Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.12.1904, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 09.12.1904, Blaðsíða 1
Verð árganqsins (minnst \ 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; | erlendis 4 kr. 50 aur., og i Ameríku doll.: 1.50. \ Borgist fyrir júnímán- afarlok. ÞJQÐVILJINN. —-. |= Atjándi ároangub. =|==— -i—|= RITST.TÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =1»®?—>- ZJppsögn skrifleg, ögild nema komin sé til útgef- j anda fyrir 30. dag júní- j mánaðar, og kaupandi ' samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 49, Bessastöðum, 9. DES. 19 0 4. er hefst á næstk. Dýári, verður að miuDsta kosti 52 tölublöð, og kostar árgaugurÍDD 3 kr. 50 a,, sem verið hefir. .. Gjalddági blaðsius er fyrir jiíní- ]ok ár hvert. „Þj ó ð v.“ flytur greinilegar fréttir, innlendar og útlendar. „Þjóðv.“ flytur skemmtilegar sögur, neðan máls, í flestum nr. sínum. j,Þ j ó ð vskýrir frá nýjum uppfundn- ingum, og flytur freeðigreinar ýmis konar. „Þjóðv.“ fiytur ý'mis konar drauma- og kyuja-sögur, er styðjast við sanna at- burði. „Þjóðv.“ ræðir öll landsmál blut- drægnislaust, frjáislega og einarðlega, og dekrar hvorki fyrir landstjórnarmönnum, né öðrum. „Þjóðv.“ lætur sér sórstakiega annt um það, að vernda róttindi og sjálf- j stœði landsins gegn erlendum, eða inn- j lendum, yfirgangi. „Þjóðv.“ styður öfluglega allar at- vinnugreinar þjóðarinnar, og hvers konar viðleitni einstakra manna, er til framfara lýtur. „Þj ó ð v.“ styður vísindi, og fagrar list- ir, og flytur ritdóma um nýjar bækur, sem blaðinu eru sendar í því skyni. „Þjóðv.44 telur sór ekkert mannlegt óviðkomandi vera. Menn eru ];eðnir að athuga, að ýmsar greinar í „Þjóðv.“ eru jafnan prentaðar með smáletri, svo að blaðið verður yfir- leitt mun efnismeira, en sum önnur blöð, þótt brot þeirra sé ögn stærra. Þeir, sem gerast vilja kaupendur að 19. árg. „Þjóðv., og greiða að minnsta kosti helming árgangsins fyrir fram, fá ó 1< é\y p i s frekar 200 bls. af skemmtisögum, og að auki siðasta ársfjórðung yfirstand- andi arg. blaðsins, ef óskað er, og með- an til hrekkur. Útsölumenn, er útvega minnst 5 nýja kaupendur, og standa skil á and- virði blaðsins, fá, auk vanalegra sölu- launa, eitt eintak af einhverri af forlags- bókum ritstjóra „Þjóðv.“, er þeir helzt kjósa, t. d. skáldsögu Jöns Thoroddsens „Maður og kona“, er væntanlega verður fullprentuð á vori komanda. í Reykjavík geta nýir kaupendur gefið sig fram hjá hr. Skúla Sívertsen í Ingólfsstræti, en í Hafnarfirði hjá hr. verzlunarstjóra Sigfúsi Bergmann, 'ef þeim er það fyrirhafnarminna, en að senda rit- stjóranum linu. ~ Gerið svo vel, að fresta ekki að panta blaðið, svo að upplag blaðsins verði stækkað, sem þörf er á. Ráðherran n í „dánumannsins“ vasa. — -ojþo-- Dáleikar ráðherrans við hr. Lárus H. Bjarnason, mág hans, „dánumanninn“ í Stykkishólmi, hafa, sem von er, vakið mikla eptirtekt, og verið almennt umtals- efni. Fyrst er hann skipaður í kirkjumála- nefndina(I), síðan gerður að yfirmanni sýslumanna í Vesturamtinu, sém íorseti amtsráðsins, og að lokum ný skeð gjörð- ur r. af dbr.(!) Af hverju stafa allir þessir dáleikar við „dánumanninn“? spyrja menn. Almenningur, er minnist afreka(!) Lárusar í málaferlunum forðum — og „langa-nefsins“ frá hæztarétti —, sem minnist afskipta hans af „verðlagsskrár- málinu“ sæla, er amtmaður Havsteen kæfði að lokum undir sér, sem minnist tilrauna hans, til að hafa 1000 kr. af dán- arbúi Sig. sýslumanns Jönssonar i Stykk- ishólmi, sakamálshótunar, og annara að- fara hans gegn síra Helga Árnasyni í Ól- afsvik, o. fl., stendur alveg forviða. Vill ráðherrann með dáleikum þessum sýna það, að hann fyrirlíti, bæði almenn- ingsálit, og dómsúrskurði, er Lárus, mág- ur hans, á hlut að máli? Það er von, að almenningur, sem ekki þekkir flokkaskipunina á alþingi, og ekki veit, hve nauðuglega ráðherrann er stadd- ur, líti svo á sakirnar. Erj það „dansar margur, þótt hann dansi nauðugur“. Og þeir, sem kunnugir eru á alþingi, skilja þetta allt ofur-vel. Fylgi ráðherrans á þingi er svo varið, að hann má ekki án Lárusar vera*, og veit Lárus á hinri bóginn svo sérgóðan, að hann vill — eins og kerlingin í sög- unni um Kiðhiis gamla — hafa „nokkuð fyrir snúð sinn“, því að ella er hann til í allt, og minnist hvorki fornra mág- semda, né vinfengis. Að eins með því, að svala metnaðar- iysn „dánumannsins“, og hlaða á hann metorðum á metorð ofan, treystir ráð- herrann því, að hann geti haft hann góð- an, eða hamlað honum frá að gera sér einhverja glennuna á þingi. *) Lárusi fylgja á þingi: síra Eggert Páls- son, Hermann Jímasson og „Þjóðólfs“-maðurinn. — Stefán í Fagraskógi kvað Lárus einnig þykjast geta haft a sfnu handi; en litt ktemi oss það ó- vænt, þótt Stefán reyndist sjálfstæðari, en Lárus hyggur. Veslings ráðherrann er því alvog í vasa „dánumannsins"; það er sorglegi sannleikurinn. Vér köllum sannleika þennan sorgleg- an, því að svo er það frá voru sjónar- miði, og að því er vér hyggjum, frá sjón- armiði alls þorra almennings. Hvort ráðherrann lítur eins á þetta, eða þykir „vasa“-vistin fýsileg, skulum vér ekkert segja um. Trúlegast, að neyðin ráði miklu. En hvað sem því líður, bregst það ekki, að dáleikar ráðherrans við „dánu- manninn“ opna augu almennings betur, en flest annað, og sýna öldum ogóborn- um, hvers kyns stjórn vér Islendingar nú höfum. Og það er óneitanlega mikils virði. Erá því sjónarmiði er því naumast á- stæða til annars, en að gleðjast yfir þess- um stjórnarráðstöfunum. •------ ---- Frá Útlöndum hafa borizt blöð (með botnverpingi), er ná til 20. nóv., og sogja þau, að Port-Arthur haíi þá enn eigi ver- ið unnÍD, en talið vist, að borgin fái þá skamma hríð varizt, enda auka Japanar umsátursherÍDn um borgina æ meira og meira, svo að eigi sitja nú færri Japan- ar um borgina, en áður, þrátt fyrir ógur- legt mannfall, siðan umsátin hófst. í Mandsjúriinu er og engra stórtíð- inda getið, en herlið beggja hafa fengið í mikinn liðsauka, Japanar um 70 þús., ' siðan siðasta stór-orustan varð. — Búist j við nýrri orustu í grennd við Mukden á hverri stundu, og 19. nóv. jafn vel óljós- ar fregnir um það, að orustan sé þá þegar byrjuð, með því að heyrzt höfðu þá mörg fallbyssuskot þar í grenndinni. Nýja sönnun um hinn alkunna naglahátt sinn flytur „Þjóðólfur“ ks- endum sinum 2. des. síðastl., enda gerir enginn sig meiri mann, en er, og því skyldi enginn „Þjóðóifs“-tetri reiðast, held- ur vorkenna honum þessi klunnalegu kálfs-stökk hans, sem opt geta látið menn brosa. Eins og getið var um í 46. nr. „Þjóðv.“ hafði hann skrökvað því, að vé.r hefðum í blaði voru talið gjafsóknir embættis- manna „alveg nauðsynlegar og sjálfsagð- ar“, og víttum vér þann strákskap hans, sem maklegt var. En í stað þess að kannast við yfirsjón sína, og biðja oss velvirðingar á henni, læzt hann — þvert á móti allri „Þjóðólfs“ venju — ætla að færa sönnun fyrir máli sínu, en gjörist þá svo afar-naglalegur, að tilfæra orðrétta grein úr blaði voru frá 6. apríl f. á., sem

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.