Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 27.06.1904, Qupperneq 1
Terfí árgangsins (mmnst
52 arkir) 3 hr. 50 aur.;
trlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku (loll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
aðarlok.
ÞJOÐVILJINN.
- 1=^ ÁTJÁNDI ÁE8AN8ÍS. =|=====-
-s-RITST.TÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =Ibo^—?—
ZJppsögn skrifteg, ógild
nema kcmin sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupandi
samhliöa uppsögninni
horgi skuld sína fyrir
blaöiö.
M 26.
Bessastöðum, 27. júní.
19 0 4.
Útlönd.
Helztu tíðindi frá útlöndum eru þau,
er uú skal greina:
Bretland. 3. júní voru hátíðahöld
mikil víða í hrezka ríkinu í minningu
þess, að þá voru liðin 100 ár, síðan
Eichard Cohden fæddist (f. 1804, dáinn
1865). Honum eiga Bretar það einkum
að þakka, að korntollurinn var úr lögum
numinn 1846, enda virtu Bretar þá starf-
semi hans svo mikils, að þjóðin skaut
saman 75 þús. sterlingspunda, sem heið-
ursgjöf handa honum. — Hann er með
réttu talinn faðir fríhöndlunar-stefnunnar
á Bretlandi, og hefir því þessi aldarminn-
ing drjúgum stutt að því, að snúa hug-
um manna gegn tollverndar-kenningum
Chamberlain’s, enda hefir framsóknarflokk-
urinn eigi sparað, að blása að þeim kol-
unum.
Frakkland. Rannsóknum í Dreyfus-
málinu er enn haldið áfram, og hefir það
gjörzt sögulegast, að embættismaður í
hermálaráðaneytinu, d’Autriche að nafni,
var nýlega tekinn fastur, og voru þau
atvik til þess, að Athalin, dómari í ónýt-
ingardómstólnum, er þurfti að leita sér
einhverra upplýsinga um Dreyfusmálið í
skjalasafni hermálaráðaneytisins, sótti svo
að d’Autriche, að hann var að skafa ým-
islegt út í bókum sinum, og er Athalin
spurði hann, hverju þetta sætti, svaraði
d’Autriche, sem ekki þekkti dómarann,
að hann ætti að mæta, sem vitni í
Dreyfusmálinu, og yrði því aðsjáum, að
embættisbókum sínum bæri saman við j
framburð sinn. — Dómaranum þótti þetta ,
sóttu þann fund fulltrúar kvennfélaga í
flest-um menntalöndum heimsins; en am-
erisk frir, 84 ára að aldri, Susan B. Ant-
ony að nafni, stýrði fundinum. Á fundi
þessum var stofnað alheimsfélag, til að
styðja að þvi, að konur fái hvívetna jafn-
an kosningarétt, sem karlmenn.
3. júní brunnu 24 bændabýli til kaldra
kola í þorpinu Priemhausen.
27. maí síðastl. gekk ákaft haglél í
Wiirtemberg, og olli þar all-miklum
skemmdum.
I einu af borgarsýkjunum í Berlín
fannst 3. júní kvennlík í poka, höfuð- og
útlima-laust, og hefir lögreglunni enn
eigi tekizt, að komast eptir því, hver
þenna voða-glæp hefir framið. —
Spánn. 6. júní var ákaft haglél í
Madríd, höfuðborg Spánar, og voru hagl-
kornin á stærð við dúfna-egg, svo að
engum manni var líft úti. en urðu að
kúra inni í húsum.
ítalía. Þar varð ný skeð uppvístum
800 þús. franka sjóðþurrð hjá embættis-
manni einum í Neapel, og eru ýms þess
konar fjársvik ekki ótíð þar í landi. —
Belgía. Þar fóru fram þingkosningar
síðustu dagana í maímánuði, og sigraði
kaþólski (apturhalds-) flokkurinn, þó að
atkvæðamagn hans sé nú nokkru minna
á þingi, en fyr. —
Austurríki. 30. maí til 7. júní gengu
um 40 þús. húsasmiða atvinnulausir í
Vínarborg, höfðu krafizt hærri daglauna,
en atvinnuveitendur svöruðu á þann hátt,
að þeir létu hætta allri vinnu um hríð
(„]ock-out“). — Eptir rúma viku tókst
þó loks að miðla málum, enda hafði þá
kynlegt, sem von var, og var d’Autriche •, vinnuteppan bakað báðum málsaðilum
því tekinn fastur, og sást þá, að útskafn-
ingarnar lutu að ýmsum útborgunum, er
áttn sér stað í ágústmánuði 1899, sömu
dagana, er herrétturinn í Rennes fjallaði
um Dreyfusmálið, og er talið víst, aðhér
sé um ýmsar upphæðir að ræða, er not-
aðar hafa verið, til að múta vitnum.
2. júní brutust 2 þús. karla og kvenna
inn í kirkju eina í Toulon, brutu þar
dýrðlingamyndir o, f 1., og var orsökin
sú, að prestur hafði neitað, að taka ýms
börn til altaris, er sungið höfðu uppreisn-
arsöngva á skemmtiför einni. — Að lok-
um varð lögregluliðið að skakka leikinn;
en presti, og djákna, vildi það til lífs, að
þeir földu sig, og fundust ekki.
7. júní voru hátíðahöld í Rouen í
minningu þess, *að þá voru 1000 ár liðin,
siðan Oöngu-Hrölfur tók að brjótast þar
til valda í Normandíinu, og varð hann
þar hertogi 912, og fylkið síðan lengi
sjálfu sér ráðandi. —
Þýzkaland. 3. júní hófst í Berlin
fundur um kosningarrétt kvenna, og
afar-mikið fjártjón.
t 4. júní andaðist í Gmunden prins-
essa Mary, systir Cumberlands-hertogans,
fædd 1849, og varð því minna úr ýms-
um veizlum, og hátíðahöldum, en ætlað
var, er hertoginn gipti Friedrich Franz,
hertoga í Mecklenburg, Alex'óndru, dóttur
sína, 7. júni, svo sem áformað hafði verið.
Balkanskaginn. Allt er nú fremur
friðsamlegt í Makedoníu, og ýmsir flótta-
manna sem óðast að hverfa þangað heim
| aptur; tregt gengur þó erindsrekum
| Rússa og Austurríkismanna, að koma á
umbótum þeim, er í ráði eru, og veldur
því einkum fjárskortur Tyrkja, þar sem
þeir geta eigi lagt fram fé, til þess að
reisa úr rústum ýmsar byggingar, og býli,
er eyðilögðust, meðan uppreisnin stóð
yfir. — Snemma á þessu ári greip Tyrkja-
soldán til þess óyndisúrræðis, að hann
gaf út tilskipun („írade“), er lækkaði laun
allra embættismanna um 15% frá 1. marz
þ. á., en þrátt fyrir þetta er enn sama
tóma-hljóðið í fjárhirzlum soldáns, og ráð-
gerir hann því, að biðja Rússa og Aust-
urríkismenn, að lána sér peninga, ef þeir
vilji, að hann reyni að gera alvöru úr
því, að koma á áskildam umbótum í
Makedoníu.
I Serbíu varð ný skeð uppvíst um
samsæri í borginni Nisch, er stefndi að
því, að hegna konungsmorðingjunum. en
það þorir Pétur konungur alls eigi.
11. júní lét NataJía drottning, ekkja
Mílan’s konungs, syngja sálnamessu fyrir
Alexander, son sinn, og Drögu drottningu,
því að þann dag voru þau myrt i fyrra.
Bandaríkin. 29. maí síðastl. kvikn-
aði í járnbrautarstöðinni í Dalaware, og
er skaðinn metinn um 5 milj. dollara.
30. maí skaut Maclanes, borgarstjóri
í Baltímore, sjálfan sig til bana, hafði
beðið afar-mikið fjártjón við eldsvoða. —
Hann var kvæntur fyrir að eins hálfum
mánuði.
Seint í maí varð ákafur eldsvoði í
borginni Jazoo í Missísippí-ríki, og brann
þar pósthúsið, ráðhúsið, og fjöldi annara
stórhýsa.
6. júní hlutu 16 menn bana, en 9
urðu sárir, af „dynamit“-sprengingu við
Independance-járnbrautarstöðina í Col-
orado.
Bandamenn hafa enn hert ákvæðin,
að því er innflytjendur snertir, og fær
nú enginn innflytjandi að stíga þar á
land, þótt til ættingja fari, nema hann
eigi 10 dollara, auk fargjalds til þess
staðar í Bandarikjunum, er hann ætlar
til.
Auðmaðurinn Andrew Carnegie hefir
nýlega gefið háskóla í Gautaborg 10 þús-
undir sterlingspunda, er einkum á að
verja til þess, að koma á fót háskóla-
kennaraembætti í enskri tungu. —
Suður-Afríka. Demantsnámur hafa ný
skeð fundizt í grennd við Griquatown,
og eru þær taldar mjög mikils virði. —
Norður-Afríka. Ræningjaforingi einn
í Marocco hefir nýlega í borginni Tang-
er numið brott tvo ameríska borgara, og
hótar að drepa þá, nema hann fái afar-
hátt lausnargjald.
Stjórn Bandamanna hefir því sent
tvö herskip til Marocco, og krefjast þess,
að soldán greiði þegar lausnargjaldið, eða
sjái um, að mönnunum sé tafarlaust
sleppt. xir haldi, og hefir soldán heitið
góðu um greiðslu gjaldsins, en orðið þó
dráttur á, svo að Bandamenn höfðu 8.
júní skipað nokkru herliði á land í Ma-
rocco, til að herða á kröfum sínum. —
Lengra ná þessar fréttir enn ekki. —
Armenía. Þar er enn róstusamt, sem
fyr, og hafa ýms þorp nýlega verið lögð
þar í eyði, og margir íbúar verið drepn-
ir, jafnt konur, sem karlar, börn, sem