Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.04.1905, Blaðsíða 2
66
ÞjÓeVLJIlNN.
XIX., 17.
IV.
ísleiidingar! Hér eruoi sannarlegt stor-
mál að ræða, sem eigi að eins blýtur að
bafa hin víðtækustu ábrif á allan fjárhag
þjóðfélagsins, og einstaklinga þess, um
langan aldur, heldur hefir og mjög mikla
þýðingu, að því er þjóðar-sjálfstæði vort
snertir.
Brýnið því rækilega fyrir þingmönn-
um yðar á vorfundunum, að gæta þess
vandlega, að leiða þjóðina eigi út í neina
fjárhagslega bfæru í máli þessu, og að
samþykkja ekkert það, sem kröptum þjóð-
arinnar er um megn, heldur velja þann
veginn, sem kostnaðarminnstur er, án alls
tillits til hagsmuna erlends stórgróðafé-
lags, eða vilja danskra ráðherra.
Brýnið það enn fremur fyrir þeim,
að gefa því nákvæmlega' gætur, að fjár-
veitingarvald alþingis sé ekki fótum troð-
ið, hvort sem ráðríki, eða ístöðuleysi, ráð-
herrans er um að kenna.
Neitið, að láta rígbindast á danska
kiafann!
»...............•
ÚtlÖrLd.
Fri útlöndum hala ný skeð borizt þessi tíð-
indi:
Daninörk. Þingi Dana var slitið . apríl,og
gerðist það síðast sögulegt, að stjórnin lofaði, að
styðja að þvi, að breyta kjördæmaskipun, og
fjölga þingmönnum i fólksþinginu, svo að þing-
menn yrðu þar alls 132, í stað 114, sem nú eru.
-j- Látinn er nýlega P. Hansen, 65 ára að
aldri, ritdómari við kgl. leikhúsið i Kaupmanna-
höfn, og þjóðkunnur rithöfundur í Danmörku. —
Hann dó úr krabbameini.--------
Frakkland. Nýlega kom Játvarður, Breta
konungur, við á Frakklandi, á ferð til Miðjarð-
arhafsins, og var fagnað þar forkunnar vel af
Loubet forseta, og öðru stórmenni, enda vænta
Frakkar nú alls trausts þaðan, að því er yfir-
umsjá í Marocco snertir, enda er mælt, að Ját-
varður konungur ætli á ferð þessari að koma við
i Tanger, og leggur þá soldáninum i Marocco
liklega aðrar lifsreglur, en Vilhjálmur keisari
gerði, er hann var þar á ferðinni ný skeð, sbr.
síðasta nr. „Þjóðv.“
7. april varð í París uppvíst um samsæri, er
fór í þá átt, að taka Loubet forseta, og ráða-
neyti hans, höndum, og koma Victor Napoleon,
bróðursonarsyni Napoleon’s mikla, til valda. —
Yið samsæri þetta eru riðnir nokkrir hershöfð-
ingjar o. f 1., en Viclor, sem nú situr í Brússel,
og er að biðja dóttur Leopold’s konungs, læzt
ekkert hafa um þetta vitað. —----
Belgía. þar er nýlega látinn frægur mynda-
smiður, Konstantín Meunier að nafni.
Spánn. 8. apríl hrundi stórt steinhús, sem
var i smíðum í Madríd, og biðu yfir hundrað
verkmanna bana. — Vildu ýmsir kenna þetta
slæmu eptirliti af hálfu þeirra, er fyrir hús-
gjörðinni stóðu, og tókst lögreglunni með naum-
indum að varna þvi, að þeir væru drepnir. —
Ítalía. Þar urðu ráðherraskipti i marzmán-
uði, og heitir sá Fortis, er veitir nýja ráðaneyt-
inu forstöðu, í stað Gíolittí’s, sem áður var for-
sætisráðherra. —
Rússland. í biðstofu Nicolaj keisara var ný-
loga tekinn fastur maður, er bafði á sér tvær
sprengikúlur. — Hann var klæddur, sem liðs-
foringi, og ætlaði að ná fundi keisara, er hann
veitti ýmsum liðsforingjum áheyrn, ogrkðahon-
um bana. — En með því að maðurinn þótti í-
skyggilegur, og hinir liðsforingjarnir könnuðust
ekkert við hann, var hann rannsakaður, og sást
það þá, hvað erindi hans var.
Rússa-stjóm h?fir nýlega slakað til við Finn-
lendinga i ýmsum greinum, numið úr gildi
hervarnarskyldulögin frá 1901, bannað að vikja
dómurum úr embætti, nema með dómi, o. s. frv.;
en því miður er hætt við, að þetta só að eins
tilraun til þess, að hafa Finnlendinga góða, með-
an byltinga-öldurnar rísa sem hceðst á Rúss-
landi, og sæki því síðar i fyrra horfið.
Skaði sá, er bændur í hóruðunum Ozernikow
og Orlow, hafa unnið á jarðeignum koisara, og
ættmanna hans, skipta mörgum inilj. rubla.
Gapon prestur, er var foringi verkmanna, þeg-
ar blóðbaðið mikla varð í Pétursborg í janúar,
var í Lundúnum í marzmánuði, til að afla þar
skotvopna, og „dynamíts11, og safna samskotum
handa byltingamönnum í Rússlandi. — Annars
dvelur hann lengstum í Genf á Svissaralandi,
og þaðan hefir hann ritað Nicolaj keisara aðvör-
unarbréf, og skorað fastlega á hann, að sinna
frelsiskröfum þjóðarinnar. —-------
IndUnd. Þar hófust ákafir jarðskjálftar 4.
apríl, einkum í norðvestur-héruðunum, í grennd
við Himalaya-fjallgarðinn. — Borgirnar Dharm-
sala, Palampur og Kangra, eyddust að mestu,
með því að húsin hrundu, og sumstaðar komu
sprungur í jörðu, er gleyptu bæði dautt og lif-
andi. — Alls er talið, að farizt hafi 10—12 þús.
manna í jarðskjálftum þessum, sem einnig hafa
valdið afar-miklu eignatjóni. — —
Austrœni ófriðiirinn. Af Eystrasaltsflota
Rússa, er Roshdestwenskí stýrir, fróttist það ný
skeð, að hann fór 8. april gegnum Malacca-
sundið. — Þar sáust þá 47 rússnesk herskip,
stærri og smærri, og hafa japönsk herskip einn-
ig sézt þar í grenndinni, svo að búist er við
sjó-orustu þá og þegar.
Allar friðar-fregnir eru nú aptur bornar til
baka, og halda hvorirtveggja fram liðsafnaði,
Rússar og Japanar, og gera Japanar ráð fyrir,
að geta haft 1 rnilj. hermauna í Mandsjúriinu á
hausti komanda; en nú er lið þeirra þar tæp
hálf milj.
Lið Rússa í Mandsjúríi er á hinn bóginn að
eins talið 300 þús., og heldur Línewitsh yfirfor-
ingi því til borgarinnar Kirín, sem er stórborg
á leiðinni millí Mukden og Charbin, og hefir
hann eytt mjög byggðir, þar sem hann hefir farið
um, til þess að gera Japönum örðugra, að afla
vistafanga o. fl.
Ritsímasammngurinn.
„ísafold“ birfci 19. aprtl síðastl. rit-
síraasatnningian, eða loyfisbréf norræna
ritsímafélagsins til fréttaþráðarlagningar
til Islands, og sogist ritstjóri „Isafoldaru
ábyrgjast, að þýðing saaraingsins, sem
auð7Ítað er saminn á dönsku, sé i alla
staði rétt.
Með því að þjóðinni er afar-nauðsyn-
legt, að kynna sér saroning þanna sem
rækilegast, enda þótt stjórnin fiafi auð-
sjáanlega — af mjög auðskildum ástæð-
um — ætlað sér að þegja um einstök at-
riði samningsins í lengstu lög, líklega til
þings, birtum vér lesendum vorum sarnn-
ing þenna orðréttan.
Hann er svo hljóðandi:
1. gr. Sæsíminn verður lagður frá Hjaltlandi
til Þórshafnar, og þaðan til Seyðisfjarðar (eða
Reyðarfjarðar). Ef ekki koma tálmanir, sem
ríkismannvirkjaráðgjafinu kannast við, að séu ó-
viðráðanlegar, eða þó afsakanlegar, og íslands-
ráðgjafinn, er kemur til lendingar símans á ís-
landi, á sæsíminn að verða tekinn til notkunar
1. okt. 1906 i síðasta lagi.
Simalagningin fer fram með því eptirliti, sem
rikismannvirkjaráðgjafinn fyrirskipar.
2. gr. Þetta leyfisskjal gildir 20 ár frá þeim
degi, er sæsíminn verður tekinn til notkunar,
ásamt málþræði þeim til Reykjavíkur, sem talað
er um í 4. gr. hér á eptir.
Um 20 ár frá þeim degi, er sæsíminn til
Seyðisfjarðar feða Reyðarfjarðar) er tekinn til
notkunar, eptir að símalagning er tekin gild af
ríkismannvirkjaráðgjafanum, og af íslandsráð-
gjafanum, er kemur til lendingar sæsíraans, og
endastöðvar hans, á íslandi, fær fólagið 54,000
kr. ársstyrk úr ríkissjóði Dana, og 35,000 kr.
ársstyrk úr landssjóðnum íslenzka (sbr. þó nið-
urlag 6. gr.).
Nú slitnar ritsimasambandið milli Hjaltlands
og Færeyja um lengri tíma, en 4 mánuði, og fell-
ur þá niður áður nefnd styrkveiting hvorttveggja
þann tíma, er símslit haldast umfram 4 mán-
uði. Verði símslit milli Færeyja og íslands
lengur, en 4 mánuði í senn, fellur niður styrk-
urinn úr landssjóðnum íslenzka. og helmingur
styrksins úr danska ríkissjóðnum, þann tíma, er
símslit haldast umfram 4 mánuði.
Endurnýja má leyfið, þegar það or útrunnið.
Vilji þá félagið ekki fá það endurnýjað styrk-
laust, eða félagið hefir brotið af sér leyfið (sbr.
12. gr.), á Danmörk og ísland tilkall til, að fá
sér sæsímann seldan í hendur til saraeignar,
eptir hlutfallinu 2/g og */3> Vilji ísland ekki
eiga hlut í, að eignast sæsímann, á Danmörk
tilkall til þess einsömul.
3. gr. Meðan leyfið stendur. renna allar tekj-
ur af rekstri sæmsímans til félagsins.
Ríkismannvirkjaráðgjafinn tiltekur, allt að 5
árum í senn, hvað endurgjald fyrir afnot sæiím-
ans megi vera hæzt.
Ekki mun það verða hækkað, nema með ráði
Islandsráðgjafans. Endurgjald fyrir afnot land-
símans islenzka tiltaka íslenzk stjórnarvöld, fyr-
ir innlend símritaviðskipti.
4. gr. Meðan leyfið stendur, her félagið all-
an kostnað af viðhaldi sæsímans, og rekstri hans,
samkvæmt kröfum tímans. Félagið kemurupp,
á sinn kostnað, ritsímastöðvum í Þórshöfn,ogá
Seyðisfirði feða Reyðarfirðþ, og lætur annast öll
stör? við þær; en það er, að afgreiða hraðskeyti
eptir sæsímanum. En óviðkomandi er félaginu
afgreiðsla hraðskeyta eptir landþráðum, og eins
afhending þeirra á stöðvarnar, og af þeim. Til-
högun samvinnu milli félagsins og þeirra, er bafa
á hendi afgreiðslu pósts og hraðskeyta innan
lands, fer eptir samkomulagi við hlutaðeigandi
yfirvöld.
Frá lendingarstað sæsímans á íslandi til
Reykjavíkur verður lagður málþráður, sem á að
verða tekinn til notkunar 1. okt. 1906, i siðasta
lagi, nema óviðráðanlegar, eða þó afsakanlegar,
tálmanir komi til. Til þessa málþráðar leggur
fólagið landssjóði íslands 300 þús. kr. eitt skipti
fyrir öll. Þráðinn lætur hin íslenzka stjórn
leggja á kostnað landssjóðs, og verður hann hans
eign. Landssjóður ber allan kostnað af viðhaldi
landsímans, og notkun hans, enda renna þang-
að allar tekjur af rokstri hans.
Nú slitna símar félagsins, eða bila að öðru
leyti, svo að tekur fyrir símritun, eða hún verð-
ur torveld, og skal þá félagið gera allar nauð-
synlegar ráðstafanir, til að gera sem fljótast við
þá bilun.
Nú slitnar, eða bilar, málþráðurinn milli lend-
ingarstaðar sæsímans og Reykjavíkur, og mun
hin íslenzka stjórn laga það sem fljótast. Félag-
ið á þó alls ekkert tilkall til skaðabóta fyrir
tekjurýrnun þá af sæsímanum, som er að kenna
truflun á landsímanum.
6. gr. Félagið er með þessa hér heimiluðu
simalagning háð fyrirmælum hraðskeytasáttmála
þess, er geiður var í Pótursborg 10/22 júlí 1875,
með þar til heyrandi milliþjóða-hraðskeytareglu-
gerð, eins og hún er á hverjum tíma.
6. gr. Meðan leyfistíminn stendur, má ekki
veita neinum öðrum, en félaginu, leyfi fyrir sæ-
síma, eða öðrum rafmagnstengslum, er ætluð séu
til almenningsnota, milli íslands og Færeyja inn-
byrðis, nó milli íslands og Færeyj i og einhvers
annars hluta Norðurálfunnar. En ekki skal leyf-
isskjal þetta vera því til fyrirstöðu, að reistar
sóu á íslandi, og í Færeyjum, þráðlausar firðrit-
unarstöðvar, til þess að skiptast á hraðskeytum
við skip á sjó úti.
Færi svo, að hinni íslenzku stjórn þætti æski-
logt, áður en leyfistíminn er út runninn, og vilji