Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.04.1902, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.04.1902, Blaðsíða 4
56 Þjóðvilj imn. XVI, 14.-16. endur við flokki þessum, sem hann kvað enn þá halda uppj tilraunum sínum, að fá kjósend- ur á sitt mál, hæði með fé og fortölum. Síra Sigurður mótmælti því, að þessi flokkur hefði nokkuð það aðhafst, er spillt gæti framgangi þessa máls, eða vakið gæti nokkurn grun um, að honum væri ekki alvara með, að fá innlenda stjórn; kvað hann það ílla gjört við málið, ílla gjört við kjósendur. og ílla gjört við ættjörðina, að vera enn að ala á tortryggni og ósamlyndií þessu máli. þegar háðir flokkarnir þættust sam- mála um aðalatriði þess. I báðum þessum flokk- um væru auðvitað mætir og góðir menn, og það væri heilög skylda allra, að styðja að því, að þessir menn gætu orðið sammála, og unnið í einingu að heppilegum úrslitum stjórnarskrár- málsins; en ráðið til þess væri ekki, að ferðast meðal kjósenda með órökstuddar getsakir um áðurverandi andstæðinga sína. Á fundi þessum tók einnig þátt í umræð- unum búfræðingur Halldór Jónsson á Rauða- mýri, og sýndi hann fram á, að Valtýskan hefði orðið til að halda stjórnarskrármálin u vakandi, er þjóðin hefði verið orðin uppgefln i harátttmni við stjórnina: um tíu-manna-frumvarpið fór hann þungum orðum. Að endingu var samþykkt tillaga, með 8 ntkv. i þá átt, að fella frumvarp siðasta þings á aukaþinginu, en aðhyllast innlenda stjórn á þeim grundvelli, er boðinn er i síðari hluta kon- ung8boðskaparins 10. jan. þ á. Prá Arngerðareyri hóldu þeir Hafstein og Matthías út Snæfjallaströnd, og þaðan norður í Grunnavikur- og Sléttuhreppa. Á Snæfjöllum höfðu örfáir kjósendur mætt, en aptur fleiri á fundunum fyrir norðan Núpinn; en af þeim fundum hefi eg ekki frétt neitt greinilega. S, St. * * # * Af því að fundaskýrsla síra Sig. Stefanssonar. sem prentuð er hér að framan, nær eigi til fundahaldanna í þremur nyrztu hreppum sýsl- unnar, skal þess hér getið, samkvæmt bréfum skilvisra manna. að á þingmálafundi þeim, er þingmannaefni apturhaldsliðsins, sýslumaður H. Hafstnn og Matthías Olafsson verziunarstjóri héldu. á Snæfjallaströndinni 14. marz, mættu að eins 6 kjósendur, og komu þar fram mótmœli gegn allri atkvœðagreiðslu, eða sknldbindingum af hálfu kjósenda. Sams konar mðtmœli komu og fram á fundi þeim, er þeir félagar héldu að DynjanAa í Grunna- víkurhreppi, svo að ekki riðu þeir þaðan feitari hestum. Frá Dynjanda héldu svo þessir virðulegu „politíkusar" yfir Jökulfjörðu, að Hesteyri, og áttu þar fund með 9—10 mönnum, en mættu þar mótmæluTi af hálfu Hannesar bónda Sigurðs- sonar á Iðavelli. Sendur hafði verið hraðboði norður á Horn- strandir, til liðssafnaðar þar, og mættu 6 Stranda- menn á Hesteyri, er fundi var slitið, og átti sýslumaður við þá hljóðskraf nokkurt, líklega lesið þoim fræðin, og færi betur, að þeir létu nú ekki flekast af neinu liku „herþjónustu11- Sögunum, er sagðar voru þar nyrðra í hitt eð fyrra, sællar minningar. Úr leiðangri þessum komu þeir svo til ísa- fjarðar að kvöldi 18. marz, og boðuðu litlu síðar til fundar i Bolungarmk í Hólshreppi, og brauzt hr. Matthías Olafsson þangað á pálmasunnudag- inn, 23. f. m., þótt eigi yrði komizt þangað sjó- leiðis, sakir hafiss og lagnaðariss; en sýslumaður treystist þá ekki. En þrátt fyrir það, þótt þingmannsefnið sýndi þannig frábæra göngumannshæfileika, að pæla þangað út eptir, í íllviðrinu og ófærðinni, yfir „Pallinn11 og „Ófærurnar“, þá kunnu þó Bolvíkingar eigi að raeta þessa þingmannskosti betur, en svo, að á fundinum mætti — ekki einn einasti maður(!). Bolungarvíkurförin hefir því, með réttu, ver- ið talin kórónan í þessum kosningaleiðangri apturhaldsliðsins í Isafjarðarsýslu, sem af er. —í----------- Meðal annara, er í vetur fengu á- heyrn hjá dómsmálaráðharra Dana, hr. Albertí, var kvennmaður einn, er kom í þeim erindagjörðum, að leita leyfis til þess, að mega ganga — i karlmanns- fötum. Hr. Albertí lofaði að ihuga málið, og þat' sem engin lagaákvæði banna, að kon- ur gangi í karlmannafötum, né karlmenn í kvennbúningi, sé dularbúninginum eigi þannig varið, að hann veki opinbert hneixli, þá fullyrða dönsk blöð, að eigi verði nein fyrirstaða á því, að leyfið verði veitt. frímerki. Það verða okki Islendingar einir, sem breyta frímerkjum sínum i ár, heldur stendur nú til sams konar breyting í ýmsum öðrum löndum. I Rússlandi verða gefin út ný frímerki í minningu þess, að liðin eru 200 ár, síð- an tekið var að efna til kaupstaðar í Pétursborg. — Spánverjar fá einnig ný frimerki, er Alfonso konungur verður krýndur í ár, og verður mynd konungs- ins á þeim. í Bulgaríu á að búa til ný frímerki, með mynd Ferdínand’s fursta, í stað ljóns- myndarinnar, sem notuð heíir verið. Þá ætla og þjóðverjar að taka upp ný frímerki í yfirstandandi aprílmánuði, með þvi að þeim þykja gömlu frímerkin ekki sem laglegust. I Svissaralandi verða einnig gefin út ný frímerki, með myndum af helztu líkn- eskjum þar í landi, og Bandamenn ætla að bua til ný frimerki, með myndutn af helztu þjóðskörungum í Bandaríkjunum fyr og síðar. 66 inum í nótt“, mælti Friðrik „Jeg keyri ekki eitt fet, fyr en þér farið út úr vagninum“' Hr. Steinert greip hendinni til marghleypunnar, en hugsaði sig þó um; það var ekki nauðsynlegt, að grípa til hennar að svo stöddu, meðan að eins var við einn að fást, og það við gamlan mann, sem hann átti alls kostar við óvopnaður. Það var nógur timi, til að grípa til skammbyss- unnar, ef maður sá, er var í felurn, kom gamla mann- inum til hjálpar. Þessi hugsun gjörði Steinert rólegan, og hann ásetti sér, að ávarpa gainla manninn nokkru vingjarnlegar, þótt hann reyndar byggist við því, að það hefði lítið að þýða. „Hafið þér gleymt því, að þér, í Weidenhagen, lof- uðuð því, að sýna mér kurteisi?“ mælti hann rólega. „Er jeg þá ekki kurteis?“ mælti Friðrik. „Eða get jeg að því gjört, þó að húsbóndinn hafi raælt svo fyrir, að þér ættuð að fara hér út úr vagninum?“ „Jeg skal ábyrgjast það, gagnvart hr. Heiwald, sem eg heimsæki á morgun“, mælti Steinert. „Förum nú af stað“. Gamli maðurinn hló hæðnislega. „Ætlið þér að heimsækja. húsbóndann á morgun? Það getur nú til beggja vona brugðist; en það segi eg yður, að ef þér ekki farið út úr vagninum, þá geri eg eitt af tvennu, að láta yður sitja hér í alla nótt, eða eg dreg yður út úr vagninurn“. „Ætlið þér að aka, eður eigi?“ „Fari kolað! Út úr vagninuin, eða eg dreg yður þaðan!“ 75 Haubert! Gerið svo vel, að koma hingað rétt snöggv- ast“. „Hvað þóknast yður“? spurði féhirðirinn, er þegar korn hlaupandi. „Munið þér ekki hvers konar peninga þór borguðuð hr. Grawald á þriðjudaginn var það ekki á þriðjudaginn? — daginn, sem þér borguðuð hr. Grawald ullina“ ? „Jú, það man eg glöggt“, svaraði fóhirðirinn. „Hann vildi hafa smá seðla, og fékk 500 af 2 króua seðlum, og 1000 kr. í 10 króna seðium“. „En hr. Grawald þykist þó hafa fengið borgunina í 200 kr. seðlum“, svaraði hr. Heiwald. „Þar skjátlast honum“, svaraði féhirðirinn, „því eg man þetta svo glöggt, að eg gæti staðfest það með eiði“. „Þakka yður fyrir, hr. Haubert“, mælti Heiwald, „og sjáið þór nú lir. Steinert, að hr. Grawald hefir skjátl- azt; en eg skil ekki, hvernig hann getur misminnt svona“. Hr. Steinert þótti kynlegt, hve ílla Heiwald og hr. Grawald bar saman um þetta, og ekki siður, hve einkar annt hr. Heiwald lét sér um það, þar sem hann jafn vel kvaddi féhirði sinn til, til að fá sannað, að hann hefði eigi borgað í 200 kr. seðlum. Gagnvart ókunnugum ferðamanni virtist hr. Steinert, að hr. Heiwald hefði mátt láta neitun sina nægja. En hr. Heiwald hlaut að hafa einhverjar sórstakar ástæður til þess, því að jafn vel eptir það, er hætt var að tala um þetta, þá fór hr. Heiwald aptur að minnast á það, að hann skildi ekkert í því, hvernig hr. Grawald gæti skjátlazt svona.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.