Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1904, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1904, Page 1
Verð árganqsins (minnst 52 arkir) 3 h\ 50 aur.; erlendis 4 h\ 50 aur., og í Amerílcu doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. Átjándi ábgangub. == -i-RITST.T ÓRI: SKÚL.I THORODDSEN. | Uppsögn skrifleg, ögild nema lcomin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar, og kaupandi I samhliða uppsögninni j borgi skuld sína fyrir j blaðið. M 4. Bessastöðum, 30. JAN. 19 0 4. tTtLönci. Frá útlöndum eru þessi tíðindimark- verðust: Danmörk. 16. des. brá konungur vor, Christian níundi, sér til Gmunden, til þess að sitja þar silfurbrúðkaup Þyri, dóttur sinnar, og kertogans af Cumber- land, er haldið var með mikilli viðhöfn 21. des.; en í ferð þessari sýktist kon- ungur, einkum af gigtarverkjum, sem sízt er að furða um jafn háaldraðan mann, og varð því að leggjast, eða halda sér inni við, og stundaði Þyri, dóttir hans, hann. — Var konungur enn eigi albata, er „Lauraa fór frá Kaupmannahöfn, en vonandi, að veiki hans sé þó eigi hættu- leg. Af þingi Dana er fátt tiðinda, nema hvað dagpeningar þingmanna hafa verið hækkaðir, úr 6. kr. í 10 kr. á dag, á tímabilinu frá því, er þing hefst í okt. til marzmánaðarloka, en standi þingið leng- ur, þá eru dagpeningarnir þann tímann að eins 6 kr. á dag, sem verið hefir. Búist er við, að kosninyarlöy til sveita- stjörna, er stjómin hefir lagt fyrir þing- ið, muni stranda i landsþinginu, þar sem hægrimönnum þykja þau ganga of langt í framsóknaráttina, er veita skal konum, ógiptum sem giptum, kosningarrétt, og sömuleiðis vinnuhjúum, ef fullnægt er skattgreiðslu-skilyrðum þeim, er lögin á- kveða. — Sömu forlögum er og búist við, að lögin um borgaralegt hjónaband muni sæta. I des. sagði Öllgaard borgmeistari af sér embætti, eptir 18 ára ötulan embætt- isrekstur í þarfir Kaupmannahafnarbæjar, og var Marstrand bæjarfulltrúi valinn i hans stað, einn úr flokki vinstrimanna. 8. des. andaðist Jakob Bing í Kaup- mannahöfn, einn af hinum fáu miljóna- eigendum þar, og lét eptir sig um 2 milj. króna. — Hann dó úr hjartaslagi, 70 ára að aldri. •Eitt slysið varð enn í lypti-vélinni („elevator14) í nýja ráðhúsinu í Kaup- mannahöfn 7. des. síðastl., þar sem ung- ur maður, er for upp með vélinni, fór klaufalega út úr henni, 0g varð á milli, svo að hann hryggbrotnaði, 0g meiddist mjög þess utan. 28. des. síðastl. andaðist Frederik Salo- mon, hæztaréttarmálfærslumaður, BB ára að aldri, og telja hlöðin hann meðal fremstu málfærslumannanna við hæzta- rétt, 0g vandfyllt skarð hans. Til minnisvarða yfir Hörup heitinn, fyrrum ritstjóra „Politikenu, og síðar samgöngumálaráðherra, hafa Danir skot- ið saman nær 9 þús. króna. Landa vorum Níds Finsen, er hlaut Kobels-verðlaunin, svo sem blað vort hef- ir frá skýrt, hefir farizt mjög höfðing- lega, þar sem hann hefir gefið Ijóslækn- ingastofnuninni, er hann veitir forstöðu, 50 þús., og enn fremur gefið 60 þús. til annarar heilbrigðisstofnunar í Kaupmanna- höfn, er ætluð er hjarta- og lifrar-veik- um. — Slikt er mjög virðingarvert, enda er Finsen að maklegleikum i mjög miklu áliti erlendis. — Noregur. Eins og áður hefir verið getið um i blaði voru, hefir norska stjórn- in lagt frv. fyrir þingið, er veitir kon- um rótt til embætta, sem karlmönnum, en undan skilur þó kennimannleg em- bætti, embætti i hernum, og í lögreglu- liðinu. 12. des. kviknaði í norsku strandferða- skipi, „örion“ að nafni, er fer til Finn- merkur, og fórust þar 6 menn, en öðrum varð bjargað. Mjög hefir lýðhylli Björnstjerne Björn- son’s farið þverrandi í Noregi - i vetur, eða síðan hann studdi hægrimenn við kosningarnar síðastl. sumar, þvi að hon- um eigna menn það öðrum fremur, að kosningaúrslitin urðu, sem varð, og segja nú, að hann hafi dregið taum Svía í konsúla-málinu, til þess að ná í Nóbels- verðlaunin. — Sömuleiðis telja menn það ósvinnu, að hann hafi tekið á móti verð- launum þessum úr hendi Oscars kon- ungs, og þannig lotið konungsvaldinu, en hafi þó áður látizt vera lýðveldismaður. Hefir kveðið svo mikið að æsingum þessum gegn Björnson, að stúdentafélag í Kristianíu hefir ályktað, að taka ofan brjóstlíkneski hans, er staðið hafði í lestrarsal félagsins, og svipað hafa ýms verkmannafélög gjört, er höfðu likneski hans í fundasal sínum. Sannast hér, sem optar, hve völt lýð- hyllin reynist opt og tíðum, og mun flestum finnast, að þetta séu ómaklegar aðfarir við Björnson, jafn mikið sem norska þjóðin á honum að þakka. — Rússland. Þar bryddir á töluverðri ókyrrð og óánægju í ýmsum héruðum landsins, meðal lægri stéttanna,) og þar við bætast sífelldar stúdenta-óspektir í háskólabæjunum; í Warschau var t d. háskólanum lokað um hrið í öndverðum des., og í Pétursborg ruddist lögreglulið- ið inn í háskólasalinn, og rak stúdent- ana út; en við háskólann í Kiew hafa 80 stúdentar verið teknir fastir. í öndverðum des. brann þorpiðBene* kovo til kaldra kola, og bnmnu þar mjög miklar kombirgðir. Mælt^er, að Rússastjóm hafi i kyrrþey leitazt fyrir um að fá J/* milljard“(= B00 þús. milj.) rígsmarka að láni á Þýzkalandi, og mun hún þykjast þurfa á féaðhalda, ef til ófriðar dregur í Austur-Asíu; en á hinn bóginn eru Bússar stórskuldugir Frökkum, og því óvíst, hve vel þeim rerður til, að þvi er ný lán snertir. Ekki varð mikið úr rannsókn morð- málanna i Kishineff, þar sem að eins tveir voru dæmdir i betrunarhússvinnu, annar i 7 ár, en hinn í B ár, og 23 í fangelsi, frá 6 mánuðum til tveggja ára; en 12 voru sýknaðir. — Óttast margir, að nýjar gyðinga-ofsóknir kunni að hefj- ast þar þá og þegar, og þykist lands- stjórnin eigi geta verndað gyðinga, ef svo fari, svo að fjöldi gyðinga ætlar að flýja þaðan, er vorar, og munu flestir þeirra ætla sér til Ameríku. Ekki linnir enn ofsóknum Bússa- stjórnar gegn Finnlendingum. — Um jólin voru tveir mikilsvirtir sveitarhöfð- ingjar teknir fastir, og sendir eitthvað burt, líklega til Síberiu, og veit enginn, hvað þeir hafa til saka unnið, nema hvað ljóðmæli Runeberg’s vora gerð upptæk hjá öðrum þeirra. — Þýzkaland. 13. des. kviknaði í afar- miklum steinolíu-birgðum í borginni Metz, og er skaðinn metinn 2 milj. króna. Nýlega gerðist sá hryllilegi atburður í Meissen, að maður nokkur drap konu sína, og 6 börn þeirra, með karbólsýra, og lá sjálfur dauðvona, er síðast fréttist, enda er svo að sjá, sem öll fjölskyldan hafi ætlað að kveðja heiminn i senn. Steinolia hefir ný skeð fundizt í jörðu í héraðinu Ditmarsken, og mælt, að þar fáist um 210 föt daglega. Yagnstjórar í Berlin gerðu verkfall nm áramótin, og kom það sér auðvitað miður vel fyrir borgarbúa, unz samning- ar komust loks á aptur 7. janúar. Vilhjálmur keisari er nú fyrir nokkru orðinn albata af hálsmeini sínu, ogheyr- ist ekki á mæli hans, enda hsfir hann þegar haldið ræður við ýms tækifæri. — Frakkland. Þá er nú Ðreyfus-méMð komið á dagskrá enn á ný. — Eptir beiðni Dreyfusar lét stjómin nefnd manna rannsaka málsskjölin á ný, og kom það þá í ljós, að tvö skjöl, er herrétturinn í Rennes byggði dóm sinn á, voru fölsuð; í öðru skjalinu var dagsetningu þess breytt, svo að það virtist hafa verið sam- ið, áður en Dreyfus-málið hófst, en varí raun og vera búið til seinna; en i hinu skjalinu („Cette Canaille de Du) hefir P-i verið breytt í D, til þess að svo skyldi virðast, sem það ættivið Dreyfus, þótt það ætti í raun og veru við allt annan mann. Að fengnum þessum upplýsingum, ilyktaði stjómin, að láta ónýtingarrétt- inn prófa málið að nýju, og er búist við, að hann ónýti herréttardóminn í Rennes algjörlega.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.