Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.08.1904, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.08.1904, Blaðsíða 1
Yerð nrganqsinn (minnst \ 52 arkir) 3 kr. 50 awr.; í erlendis 4 kr. 50 aur., og i í Ameriku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aiarlok. ________________________ ÞJOÐYILJINN. — :|= Atjándx árö'angur. =| - -— ■+—-gsr*^|==i= RITST.7 ÓRI: SKÚLI THOEODDSEN. =|wg—■*— Vppsögn skrifleg, ógild 'nema komin sé til útgef- \ anda fyrir 30. dag júní- j mánaðar, og kaupandi samhliða uppsógninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 33. Bessastöðum. 17. ÁGÚST. 19 0 4. Réttlát og óhlutdræg stjórn. ---0<>0 Þegar fyrverandi landshöfðingi vor, hr. Magnús Stephensm, gat þess i ræðu, er hann fiutti í veizlu þeirri, er honum, og ráðherranuxn var haidin af nokkrum Reykjavíkurbúum 1. febr. síðastl., að hann hefði viljað vera réttlátur og ólúutdrœgurd). meðan hann var landshöfðingi, þá var, sem von var, almennt brosað, því að fæstum mun hafa til hugar komið, að sjálfsblekkingin gæti náð svo háu stígi. Engu að síður sýna þó þessi ummæli það ótvírætt, að jafn vel landshöfðinginn, hr. Magnús Stephensev, hefir séð, hve sjálfsögð krafa það er, að stjórnin sé rétt- lát og óhlutdræg, því að ella myndi hann eigi hafa látið sér svo annt um, að reyna að skreyta sig að skilnaði með þeim fjöðr- unum, sem allir aðrir vissu, að hann aldrei átti. í stefnuskrá vor framsóknarflokks- mannanna er það og tekið skýrt fram, sem einn þeirra aðal-kosta, er góð stjórn verði að hafa, að hún sé réttlát og ó- hlutdræg, og því er ekkert sjálfsagðara, en að vér gefum því sem nákvæmastar gætur, hvernig nýja stjórnin fuilnægir þeirri kröfu vorri. Enn er að vísu of snemmt, að segja nokkuð ákveðið um þetta, þar sem stjórn- in má heita alveg ný sezt á laggirnar; en þvi miður benda embættaskipanirnar yfirleitt eigi í þá áttina, að réttlætið og óhlutdrægnin muni verða leiðarstjarna hennar. En þó að byrjunin sé að þessu leyti allt annað, en glæsileg, og þjóðinni mjög skaðvæn, svo sem bent var á í 31. nr. „ÞjóðvÚ, þá er þó eigi loku fyrir það skotið, að stjórnin kunni að öðru leyti að sýna réttlæti og óhlutdrægni í gjörðum sínum. Embættaskipanirnar geta verið skilj- anleg afleiðing þess, hve afar-rík sú hugs- un virðist hafa verið innan „heimastjórn- arflokksins“, að starf hans hafi verið þjóðinni S't70 heillavænlegt, að hann væri fyllstu launa maklegur. Þessari ríku hugsun, eða beinu kröfu flokksbræðra sinna, hefir hr. H. Hafstein eigi séð sér fært, að rísa gegn, og það því síður sem hann veit sig þurfa á. at- kvæðum þessara sömu manna að halda á alþingi, og því ekki gjörlegt, að synja þeim bitanna. Býsna óheppilegt er' þetta að vísu, þvi verður ekki neitað; en þó væri hitt enn verra, ef sú yrði raunin, að nýja stjórnin yrði einnig að öðru leyti svo gjörsamlega í vasa flokksmanna sinna, að hún yrði að öllu leyti að dansa, sem þeim sýnist, láta þeim að ósekju haldast uppi lögleysur, og beita að eins lögunum gegn þeim, er eigi fylla stjórnarflokkinn. Yrði þessi raunin á, þá mætti segja, að voðalegt ástand væri risið upp í land- inu, og að verri stjórn hefði landið aldrei átt. Yonandi þarf þó eigi fyrir slíku ráð að gera; ráðherranum er óefað annara um virðingu sína, en svo, að hann láti flokks- menn sína ginna sig á þá glapstigu, þótt ýmsir þeirra kynnu að vera nógu ófyrir- leitnir til þess, að reyna að ginna hann inn á þá brautina. Annars er kviði manna í þessum efn- um því miður eigi að ástæðulausu, þar sem „heimastjórnarfiokkurinnu hefir á síðustu þingum sýnt það ærið rækilega, hve litla virðingu hann hefir fyrir lögum og rétti, er hagsmunir flokksins eru ann- ars vegar, sbr. t. d. samþykkt kosningai - lögleysunnar orðlögðu i Strandasýslu. Hættast er óefað við því, að stjórnin verði aðgjörðalítil, ef um lögbrot af hálfu þeirra flokksmanna hennar væri að ræða, sem hún á talsvert mikið undir, svo sem eru þingmenn úr „heimastjórnarliðinu“, atkvæðamestu atkvæðasmalar flokksins, og önnur slík mikilmenni(!). En skyldi sú verða raunin á, að stjórn- in hafi tilhneigingu í þessa stefnu, og láti eigi ein lög yfir alla ganga, þá er vonandi, að almenningsálitið risi svoöfl- uglega gegn slíku skaðrœðis-háttalagi, að stjórnin hafi að eins um tvennt, að velja, verði annaðhvort að breyta þeirri stefnu sinni. eða þoka úr völdum. Vér látum ósagt, hvort nýja stjórnin reynist þessi skaðræðisgripur, sem ýmsir bera töluverðan kvíðboga fyrir, og telj- um réttast, að gera henni eigi getsakir um óréttvísi og hlutdrægni, nema nauð- syn reki til, enda verður þess naumast langt að bíða, að þjóðin fái að sjá. hvers vænta má af stjórninni i þessum efnum, þar sem nú vill einmitt svo til, að tveir af flokksbræðrum hennar hafa verið kærð- ir fyrir lagabrot. Annar þessara manna er valdsmaður- inn í Dalasýslu, sem hefir verið marg- sinnis kærður, út af reikningsfærslu i Laxárdalsbrúarmálinu, orðaður við fédrátt, óhlyðni gegn skipunum amtsráðsins o. fl., svo að amtsráð Vesturamtsins hefir að lokum séð sig knúð til þess, að beina þeirri áskorun til amtmanns, að láta hefja opinbera rannsókn. Hinn er Lárus H. Bjarnason, „dánu- maðurinn“ alkunni í Stykkishólmi, sem síra Helgi Arnason í Ólafsvík hefir 29. júní síðastl. kært fyrir brot gegn 131. gr. hegningarlaganna, er svo segir: „Ef eœbættismaður kemur til leiðár, álykt- ar, eða heldur áfram sakamálsrannsókn á móti manni, sem hann veit, að er sýkn saka, þá varðar það embættismissi, og fangelsi, ekki vægara en 3 mánaða einföldu fangelsi, eða betrunarhússvinnu, ef miklar sakir eru“. En þessa grein telur sira Helgi Arnason, að „dánumaður“ hafi brotið með svo lát- andi bréfi, er „dánumaður“ sendi honuxu á siðastl. vori: Snæfells- og Hnappadalssýsla. Stykkishólmi 13. apríl 1904. Amtmaðurinn hefir með bréfi, dags. 11. f. m., beðið mig að tjá hreppsnefndinni, að hann geti ekki veitt nefndinni umbeðna gjafsókn í væntanlegu máli móti séra Árna Þórarinssyni á Rauðamel út af giptingu Magnúsar nokkurs Eyjólfssonar, fyr en skilríki liggi fyrir um það, að árangurslaus sáttatilraun hafi farið fram. Jafníramt því að skýra yður, hr. oddviti, frá þessu til birtingar fyrir hreppsnefndinni, ávíta eg yður hér með harðlega fyrir þá þver- úð og óhlýðni, sem þér hafið sýnt með því að bera þessa málaleitun og aðra til beint undir amtmann fþannig !J, þótt þér hafið verið margaðvaraður og víttur fyrir slikt áður, enda verður nú hafin sakamálsrannsókn gegn yður og nefndinni fyrir athæfið. Lárus H. Bjarnason. Til oddvitans í Neshreppi innan Ennis. :j: * V. Að eptirrit þetta sé orð fyrir orð samhljóða frumritinu, vottast hér með eptir nákvæman samanburð. Notarius publicus í Reykjavík 11. mai 1904. Halhlór Daníelsson Goldið 12 — tólf — aurar. H. D. I bréfi þessu, sem lýsir „dánumanni“ ágætlega, eins og vér, oglesendur „Þjóðv.“, könnumst við piltinn frá fornu fari, lýsir hann því yfir, að hafin verði sakamáls- rannsókn gegn sira HeJga Arnasyni, og hreppsnefndinni i Neshreppi innan Enn- is, út af því að nefndin hafði sent amt- manni beiðni um gjafsókn í máli einu, án þess að senda sýslumanni fyrst. erind- ið, áleiðis til amtmanns(!). Auðvitað veit „dánumaður“ ofur vel, að hér er ekki um saknæmt athæfi af hálfu hreppsnefndarinnar, eða oddvita hennar, að ræða, þar sem nefndinni var fyllilega frjálst, að senda gjafsóknarbeiðn- ina beint til amtmanns, og ályktun hans um sakamálsrannsókn, virðist því vera skýlaust, brot gegn ofan nefndri grein hegningarlaganna. En hvað gerir nú nýja stjórnin, út af kærunum gegn Dalavaldsmanni og „dánu- manni“? Sýni hún þann kjark, að láta rann- saka athæfi þessara vina sinna, eins rögg- samlega og hlutdrægnislaust, eins og aðr- ir, henni óviðriðnir, ættu hlut að máli, þá er það þegar góð bending í þá áttina, að stjórnin vilji reynast réttlát- og óhlut- dræg.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.