Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.04.1903, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.04.1903, Qupperneq 2
70 Þjóðviljinn. XVII, 18. Brenna í Reykjavík. Aðfaranóttina þess 18. þ. m. brann stórhýsið „Glasgowu í Reykjavík til kaldra kola á rúmum tveim tímum, svo að eigi stóð annað eptir en reykháfarnir. Auk þess brann vörugeymsluhús stórt, tviskipt, er stóð á bak við „Gllasgowu, og torfbær einn, Yigfúsarkot, er þar var fyrir ofan. Menn björguðust allir án meiðsla, en nálega ekki annað, er innan- húss var. Vindstaðan var þannig, að allan reykinn og neistaílugið lagði yfir á óbyggt svæði fyrir vestan „Grlasgow“, annars hefði miðbærinn allur verið í hinum mesta voða. Menn hyggja, að eldurinn haíi komið upp í vindlaverksmiðju, sem var i miðju húsinu. Sjálft var húsið vá- tryggt fyrir 40000 kr.; var það nú eign Þorvaidar Björnssonar bónda á Þorvalds- eyri, er keypti það í fyrra á 25000 kr. I húsinu áttu heima 4 fjölskyldur og margt einhleypra manna. Á margt af þessu fólki um sárt að binda, því að innanhússmunir voru óvátryggðir hjá þvi flestu. I kjallaranum voru geymdar saltbyrgðir allmiklar, óvátryggðar, er út- gerðarmenn áttu. I geymsluhúsinu var meðal annars íjós og heyforði Geirs kaup- manns Zoéga; varð nautgripunum bjarg- að þaðan, en öðru ekki. „Glasgow“ var reist árið 1862, og var eitt hið stærsta og veglegasta hús bæjarins, 45 álnir á lengd, en 22 á breidd, öll tvílypt, með stórum kvisti. Brenna þessi er hin stærsta, sem orð- ið hofir i Reykjavíkurbæ. Þegar er byrjað að safna gjöfum handa þeim, er harðast hafa orðið úti í eldsvoða þessum. „1 ríkiísráði“ heitir bæklingur, sem nýlega er kominn á prent, eptir Kristján yfirdómara Jónsson. Er þar andæft kenningum JónsJensson- ar, og annara „landvarnarmanna“, um iik- isráðssetuna, og haldið hlífiskildi fyrir stjórnarbótarfrumvarpi síðasta þings. Bæklingurinn er einkar ljóst og skipu- lega ritaður og laus við allar persónuleg- ar hnútur. Ættu því allir þeir, er nokkru láta sig varða stjórnarbótarmál vort, að lesa hann með athygli. Annar bæklingur sama efnis, eptir Jbn Olafsson bóksala, er og nýútkominn. Nefnist hann „Meinvættir íslands. — Lög- stirfingarnir og flóninu. §onirnar. ---o^ýo —- Það er hverjum manni eðlilegt, að gjöra sér vonir, góðar vonir. Allir vilja hið bezta fyrir sig kjósa. En eins eru þjóðimar og einstakir menn. Þær vona líka, hver stétt mannfélagsins hefir sín- ar vonir. Nú gengur mikið á með vonir, fram- faravonir, hjá okkur Islendingum. Senn er komin ný stjórn, blessuð heimastjórn- in, sem allt getur heyrt og séð með sjálfrar sinnaraugum og eyrum, stjórn, sem allt lagar, sem bagar. Þessar vonir minna mig samt ein- hvi-rn veginn ósjálfrátt á söguna um fiskimanninn og" flyðruna, sem flestir munu kannast við. Hún endar svona: Færið bilaði, flyðran slapp. En — áfram með vonirnar samt! Er á meðan er. Ekki er vonleysið gott, enginn hælir því. Kennarastéttin hefir líka sínar vonir. Kennarafélagið hefir nú kveðið upp úr með það. Það býst við, að nýja stjórn- in muni heyra kveinstafi kennarastéttar- innar og verða fús á að færa alla hluti til betra vegar, svo að alþýðumenntunin komist nú loksins i skaplegt horf. Það á að fara nokkuð líkt að og þeg- ar gluggar eru settir á hús: setja grind- umar fyrst, — sérstaka kennslumálastjórn og öflugan kennaraskóla —, en smeygja svo i rúðunum á eptir, svona eptir hent- ugleikum. Þetta gjörir nýja stjórnin að vonum, ef ekki gleymist að biðja um það. Enginn getur búizt við þvi, að hún fitji upp á því að f-yrra brayði. Hún þarf fyrst að verða föst í sessi, áður en hún fer að efla heill og hag þjóðarinnar ótiUcvödd. En — svo vildi jeg samt, að hún væri hugsunarsöm. Það væri undarlegt, ef nýja stjórnin okkar, sem við auðvitað vonum, að skip- uð verði frjálslyndum og framtakssömum mönnum, horfði lengi þegjandi á það menntamálaástand, sem nú er hjá oss, stjórn, sem að sjálfsögðu hlýtur að verða mjög kunnug og handgengin öðru eins þjóðmenningarlandi eins og Þanmörk er, og taka hana sér til fyrirmyndar i ýmsu því, er betur má fara; það væri blátt á- fram óeðlilegt, ef hún léti sig það engu skipta, nema fyrir sárbeiðni landsmanna. Nei, jeg vil, að nýja stjórnin byrji. Þá vitum við, hvað hún vilþ og þá verða. allir ljúfari að vinna að þessu og öðrum velferðarmálum, Yið erum svo lengi búnir að kvarta og biðja um svo margt, sem okkur hefir verið ómissandi til þjóð- þrifa. Á því ættum við að vera orðnir þreyttir. Er það annars ekki talandi vott- ur um það, hvað við höfum átt við að búa, að við erum nú að gjöra okkar vonir um, að við fáum stjórn, sem muni vilja styðja að því, að annað eins nauðsynja- mál, eins og alþýðumenntunarmálið, komist í vænlegra horf? Er ekki keim- urinn sami og áður? Við treystum þess- ari stjórn ekki til, að vera frumkvöðull að þessu velferðarmáli, nei, allir kennarar eiga í einum anda að kvarta og biðja, tjá henni vandræðin, benda henni á gall- ana, eins og hún hafi hvorki augu til að sjá, eyru til að heyra, né lijarta, sem g>-ti fundið til! Lakur húsbóndi myndi það þykja, sem vantaði allt þetta. Nei, jeg vil láta þá stjórn vera frumkvöðul endurbótanna, sem lætur sér annt um framfarir þegnanna. Þá fellur allt í ljúfa löð. Þing og þjóð eru nú Jengi búin að hafa alþyðumenntunarmáiið á vörunum. Á hverju þingi hefir verið kosin mennla- málanefnd, til að halda þeim málum vak- andi; en ekkert hefir orðið ágengt. Jeg hefi nú fyrir mér þingsályktunartillögu frá þinginu 1901 um skilyrði fyrir land- sjóðsstyrk til barnakennslu. Það er einn afspringur menntamálanefndarinnar. Þessa ályktun hefir nú stjórnin líklega séð, svo að hún veit hvers kennarar óska, svo langt sem ályktunin nær. Þar eru mörg mikilsvarðandi atriði, sérstaklega sveita- stjórnin í kennslumálunum, eða kennslu- nefndin, og kennararáðningin. Hafa nú kennarar nokkru við þessa á- lyktun að bæta, eða þykir þeim þurfa nokkuð úr að taka? Enginn kennari hefir gjört nokkrar athugasemdir við hana opinberlega, svo jeg til viti; allir samþykkja hana með þögninni, má því segja. Þó að mér farist það nú líklega ekki að finna að gjörðum menntamálanefnd- arinnar, þá ætla jeg nú samt að finna mér eitthvað til, svo að hún sjái, að jeg sé henni ekki að öllu samdóma. Um kennslunefndina er það þá fyrst að segja, að ótakmarkað einveldi hefir hún, þvi verður ekki neitað; það er því undir hennar náð og dyggð komið, hvernig hún beitir því. Hún má ráða hvern þann kennara, sem henni þykir góður, og halda honum svo lengi við starfið, sem henni sýnist; hún má líka visa kennara frá starfi, þegar henni lízt. Bændurnir, sem eiga að njóta kennarans, eiga hér ekkert atkvæði um að hafa. Eeynslan hefir nú sýnt, að þetta fyr- irkomulag getur verið til skaða. Kenn- ari hefir haldið sínu starfi ár frá ári, þó fáir einir hafi viljað senda börn til hans; öðrum hefir verið vísað frá starfi, sem bændum líkaði vel að hafa. Það er því mín tillaga, að kennara- ráðningunni sé hagað svo, að allir sókn- arbændur megi greiða atkvæði um hapa, t. d. á safnaðarfundum. Það er frjáls- legra og eðlilegast, þvi að þess er að gæta, að ekki er stofnað til skóla og um- ferðarkennslu eingöngu til þess að veita fáum mönnum lítilfjörlega atvinnu, eins og sumir virðast ætla, heldur til að efla sanna menning hjá æskulýðnum. Lög- gjöfinni á svo að haga eptir því, en ekki atvinnuþörf kennaranna, enda er ekki til mikils að slægjast fyrir þá, að öllum jafnaði. Ekki likar mér það heldur, að land- sjóðsstyrkurinn skuli vera svo freklega bundinn við ráðninyu kennarans, eins og fyrir er mælt. Það er ekki sanngjarnt, ef einhver bóndi, sem kynni að stofna til smáskóla og taka sér kennara þann, sem honum geðjaðist bezt að, án íhlut- unar kennslunefndar, færi á mis við all- an kennslustyrk, ef kennari hans full- nægði hinum skilyrðunum, þvi að kennsl- an er þó meira verð en ráðningin. En hið gagnstæða hefir þó átt sér stað, og er illt til að vita. Sóknamefnd hefir ráðið kennara, en verið gjörð ómyndug að því, af því að kennslunefnd (= skóla- nefnd) vildi annað. Þetta útilokar alla privat-skóla.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.