Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.03.1907, Side 2
JÞjóðyiljinn
XXI., 12.
4(>
Þýzkaiand. Forseti þýzka ríkisþings-
ins hefir Stolberg greifi verið kosirin, og
er hann úr flokki hægrimanna.
Nýlega færðu forsetar þingsins Villijálmi
keisara kveðju þess, og lýsti hann þá á-
nægju siuni yfir kosuingunum, er hann
kvað bera þess órækan vottinn, að „soc-
íalistaru væru eigi ósigrandi við kosn-
ingar. — —
Austurríki. Látinn er nýlega Joseph
Lewinshy, 71 árs að aldri, einn af nafn-
kunnustu þýzkumælandi leikendum.
f 16. febr. andaðist enn fremur í Vín-
arboru Clementíne prinsessa, nálega níræð.
— Meðal barna hennar er Ferdlnand fursti
í Bulgaríu. — —
Bandarikin. Járnbrautarslysið í New
York, sern getið var um i 9. nr. blaðs
vors, varð oigi að eins tuttugu mönnum
að bana, heldur hlutu og 50 menn meiri
eða minni meiðsli.
Auðmaðurinn John D. Rockefeller hefir
nýlega gefið 42 rniij. dollara til mennta-
stofnana hér og hvar í Bandaríkjunum,
sem og til styrks handa kennurum og
námsmönnum.
27. febr. voru hundrað ár liðin, siðan
Benry Longfellow, eítt af frægustu skáld-
um Bandamanna fæddist, og var þess
víða minnzt á hátiðlegan hátt. — Long-
fellow dó 24. marz 1882.
•......
Ritsimaskeyti
til „Þjóðv.“
Kaupmannahöfn 7. marz ’07.
Albertí og heilbrigðisráð Dana.
Danska heilbrigðisráðið hefir ákveðið,
að segja af sér, sakir ágreinings við Al-
bertí.
(Ágreiningur Albertí’s og heilbrigðis-
ráðsins stafar af því, að heilbrigðisráðið
telur Albertí hafa borið sig ráðum, að
•þvi er til ernbættaveitinga kemur, ogfar-
ast dönskum blöðum orð í þá átt, að eigi
muni auðgert, að skipa heilbrigðisráðið
nýjum mönnum, sakir óánægju læknastétt-
arinnar, út af einræði Albertí’s.)
Frá Bússlandi.
Nicolaj keisari hefir veitt Gólowin, foi-
setu rikisþingsins, áheyrn.
Kauprnannahöfn 12. marz ’07.
Frá Bulgaríu.
Fetkow, forsætisráðherra í Bulgaríu,
var skotinn til bana, með skammbyssu.
— Bankastarfsmaður, Petrow að nafni,
vann vieið, og særði hann jafn framt
veizlunarmálaráðherrann.
f Casimír Perier.
Gusimír Pcrier er dáinn.
(Casimír Períer var forseti frakkneska
lýðveldisins 1894—’95, eptir morð C'ar-
not's forseta. — Sagði hann af sér for-
setatigninni, sakir árása, er hann sætti
af hálfu ýrnsra jafnaðarmanna o. fl. —
Hann var maður tæplega sextugur, er
hann andaðist, fæddur í nóv. 1847. —
Á þing var hann i fyrsta skipti kosinn
1876, og gegndi nokkurum sinnum ráð-
herraembætti. — Hann var einn af mestu
auðmönnum Frakka.)
Frá Færeyjum.
Ovanalega ílla áraði hjá Færeyingum
árið, sem leið. Vorkuldar voru þar venju
frornur, og ollu þeir þvi, að unglamba-
dauðÍDn skipti þúsundum. — Fjöldi full-
orðins fjár drapst einnig af næmri, og
íllkynjaðri, augnveiki.
Hvalaveiðarnar gengu svo ílla, að sum
félaga þeirra, er reka hvalaveiðar í Fær-
eyjurn, náðu eigi upp kosnaðinum, —
Bjargfuglaveiðin varð og eigi, nema i
ineðallagi.
Hey nýttist ílla, sakir rigninga, og
urðu að nokkru leyti ónýt. — Jarðepla-
rækt varð lítii, Og kornyrkjan mislán-
aðist.
Tvær verksmiðjur eru á Færeyjura, og
varð örinur þeirra, ullarverksmiðjan, að
hætta störfum i bráð.
Á hinn bóginn voru aflabrögð við
Færeyjar góð, og fiskurinn i háu verði.
Hollenzkur konsúll.
Kaupmaður .Jaknb Ifavsteen k Oddeyri er ný-
lega orðinn hollenzkur konsúll.
Tekjur landsíninns.
Eptir skýrslu símastjórans hafa tekjur lands-
8jóðs af landsimanum orðið alls 2388 kr. 22. a.
í síðastl. desemhermánuði.
Óskandi vaeri, að síinastjórinn gæfi blöðun-
um einnig skýrslu um pað, hve miklu viðhalds-
kosfcnaðurinn nemur í mánuði hverjum.
Barnaveiki.
Þessi hættulega veiki hefir nýlega stungið sér
niður á stöku stöðum i Eyjafirði.
Til styrktar berklaveikisliælinu
hafa Islendingar í Vesturheimi nýlega efnt
til samskota. — Gangast bæði Vinnipeg-blöðin,
„TTeimskringla11 og „Lögberg11, fvrir fjársöfnun-
inni, er fær beztu undirtektir hjá löndum vor-
um þar vestra.
Til lieimatuiboðslniss i Reykjavik
hefir sira Jnn Bjarnason í Vinnipeg, og aðrir
stuðningsmenn evang. lútherska kirkjufélagsins
i Vesturheimi, gengizt fyrir fjársöfnun, og safn-
að talsverðu fé.
Enda þótt fjársöfnun þessi sé í góðu skyni
gerð, munu þeir þó færri hér á landi, er telja
hana þnrfa.
Sýslufuudur Vestur-ísflrðinga
var haldinn að Flateyri i Onundarfirði 8. febr.
þ. á. — A fundinum voru veittar 300 kr. til sýúu-
bóltasafns á Þingeyri, enda sé deild af safninu á
Flateyri.
Til unglingaskóla k Núpi í Dýrafirði var veitt-
ur 75 kr. styrkur.
Nýtt lœhnshérað vill sýslunefndin að stofnað
sé, er nái yfir Mosvalla- og Suðureyrarhreppa,
og sé læknissetrið að Flateyri.
Til tahímalínu milli ísafjarðar og Patroks-
fjarðar samþykkti sýslunefndin að leggja fram 5
þús. króna, ef lánið fsést úr viðlagasjóði til 28
ára, gegn 6°/0 í vöxtu og afborgun. — Að öðrum
kosti vildi nefndin leggja frain -1 þús.
Hreppsnefndunum í Mýra- og Þingeyrarhrepp-
urn var og leyft að verja sveitarfé, til að taka
þátt i flutningi ritsímastaura innan hreppa.
Frú Hornstrdndum (Norður-ísafjarðarsýslu.)
er „Þjóðv.“ ritað 19. janúar þ. á.: „Veðrátt-
an einatt mjög stirð, sífelldir stormar og fann-
konmr, og má heita, að aldrei hafi komið bliður
dagur, som af er vetri. — Allar skepnur á gjöf,
siðan snemnia i nóv. — Hafísinn er nú orðinn
hér landfastur, og sór hvergi út yfir, níst.indi
frost, 12—14 stig á reaumur11.
Kostnaðaráætlun um Iiafskipubryggju
við svo nefnda Prostavík á ísafirði hefir verk-
fræðingur Þorv. Krabbe nýlega gjört. — Aætlar
hann koslnaðinn 620 þús. króna, og ræður því
frá því, að ráðist sé í fyrirtæki þetta, þar sem
það myndi verða kaupstaðuum of kostnaðarsannt,
enda óhagkvæmt, að flytja. vörur þar í land, sak-
ir fjarlægðar frá verzlunarbúðunum.
Enn freinur tekur verkfræðingurinn fram, að
þörfin virðist eigi hrýn, þar sem tvær verzlanir
(Á. Asgeirssonar og Leonh. Tang’s) bafa bryggj-
ur, sem hafskip geta lagzt við. — í ráði kvað
og vera, að þriðja verzlunin ('„Edinborg") byggi
hafskipabryggju, og verði leyfið þá bundið því
skilyrði, að almenningur fái að hafa bryggjunn-
ar not.
lír Griinnnvík (Norður-ísafj.sýslu).
er „Þjóðv.“ ritað 3. febr. síðastl.: „Tíðin hef-
ir verið afar-bág, snjóar og umhleypingar, og
hafís kominn hér inn á hvern fjörð. — Hagleys-
ur hér fyrir allar skepnur, síðan um miðja jóla-
föstu, en skepnuböld enn þá fremur góð.
Haustafli varð hér með minna móti: mun hafa
verið saltað mest úr um 20 tn.
Mjög þykir mönnum það bagalegt,. að eigi
skuli fást aukapóstur frá Stað i Grunnavík að
.Dynjanda, og var þess þó farið á leit við póst-
stjórnina 2. sept. 1905, en engin breyting enn
orðin, að því er snertir póstferðir hér i breppi11.
Frú ísaflrðl
er „Þjóðv.“ ritað 21. febr. síðasth, að þar bafi
þá um hrið gengið verstu byljir, og naumast fært
milli húsa; frostið 6—12 stig á celsíus.
Afli nokkur í Bolungarvík í febrúar, en sjald-
gjöfult. mjög.
í rökkrunum.
(IJr óprentuðu safm Brynjólfs Jónssonar
frá Minna-Núpi.
——
DBA UMUR HJkLMARS RELGASONAR.
Stefán, son Helga bónda Ásmundsson-
ar á Skútustöðum, tók við búi eptir föður
sÍdd, fór síðan frá Skútustöðum að G-eira-
stöðum, og þaðan að Arnarvatni. — Dar
var þá sá maður, er GfuðDÍ hét. — Yoru
þeir Stefán báðir sundmenn góðir. —
Þeir drukknuðu báðir s.iman í Mývatni
af byttu, og var ætlað, nð þeir hefðu
eigi verið algáðir.
Hjálmar, hálf-bróðir Stefáns, v.ir vinnu-
maður hans á Skútuslöðum og Geir.istöð-
uni, en siðaD hjá Jóni, alþingismanni á
Gfautlöndum. Þá er Stefán drukknaði var
Hjálmar giptur, og bjó í Vogum við Mý-
vatn. — Sigríður hét kona hans. — Þess
er getið, að þau hjón sváfu í sérst.öku
herbergi, og svaf Hjálmar við þil.
Nokkru eptir drukknun Stefáns, dreymdi
Hjálmar oina nótt, að Stefán kæmi að
rúminu til þeirra, og beygði sig yfir
Sigriði að Hjáimari. — Hann þóttist spyrja,
hvað hann vildi. Honum þótti Stefán
svara: „Jeg held, að Jón sonur mirm,
komi hingað í dag. og iangar mig, að
biðja þig, að gjöra það, sem hann biður
þig“. „Það mun jeg reyna“, þóttist
Hjálmar segja. — Fór Stefán þá þ^gar
burtu. — í j'VÍ vakti Sigriður bónda sinn,
og bað haun, að lofa sér upp fyrir. —
Hjálmar spurði, við hvað liún væri hrædd.
— Hún svaraði því ekki, en fór upp fyrir.
Hm morguninn sagði hún honum, hvað
hún hafði hræðzt. — Hún sagðist hafa
legið vakandi, eða það t’annst hermi, og
lieföi sér sýnzt Stofán koma, beygja sig
yt'ir liana til Hjálmars, og bæra varirriar,
eins og hanu talaði. — Þá sá hún líka,
að annar maður gekk um gólf fyrir ut-