Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 01.07.1904, Qupperneq 1
Terð árganqsins (minnst
52 arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
aðarlok.
ÞJOÐVILJINN.
-"■ ■ Átjándi ároangub. =1 =—
-i-RITST.T ÓRI: SKÚLI THOBODDSEN. =M—>—
Vppsögn skrifleg, ógild
nema komin sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupandi
sanlhliða uppsögninni
horgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 27.
Bessastöðum, 1. JÚLÍ.
19 0 4.
trtlöndL.
Frá útlöndum hafa ný skeð borizt
þessi tíðindi:
Finnland. 16. júní var Bobrikoff hers-
höfðingja, landshöfðingja Bússa á Finn-
landi, veitt banatilræði í Helsingfors,
höfuðborg Finnlands, skotið á hann þrem
skotum, er eitt kom í hálsinn, annað í
brjóstið, en hið þriðja í magann, og and-
aðist hann af sárum sínum daginn eptir.
Sá, er verkið vann, hét Eugéne Schaumann,
lögfræðingur, aðstoðarmaður á einni stjórn-
arskrifstofunni í Helsingfors, rúmlega
þrítugur, og réð hann sér samstundis
bana, og fórnaði þannig sjálfum sér, er
hann hafði iosað ættjörð sína við þenna
illræmda rússneska harðstjóra, er brotið
hefir lög á Finnum, og leikið þá mjög
grálega, i skjóli rússneska alríkisvalds-
ins.
Ætti þetta að vera Nicolaj keisara, og
stjóm hans, bending um það, hvaða af-
leiðingar stjórnarskrárbrot, og aðrar lög-
leysur, Hússastjórnar, og erindsreka henn-
ar á Finnlandi, hafa: ad skwpa byltinga-
liug lijá friðsamri þjóð., svo að gripið er
jafn vel til morðtólanna.
Nærri má geta, að Bobrikoff muni
fáum harmdauða á Finnlandi; en að lík-
indum fer hér, sem optar, er um poli-
tisk morð er að ræða, að Rússastjórn noti
sér atburð þenna, til þess að þröngva
kosti Finnlendinga enn meira, en áður.
Austræni ófriðurinn. I viðureign
Rússa og Japana er fárra nýrra stórtíð-
inda getið. — Shrydloff aðmiráll, er nú
stýrir flotadeild Rússa í Vladivostock,
hélt skipum sinum þaðan ný skeð, og
ætlaði að sameinast herskipum þeim, er
Rússar eiga enn eptir í Port-Arthur. —
Sú fyrirætlun hans tókst að vísu ekki,
en honum tókst að sökkva 3—4 fólks- og
vöru-fiutningaskipum Japana, og er mælt,
að þar hafi látizt 1000 manna af Japön-
um, með því að ýmsir skipverja vildu
eigi gefast upp, og þiggja lif.
Tvennum sögum fer um það, hvort
fundum þeirra Shrydloff’s og Kammíura
aðmíráls, er stýrir flotadeild Japana þar
norður frá, hafi borið saman; segja sum-
ar sagnir, að Rússar hafi misst tvö her-
skip, áður en þeir komust til hafnar í
Vladivostock, en aðrar sagnir herma, að
Kammíura hafi misst sjónar á rússnesku
flotadeildinni, sakir dimmviðris.
' •
Togo, aðal-flotaforingi Japana, heldur
herskipastól sínum í grennd við Port-
Arthur, og lætur skothríðina dynja á
borginni öðru livoru, en sakar þó eigi til
mnna, þar sem skotið er af mjög löngu
færi.
Um miðjan jiiní háðu Rússar ogJap-
anar landorustu á vestanverðum Líaotung-
skaga, og biðu Rússar ósigur, sem fyr.
— Oljósar eru enn fregnir um mannfall-
ið í orustu þessari, þar sem sumir segja,
að Rússar hafi misst. 3 þús. manna, er
drepnir voru, særðir, eða handteknir, en
aðrir nefna 10 þús. Japanar segjast hafa
dysjað 1500 rússnesk lík, eptir orustuna,
en misst sjálfir um 900 manna.
Japanar eru nú smám saman að þok-
ast nær Port-Arthur á landi, og hafa
hlaðið skotgarð, með víggirðingum, yfir
þveran tangann, rúmar 2 milur fyrir
norðan Port-Arthur.
Oljósar eru fregnir frá Port-Arthur,
en þó mun það sannfrétt, að vistir séu
þegar teknar að þverra þar að mun, svo
að herliðið lifi að eins við hálfan skammt.
Mælt er, að Rússastjórn hafi boðið
Kuropatkin hershöfðingja, að láta einskis
ófreistað, til þess að brjótast með land-
her til Port-Arthur, og reyna að bjarga
borginni; en vonlaust að líkindum, að
það takist, þar sem Japanar auka umsát-
ursherinn um Port-Arthur meira og
meira. —
Bandaríkin. 15. júní varð hörmulegt
slys fyrir utan höfnina í New-York,
kviknaði í skemmtiskipi, „Greneral Slo-
cum“ að nafni, er þar var á ferð, fullt
af fólki, mestmegnis skólabörnum. —
Skipið var statt hjá kletti þeim, er
„Hellgate“ (vítishlið) nefnist, og hamr-
ar á tvær hliðar, og fórst þar um 1000
manna, er ýmist brann, kafnaði í reykn-
um, eða drukknnði.
Danmörk. Þar er nýlega látinn
Augustín Gamel stórkaupmaður, stórefn-
aður. — Hann varði stórfé til vísinda-
legra rannsóknarferða, kostaði norðurför
Hovgaard's — Djimphna-förina —, lagði
fram töluvert fé til Grænlandsfarar Frið-
þjófs Nansen’s, er hann gekk yfir Græn-
landsjökla, og lagði enn fremur fram fé
til rannsóknarferða dr. Þorr. Thoroddsen’s
hér á landi það árið, er alþingi synjaði
honum ferðastyrks. — Siðustu ár æfinnar
var Gamél veiklaður á geðsmunum. —
Hann dó úr lungnabólgu. —
S’víþjóð. Um' miðjan júní brann til
kaldra kola stór verksmiðja í Vesterás,
og sömuleiðis 8 bóndabýli, er stóðu í
þyrpingu, og voru þau öll óvátryggð.
Vill ekki nýjar kosningar.
--O<)o-
Áður en kunnugt varð um það, hver
ráðherratignina hlyti, vakti „Þjóðvú máls
á því, að það væri sjálfsögð siðferðisskylda
nýju stjórnarinnar, að rjúfa alþingi, og
láta almennar þingkosningar fara fram
sem allra bráðast, til þess allur sá' fjöldi
manna, er kosningarrétt öðlaðist, þegar
stjórnarskrárbreytingin gekk í gildi, fengi
tækifæri til þess, að nota þenna nýfengna
rétt sinn, og gæti þannig haft áhrif á
málefni landsins.
Það sýnist kynlegt, að veita fjölda
manna mikilvæg réttindi, en meina þeim
svo í lengstu lög að neyta þeirra.
Slíkt háttalag er engri frjálslyndri
stjórn samboðið.
Auk þess voru og ýmsar aðrar ástæð-
ur, er bentu til þess, að almennar þing-
kosningar ættu fram að fara, svo sem
„ÞjóðvJ hefir áður rækilega bent á.
En þrátt fyrir það, þá er þó ekki
nærri því komandi, að nýja stjórnin rjúfi
þingið.
Hún hræðist nýjar kosningar, sem
eldinn heitan.
Ráðherrann þykist, sem stendur, hafa
öruggan meiri hlata á þingi, og vill því
ekkert eiga á hættu, hvernig nýjar kosn-
ingar kynnu að takast.
Það er kunnugt, að „heimastjórnar-
menn“ áttu sigur sinn við síðustu kosn-
ingar því að þakka, að þeir fengu Albertí
til þess, að synja lögunum um leyni-kosn-
ingar staðfestingar, svo að þeir gætu
notað embættisvaldið, banka-áhrifin, og
fjárausturinn, sem bezt sér i vil.
En þar sem leyni-kosningar eru nú
lögleiddar, þá verður miklu örðugra, að
beita sömu brögðunum, sem síðast, eða
árangurinn óvissari, enda bankarnir nú
orðnir tveir, svo að banka-áhrifanna
gætir minna.
Nú veit ráðherrann það, sem allir vita,
að hann hefir, sem komið er, engan byr
hjá þjóðinni, þvi að almenningi er það
ljóst, að nafn hans táknar i politíkinni
ekkert annað, en nýja útgáfu af Reykja-
víkur-„klíku:í-ríkinu gamla.
Auk þess eru nú milliþinganefndirn-
ar full-skipaðar, og landssjóðsbitum öðr-
um úthlutað, svo að örðugra er, að afla
sér þingfylgis á þann hátt.
Það er því ofur-skiljanlegt, að ráð-
herrann vilji ekki fara að eiga það á
hættu, að láta almennar þingkosningar
fara fram.
„Dráttur á illu beztu“, hugsar hann.
Nógu snemmt, að láta kosningarnar fara
fram, þegar lögin heimta það.
Þá geta þó| „heimastjórnarmennirnir“
gert sér mat úr völdunum að minnsta
kosti þann tímann.
• .........
Próf i læknisfræði
hafa leyst af hendi í Reykjavik: Matthías Ein-
arsson og Jón Ó. Rósinkranz, hinn fyrri með I.
einkunn (186 stig), og hinn síðari með II. eink-
unn (148 stig).
Sýslumannsemhættið i ísafjarðarsýslu,
og hæjarfógetaembættið & ísafirði, er veitt