Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.02.1902, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.02.1902, Blaðsíða 8
28 Þjóðviljinn . XVI, 6.-7. H. P. Duus verzlun.............. 1200 kr. Ól. Á. Ólafssonar verzlun . . . 600 — Finnbogi Lárusson, og verzlun bans, í Gerðum.................. 290 — Þórður J. Thoroddsen læknir. . 130 — Ágúst Ólafsson verzlunarstjóri . 110 — Einar hreppstj. Jónsson í Hofi . 90 — Dbú Á. Árnasonar, Kothúsum . 90 — Páll Jónasson, Yörum .... 80 — Árni Árnason, Gerðum .... 75 — Framvegis væntir blaðið að geta flutt skýrslur um bæztu útsvörin i flestum nærhreppunum. Til gamle og unge Mænd anbefales paa det bedste det nylig i betydelig udvidet Udgave udkomne Skrift af Med.-Raad Dr. Míiller om et FORSTYRRET J^ERVE- OG JSexual—JSystem og om dets radikale Helbredelse. Priis incl. Forsendelse i Konvolut 1 kr. i Frimærker. Curt Rober, Braunschweir/. Kresólsápa. Tilbúin eptir forskript frá hinu kgl. dýralækningaráði í Kaupmannahöfn, er nú viðurkennd að vera hið áreiðanleg- asta kláðamaurdrepandi meðal. Fæst í 1 punds pökkum hjá kaupmönnum. A hverjum pakka er hið innskráða vöru- merki: AKTIESELSKABET J. HAGENS SÆBEFABB.IK, Helsingor. Umboðsmenn fyrir Island: F. Hjorth & Co. Kjöbenhavn K. TH33 EDINrciBTJIUa: Roperie & Sailcloth Company Limited, stofnað 1750. Verksmiðjur í Leith og Gríasgow. B ú a t i 1 færi, streugi, kaðla og segldúka. Vörur verksmiðjanna fást hjá kaup- mönnum um allt land. Umboðsmenn fyrir ísland og Færeyjar. F- Hjorth &. Co. Kaupmannahöfn K. smíðuð hjá Burmeister & Wain, sem er frægust og mest verksmiðja á norður- löndum. „Perfeot“ gefur meira smjör en nokkur önnur skilvinda, hún er sterk- ust, einbrotnust og ódýrust. „Perfect“ skilvindan fókk hæðstu verðlaun, „grand prix“, á heimssýning- unni í Parísarborg sumarið 1900. Það má pansta hana hjá kaupmönnum viðsvegar um land. „Perfeet" skilvindan nr. 0, sem skilur 75 potta á klukkustund, og kostar að eins 110 krónur. Einkasölu til íslands og Pær- eyja hefur: Jakob Gunlögsson, Kjobenhavn K. Eg hefi síðustu 6 ár verið þungt haldinn af geðveiki og brúkað við því ýmisleg meðul, en árangurslaust, þar til eg iyrir 5 vikum fór að brúka Kína-lífs- elixír Waldemars Petersen í Friðrikshöfn þá fókk eg undir eins reglulegan svefn; og þegar eg var búinn með 3 glös af elixírnum, kom verulegur bati, og vona eg, að mér batni alveg, ef eg held áfrain með hann. * Staddur í Reykjavík. Pétur Bjarnason frá Landakoti. Að framan skráð yfirlýsing só af frjáls- um vilja gefin, og að hlutaðeigandi sé með fullri skynsemi, vottar. L. Pálsson, prakt. læknir. Ivíu:i-líls;-el«‘xíi‘inn fæst hjá flestum kaupmönnum á íslandi, án nokk- urrar tollhækkunar, svo að verðið er, sem fyr, að eins 1 kr. 50 aur. fyrir flöskuna. — Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elexír, eru kaupendur beðn- ir að líta vel eptir því, að —standi á flöskunni í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskurniðan- um: Kínverji með glas í hendi, og firma nafnið Yaldemar Petersen, Frederikshavn- Kontor & Lager Nyvej 16. Kjöben- havn. PRENTSMIÐJA PJÓÐVILJANS. 34 „Vindillinn er góður“, mælti gamli maðurinn, er hann hafði reykt ofur-lítið. „En — verðið?“ Steinert nefndi það. „Er til nokkurs að kíta við yður um verðið?“ „Stundum“, mælti hr. Steinert, „því að sumir vilja einatt hafa afslátt. — En yður áleit eg skynsaman mann, og nefndi því strax lægsta verðið“. „Dálítinn afslátt gefið þér þó má ske“, mælti hr. Hildebrand, „kaupi eg nokkur þúsund1'. Hr. Steinert lokaði kassanum þegjandi, tók fram annan kassa, sýndi honum, og mælti: „Hór er önnur tegund Kuba-vindla, sem er ó- dýrari“. „Þér eruð hreinn og beinn maður“, mælti gamli maðurinn hlæjandi, „og fellur mér það vel, svo að við eigum sjálfsagt viðskipti nokkur. Komið nú inn á skrifstofu með mór, og drekkum þar eina flösku af víni, til að kynnast betur, og líta á vörur yðar“. Að svo mæltu tók hann í annan endann á koffort- inu, en Steinert í hinn, og báru þeir svo koffortið á milli sín, sem vinir, inn á skrifstofuna. Settust þeir siðan að vínflöskunni, spjölluðu, og reyktu góðu vindlana. Steinert skýrði frá ýmsu í Berlín, og frá verzlun- arfélaginu Oldecott & Co. Gat hann þess einnig, að félagið fengist jafn framt við fasteignakaup, og kvaðst í gær hafa heyrt, að stór- býlið Gromberg væri til sölu, enda hefði minnst vantað á, að saman gengi um söluna milli eigandans og hr. Scharnau. 35 Hr. Hildebrand kvað það satt vera, en róð hr. Stein- ert jafn framt frá því, að bendla sig um of við hr. Karl af Heiwald. Að vísu var hann eigi eins opinmynntur, sem hr. Brun hafði verið i gær, er hann var góðglaður, og brígslaði þeim bræðrunum um morðið, en kvað það þó sannfæringu sina, að grunur hvíldi á þeim bræðrum, svo að hyggilegra væri, að leggja ekki lag sitt við þá um of. Hr. Steinert, sem þótti ofur-gaman að þessum merkilegu voða-sögum, hlustaði nú í annað skipti meú athygli á þær allar, allt frá hvarfi Pólverjans til síðasta morðsins. Frásögn hr. Hildebrands gamla var að öllu leyti samhljóða sögusögn hr. Brun’s. Sá var einn munurinn, að þar sem hr. Brun ósjálfrátt reyndi að leggja áherzlu á allt, er styrkt gat þá skoðun, að Heiwaldsbræðurnir væru sekir, þá reyndi hr. Hildebrand öllu fremur að af- saka það, að hann væri að hafa slíkar sögur eptir, sem vel gætu verið hviksögur, en vörpuðu þó skugga á tvo menn, er áður hefðu verið taldir heiðursmenn. Engu að síður gerðu þó þessar hviksögur það að verkum, að í Beutlingen vildu menn ekkert eiga við þá bræður saman að sælda, nema óhjákvæmilegt væri. Aðalsmenn þar í nágrenninu vildu og ekki eiga neitt við hr. Karl af Heiwald saman að sælda, svo að hann lifði að nokkru leyti, sem einbúi. En þó að því yrði eigi neitað, að það væri eigi að ástæðulausu, að grunur hvíldi á þeim bræðrum, þá væru þó ástæðurnar tii þeirrar grunsemdar eigi svo óyggjandi„ að rétt væri, að forðast þá, sem morðingja.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.