Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 14.07.1904, Page 1
Terð árganqsins (minnst
82 arkir) 3 kr. 50 aur.; \
erlendis 4 kr. 50 aur., og \
í Ameríku doll.: 1.50. j
Borgist fyrir júnímán- [
aðarlok.
ÞJOÐVILJINN.
— 1= Átjándi ÁKGANGUK. =j -.■=--
RITST.T 6ltl: SKÚLI THOBODDSKX. =|&otg—!-
Uppsögn skrifleg, ógild
nerna komin sé til^ útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupandi
samhliða nppsögninni
horgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 29.
Bkssastöðum, 14. JÚLÍ.
19 0 4.
TJtlöna.
Af ófriðnum er það helzt tíðinda, að
23. f. m. var sjóorusta háð við Port-Arth-
tir. Söktn Japanar þar einum orustudreka
Rússa, og ónýttu fyrir þeim tvö önnur
skip, orustudreka og brynsnekkju. Tek-
ur nú liklega að saxast á herskipastól
Rússa þar austur frá. Sagt er að skip
Japana hafi ekki orðið fyrir neinu veru-
legu skakkafalli í viðureign þessari.
Þá er og sagt að barist hafi verið um
sama leyti 3—4 daga einhversstaðar í
nánd við Líaótungskaga, þar er Kía-sjá
heitir, á það að hafa verið mannskæð or-
usta, en óvíst um hver sigrað hefir.
Finnland. I Helsingfors, höfuðborg
Finna, hafa orðið töluverðar óspektir síð-
an Bobrikoff var myrtur. Var ursli gjörð-
ur á landsstjórnarskrifstofunum og 18
manna, er þar höfðu starfa, drepnir. Síð-
an voru iögreglustjórnarskrifstofurnar nið-
ur rifnar.
Hald manna er það að Eugen Schau-
mann hafi ekki verið einn í ráðum um
víg Bobrikoffs, heldur standi þar bak við
samsæri, og hafi hann orðið fyrir valinu,
að granda harðstjóranum.
Fjöldi af ættingjum og vimfin Schau-
manns hafa verið settir í varðhald og
gerðar hjá þeim húsleitir en með því að
ekkert hefir hjá þeim fundist er bent
gæti á að þeir hefðu verið í vitorði um
morðið, hefir þeim öllum verið sleppt úr
haldi. Sennilegt þykir að enn sé tíðinda
von úr löndum Rússa. Á Suðui-Rúss-
landi er t. a. m. töluverð ókyrrð, sem
ekki er ólíklegt að heldur fari vaxandi.
Búpemngs-sýningar.
Sýningar á búpeningi hafa á síðastl.
vori farið fram í stöku hreppum hér á
landi, og er það einkum að þakka upp-
örfun frá landbúnaðarfélaginu, sem lagt
hefir fram ofur-lítinn fjárstyrk, gegn liku
framlagi annars staðar frá, til verðlauna
fyrir gripi, er þjTja skara fram úr.
Búpenings-sýningar hafa í öðrum
löndum reynzt ágætlega, tii þess að hvetja
menn til þess, að bæta búfjárkynið, og
vanda meðferðina á búpeningi sem bezt,
og væri því óskandi, að slíkar sýningar
yrðu árlega haldnar í sem flestum land-
búnaðarsveitum, sumpart innan hreppa,
og sumpart fyrir stærri héruð, þar sem
þvi verður við komið.
Búpeningssýningarnar vekja sam-
keppni, og eru órækt merki þess, að á-
huginn á landbúnaðinum er farinn að
vakna, og því er vonandi, að alþingi
styðji að því, að slíkar sýningar verði
sem víðast, og að verðlaunin verði svo
myndarleg, að til nokkurs sé að vinna.
Það er samhuga álit flestra beztu
manna þjóðarinnar, að sjálfsagt sé, að
freista allra bragða, til þess að reisa land-
búnaðinn úr því aumkunarverða ástandi,
sem hann víða er í, svo að bændastéttin
geti orðið sjálfstæðari, frjálsari og mennt-
aðri, en nú er almennt.
Búpenings-sýningarnar, sem enn eru
í bernsku hér á landi, eru þýðingarmik-
ill liður í þessari viðleitni, og því er
skylt að heilsa þeim, sem fyrirboða nýs
tíma, og styðja að því sem öflugast, að
þær geti sem viðast orðið að góðum, og
tilætluðum, notum.
Slæmur fyrirboði. — Ófögur iðja.
I blaðinu „VestrÞ birtist 18. júní síð-
astl. rHöfuðstaðarbréfu, eptir einhvern
rHeyranda í holti“, þar sem leiðtogum
„landvarnarmanna14 er kennt um óspekt-
irnar í lærða skólanum í vetur.
Allir, sem til þekkja, vita þó, að fyr-
ir þessu er enginn niinnsti jiugufotur, og
eigi er það síður rangt, og ómaklegt, er
sami höfundur bendlar leiðtoga „land-
varnarmannanna“, almennt við drykkju-
læti, og óspektir, á götum Reykjavíkur,
enda þótt sumir af þeim séu má ske
ekki „heilagrÞ, en ýmsir af „beztu“
mönnum valdaflokksins eru, O:; hafa
verið.
Annars er mergurinn málsins í „Höf-
uðstaðarbréfinu-1 í „Vestrau auðsjáanlega
í því fólginn, að ýta undir nýja ráðherr-
ann, að svipta einn af kennurum lærða
skólans, ritstjóra „Ingólfs“, kennarastöðu
hans við skólann, þar sem höfundurinn
lætur í ljósi, að „nýja stjórnin ætti að
taka mjög hart á svona hátterni eins af
kennurum hins lærða skóla“.
Þessi bending til nýju stjórnarinnar
minnir oss á háttalag sumra hægriblaða- •
sneplanna í Danmörku, meðan politiska
óstandið var allra lakast, á dögum Est-
riipsráðaneytisi n s, því að það var þá ekki
óvanalegt, að sjá í dálkum þeirra ýmis
konar ósannindi, og róg, um politiska
| andstæðinga, til þess að gefa Estrup und-
i ir fótinn, að svipta þá embættum, og
| koma þar i staðinn einhverju bráðsvöngu
j „skriðdýri“ valdaflokksins.
Væri óskandi, að ekkert blað leggðist
svo lágt hér á landi, að fara að temja
sér svipaða iðju.
Nógu ógeðslegt er vissulega athæfið
sumra þeirra, þótt ekki bættist það of-
an á.
Bókmenntafélagið.
—oOo-
Reykjavíkurdei Id bókmenntafélagsins
hélt ársfund sinn i R.vík 8. þ. m. Gerð-
ist þar helzt tíðinda:
Forseti Eir. Briem skýrði frá hag
félagsins, las upp ársreikn. Hafnardeild-
arinnar og á hún i sjóði kr. 20,881 44.
Hallgr. Melsted landsbókavnrður hafði
sent forseta framhald veraldarsögu Páls
Melsteds, sem félaginu hefir áður verið
boðið, en er nú breytt og endurbætt. Var
handritið sent nefnd þeirri er áður hafði
það til meðferðar.
Síra Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði
hafði boðið Hafnardeildinni til útgáfu rit
um íslenzkan söng að fornu og nýju, en
Hafnardeildin vísaði því máli til R.vík-
urdeildarinnar. Getið var til að útgáfan
myndi kosta 3—4000 kr., og gat forseti
þess að stjórninni þætti félaginu ofvaxið
að ráðast í slíkt, ncma með styrk af al-
mannafé. Allt um það var þó kosin
nefnd til að yfirfara ritið, oghlutukosn-
inu sira Jón Helgason, Björn Kristjáns-
son kaupm. og Jón Jónsson sagnfræð-
ingur.
Viðvikjandi tímaritsmálinu gat forseti
þess, að það hefði verið borið undir stjórn
HafnardeildarÍDnar. Hafði þar á vorfundi
verið skipuð 3 manna nefnd i málið, en
svars ekki að vænta fyr en í haust. Yrði
því nú þegar að gjöra ráðstafanir til að
halda málinu áfram samkvæmt ályktun
fyrri fundar, ef hún skyldi neita sam-
þykkis síns.
Þvi næst las hann upp svo hljóðandi
tillögu frá stjórninni:
„Fundurinn samþykkir að fela stjórn-
inni að gera nauðsynlegan undirbún-
ing til þess, að koma í framkvæmd á-
kvörðun síðasta aðalfundar um útkomu
„Skírnis, tímarits hins íslenzka Bók-
menntafélags“ frá næstu áramótum,
þótt eigi sé komið samþykki Hafnar-
deildarinnar, og skyldi samþykki henn-
ar eigi fást, að halda þó fyrirtækinu
áfram eigi að síður, þó svo að beinn
kostnaður við það fari eigi 1000 kr.
fram úr því, er útgáfa Skírnis og
Timaritsins hefir áður kostaðu.
Var tillaga þessi samþykkt með 20
samhljóða atkv.
Síðan var kosið í stjórn félagsdeild-
arinnar.
I forsetaembættið fengu í fyrstu jöfn
atkv. Eir Briem prestaskólakennari og
Kristján Jódssod yfirdómari, 14 hvor, og
Páll amtm. Briem 1. Var svo kosið apt-
ur og fékk Kristján Jónsson 16 atkv. en
Eir. Briem 13.
Féhirðir var kosinn Geir T. Zoéga
kennari, í stað Björns sál. Jenssonar, og
skrit’ari Pálmi kennari Pálsson i stað Þórh.
lectors Bjarnasonar, en bókavörður end-
urkosinn Morten Hansen skólastjóri.
Varaforseti var endurkosinn öteingr.
Thorsteinsson ylirkennari, varafóhirðir
Halldór Jónsson bankagjaldkeri, varaskrif-