Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.01.1905, Blaðsíða 1
Verð árgangsins (minnst;
52 arkir) 3 kr. 50 avr.; \
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
aðarlok.
ÞJOÐVILJINN.
M 1. II
Bessastöðum, 6. JAN.
j Uppsögn skrifleg, ógild
nema komin sé til útgef-
anda fyrir30. dag júní-
j mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
19 0 5.
Ifna og ildavélar
s e ! n r
Iristjdn jsorgrímsson.
11 j ó s d 1 f a r.
Vetur gamli á leiða lund,
leyfir sjaldan gaman,
þvi hefir okkur alla stund
illa komið saman.
Nóttin er mín þyngsta þraut,
þegar hún tekur völdin:
hún fer seinna og seinna á braut,
sezt að fyrr á kvöldin.
Dagurinn flýgur lágt við lönd,
likt og hann gugni bráðum,
þegar hin kalda klakahönd
klippir af væDgjum báðum.
Það mega heita heppnis jól,
hafi þau geisla veika,
komna langt frá lágri sól,
loppna, þreytta og bleika.
Hann er næmur svalinn sá,
sem það myrkur færir;
vinir þeir, sem verma þá,
verða lengi kærir.
Skjól eru fá að flýja til,
fölskvaður margur eldur.
Loks á Byron engan yl,
ekki Njála heldur.
* *
*
Upp úr gleymsku gægjast þá
gamlar rímna stökur,
sem oss áður optast hjá
urðu skemmstar vökur.
Þær eru margar lærðar litt,
leita skammt til fanga,
enij þær klappa yndisþýtt
eins og börn á vanga.
Mörg sú neyð, sem örgust er,
og jeg kveið í hljóði,
síðast leið við söng hjá þér,
Sigurður Breiðfjörð góði.
Alfar bjartir hoppa heim.
Húmið svarta farið.
Jeg á margt að þakka þeim,
þeir hafa hjartað varið.
Þorsteinn Erlingsson.
Át a s:k í p t i n.
Arið 1904, sem kvaddi oss fyrir
skemmstu, mun yfirleitt verða taliðíröð
betri ára hér á landi, sérstaklega að því
er til landbúnaðarins kemur.
Að því er veðráttufar snertir, var vet-
Tirinn í fyrra, frá nýárinu, að visu all-
Timhleypingasamur, en frosthörkur sjaldan
miklar. — Vorið var víða óstöðugt, og
stormasamt, ekki sizt á norðvestur-kjálka
iandsins, unz tíð breyttist með hvíta-
sunnu, og hélzt síðan öndvegistíð til á-
gústloka, nema saggasamt nokkuð ísum-
um sveitum hér sunnan lands. —- Sum-
arið varð því gott og hagstætt, grasspretta
í all-góðu lagi, og nýting heyja þolanleg,
og i mörgum héruðum ágæt, og kom það
sér eigi hvað sízt vel i héruðum norðan
og austan^ands, og í Strandasýslu norð-
anverðri, þar sem árferðið kreppti harðast
að mönnum árið áður.
Með septemberbyrjun gerði mestu
hrakviðratið, einkum á suður- og vestur-
landi, svo að nauðsynlegustu haustverk-
um bænda var lítt sinnandi; og þó að
naumast gæti heitið, að snjó festi á lág-
lendi á suðurlandi til árslokanna, þá kom
sauðfé þó víða snemma á gjöf í öðrum
landsfjórðungum. Síðari hluta desember-
mán. hafa þó hér syðra haldizt hægviðri,
og einkar mild tíð.
Auk þess er heyfengur bænda varð
almennt í betra lagi, eptir sumarið, varð
og uppskera af garðávöxtum í bezta lagi,
einkum á suðurlandi. Bjömabúum fjölg-
aði að mun á liðna árinu, og að því
skapi óx smjörsalan til Englands. — Enn
fremur voru og haldnar búpeningssýning-
ar á nokkrum stöðum, og nautgriparœkt-
arfelögum komið á stofn, og fleira starf-
að landbúnaðinum til þrifa.
Að því er sjávarktveginn snerti, lánað-
ist þilskipa-ajlinn við Faxaflóa mikið vel,
en öllu lakar annars staðar, og mátti telj-
ast mjög rír á flestum þilskipum, er frá
Isafirði ganga. — Bátfski var all-gott á
Austfjörðum, í Vestmanneyjum, ogíver-
stöðunum austan fjalls, og dagott einnig
við Faxaflóa sunnanverðan, og undir
Jökli, en tregt á Eyjafirði, og við Isa-
fjarðardjúp var sannkallað neyðarár til
sjávarins, eitt af allra lökustu árum, er
þar hafa komið langa lengi.
SíJdveiði var all-góð á Eyjafirði, og á
Siglufirði, um tíma, en stopul á Aust-
fjörðum. — Reknetaveiðar, frá norður- og
austurlandi, lánuðust á hinn bóginn all-
vel. — Hvalaveiðar Norðmanna gengu
einnig all-viðunanlega.
Verzlun var landsmönnum mjög hag-
stæð, þar sem fiskur var i hærra verði,
en um mörg undan farin ár, og ud einn-
ig mun hærri, en árið áður, og aðrar af-
urðir landbúnaðarins í all-góðu verði. —
A útlendri nauðsynjavöru var verð mjög
líkt þvi, er var árið fyrir, eða engu lakara.
Að því er atmcvna heilbrigði snertir,
var liðna árið einnig fremur hagstætt.—
Að visu var mislingasótt í ísafjarðarkaup-
stað, og í Norður-Isaf jarðarsýslu, er tíndi
þar upp flest heimili, þar sem einhver
var, er eigi hafði haft mislinga áður, en
fremur var veikin væg, óg olli litlum
manndauða, sem betur fór; ogþóaðveik-
in bærist af sóttkvíaða svæðinu á nokkra
bæi í Yestur-ísafjarðarsýslu, og í Barða-
strandar- og Stranda-sýslur, þá breiddist
hún þó eigi út, að því er spurzt hefir.
En þó að eigi gengju neinar stór-
sóttir yfir landið á liðna árinu, var Ijá-
maðurinn, Dauði gamli, þó viða á ferð-
inni, sem fyr, og hjó drjúgum skörð í
ástvinahóp ýmsra manna, svo að vér
eigum ýmsum nafnkunnum mönnum á
bak að sjá. — Meðal lærðra manna, er
dóu á árinu, má nefna: dr. Jbn Þorkelsson,
fyrrum rector (f 21. janúar), Halldór
Guðmundsson, fyrrum skólakennara (fl3.
febr.), skólakennara Björn Jensson (f 19.
febr.), sira Ólaf Helgason á Stokkseyri (f
19. febr.), cand. philos. Eirík Sverrisen (f
13. maí), lækni lómas Helgason (f 16.
júni'), síra Steindór Briem í Hruna (f 16.
nóv.), Pál Briem amtmann (f 17. des.),
sírs Arnljót Ólafsson á Sauðanesi, og síra
Magnús Gíslason, uppgjafaprest á Kvíg-
indisfelli (f 23. apríl).
Af konum, eða ekkjum, lærðra manna,
er létust á árinu, má nefna: sýslumanns-
ekkju Guðlaugu Jensdbttur (f 7. janúar),
læknisfrú Guðrfmu Björnsson (f 29. jan-
úar), ekkjufrú Sigríði Stefánsdóttur Bríem
í Hruna (f 28. apríl), prestsfrú HöLmfríði
Þorsteinsdóttur á Sauðanesi, rectorsfrú
Sigríði Jónsdöttur (f 21. okt.), og prests-
ekkjurnar Guðrúnu Helgadóttur í Reyk-
holti (f 6. nóv.) og Helgu Magnúsdóttur
í Reykjavík (f 18. des.)
Meðal heldri leikmanna, er önduðust
á nýliðnu ári, skulum vér nefna: hrepp-
stjora B/örn Þorláksson á Varmá (f 27.
febr.), skipherra Pétur Björnsson á Bíldu-
dal (f i fobr.), kaupmann Magnús Joch-
umsson á Isafirði (t 9. marz), kaupmann
Valgarð Ó. Breiðfjörð (t 16. apríl), Daníel
Á. Tliorlacius, fyrrum kaupmann í Stykk-
ishólmi (t 31. ág.), Helga bónda Pétursson
á Litlu-Eyri, Jón bónda Jónsson á Deild
(t 19. nóv.)
Meðal heldri kvenna, er létust á fyrra
ári, má enn fremur nefna: Ingibjórgu
lorfadöttur, forstöðukonu kvennaskólans
á Akureyri (t 6. febr.), ekkjuna Ingveldi
Jafetsdöttur í Innri-Njarðvík (t 5 marz),
leikkonuna húsfrú Þöru Sigurðardöttur í
Reykjavík (t 1. april), ekkjuna Jórunni
Magnúsdóttur á Möðruvöllum (t 21. maí),
ekkjufrú Sylvíu N. Thorgrímsen (t 20.
júni), ekkjuna Guðrúnu Asgeirsdóttur á
ísafirði (t 15. ág.), húsfrú Margréti Sig-
urðardóttur á Ytri-Búðum (t 5. sept.),
ekkjufrú Ingibjörgu Jóhannsdóttur Hansen
í Reykjavík (t 11. des.), húsfrú Ónnu
Hafiiðadóttur í Reykjavík (t 14. des.) o fl.
Til merkisatburða gamla ársins mun