Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.04.1903, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.04.1903, Page 1
Ve/rð árgangsins (minnst \ 52 arkir) 3 hr. 50 aur.; \ erlendis 4 lcr. 50 aur.,og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- \ aðarlok. JÓÐVILJINI. -- = SeYTJÁNDI ÍEflAVflCR. =l==— 1 • RITST.T ÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =|&osJ;~- Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. riag júní- mánaðar, og kaupandi ' samhliða uppsögninni ' horgi sknld sina fyrir í blaðið. M 18. BeSSASTÖDTJM, 21. APRÍL. 19 0 3. ■Í7 tXÖlTLCt. Með strandferðabátunum („Hólurrú og „Skálholti14) hafa borizt útlend tíðindi til 3. þ. m., og eru þessi hin helztu: Danmörk. I Kaupm annahöfn fór fram kosning á 7 bæjarfulltrúum 24. f. m. Þeir, sem frá fóru, voru 5 vinstri menn og tveir socialistar, en hinar nýju kosn- ingar féllu svo, að hægri menn unnu öll þessi sæti, og þótti furðu gegna. En orsökin mun einkum hafa verið sú, að vinstri mönnum ýmsum er farið að þykja nóg um völd socialista i bæjarmálum Kaupmannahafnar, einkum fjármálunum, og hafa þvi heldur viljað hleypa nokkr- um hægri mönnum að en fjölga socialist- um, en auðvitað eigi búizt við, að svona færi. Enn þá eru þó vinstri menn og socialistar í allálitlegum meiri hluta í bæjarstjórninni, þar sem socialistar einir ráða þar enn 19 atkv., af 41 alls. Mikið var um dýrðir í Kaupmanna- höfn 2. þ. m., því að þá var þar kominn Vilhjálmur Þýzkalandskeisari; kom liann i kynnisför á lystiskipi sínu, er heitir Hohenzollen, og er hið veglegasta. Tvö herskip voru einnig með í förinni, eigi stór, en hin skrautlegustu. Var keisara tekið svo vel sem föng voru á, og engin sáust merki til kala þess,. er hingað til hefir verið milli Dana og Þjóðverja. Sótti konungur sjálfur gestinn út á skip- ið og heilsuðust þeir keisari og hann með kossi, sem ýmsra þjóðhöfðingja er siður. Síðar um daginn var hin vegleg- asta veizla haldin keisaranúm, í Amalíu- borg. Hélt konungur vor þar ræðu, stutta en hjartnæma, og bað keisara allra virkta. Keisari svaraði með alllangri tölu og mærðarmikilii, fullri lofsyrða og fyr- irbæna fyrir konungi og ætt hans allri í þfisund liðu. Ýmislegt ræða blöðin um það, hvort ferð þessi muni nokkra þýðingu hafa í pólitískum skilningi, en ekkert er hægt að byggja á því. f Nýlátin er skáldkonan Magdalene Thoresen, hálfníræð að aldri. Hún var af dönskum ættum, en giptist norskum presti í Björgvin og dvaldi þar lengst æfi sinnar. Síðustu árin var hún þó í Danmörku. Þykir mikið koma til ýmsra af skáldrit- um hennar. Noregur og Svíþjóð. Óskar konung- ur hefir iagt niður ríkisstjórn um hríð og fengið hana krónprinzinum, Oústaf, í hendur. Er borið við heilsuleysi og talið eigi óliklegt. að konungur leggi niður stjómina fyrir fullt og allt. Lengi hefir Norðmönnum verið það mikið áhugamál að fá sérstaka verzlunar- erindreka (konsúla) og utanrikisstjórn (ráð- herra og sendiherra). Hefir nefnd Norð- manna og Svía haft mál þetta til með- ferðar um hrið, og er nú svo langt kom- ið, að nefnd þessi liefir lagt til, að Norð- menn fái sinum vilja framgengt, að því er konsúlana snertir. Eru bæði Norð- menn og Svíar mjög ánægðir yfir þess- um firslitum, sem einkum eru þökkuð dr. SigurSi Ibsen ráðherra. Tillögur nefndar- innar verða lagðar fyrir stórþing Norð- manna og ríkisþing Svía, en eigi er það talið neinum vafa bundið, að þær verði samþykktar. Deilan um sérstakan utan- ríkisráðherra og sendiherra er hins vegar enn óútkljáð. Rússland. Ekki þreytast Rússar á því að áreita Finna og þröngva kosti þeirra á ýmsan hátt. Hafa þeir nú síð- ast svipt 43 presta embætti fyrir þá sök, að þeir neituðu að birta a-f prédikunar- stólnum valdboðið alræmda um nauðung- ar herþjónustu Finna í liði Hússa. Er lítill efi á því, að Hússar ætla Finnum sömu kjörin, sem Pólverjum. og vilja gjöra þá rússneska í húð og hár, en Pinn- ar verjast ofbeldi þeirra með þrautseigju og þoli, en gripa enn til engra óyndis- iirræða. Yerkmannaóeyrðir ha-fa orðið i ýms- um héruðum á Bússlandi, svo að herlið hefir orðið að skerast í leikinn, hafa hlotizt af því manndráp nokkur, og marg- ir særzt. Þýzkaland. Keisaradrottningin, Agiista Viktoría, varð nýlega fyrir því slysi, að hún datt af hestbaki og brotnaði annað framhandleggsbeinið. Georg Saxakonungur hefir gefið út bróf til þegna sinna og fer hann þar hörðum orðum um fyrverandi tengda- dóttur sína, Louisu krónprinsessu; segir hann meðal annars, að hún hafi lengi verið hrösuð kona, þótt eigi hafi uppvíst orðið. Mælt er, að krónprinsessunni liafi fallið mjög þungt að heyra þetta, og þykir mörgum konungi hafa farizt all- lítilmannlega. Bretland. Stjórnin þar hefir nýlega beðið ófarir við aukakosningar nokkrar, er þar hafa farið fram, og þykir það eigi góðs viti fyrir hana, enda stendur hún einatt á fremur völtum fótum. Eini maðurinn, sem nokkuð kveður að í ráða- neytinu, er Chamberlain, og þykir eigi ólíklegt, að hann taki við stjórnarforust- unni innan skamms. Nú hefir stjórnin lagt fyrir parlament- ið landbúnaðarlagafrumvarp fyrir írland, og á það að bæta lír hinum bága hag manna þar í landi; á ríkissjóður að leggja fram allmikið fó í þessu skyni. Frum- varp þetta hefir fengið góðar undirtektir hjá flestum þingflokkum og er því lík- legt, að það verði samþykkt. Mælt er. að Bretar hafi í hyggju að auka að miklum mun her sinn og flota og ætli að gjöra herskipahöfn nýja á Skotlandi norðanverðu, við Firth of Fortli. Hector Macdonald, yfirhershöfðingi Breta á Ceylon, skaut sig fyrir skömmu. Hann var i Búaófriðinum og gekk þar vasklega fram, en fyrir nokkru komu fram kærur á hendur honum fyrir það, að hann hefði sýnt óheyrilega grimmd i striðinu, og fleira, sem ekki er uppskátt látið. Fór hann þá til Englands til að verja mál sitt. Heimtaði hann, að her- réttur yrði settur til að rannsaka málið og var konum veitt það. Sneri hann síðan heim aptur, en komst ekki lengra en til Parísar, þar sem hann tók sig af lífi á þann hátt, sem þegar er sagt. Ýmsir ætla, að hann ha.fi saklaus verið og hafi ráðið sér bana af gremju út af sakaráburði þessum. f Nýlátinn er á Englandi guðfræð- ingurinn Farrar, einn af merkustu mönnum biskupakirkjunnar ensku. Frakkland. Þar hafa verið skærur mikiar milli stjórnarinnar og klerkastótt- arinnar katólsku. Hafa 54 munkareglur sótt um, að fá skóla sína viðurkennda. af ríkinu, en öllum verið neitað, og urðu klerkar þá hinir reiðustu. I ræðu, er Combes forsætisráðherra hélt nýlega, fór- ust honum allþunglega orð til klerka- stéttarinnar, og lét í ljósi, að eigi mundi mikið þurfa út af að bregða, til þess að stjórnin segði upp öllum samningum við páfa og gerði rikiskirkjuna honum óháða. Ungverjaland. Á andlátsdegi frelsis- hetjunnar Kossuth’s 20. f. m. söfnuðust um 1000 stúdentar umhverfis háskólann í Buda-Pest og drógu upp sorgarfána. Gengu þeir síðan um borgina og þóttu fara ófriðlega, svo að lögreglan skarst í leikinn. Særðust margir stúdentar og nokkrir létust litlu síðar. Hafa síðan verið talsverðar róstur í borginni, og jafnvel komizt inn á þingið, svo að það varð að hætta störfum sínum, en nú eru hugir manna aptur farnir að sefast. Balkanskaginn. Viðsjár eru þar mikl- ar með mönnum og berast þaðan marg- ar sögur, en eigi allar sem áreiðanleg- astar. Auk hinna kristnu þegna soldáns, hafa nú Albanesar einnig hafið uppreisn, en þeir eru engu minni Múhameds-játend- ur en Tyrkir sjálfir, og vilja með engu moti þola, að kjör kristinna manna þar séu í nokkru bætt. Hafa þeir misþyrmt ýmsum kristnum mönnum og gjört ær- inn óskunda. -**

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.