Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.08.1905, Qupperneq 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.08.1905, Qupperneq 2
126 jÞjÓB VLJIINN. XIX.. 32. mátti, að eins verið ben/mál þess, er ráð- herrann sagði, og báðir tjáð sig ófúsa^ að leggja niður þingmennskuna. Það sér á, að nú eru ekki kosningar í nánd, svo að nú þarf ekki loforðin, og f agurmæ’.in(!) — En vari þeir sig, piltarn- ir, þvi að óvist er, að bændur gleymi þessum undirtektum þeirra. Þingmaður Borgfirðinga, lector Þór- hallur Bjarnarson, hafði á hinn bóginn tekið sendinefndinni liðlega, sem honum er lagið, og talað mjog líklega um það, að hann myndi starfa að því, að málinu yrði frestað, og eigi útkljáð á þessu þingi, en þó eigi gefið ákveðið loforð í þvi efni. — A hinn bóginn tjáði hann sig fúsan til þess, að leggja niður þingmennsku, ef meiri hluti kjósanda hans æskti þess. Um kvöldið 1. ágúst komu menn sam- an í Báruhúsinu, til þess að kveðja bænd- ur, og mættu þar þingmenn framsóknar- flokksins, og fjöldi þjóðræðismanna úr Reykjavík. — Voru þar ræðuhöld mjög fjörug, söngur og lúðraþytur, og skemmtu* menn sér mæta vei, endaþótt djúp, poli tisk alvara hvíldi yfir samkomunni, og öllum væri ijóst, að nú ba>ri hverjum manni að gera skyldu sína, svo að stjórn- in sæi, að hún er eigi til þoss skipuð að lítilsvirða vilja þjóðarinnar. — Mæltu það og margir, að einu gilti, þó að stjórnin sæi, að jafn vel „golu-þyturinn“ getur stundum orðið að stormi. Skilnaðarsamkvæmið endaði með því, að héraðslæknir Þórður Pálsson söng mjög snilldarlega, sem honuna er lagið, kvæðið „Þú ert móðir vor kær“, eptir Þorst. Er- lingsson. Daginn eptir fylgdi fjöldi manna bænd- um á leið, er þeir riðu heimleiðis. Það bregst ekki, að atburðir þessir verða lengi í minnum hafðir, því þeir eru vottur þess, að þjóðin er vöknuð, og lætur því eigi ómótmælt, er landsréttind- in eru fótum troðin, og vilji þjóðarinnar vettugi virtur. . ............• iustmannafull. Hingað runnir austan um unnir ofar dynföldum á djúpsöldum skálmahijómar og skjaldaómar gjalla við eyra, gott er að heyra. Fylgjast þar allir Austmenn snjallir, róm sinn hefja og réttar krefja, enginn þar vikur, enginn svíkur; þar í landi er líf og andi. Yiljans stáli og styrku máii all-opt vörðu þeir ættarjörðu. Erlenda valdið þó enn iét haldið ögrunar brandi yfir landi. En harðstjórn kveldar og hugans eidar báii brenna og bændur kenna vald ættþjóðar og vættir góðar styðja afl andar og átak handar. Nú er svefn þorrinn sifþjóð vorri stælist armur en ólgar barmur; hlæja mun hugur, en hvessast dugur, ef fjendur brandi fara landið. Biti þeim vigur og veiti sigur, og frelsið góða fremstri þjóða. A afl og hreysti hugur treysti og andargull. Svo er Austmannafull. Bjarni Jónsson. (frá Vogi). fréttir frd alþingi. -- ofþo- Stofnun peninga-lotterís á Islandi. Þingmaður Suður-Þingeyinga, hr. Pét- ur Jónsson á Gautlöndurn, ber fram frv. þess efnis í neðri deild, að veita ráðherr- anum heimild til þess, að gefa einkaleyfi til stofnunar íslenzks peninga-lotteris, og má tala hlutanna vera allt að 5 þús., og auk þeirra 8B0 til vara (allt, heilir hlutir), og mega drættir fara fram 6 sinnum á ári. — Iðgjaldið fyrir hvern heilan hlut er 60 kr., en selja má einnig hálfa hluti, ‘ fjórðu parta, og áttundu parta. Yinningarnir skuiu nema 75^ af upp- ■ hæð þeirri, er greiðist fyrir alla áður j nefnda 5 þús, hluti; en leyfishafi greiðir j landssjóði 8% af andvirði hluta þeirra, j er seljast fyrir hvern drátt. ! !Laun hreppstjóra. ; Stef. Stefánsson, þm. Skagf., o. fl. bera j fram frv. í neðri deild þess efnis, að laun j hreppstjóra skuli vera 1 kr. fyrir hvern j innanhreppsmann, er býr á 5 hndr. úr j jörðu, eða rneira, og sömuleiðis 1 kr. fyr- j ir hvern mann i hreppnum, er á haust- j þingi telur fram eigi minna, en lausa- j fjárhundrað. — Laun hreppstjóra moga j þó aldrei vera minni, en 50 kr. Enn fremur haldi hreppstjórar óskipt- um uppboðslaunum, ef þau eru ekki hærri, en 16 kr; en það, sem um fram er, renn- ur í landssjóð. Verzlunarstaður að Skildinganesi. Frv. um löggilding verzlunarstaðar að Skildinganesi við Skerjafjörð bera þeir Ág. Fiygenring og Jón Ól. fram í efri deild. Sölutollar á bitterum o. fl. Fimm þingmenn í efri deild (Jón Ól. o. fl.) bera fram frv. þess efnis, að af „öllum bitterum, og patentlyfjum, i giös- um, flöskum, öskjum, eða því líkum í- látumu skuli greiða sölutoll: I kr. af hverjum pela, eða broti úr pela, eða jafn stóru rúmi, og greiðist sölutcllurinn á þann hátt, að tollheimtumaður lími toll- frímerki á ílátið. Beitutekju-frumvarpið. Efri deild hefir eigi viljað samþykkja, að beita sé tekin í netlögum (60 faðmar á sjó, út frá stórstraums fjörumáii), nema ábúandi jarðar leyfi. — Á hinn bóginn skal öllum, er heimild hafa tii fiskiveiða í landhelgi, heimilt, að setja á land skel- fisksbeituverkfæri, og farvið af skipi, ef taka skal beitu utan netlaga; en gjalda skal þá 1 kr. gjald fyrir sólarhringinn. Ekki kaupstaðarróttindi. Nefnd sú, er neðri deild alþingis kaus, til þess að íhuga frv. um bæjarstjórn í Hafnarfirði, vili fella frumvarpið, t-elur þörf hinna stærri kauptfma til meiri sjálf- stæðis i sveitamálum nægilega borgið, er þau fái rétt til þess, að verða sérstök sveit- arfélög, eins og gert er ráð fyrir i 4. gr. sveitarstjórnarlagafrumvarpsins, er alþingi hefir nú til meðferðar, og geti enn frem- ur gert heilbrigðissamþykktir, byggingar- og lögreglusamþykktir, og fái einnig um- ráð yfir vegafé sínu, og vegamálum, eins og frv., er alþingi nú hefir til meðferðar, gera ráð fyrir, Útflutningsgjalds-lögin. Lögum, er gilda um útflutningsgjald af sjávarafurðum, vilja Magn. Kristjánsson og Guðl. Guðm. safna í eina heild, og breyta þeim jafn framt á þá leið, að „gjald- ið greiðist einnig, er sjávarafurðir eru fluttar úr veiðiskipum, eða bátum, í flutn- ingaskip, sem liggur í landhelgi, og ætl- ar að flytja þær til útlanda“, og sömu- leiðis, er „veiðiskip flytja afla sinn sjálf til útlanda, ef þau koma með hann í höfn hér á landi, og eru afgreidd þaðanu. Breytingin miðar einkum til þess, að ná útflutningsgjaldi af síldveiði Norð- manna. Tollgeym8la og tollgreiðslufrestur. Frv. þess efnis, að kaupmaður geti feng- ið tollgreiðslufrest, ef hann leggur til hús, eða herbergi, er toilheimtumanni þykir full-tryggilega útbúið, og hann innsiglar, flytja þeir Jón Ó1. og Ag. Flygenring í efri deild. Bygging opinberra bygginga. Nefnd sú, er neðri deiid alþingis kaus, til þess að íhuga frv. stjómarinnar um stofnun byggingarsjóðs, og byggingu op- inberra bygginga, fellst á þá tillögu stjórn- arinnar, að selja Amarhólslóðina, ogtjáir sig einnig samþykka sölu (>rfi riseyjar, og vill leggja andvirðið í sjóð.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.