Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.04.1906, Qupperneq 1
Verð árganqsin8 (minnst
60 arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameriku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
a'arlok.
ÞJÓÐVILJINN.
- -1= ToTTUGASTI ÁS8AK9UH. =1 ——-
RITST.TÓRI: SKÚLI THOBODD8EN. -11
Eppsogn skrifleg, ógild
nema komin sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
'mánaðar, og kaupandi
I sam hliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 20.
Bf.8SASTÖBUM, 30. APRÍTj.
19 0 6
i að segjasi
Mjög réttilega hafa blöðÍD „Fjallkon
anu og „ísafoldu b.)nt á það, hve vel j
hefði farið á þvi, að þ?ng hefði verið :
rofið, og þingkosningar farið frarn, áður I
en lagt er af stað í danska „heimboðiðu. |
Það er óneitanlega óviðfelldið, að þing-
menn, sem sitja í fyllsta trássi við vilja
kjósanda sinna, eins og þÍDgmenn Hún-
vetninga (Hermann og Jón Jnkobsson),
þingmenn Rangvellinga (sira Eggert og
Magnús gamli Stephensen), o. fl. o. fl.,
séu að mæta í Danmörku, sem fulltrúar
þeirra manna, er ekki vilja af þeim vita,
sem þingmönnum sínum, eu hafa skorað
alvarlega á þá, að leggja niður þing-
mennskuna.
Vér sár-vorkennum kjósendum þeirra,
að vita þá fara í þessa för, og geta eigi
sent þá fulltrúa, sem þeir bera traust til.
Þá er það og kunnara, en frá þurfi
að segja, hversu síðustu þingkosningar
voru eingöngu miðaðar við stjórnarskrár-
málið, og myndi því hver frjálslynd stjórn
hafa talið sér það skylt, að láta. nýjar kosn-
inger þegar fara fram, er stjórnarskrár-
breytingin var í gildi gengin, ekki sízt
þar sem kjósendunum hafði þá verið að
miklum mun fjölgað.
En þrátt fvrir þetta, og þrátt fyrir
áskoranir þúsunda af kjósendum landsins,
hefir þó ekki verið nærri því komandi,
að alþingi væri rofið, og efnt til nýrra
kosninga.
Það er aðal-nauðsynin, sem vakir fyr-
ir núverandi stjórn vorri, að hún hangi
sjálf í lengstu lög við völdin.
Fyrir þeirri nauðsyninni verður allt
annað að þoka, því að völdunum má engan
veginn tefla í neiná tvísýnu, og veit. hönd,
hvað hefur.
En eins og það er óviðfelldið, frá sjón-
armiði kjósandanna, að vita ýmsa þess-
ara „þingherrau fara að leika þjóðfulltrúa
i Þanmörku, svo mun það og vissulega
kosta suma þingmennina töluverða sjálfs-
afneitun, að verða að fara í „heimboðiðu,
með þessar gömlu, hálf-upplituðu koll-
hufur fra Estrups dögum, sem stjórnar-
liðum þoknaðist að smella á alþingi á
síðastl. sumri.
Og þó verða það einmitt þessar koli-
húfurnar, seiu mest ber á, og öllum verð-
ur starsýnt á, er þar er komið.
Já! Að hugsa sér, að sitja þar, með
slíkan höfuðbúnÍDg!
En hvað skal um það fást?
Stjórnarandstæðingar eiga sérstakt er-
indi, og margir fórna lífi fyrir föður-
landið.
Má og vera, að ýmsum dönskum stjórn-
málamönnum verði þá nokkru ljósara,
en áður, hversu háttað var stjórnarfars-
breytingunni(!), sem hr. Albertí veitti oss.
Fátt er svo fyrir öllu illt, að ekki
boði nokkuð gott.
Utlöntí.
Helztu fregnir, er borizt hafa með
Marconí-ioptskeytum, og blað vort á enn
ógetið, eru:
Frakkland. I námuhéruðunum i norð-
vestanverðu Frakklandi er eDn eigi sem
friðsamlegast, og hefir herliði og námu-
rnönnun aptur og aptur lent saman, og
hermenn særzt af grjótkasti. I eitt skipti
át.tu og 6 þús námumanna í bardaga við
heriiðið, sem varð að sleppa ýmsum námu-
mönnum, er handteknir höfðu verið. —
Stjórnin sendir því nýja og nýja liðs-
auka til námuhéraðanna, svo að þar eru
nú alls um ‘210 þús. hermanna.
f M. Curie, er fann geislaefnið „radí-
um“, og hlaut Nobelsverðlaun i fyrra,
var nýlega myrtur í París; en um nán-
ari atvik að því er enn ófrétt. — — —
Portugal. Þar hefir brytt á samsæri
í sjóhernum, og var jafn vel sagt, að
samsærismenn myndu skjóta á höfuðborg-
ina Lissabon, svo að menn voru þar
mjög felmtrsfullir. — En nú hefir her-
skipunum verið dreift á ýmsar hafnir,
svo að líklega verður ekkert úr uppþot-
mu.
ítalía. Loptskeyti 19. april sagði ösku-
falli úr Yesuvius lokið, og hættu um
garð gengna. — —
Japan. Á eyjunni Formosa hafa fund-
izt yfir hundrað lík, eptir landskjálftana,
og hús hafa hrunið hundruðum saman.
Bandaríkin. Loptskeyti 22. apríl taldi
von um, að */4 húsa í San Francisco
yrði bjargað, og 24. apríl var eldurinn
slokknaður, nema sjávarmegin.
Svæðið, som eytt er af eldinum, nær
yfir 25 enskar fermílur, og er þetta talið
mesta slys, sem nokkuru sinni hefir orð-
ið í Bandaríkjunum.
Talið er, að alls hafi látizt 5 þús.
manna, og margt af þvi fólki brunnið
inni.
Um 400 þús. manna stóðu uppi hús-
næðislausir, og alls-lausir, og þjappaðist
fólk þetta saman í skemmtigörðum borg-
arinnar, háir og lágir, og dóu þá margir.
Ymsir hryllilegir atburðir voru framdir
af ýmis konar þorparalýð, áður en her'iði
tókst að koma stjórn á, t. d. skornir
fingur af kvennfólki, til að stela fingur-
gullum, o. s. frv., og hefðu þó meiri brögð
orðið að, ef lögregluliðið hefði eigi tekið
það til bragðs, að hella niður öllu áfengi,
og skjóta ránsmenn vægðarlaust, er þeir
voru staðnir að glæpum.
Hallir milljóna-eigandanna á Nobhill
gjöreyddust, og margir auðmenn urðu á
svipJundu öreigar.
Matvæla og vatnsskortur var óþol-
andi, unz aðflutDÍngar hófust, sérstak-
lejja að ráðstöfun stjórnarinnar, og útbýtti
lögregluliðið þá matvælum til manna af
öllum stéttum.
Fólk flýði þiisundum saman til 0<k-
land, og annara borga i grennd'nni, og
svo var mikil áfergjan, að komast út á
gufuferjurnar, að í liandalögmáli lenti, og
hermenn urðu að beita byssusting'um, til
að halda á reglu.
Eptir síðustu fregnum var talið, að
helmingur borgarbúa hefði þá verið flutt-
ir burt, og dreift í næstu borgir, enda
voru þá nokkrar eimreiðir farnar að ganga
frá San Francisco, og allar oinjlestir, og
ferjur, troðfullar af fólki.
Sambandsþing Bandamanna veitti þeg-
ar 1. milj. dollara (um 3,700,000 kr.), til
að liðsinna borgarbúum, og sambands-
þingið í Canada. veitti 100 þús. dollara í
sama skyni. — í New-York var og þeg-
ar skotið saman á einum degi 1 milj.
dollara. — Lundúnabúar héldu og fj'jl-
mennan fund, og hafa efnt til samskota;
en haft er eptir Roosevelt forseta, að þó
að tjónið sé voðalegt, þarfnist Banda-
meDD þó eigi erlendrar hjálpar. — BaDk-
ar í Bandaríkjunum hafa og þegar safnað
4 millj. dollara.
Símskeyti hafa verið send úr flestum
löndum, til að votta Bandamönnum sam-
hryggð, út af þessum atburðum.
Hve miklu tjónið nemur, vita merm
enn eigi, en gizkað á frekar 900 rnillj.
króna, sem þó er að likindum of lágt.
Síðustu fregnir segja, að vatnsveita
borgarinnar sé nú komin að nokkru leyti
í lag, og sé nú hvorki vatns nó vista
skortur, og farið að lina nokkuð á her-
vörzlunni í borgÍDni.
Hræddir eru menn um, að pest ktmni
að koma upp í borginni, sakir rctnunar
lika í húsrústum, og í námum, sem náðu
inn undir borgina.
23. apríl var þegar tekið að reisa stöku
hús úr rústum, og bankar tóku aptur til
starfa 25. apríl, og að likindum verður
þess eigi langt að bíða, að borgin risi
fegurri, en áður. —
Landskjálfta hefir eg orðið vart í borg-
inni Cleveland í Ohío, og í ýmsum hafn-
arborgum við Kyrrahafið, og sjórinn víða
ætt á land, eytt baðvistarstöðum o. fl.
I boðskap til sambandsþingsins hefir
Hoosevelt forseti vakið máls á því, að
nauðsynlegt sé, að setja sérstök lagaá-
kvæði, að því er snertir lifsábyrgðarfélög,