Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.08.1907, Side 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.08.1907, Side 4
160 Þjobviljinn. XXI., 40. „Ceres“, skip sameinaða gufuskipafélgsins, lagði af stað til útlanda, vestur og norður um land, 24. þ. m. _ Héraðsdómur var 15. þ. m. kveðinn upp i meið.yrðamáli, sem bæjarfógeti Halldór Daníels- son í Reykjavík höfðaði gegn Sigurði trésmið Jónssyni, út af grein, sem staðið hafði í blað- inu „Reykjavík“. Fjöldi vitna hafði verið leidd- ur af hálfu stefnda, en úrslitin urðu þó þau, að Sigurður trésmiður var dæmdur i 150 kr. sekt eða 40 daga einfalt fangelsi auk málskostnaðar 30 kr., og ummælin dæmd dauð og ómerk. — Setudómari i málinu var skristofustjóri Eggert Hriem. Yerzlun H. Th. A. Thomsen’s í Reykjavik minntist 70 ára afmælis síns 29. f. m., og gaf ionsúll D. Thomsen í þvi skyni: 500 kr. til verzlunarskólans í Reykjavik, og lofaði að gefa etofnuninni 25 kr. árlega; ennfremur gaf hann styrktar- og sjúkrasjóði verzlunarmanna 500 kr., til fátækra 500 kr., og til standmyndar Christjáns IX. ______ Mislingar fremur að þreiðazt út í Reykjavík, komnir i niu hús um síðustv^Jielg^^^^ lil íessaðimw misslnlBiBgi verður hver kaupandi jafnan að rann- saka nákvæmlega, hvort varan, sem hann kanpir, er frá því firma, er hann vill fá vöruna frá. — Sé þessa eigi gætt, veld- ur það opt vonbrigðum, bæði að þvi er til kaupanda og seljanda kemur, ekki sizt þegar tvö firma, er 9elja sömu vöru, hafa sama nafnið. — Ef þór kaupið reið- hjól írá danska firma-inu „Multiplex import Kompagni“ í Kaupmannahöfn, fá- ið þér beztu tryggingu, sem hægt er að fá, að því er reiðhjól snertir; en þetta er þó að sjálfsögðu því að eins, að reiðhjólið sé í raun og veru frá okkur. — Hver maður ætti að lesa skrá vora, sem er með myndurn. — Hún er send ókeypis, og burðargjaldsfrítt, só þess óskað á fimm- aura bréfspjaldi. — Yér mælumst þvi til þess, að þeir, sem vilja fá sér sterkt og Otto Monsted® danska smjörlíki er bezt. gott reiðhjól, blandi eigi firma voru sam- an við þýzka firma-ið, sem er samnefnt, þar sem vér eigum alls ekkert við bað skylt, og getum því eigi tekizt neiuar skuldbindingar á hendur, að því er til reiðhjóla kemur, sem þaðan eru. iultiplex import iompagní, ^lutaíclag. Gl. Kongevej 1. C. Kjöbenhavn. B. Til atlmgnnar. Hið bœtta seyði. Hér með vott- ast, að sá elexir, sem nú er farið að báa til, er töluvert sterkari, og þó að eg væri vel ánægður með hina fyrri vöru yðar, vildi jeg samt heldur borga hina nýju tvöföldu verði, með því að lænkingakrapt- ur hennar hefir langt um fljótari áhrif og eg var eptir fáa daga eins og nýr maður. Svenstrup, Skáni. V. Eggertsson. *SslEem melting-, sv«Hiile.y-ii og anclþreng’sli. Mór hefir batn- að til muna af nýja seyðinu í vatni, 3 te- skeiðum þrisvar á dag, og mæliegþvi fram með þessum frábæra elexír við með- bræður mina, því það er hinn bezti og ó- dýrasti bitter. Kaupmann ahöfn. Fa. stórkaupmanns L. Friis Eftirf. EngeL Me Itingarörðugleikar Þó að eg hafi ávallt verið sérstaklega ánægð- ur með yðar alkunna elexír, vorð eg samt að kunDgjöra yður, að eg tek hið bætta seyði fram vfir, með því að það hefir mik— ið fljótari áhrif við meltingarörðugleika, og virðist langtum nytsamara. Eg hefi reynt margs konar bittera og lyf við maga- veiki, en þekki ekkert meðal, sem hefir jafn mikil áhrif og þægileg, og kann því þeim, sem hefir fundið það upp, mínar beztu þakkir. Fodbyskóla. Virðingarfyllst J. Jensen, keDnari. Kina-liís-elexír er því að eÍDS egta, að á eÍDkunnarmiðanum standi vöru- merkið: Kínverji með glas i hendi, og nafn verksmiðjueigandans: Valdemar Pet- ersen, Frederikshavn — Köbenhavn, og sömul. innsiglið LT: í grænu lakki á fiöskustútDum. Hafið ávallt eina flöskö við hendina, bæði innan og utan heim- ilis. Fæst hvarvetna fyrir 2 kr. flaskan. Prentsmiðja Þjóðviljans. 70 óblindur hlaut að sjá, hve hrifinn Friðrik var af frænku sinni, og það er svei-mér ekki óhyggilegt af honum“. „Mér sýndist þó frænka hans vera enn hrifnari af honum“; svaraði Susie, „því jeg veitti því eptirtekt, að hún hafði alls ekki augun af honum“. Frú Moore yppti öxlum. „Þeim raun betra fyrir hr. Musgraveu, mælti hún, „og vildi eg óska, að honum litist sem be«t á hana, veslingnum. Trúðu mér, hvað sem fólk segir, þá eru það þó peníngarnir, en eigi ástin, sem er aðal-atriðið. Hann virðist fljótt hafa orðið hrifinn af frú Fenton, og finnst mér jeg geta skilið það mjög vel“. Tínncli kapituli. Enda þótt Friðrik svaraði ummælum Lauru, sem fyr er getið, ekki einu orði, höfðu þau þó sært hann mjög mikið, og datt honum í hug, að Susie hefði ef til vill lagt rangan skilning í það, hve sjaldan hann hafði koraið á heimili foreldra hennar. Hann ásetti sér þvi, að ganga bráðlega úr skugga um það. En litlu siðar, en hór var komið sögunni, fór h ers- höfðinginn brott úr Lundúnum, þar sem hann þjáðist mjög af gigtveiki. „Skyldi nú ekki ClaughtoD einnig fá í sig gigtar- stÍDg, og leggja af stað tii baðanna í Kissingen?u mælti Friðrik við sjálfan sig. „Ef til vill er vinfengi hans við Moore þegar svo rótgróið, að hann þarf ekki, að grípa til slíkrar viðbáru'1. Friðriki leið afar-ílla, og tókst honum eigi að dylja sorg sína fyrir frú Fenton, né heldur fyiir öðrum, sem 71 þekktu hann, og hugðu flestir, að þetta stafaði af því, að’ hann fékk ekki arfinn. Laura gætti þess nú á hinn bóginn, að nefna aldrei Susie á nafn, en reyndi á allar luridir að hafa ofan af fyr- ir Friðriki, lét hann fylgja sér i leikhús, og á samsöngva,.. og kvaðst ekki hafa yndi af neinu, ef hann væri okki með henni. Friðrik tók og að skoða hana, sem beztu vinu sínar og leið aldrei betur, en þegar hann var hjá henni. Laura vildi nú gjarna leigja sér hús, en geðjaðist ekki að neinu, sem kostur var á að fá. „Hver veit, hvort eg þarf að sjá mér fyrir húsnæðiur mælti hún einhverju sinni við Friðrik. „Það gæti farið svo, að eg missti fé mitt, eða dæiu. „En þér eruð ung og hraustu, svaraði Friðrik hlæj- andi, „og í peningasökunum eigið þór jafn ágætan mann að, sem hr. Breffit er. „Spár yðar eru þvi ekki mjög seunilegar14. „Ekkert er ósennilegt í heiminum, — nema stöðug gæfa“, mælti hún. „Sem stendur,. hossar gæfan mér, en nve fljótt getur eigi allt breytzt. — Opt spyr eg sjálfa mig, hvort það sé nú áreiðanlegt, að jeg eigi alla þessa peninga, svo að eg þurfi ekki að vinna, og þrælau. „Datt yður þá aldrei í hug, að þér fengjuð miklar eignir eptir föður yðar?u spurði Friðrik all-forviða. Hún hrissti höfuðið. „Aldreiu, mælti hún. „Mér datt það ekki í hug, fyr en eg las auglýsinguna í blöð- unum“. „En við skulum ekki tala meira um þettáu, mæltí hún enn frerriur, „en njóta nútíðarinnar, og vænta hins bezta af framtíðinni. — Þér njótið nútíðarinnar með méru.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.