Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.03.1905, Síða 2
42
Þjóðviljiíín.
hoff að nafni, og fursti að nafnbót, lagð-
ur rýtingi tif bana. — Hann iaafði skip-
að, að skjóta á lýðinn, og þannig valdið
margra manna bana.
Mælt er, að Nicolaj keisari bafi nú
loks ákveðið, að kveðja til ráðgofandi
stéttaþings. — Á fyrri öldum var stöku
sinnum boðað til þings á Rússlandi, er
nefnt var Semskí Sobor. — Ivan keisari
grimmi kvaddi í fyrsta skipti til siíks
þings árið 1550, og var Samskí Sobor
síðan háð öðru hvoru, unz það iagðist
niður 1698. — Þing þetta var að vÍ9u
ráógefandi, en hafði þó að ýmsu leyti
talsverð áhrif, og tók sér, meðal annars,
vald til þess, að kiÓ3a keisara, og á þaon
hátt hófst ÁomíMcw-keisara-ættin til valda,
árið 1613. — Ymsir eru bó mjög van-
trúaðir á það, að þetta áform keisara verði
efnt, onda onn ekkert ákveðið um það,
hvernig fulltrúar til samkomu þessarar
skuli kosnir.
Bússar hafa nú ný skeð sent aðra
fiotadoild af stað úr Eystrasalti til ófrið-
arstöðvanna eystra, svo að líklega or eigi
mikið að marka það kvis, sern upp er að
koma öðru hvoru, að friður verði saminn
þá og þegar, þó að Rússa-stjórn eigi að
vísu svo andstætt innan lands um þoss-
ar rauudir, að ótrúlegt sé, að hún geti
snúizt við ófriðnum til lengdar.
Sýsluinannsembœtti veitt.
Sýslumannseinhsettið í Skagafjarðarsýslu er
veitt settum yfirdómsmálfærslumanni Páili Bjarna-
syni Vídalín frá 1. maí næstk. Auk hann sóttu
lögfræðiskandídatarnir Guðm. Björnsson, settur
sýslumaður Skagfirðinga, Guðrn. Eggerz, Magnús
Jónsson og Tómás Skúlason.
Drukknun.
ryrir skömmu drukknaði maður niður um is
á Kúðafljóti. — Maður þessi hét Eyyert Guð-
mundsson, ljósmyndari frá Söndum, og var að
fylgja Oræfingum, er flutt höfðu strandmennina
frá enska botnvörpuskipinu „Banffshíre11 til
lleykjavíkur, yfir ffjótið; en með því að ísinn á
ánni var veikur, brotnaði hann undan Eggerti,
og öðrum manni, Birni Pádssyni frá Svínafelli,
og bar straumurinn Eggert þegar undir isinn, og
týndist hann þar; en hinn maðurinn náði í ís-
skörina, og komst lífs af. — Tveir hestar týnd-
ust einnig í vökinni, og ýrnis konar farangur,
som talinn er 50 kr. virði.
Tveir i kjöri á Akureyri.
Eins og skýrt var frá í 8. nr. „Þjóðv.11 þ. á.,
hafði kaupmaður Magnús Kristjánsson & Akur-
eyri lýst því yfir, að hann væri utan flokka í
pólítíkinni, og ætluðu Akureyrarbúar því að lrjósa
hann, sem þingmann sinn, án þessnokkurt ann-
að þingmannsefni yrði þar í kjöri. — En nokkru
eptir það, er hr. Magnús Kristjánsson hafði gefið
þessa yfirlýsingu sina, vitnaðist, að hann er einn
af helztu stuðningsmönnum stjórnarmálgagnsins
„Gjallarhorn11, og hafði ný skeð, ásamt 6 öðrum
áköfum stjórnarliðura, gjörzt ábyrgðarrnaður að
Stór-láni handa blaðinu, til þess að halda i því
fíftórunni.
Nærri má geta, að frjálslyndum, og óháðum,
kjósendum á Akureyri hafi þótt sér nóg boðið,
er það vitnaðist, að troða átti þannig svæsnum
og gallhörðum stjórnarliða inn á þingið, undir
r'óngu yfirskini, og skoruðu því ýmsir þeirra á
Gnðmund héraðslækni Hannesson, að gafa kost
á sér til þingmennsku, og hefir hann tjáð sig
fúsan til þess.
Fiskiskip brotið.
Eiskiskip rak á land við Mjóeyri á Eskifirði í
mikla veðrinu 8. janúar síðasti., og brotnaði svo,
að eigi verður gert við það. —- Skipið var eign
Friðriks kaupmanns Hallgrímssonar.
Mötorbátur á Lagarfljóti.
Hlutafélag hefir i vetur verið stofnað í Eljóts-
dalshéraði, til þess að kaupa mótorbát, 'er nota
á til flutninga á Lagarfljóti. — Báturinn á að
vera 31 fet á lengd, bera 60 tonna þunga, og
hreifivélin með 6 hesta afli, og er í ráði, að bát-
urinn byrji fiutningaferðir sínar jþeint í júní
næstk.
Bnmnin verziunarbus.
Verzlunarhús Gríms kaupmanns Laxdal’s á
Vopnafirði brunnu tii kaldra kola 20. janúar síð-
astl., ásamt nokkru af verzlunarvarningi. — Hus-
in vot'u eign Pöntunarfólags Vopnfirðinga, og
hafði Grímur þau á leigu. — Bæði hús, og vörur,
var í eldsvoðaábyrgð.
,,Kári‘-
er nafnið á nýju isl. stúdentafélagi í Kaup-
mannahöfn, sem prófessor Finnur Jónsson og
B>gi Melsted, hafa komið á laggirnar, til þess að
reyna ögn að jauka áhrif sín, sem orðin voru
minni. en ekki neitt.
Aðrir stúdentar i Khöfn nefna félagsmenn
þessa „afkára11, og þykir það eigi ílla fallið.
Tvœr búnaðarsýmngar
ætla Múlsýslungar að hafda i næstk. júnimán-
uði, aðra við Lagarfljótsbrú, en hina við Steins-
vað. — Alls verður varið 600 kr. til verðlauna
við sýningar þessar.
Eptirmæii.
Eins og getið var í 5. nr. ,,Þjóðv.u þ.
á., var skipherra Bjarni H. Kristjánsson,
bæjarfulltrúi í ísafjarðarkaupsbað, einn
þeirra manna, er drukknuðu á Isafjarðar-
djúpi í mannskaðaveðrinu mikla, 7. jan-
úar síðastl.
Hann hét fullu nafni Bjarni Herman n
Kristjánsson, og var fæddur að VöðLum í
Önundarfirði i Yestur-ísafjarðarsýslu 14.
janúar 1849, og var þvi tæpra 56 ára að
aldri, er hann andaðist. — Foreldrar hans
voru hjónin Kristján Sœmnndsson og Mar-
grét Bjarnadóttir, er þá bjuggu að Vöðl-
um, bæði ættuð úr Önundarfirði, og kom-
ust þrír synir þeirra til fullorðinsára:
Bjarni sálugi, Jóhannes, er lengi hefir
búið að Hesti í Önundarfirði, og Sœmund-
ur skipherra, er drukknaði af þilskipinu
„Egill Skallagrimsson11 haustið 1880; en
hálf-systir þeirra bræðra er Kristjana,
kona Ásgeirs húsmanns Magnússonar í
Tröð í Álptafirði. — Föður sinn missti
Bjarni sálugi árið 1858, að eins níu ára
að aldri, og ólst síðan nokkur árupphjá
móður sinni, unz hann fluttist til Isa-
fjarðarkaupstaðar, skömmu eptir ferming-
araldurinn, og átti þar lengstum heimili
síðan.
Snemma bar á því, að Bjarni heitinn
var rnesta mannsefni, einkar áhugamikill,
og fylginn sór, að hverju sem hann gekk,
og þar sem hann varð snemma að byrja
að spila upp á sinar eigin spítur í lífinu,
glæddisb brátt hjá hoDum sjálfstæðislöng-
unin. Hann vildi vera sjálfstæður, og
öllum óliáður í efnalegu tilliti, fann lijá
sér kraptinn til þess, og tamdi sér því
þegar frá unga aldri meiri hagsýni, og
sparsemi, en almennt gjörist, samfara
dæmafáum dugnaði, enda náði hann því
takmarki, sem hann hafði sett sér, að
XIX., 11.
ryðja sór braut í lífinu, þar sem hann
varð all-vel efnum búinn, eptir því sem
hér á landi er talið, og hat’ði aflað sér
töíuverðrar almennrar menntunar.
Árið 1877 fór liann til Danmerlrur,
og tók 21. marz 1878 próf í stýrimanna-
fræði við sjómannaskólann i Bogö, eptir
örstuttan Dámstíma. — Var hann siðan
skipherra í nolskur ár á liáltarla- eða þorsk-
veiðaskipum, og lánaðist vel, auk þess er
hann kenndi eigi áll-fáum sjómannafræði
á vetrura. — Árið 1891 sigldi hann, sem
stýrimaður, á barkskipi frá Framnesi
(Höfðaodda) í Dýrafirði til Hvitahafsins,
og þaðan til Kaupmannahafnar, og tók
þar próf í vélafræði 9. marz 1892; ©n
síðan var hann nokkurn tírna háseti á
strandferðaskipinu „Thyrau, til þess að
fullnægja skilyrðum laganna, og öðlast
full réttindi til þess, að fara, sem skip-
herra, með Livaða skip, sem væri, og
hvert sem væri.
Árið 1899, hinn 28. dag maímánaðar,
kvæntist Bjarni sálugi, og gekk að eiga
ungfrú Sigr'/M Lúðvttjsdbttur, Alexíusson-
ar, lögregluþjóns í Reykjavík, og lifir
hún mann sinn, ásamt tveim börnum í
æsku, á öðru og fjórða ári. — Var hjóna-
band þeirra hið ástúðlegasta, enda var
Bjarni sálugi hinn umhyggjusainasti
heimilisfaðir.
Bjarni sálugi var í nolikur ár endur-
skoðunarmaður bæjarreikninganna á Isa-
firði, og síðan tvívegis kosinn i bæjar-
stjórn kaupstaðarins, og gegndi bæjar-
fulltrúastörfum, unz hann féll frá. — Lét
hann sér og einlrar annt um hag bæjar-
félagsins, og kom hagsýni hans, og ráð-
deild, þar opt i góðar þarfir, svo aðbæj-
arfélaginu er eptirsjá að honum. — Auk
þess gegndi hann og ýmsum öðrum
störfum í þarfir bæjarfélagsins, var t. d.
einn af ábyrgðarmönnum sparisjóðsins á
Isafirði, endurskoðunarmaður sparisjóðs-
reikninganna i nokkur ár, o. fl.
Hann var maður mjög vel greindur,
gjörvilegur í sjón, þrekirin, og karlmann-
legur, og að mörgu leyti mjög vel gef-
inn. Hann var sjálfur stalrar atorlra-
og dugnaðarmaður, og hafði óbeit á allri
ómennsku, og gat þvi stundum orðið
nokkuð bitur í þeirra garð, er honum
eigi virtust nenna að bjarga sér, eða haga
efnum sínum ráðleyslega.
Erida þótt Bjarni sálugi væri orðinn
freklega hálf-sextugur, fór þvi þó fjarri,
að hann væri orðinn nokkuð elli- eða
apturfarar-legnr, og mátti því enn vænta
honum langra lífdaga, og mikils æfistarfs.
— Fráfall hans er og því fremur mikið
saknaðarefni, eigi að eins ekkjunni, og
börnum hans, er svo skamma stund nutu
samvista hans, ástar og umönnunar,
beldur og bæjarfélaginu á ísafirði, og
öðrum, er kynni höfðu af honurn.
Hann fylgdist vel með tímanum, að
því er almenn landsmál snerti, og fylgdi
jafnan framsóknarmönnum að málum við
kosningar, enda gazt honum líttaðýmsu
ráðlagi valdhafanna hór á landi, enda
þótt hann leiddi politiskar flokkadeilur
að mestu leyti hjá sér.