Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.03.1905, Page 1
Verð árgangsina (minnst
52 arkir) 3 lcr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur.. og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
aðarlok.
ÞJOÐVILJINN
NÍT.TÁNDI ÁBOANGUR.
-gat>s|= RIT8T .7 ÓBI: S K Ú L I THO KODDSEN. =eI>**S-—»—
M 11.
BeSSASTÖÐTJM. 15. MABZ.
Vppsögn skrifleg, ógild
nema komin sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
1 0 C 5.
Ifna og ildavélar i
selur
TJ tlÖndL.
Helztu tíðindi, er ný skeð hafa borizt
frá útlöndum, eru þessi:
Danmörk. Síðan ráðaneytisskiptin
urðu hafa „vinstrimenna, er sögðu sig úr
ráðherra- eða „umbóta“-flokknum, haldið
all-marga politiska fundi í Kaupmanna-
höfn, og víðar, og svo er að sjá, sem
fylgi „umbóta“-flokksins hafi fremur
minnkað meðal kjósanda, og að ýmsum
þyki yfirlýsingar Christensen’s, ráðaneyt-
isforseta, eigi geta samrýmzt hinni gömlu
stefnuskrá vinstrimanna, að því er sparn-
að til hermála snei'tir.
„Hýðingarfrumvarp“ Albertí’s hefir
þegar verið samþykkt í landsþinginu, en
búist við ail-harðri rimmu, er til þjóð-
þingsins kemur, enda þótt líklegt sé tal-
ið, að Albertí komi málinu þar fram.
Bókhaldari við stórverzlun eina í
Kaupmannahöfn, Carl Hansen að nafni,
varð ný skeð uppvís að því, að hafa svik-
ið verzlunina á ýrnsan hátt um 20 þús.
króna, og svallað því fé út á ýmsa vegu.
Noregur og Svíþjóð. Aflabrögð Norð-
manna. hafa gengið mjög treglega í vet-
ur, sakir stöðugra ógæfta, en fiskur þó
sagður talsverður á vanalegum fiskimið-
um, svo að enn getur ræzt úr, ef tíð
yrði betri.
I Kristjaníu hefir í vetur verið mik-
ill atvinnuskortur, margar þúsundir verk-
manna atvinnulausar, og þar af leiðandi
hart manna á milli.
Að öðru leyti snúast bugir Norðmanna
nú nær eingöngu um konsúlamálið, og .1
munu Norðmenn ætla sér, að ráða því til
lykta, sern þeim sýnist, hvað sem Svía-
stjórn segir, og veita fé til sérstakra
norskra konsúla, þar sem þurfa þykir.
Þvermóðska Svia-stjórnar í þessu máli
mælist og eigi að eins illa fyrir um endi-
langan Noreg, heldur og víða í Svíþjóð, þar
sem menn hafa mótmælt aðferð stjórnarinn-
ar i þessu máli, t. d. áfnndi, er „socialist-
ar“ héldu ný skeð í Stokkhólmi. —
Bretland Þing Breta tók til starfa
14. febr., og spunnust þegar harðar um-
ræður um boðskap konungs til þingsins.
— Meðal annars bar Asqivith fram þá til-'
lögu, fyrir hönd stjórnarandstæðinga, að
skrra á stjórnina, að láta nýjar þing-
kosningar fara fram sem allra bráðast,
svo að kjósendum gæfist sem fyrst kost.ur
á, að lýsa skoðun sinni í tollmálum. —
Chamberlaiv lét þá mjög drýgindalega
yfir tollverndarstefnu sinni, og kvaðst
hvergi smeikur við þingrof, en taldi þó
óþarft, að stjórnin hraðaði kosningum,
enda varð sú niðurstaðan, að tillaga
Asquith's var felld.
All-hörð rimma varð og, út af stjórn-
arfarinu á Irlandi, og barítedmond, einn
af helztu þingskörungum íra, fram til-
lögu um ávítanir til Balfour’s, stjórnar-
forseta, út af því málefni; en stjórnin
fékk þá t.illögu einnig íellda, með 286 at-
ltv. gegn 235. — Annars hefir stjórnin,
síðan 1902, gert sér töluvert far um, að
laða irsku þingmennina að sér, og gerði
þá einn af þeirra mönnum, Mae Donnell
að nafni, að embættismanni í irska ráða-
neytinu, og hefir látið hann makka við
irska sjélfstjórnarílokkinn, og bjóða ýms
sáttaboð, ef þeir vildu gera bandalagvið
stjórnina, og styðja hana. — En er flokks-
m enn stjórnarinnar komust að þessu til-
tæki hennar, urðu ýmsir þeirra, sárgram-
ir, og kváðu það sitja illa á stjórninni,
er kosin hefði verið, til að varna þvi,að
Írar fengju sjálfstjórn, að fara nú að gera
þeim ýms kostaboð, er mjög væru í ætt
við „heima8tjórnarfrumvarp“ Gladstone’s.
Balfour, stjórnarforseti, hefir því séð sig
til knúðan, að lýsa því yfir, að Mao
Donnell bafi gengið mun lengra í samn-
ingunum, en hann hafi haft heimild til.
Nefnd sú, er setið hefir á rökstólum
í Paris, til þess að rannsaka aðfarir rúss-
n eska flotans, er hann lét skothriðina dynja
á ensku botnverpungunum í Eystrasalti,
hefir nú lokið st.örfum sinum, og komizt að
þeirri niðurstöðu, að Roshdestvonskí, for-
ingi riíssDesku tíotadeildarinnar, hafi eigi
til hegningar unnið, því að það hafi ver-
ið afsakanlegt, þó hann villtist á botn-
verpungum, oins og á stóð, en á hinn
bóginn telur þó nefndin sjálfsagt, aðBússa-
stjórn bæti allan.skaða, og greiði fyllstu
mannbætur. •
Svo er að sjá á enskum blöðum, sem
Bretum líki þessi niðurstaða nefndarinn-
ar fremur ílla, þó að þeir sjái sér að
líkindum eigi annað fært, en að sætta sig
við þetta. — — —
Frakkland. Stjórnin hefir nú lagt fyr-
ir þingið frv. um skilnað ríkis og kirkju,
og likar páfa það ílla, og hefir því beð-
ið vini sína á Frakklandi. að reyna að
tefja fyrir málinu fram yfir næstu þing-
kosningar, og nota vel tímann, til að telja
um fyrir kjósendum.
Stórt vefnaðarvöru-verzlunarfélag varð
ný skeð gjaldþrota í París, og námu skuld-
ir þess nær 4. milj. franka,.
Prakkneskur embættismaðui', Toquet að
nafni, er haft hafði embætti á hendi í
landareignum Frakka í Congo, var ný
skeð tekinn fastur, og er hann sakaður
um, að hafa látið drepa þrjá þarlenda
menn með stakri primmd, látið skjóta þá
méð „dynamít“-kúlum. — Annar frakkn-
eskur embættismaður í Congo hafði og
látið varpa svertingja einum lifandi á
bál, sakir einhverrar litilfjörlegrar óhlýðni.
Victor Napoleon, sem gerir tilkall t.il
ríkis á Frakklandi, hefir ný skeð hafið
bónorðsitttil Clementinu prinsessu, yngstu
dóttur Leopold’s, Belga konungs. — Hann
er sjálfur 43 ára, og konuefnið 10 árum
yngrí. •— Hofir hún heitið honum eig-
ÍDorði, en samþykki Leopold’s var ófeng-
ið, er síðast. fréttist., með því að hann
hyggur, að Frakkastjórn kunni að meta
þær mægðir, sem óvináttumerki.
Forsetatign Loubet’s f'orseta endar í
öndverðum febr. 1906, en ýmsblöð þykj-
aet þegar vita, að haDn ætli að segja af
sér seint á yfirst.andandi ári. svo að tor-
setakosning verði lokið um næstn áramót-
íd. — —
Rússlánd. Þar eru pdb verkföll, og
óeyrðir, í ýmsum héruðum; en eirsna mest
hefir kveðið að óeyrðunum í Kaukasus-
héruðunum, þar sem allt logar í uppreisn-
ar-báli. — Hafa landsbúar rænt þar ýms
vopnabúr, og jafn vel náð í fallbyssur,
og herlið stjórnarinnar við ekkert ráðið.
— Mikill hluti borgarinnar Baku befir
brnnnið til ösku, þar sem uppreisnarmenn
hafa kveikt í borginni hér og hvar. Lík
fallinna manna lágu þar og í hrönnum
á götnnum, og fullyrt er, að uppreisnar-
menn hafi tekið landstjórann höndum
Talsverðar róstur hafa einnig orðið í
Eystrasaltslöndum Rússa, einkum í horg-
inni Bíga, þar sem herlið var látið skjöta
á lýðinn.
Oapon kierkur, sem sár varð í mann-
vígunum miklu í Pétursborg 22. jan. síð-
astl., og enginn þóttist. vita, hvað um
væri orðið, er nýlega kominn til Parísar.
Rithöfundurinn Maxím Gorki hefir loks
verið látinn laus úr varðhaldi, gegn veði,
unz dómur fellur í má.li hans. — Hann
hafði skorað á liðsforingja, að skjóta ekki
á lýðinn.
Járnbrautarþjónar við járnbrautirnar
milli Moskva og Kasan, og víðar, haía
hætt vinnu, og gerir það stjórninni atar-
mikið lóhagræði, að því er vistaflutninga
til hersins í Mandsjúríinu snertir.
Mjög mikil brögð hafa orðið að óeyrð-
um hér og hvar á Póllandi, einkum í
borgunum Warschau og Lodz, og stjórn-
in látið fremja þar ýms gnmmdarverk.
— í Warschau var t. d. 20 uppreisnar-
mönnum raðað upp við vegg, og skotn-
ir þar.
Nokkru eptir víg Sergíusar stórfusta,
vai' höfðingi einn í Warschau Wdronní-