Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1904, Page 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.01.1904, Page 3
XVTII 4. PJÓÐVILJINN 15 eystra. — Síðasta svar liússa til Japans- manna var nokkru iiðlegra, en fyrri und- irtektir þeirra, látast þar vilja unna Jap- ansmönnum svipaðra umráða í Koreu, sem Bretar liafi á Egyptalandi, en aftaka að sleppa tökum sinum á Mandsjúríinu. — Japansmönnum líkar þó eigi svar þetta, og halda báðir áfram herbúnaði í ákafa, hvernig sem úr kann að rætast. Skcmmdir aí' veðri. — Kirkja fokin. , Afskapaveður var i Skagafirði 28. des. síðastl. og fauk kirkjan að Goðdölum, tókst upp af grunn- inum, hentist út á tún, og fór í ótal mola. Þak rauf einnig af fjósinu í Goðdölum í þessu sama veðri. Nýtt rjómabú. í Landsveitinni í Rangárvallasýslu hafa menn komið sér saman um, að stofna rjómahú hjá Minnivallalækshrú, og tekur allur þorri hænda þátt í því. Ur Yestmanneyjuin er ritstjóra „Þjóðv.“ skrifað 17. janúar: „Megn kvefsútt og lungnabólga, hefir gengið hér, síð- nii í nóv., og er því miður ekki útdauð enn. Úr veiki þessari hafa alls dáið 8 persónur, þar af 2 ofdrykkjumenn, annar miðaldra, en hinn á þrítugsaldri, og hinir 6 heilsufarið eða hrjóst- veikt fólk, á 7. og 8. aldurstug, menn sem aldrei afbera slík áföll, sem lungnabólgu, eða þunga kvefsótt11, Óveitt prestakall. Mosfell í Mosfellssveitinni íBrautarholts- og Lágafells-sóknirj er auglýst til umsóknar, og er matið 1234 kr.; en þar af ganga þó 34 kr. til ,uPPgj af aprests. Banka-utibú Landsbankinn hefir um hríð verið í samning- um við sparisjóðinn á Isafirði, sem landsbank- inn vill taka að sér, og sameina banka-útibúi þar vestra. Til þess að fullgera samningana um þetta var bankagjaldkerinn hr. Halldór Jónsson sendur til ísafjarðar með gufuskipinu „Saga“ 22 janúar síðastl. Mælt er, að þeir frændur og nafnar, Þorv. Jónsson læknir og próf. Þorv. Jónsson, verði for- stöðumenn banka-útibúsins. Frá Vestur-íslendingum. Tjaldbúðarsöfnuðurinn í Winnipeg, er síra Haý- steinn Pétwrsson var prestur fyrir, en siðan naut prestsþjónustu síra Bjarna Þórarinssonar, hefir í síðastl. októbermánuði kallað síra Friðrik J. Berg- mann til prests síns. 25. okt. vildi það slys til í Aiyyk-byggðinni, að bóndinn Kristján Jónsson Dalmann datt af vagni og beið bana af byltunni. VI smiiítlíVí. 10. des síðastl. and- aðist að Felli í Sléttuhlíð í Skagafjarðar- sýslu húsfreyjan Jbrunn Scemundsdbttir, 37 ára að aldri, kona Sveins hreppstjóra Arnasonar. — 11. janúar þ. á. andaðist á Eyrarbakka, eptirlanga sjúkdómslegu, húsfrú Astrlður Guðmundsdbttir, nál. sextugu, kona Guðm bóksala Guðmundssonar á Eyrarbakka, væn kona og mikils metin. — Af 6 börnum þeirra hjóna, lifa 4 móður sína. — 16. nóv síðastl. andaðist enn fremur í Norður-Dacota í Ameriku konan Rannveig Magniisdbttir, 70 ára að aldri, fædd í Þjóðólfstungu í Isafjarðarsýslu 1. jan 1833. — Hún var gipt Friðfinni Kjœrne- sted trésmið, sem nú er að Látrum í Sléttuhreppi i Isafjarðarsýslu. — Bjuggu þau hjónin lengi i Miðdal i Bolungarvík | en síðar í ísafjarðarkaupstað, og þaðan fluttist Rannveig sáluga til Ameriku sum- arið 1892. Börn þeirra hjóna, sem á lifi eru, eru þessi: 1, Elías Friðfinnsson, bóndi að Stað í Sléttuhreppi, kvæntur Jdhönnu Jbns- dóttur, hreppstjóra á Kirkjubóli i Skut- ilsfirði. 2, Jbn. alþýðukennari i Manítoba. 3, Mihkalína, gipt Kristjáni Jbhannssyni, útvegsmanni í Isafjarðarkaupstað. 4, Kristján, kvæntur Jbhónnu Jbhannesdbtt- ur, bóndi í Manitoba. 5, Elín, gipt kona í Norður-Dacota. 6, Kristín, gipt J. W. Thorgeirsson, fyr yfirprentara, en nú mjólkursala í Winnipeg. Eptir að Rannveig sáluga fluttist til Ameríku, var hún ýmist hjá Kristjáni, syni sínum, eða hjá dætrum sinum, Elinu, og Kristínu, og andaðist á heimili hinn- ar fyrnefndu. — Aður en hún fluttist til Yesturheims, var heilsa hennar farin tals- vert að bila, enda hafði hún lærbrotnað nokkru áður, og var jafnan hölt síðan; en í elli sinni átti hún því láni að fagna, að njóta ástar og aðhlynningar sinna góðu barna, er hún dvaldi hjá, og naut því ánægjulegrar elli, enda þótt það drægi að vísu úr gleði hennar, hve mjög hún þráði mann sinn, sem orðið hafði eptir á Islandi. Rannveig sáluga var greind kona, og að mörgu leyti vel gefin, og sérstaklega voru þau hjónin bæði mikils metin, með- an það bjuggu i Bolungarvíkinni. 16 Vertu þolinmóð, í guðanna bænum! Þú veizt "761, að jeg eyðilegg mig alveg, ef eg fer óhyggilega að ráði minu. Bíddu, og vonaðul Sá dagur nálgast, er við ■aldrei skulum skilja Treystu mér jafnan. Dick“. III. „Astkæra María! Hvað meinarðu með seinasta bréfinu þínu? Ætl- >arðu að steypa mér í ógæfuna? Geturðu ekki beðið 'Ögn enn þá? Hve opt hefi eg eigi sagt þér, að jeg ræð ekki sjálfur gjörðum mínum? Þú veizt þetta, og þú veizt einnig, hve voða- 'lega strangur húsbóndi minn er. — Væri jeg sjálfráð- uc, myndi eg kvongast þér á morgun. I guðanna bænum, gerðu mig ekki ærðan, en wærtu nú þolinmóð. Þinn einlaecur. Dicku. IV. „María'! n t J©g verð að gera enda á hinni þvingandi áleitni 'þinni. Finndu mig því: á gamþt vana-ataðnum 25. þ. ui. kl. 9. & h. Vertu í góðu skapi. Við skulum ferðast saman jí nokkra daga, og tala um framtíðina. Vertu sæl á meðan. / ',r Dick4: Svona hljóðuðu bréfin, og er það eptirtektarvert, 13 athygli mína, ef fornafn stúlkunnar hefði eigi verið María. Ættarnafnið Albert er og frakkneskt, og taldi eg mér því skylt, að grennslast eptir, hvort stúlka þessi, sem auglýsingin laut að, væri eigi sami kvennmaðurinn, er svaf svo vært í kirkjugarðinum í Greenock. Húsið var snoturt, og voru íbúarnir vanir að leigja herbergin öðrum fremur einhleypum stúlkum, er stund- uðu nám við iðnskólann í Kensington, eða eittbvað voru við þá stofnun riðnar. Þegar jeg sýndi fólkinu myndina af myrtu stúik- unni, þekkti það hana strax, og sagði, að það væri mynd- in af Mariu Albert, og brá mjög, er eg skýrði því frá hinum voðalegu afdrifum hennar. Þetta var nú að vísu ofur-lítið spor í áttina, en virtist þó eigi mundu verða að miklu liði. Húsmóðirin, sem ég nefni frú Smith, sagði, að María Albert hefði leigt hjá sér í þrjá mánuði, og bar henni að öllu leyti vel söguna, en kvaðst að öðru leyti vera högum hennar ókunnug. Hún var af frakkneskum ættum, en hafði dvalið nokkra hríð í Englandi. Frú Smith kvað hana hafa verið gáfaða, menntaða, og væna stúlku, en fremur fáorða um sína hagi. Þunglyndisköst hefði hún fengið, og stundum sett að henni mikinn grát. Hún kvað hana hafa haft talsvert fé, er hún kom þar i húsið, en seinasta mánuðinn kvaðst frú Smith hafa lánað benni dálitið. Þegar hún fór, ráðgerði hún að vera að heiman

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.