaraði fólks- þingið fám dögum síðar á þann hátt, að tjá konungi þakkir sínar fyrir ráðherra- skiptin, og heita nýja ráðaneytinu aðstoð sinni, og var ályktun sú samþykkt í einu hljóði, með þvi að hægrimenn greiddu henni atkvæði, sem aðrir, og þótti þó kynlegt. Forseti í landsþinginu var endurkos- inn háskólakennari Matzen, en í fólks- þinginu Herman l'rier, með þvi að Högsbro gamli treystist nú eigi lengur til, fyrir aldurs sakir; en vara-forsetar í fólksþinginu urðu: Christopber Krdbbe hóraðsfógeti og A. Tliomsen, józkur bóndi. Tíðindi þóttu það í Danmörku, að hægrimenn í landsþinginu endurkusu nú eigi Lars Dinesen, sem ríkisreikninga revisor, og hefir hann þó haft þá stöðu á hendi í 21 ár samfleytt. 12. okt. síðastl. var í fyrsta skipti gerð tilraun með sendingu þráðlausra fréttaskeyta i Danmörku. — Fréttaskeyt- in voru send rnilli Hungsted og Kron- borg, sem er 2a/2 míla dönsk, og tókst vel. ý 25. sept. síðastl. andaðist Bjerre prófastur, alkunnur hægrimaður, er var kennslumálaráðherra í ráðaneyti Sehe- sted’s. Hann var fæddur 1848, og var það nýrnasjúkdómur, er dró hann til dauða. — — Notegur. Stórþing Norðmanna tók til starfa 12. okt f Látinn er 5. okt. síðastl. Georg Christjan Sibbern, er fyrrum var forsæt- isráðherra Norðmanna um hríð. Hann var 85 ára, að aldri, er hann andaðist. Ekkert fréttist enn um norðurfarana, Sverdrup og félaga hans, og hafa menn ekkert til ferða þeirra spurt, síðan 17. ágúst 1899, er einhverjir eskimóar á austurströnd Grænlands urðu skipsins „Frarn“ varir. — — — Finnland. Rússastjórn heldur enn áfram kúgunarráðum sinum á Finnlandi. Almennir mannfundir eru þar nú harð- lega bannaðir, og útkoma dagblaða misk- unnarlaust heppt, ef stjórninni þykja þau sér andvíg. Tvo síðustu sunnudagana í síðastl. septembermánuði var lagt fyrir presta á Finnlandi, að birta af prédikun- arstól herlög þau, er stjórnin hefir vald- boðið á Finnlandi; en með því að lög þessi fara i bága við grundvallarlög Finna, og hafa eigi náð samþykki finnska þingsins, þá neituðu 50 prestar að lesa lögin upp af prédikunarstóli, en 20 prestar báðu sig bréflega undan þegna. En alls staðar, er lögin voru upp lesin, þusti fólk út úr kirkjunum, eða mót- mælti lögunum. Enn fremur hafa og 471,300 Finn- lendingar skrifað undir mótmælaskjal, og falið það þingi sínu til frekari meðferðar. Rússland. Þaðan er að frétta all- mikinn bruna i öndverðum októbermán. í þorpinu Shorupp', þar brunnu alls 126 hús. Enn halda Rússar yfirráðum öllum í Mandsjúríinu, eins og Kina-stjórn ætti þar ekkert yfir að segja. En gagnvart, Bretum, Japansmönnum o. fl., vantar ekki þær fullyrðingarnar, að Rússum komi alls ekki til hugar, að leggja þessi víðáttumiklu landflæmi undir sig, en sóu að eins til neyddir, að lita þar eptir um stund, meðan stjórnin sé i ólestri i Kína, svo að járnbrautum Rússa o. fl. sé þar enginn háski búinn. — — Búa^stríðið. 9. okt. siðastl. voru tvö ár liðin, siðan ófriðurinn milli Búa og Breta hófst, og er ekki annað sýni- iegt, 6D að enn sé langt til ófriðarloka. Áður en óf'riðurinn hófst hugði her- stjórn Breta, að 10 [ms. hermanna rnyndu nægja, til að kúga Búa-lýðveldin; nokkru síðar lét hún að vísu i ljósi, að ekki myndi veita af 70 þús., en þá væri ó- friðinum þegar i stað lokið. — Engu að siður hefir þó sú raunin á orðið, að Bretar hafa orðið að senda full 300 þús. hermanna til Suður-Afríku, og geta þó eigi bugað þessa fámennu kappaþjóð enn og munu þó Búar eigi hafa haft meira lið, en 40 þús. manna í mesta lagi, og er því ófriður þessi þegar orðÍDn Bret- um til stórkostlegrar vanvirðu, hvernig sem lýkur. I lok septembermán. höfðu Bretar alls misst um 76 þús. manna, er fallnir voru eða sárir, og mælt er, að ófriðurinn hafi þegar kostað þá um 2500 milj. króna. 9. okt. var guðsþjónusta haldin í Haag, og fleiri bæjum á Hollandi, og beðið fyrir málefni Búa, að forsjónin vildi unna þeim sigurs að lokum, eptir allar börm- ungarnar. Bretland. í öndverðum október- mán. hélt Róberts lávarður, fyrrum yfir- hersböfðingi Breta í Suður-Afríku, ræðu i Lirerpool, og lét þar, sem Bretar mættu vera ókvíðnir, að því er úrslit Bría-ófrið- arins snertir, þó að „guerilla“-ófriðurinn þar syðra væri all-örðugur viðureignar. Svo er að sjá, sem frjálslyndi flokk- urinn á Bretlandi só enn all-sundraður, og veldnr þvi einkum ágreiningurinn um Búa-stríðið, og svo meðfram skoð- anamunur, að þvi er snertir heimastjórn íra. — Asquitli, einn af foringjum frjáls- lynda flokksins, lót ný skeð þá skoðun sina í ljósi í ræðu einni, að frjálslyndi flokkurinn ætti ekki að taka að sór stjórn- arformennskuna, fyr en hann væri svo liðsterkur á þingi, að hann þyrfti eigi fylgi Ira. Á hinD bóginn fórust John Redniond, foringja íra, svo ný skeð orð í Dublin, að Irar hefðu fyllstu ástæðu til þess, að fara að grípa til vopna, til að vinna fóst- urjörð sinni frelsi. Við aukaþingkosningu, er fram fór í haust í Lanarkshíre á Englandi, vai

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.