Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.02.1904, Síða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.02.1904, Síða 3
XYTII 5. £>jóðviljinn 9 mikilsvert, að bókinni er út býtt ókeyp- is, svo að öllum þorra almennings gefst líostur á að eignast hana útgjaldalaust, og ætt-i enginn að telja eptir sér, að kynnast henni vandlega. Bókin er mjög ljóslega samin, svo að hver maður getur skilið hana, enda eru í henni nokkrar myndir til skýringar- auka, og er enginn efi á því, að talsvert myndi takast, að varna útbreiðslu þessarar afar-næmu og hættulegu veilíi, ef al- menningur léti sér um það hugað, að h'agnýta sér sem rækilegast ráð þau, er aitlingurinn gefur Sem einkennisorð hefir höíundurinn valið ritlingnum þessi orð: „Til þess að herja á berklaveikina, sem þjóðarmein, og hafa sigur, þurfa saman að vinna vitur stjórn, vel menntaðir læknar, og skynsöm alþýða“, og væri óskandi, að enginn af þessum málsaðilum hér á landi léti sitt eptir liggja, þar sem um jafn alvarlegt nauðsynjamál er að ræða. Vér viljum þvi sem alvarlegast brýna fyrir almenningi, að íylgja ráðum bæklings þessa sem vandlegast, til þess að rarna sýkingarhættu, og forða þjóð- félaginu frá þeim voða, sem ella stafar af berklaveikindunum. Útbúnaður rúðaneytis-skrií'stofunnai'. Danska blaðið „Politíken“ skýrir frá því 13. janúar síðastl., að verzlunarhúsið „Magazin du Nord“ í Kaupmannahöfn hafi sent 60 stykki af húsgögnum, gluggatjöldum, gólfdúkum („linole- um“) o. fl. til útbúnaðar ráðaneytis-skrifstofunn- ar í Keykjavík, og komu munir þessir með síð- ustu ferð „Lauru“. Ekki er ótrúlegt, að einhver verzlananna í Eeykjavík hefði getað útvegað muni þessafylli- leqa eins ódýra, eins og „Magazin du Nord“, sem er talið einn hinna dýrari smásölustaða á Norð- urlöndum, enda er það siður flestra stjórna, að unna fremur innlendum, en útlendum mönnum, viðskipta við landssjóðinn. Athugasemd þessi er þvi að eins gjörð í því skyni, að brýna fyrir landstjórninni, að gæta framvegis þeirrar sjálfsögðu skyldu sinnar, að hlynna fremur að innlendum, en útlendum mönn- um, þegar um einhver kaup á kostnað landssjóðs- ins er að ræða. Staðfest lög-. Auk laga þeirra, er blað vort liefir áður getið, hefir kon- ungur, 27. nóv. síðastl., staðíest þessi lög frá síðasta alþingi: XXXVII. Lög um eptirlit með mann- flutningum til útlanda. XXXVIII. Lög um þingsköp til bráðabirgða fyrir alþingi. XXXIX. Lög um friðun fugla. XL. Lög um að stjóminni veitist heimild, til að makaskipta þjóðjörðinni Norður-Hvammi í Hvammshreppi fyrir prestsetursjörðina Pell í Dyrhólahreppi. XLI. Lög um heimild til að kaupa lönd til skógarfriðunar og skógargræðslu. XLH.—XLVIII. Lög um löggilding verzlunarstaða. (Að Selvík í Skagafjarð- arsýslu, að Kálfshamarsvík í Húnavatns- sýslu, í Bolungarvík í Isafjarðarsýslu, að Grenivík við Eyjafjörð, á Okrum í Mýra- sýslu, að Heiði á Langanesi, og á Ospaks- eyri í Strandasýslu). Enn fremur staðfest 19. des. síðastl.: XLIX. Lög um túngirðingar. L. Lög um fólksinnflutninga til Is- lands. LI. Lög um heimild til lántöku fyr- ir landssjóð. nmmiiiinuiuniiiiiniiiiiiiiiiiiiin'iiiiiiiiiiiiiii r I rökkrunum. ---G§Cr Héraðslæknir Þorsteinn Jónsson í Vest- manneyjum hefir 17. janúar 1904 skýrt ritstjóra „Þjóðv.“ frá atburði þeim, er hér fer á eptir. Skröltið á kirkjuloptinu. Maður nokkur, á þrítugsaldri, andað- ist hér í eyjunum úr lungnabólgu 12. des. síðastl. — Síðustu vikuna, sem hann lifði, svaf hann mjög lítið, en morgun einn, fáum dögum fyrir andlátið, svaf hann í nálega 2 kl.stundir, og mælti hann þá, er hann vaknaði: „Nú held jeg, að jeg hafi sofið, því að jeg þóttist vera nakinn uppi á kirkjulopti, og vera að leita þar að fötum mínum“. Sama morguninn, er veika manninn dreymdi þetta, kom yfirsmiðurinn, er staðið hefir fyrir aðgerðinni á kirkjunni, fyrstur manna upp í kirkjuna, og skömmu eptir það, er hann var þangað kominn, fór hann að heyra skrölt uppi |í kirkju- hvelfingunni, svo sóm verið væri að kasta þar til borðum, eða skrani. Datt honum þá í hug, að vera mætti, að járnplata hefði losnað á þakinu, og gekk því út, ásamt öðrum manni, til að gá að þessu, og síðan upp í kirkjuturn- inn, til að líta eptir, hvort ekki væri illa lokað hlera; en í báðum stöðum var allt með felldu. 20 stöðu, að eg geti sigri hrósandi sagt við sjálfa mig og aðra: „Jeg er heiðvirð kona“. Þetta var það, sem seinast hafði ritað verið i dag- hókina, og var hryggilegt að lesa það, og hugsa til þess, sem fram var komið. Var nokkur efi á því, að maðurinn, sem hún átti við, væri „Dick“ ? En „Dick“ hafði sýnt, að hann var harður, og samvizkulaus, með djöfullegar hugsanir í hjarta. Hann hafði eigi vílað fyrir sór, að myrða þessa ástúðlegu stúlku, er honum þótti hún orðin sér til baga. En enda þótt brófin, og dagbókin, hefði gefið mór ýmsar leiðbeiningar, þá vissi eg þó enn alls eigi, hver „,Dick“ þessi var. Jeg skrifaði nú stúlkunni í París, er brófið var frá, ■sem eg fann í bréfaveskinu. En enn af nýju brugðust vonir mínar. Þær höfðu verið skólasystur, og skrifazt á öðru fivoru, og einu upplýsingarnar, sem hún gat gefið mór, voru þmr, er nú skal greina: María Albert var frá Bordeaux, af mjög góðum mttum, og höfðu foreldrar hennar viljað neyða hana, til giptast miklu eldri manni, flugríkum, sem hún hafði óbeit á. Poreldrar honnar gengu hart að henni, að því er giptingu þessa snerti, svo að María flýði loks að heiman, °g eptir það, vissu vinkonur hennar lítið, hvað henni leið. Menn ímynduðu sór, að hún hefði farið til Lundúna, og ætlað að gjörast þar kennslukona, þar sem hún var prýðis vel að ser, og talaði ensku mjög vel. 17 að seinasta bréfið byrjaði að eins með ávarpinu „María“, án þess að bætt væri við „kæra“. Þegar hann skrifaði það brófið, hefir hann verið alveg utan við sig. Það má glöggt lesa það milli linanna í fyrri bróf- unum, að veslings stúlkan, sem vissi, hvernig ástatt var fyrir sér, hefir lagt ríkt að honum, að ganga að eiga sig, áður en barnið fæddist, og þegar hann ritaði fjórða bréfið, hefir hann verið búinn að fastráða það með sór, að fyrir- fara henni. Það var undarlegt, að auk ofan nefndra brófa, var að eins eitt bróf í bréfaveskinu, og var það frá ungum kvennmanni í París, og ritað á frakkneskri tungu. Enn fremur var og í brófaveskinu brot til dagbók- ar, og var sorglegt að lesa það. Það var ekki vanaleg dagbók, um hversdagslega atburði, heldur voru það smá-athugasemdir, eða hugleið- ingar, er lýstu ákafri sál, og sterku hugarstríði. Flestar þessar athugasemdir voru óviðkomandi máli þvi, er hér um ræðir, og finnst mér þvi ekki rótt, að skýra frá þeim. En athugasemdir þær, er hér fara á eptir, snerta auðsjáanlega vinfengi „Dick’s“ og Maríu, og þar sem þær lýsa mjög fógrum tilfinningum, þykir mér rótt, að birta þær á prenti, svo að þær varðveitist frá glötun og gleymsku. Athugasemdir þessar voru ritaðar á frakknesku, og eru svo hljóðandi: I. „Jeg hefi verið að hugsa um það í dag, bvort

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.