Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 11.09.1907, Qupperneq 1
Yerð árgangsins (minnst
60 arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50■
Borgist fyrir júnimán-
aðarlolc.
M 43. ||
ÞJÓÐVILJINN
— .Tuttttgasti og fyhsti áegangur. =|==—
|= RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN.
BeSSASTÖÐUM, 11. SEPT.
Uppsögn skrifleg, ógild
nema komið sétil útgef-
anda fyrir 30. dag júni-
| mávaðar, og kaupandi
samliliða uppsögninnt
horgi skuld sína fyrir
blaðið.
1907.
Otlöníi.
Til viðbótar fregnum, er borizt hafa
með ritsímaskeytum, skal þessara tíðinda
getið:
Danmörk. Tannlæknar á Norðurlönd-
um héldu fund í Kaupmannahöfn 16. og
17. ágúst.
18. s. m. hófst og í Kaupmannahöfn
fundur málleysinga. — Sóttu þann fund
málleysÍDgjar frá Noregi, Sviþjóð og Finn-
landi, en laDg-flestir vorú þó úr Dan-
mörku. — Á fundinum voru alls um 600
málleysingjar. -— Jafn framt var og liald-
in sýning á ýmsum munum, er málleys-
ingjar hafa búið til.
f 15. ágúst andaðist i Kaupmanna-
höfn skáldkonan frú Mechlenburg, 77 ára
að aldri. — — —
Noregur. 10. ágúst þ. á. voru 50 ár
liðin, síðan fyrsta skáldrit Björnstjerne
Bjömsson’s kom fyrir almenningssjónir,
og voru skáldinu þann dag sendar rnargar
heillaóskir. — Hann er nú nær hálf-átt-
ræður.
6. sept. hófst i Cliristjaníu verkmanna-
fundur. Sóttu þanD fund fulltrúar verk-
maima á Norðurlöndum, og átci að ræða
þar um 8 kl. tima vinnudag, um gjörð í
ágreiningsmálum verkmanna og vinnu- |
veitanda o. fl. — — —
Bretland. Í öndverðum ágúst- lagði !
eimskipið „Nimrodu af stað frá Lundún- I
um, til þess að komast svo langt suður
á bóginn, til suðurheimsskautsins, sem
kostur er á. — Yfirmaður fararinnar er
Shackleton, sjóliðsforingi.
Neðri málstofa brezka þingsins hefir
nýlega samþykkt, að veita konum kjör-
gengi i sveitarmálum. — — —
Holland. Verkmenn í borginni Ant-
werpen, er vinna að fermingu, og afferm-
ingu skipa, hófu verkfall í ágúst, og var
því reynt að fá verkamenn frá Bretlandi.
Þýzkaland. Fulltrúar jafnaðarmanna
i ýmsum löndum héldu í ágúst fund i
Stuttgart. — Þar var meðal annars, á-
kveðið, að berjast gegn öllum fjárveiting-
um til hers og flota, og gera allt, sem
auðið er, til að sporna við ófriði.
14. ág. áttu þeir fund með sér i höll-
inni „Wilhelmshöhe11, í grennd við borg-
ina Kassel, Vilhjáhnur, Þýzkalands keisari,
Franz Jösep, Austurrikis keisari, og Ját-
varður, Bretakonungur, og verður erlend-
um blöðum skrafdrjúgt um fund þeirra,
eins og vant er að vera, er þjóðhöfðingj-
ar hittast. — —
Portugal. Þar varð nýlega uppvíst
um samsæri gegn konungi, og forsætis-
ráðherranum, og voru 30 af samsæris-
mönnum settir i varðhald. — —
Ítalía. 10. ágúst þ. á. andaðist erki-
biskupinn í Bologna, Svampa kardináli,
á áttræðisaldri. — Hann var einn þeirra,
sem talinn var liklegur til páfatignar,
er Leo páfi XIII. féll frá árið 1903. —
ítússland. Samkvæmt herdómnum voru !
9 menn hengdir i Mítáu 6. ág., en tiundi
maðurinn, er af lífi. átti að taka, fyrir-
fór sér.
Sama dag voru 10 menn skotnir í
Ríga. — Sýiiist þetta benda á, að rúss-
neska stjórnin þykist enn eigi hafa hnekkt
byltingamönnum, sem þurfa þykir. —
Tyrkland. Tyrknesk hersveit hefir
skotið á þorpið Mewan í Persalandi, og
biðu 90 meDD bana. —Kirkjan, og fjöldi
húsa, var skotið niður. — Hersveitin bélt
síðan til borgarinnar Urmia. — Persastjórn
hefir leitað ásjár hjá Breta- og Rxissa-
stjórnum. — —
Bandaríkin. I ágúst hættu símritarar
í Bandaríkjunum vinnu, all-fiesdr, svo að
New-York hafði um hríð ekkert simasam-
band við vesturríkin. — Segja blöðin, að
af verkfalli þessu hafi leitt verðfall á ull
og korni, auk annars óhagræðis.
I Cbioago fundu lögreglumenn ný skeð
tundurvéla-verksmiðju, er armenskir ménn
áttu, og er gizkað á, að tundurvélarnar
hafi verið ætlaðar til þess, að ráða Abdúl
Hamtd, Tyrkja-soldáni, bana.
I New-York voru tveir kvennmenn ný-
lega myrtir á mjög hryllilegan hátt, með
svipuðum hætti, sern Jakob „kvðiskeriu
beitti i Lundúnum fyrir nokkrum árum.
Annam. Konungurinn i Annam, Than
Tliaí að nafni, hefir nú verið vikið frá
völdum, og er hafður í gæzlu. — Qann
hafði látið drepa sumar af konum sinum,
og beitt við aðrar margs konar grirntnd-
arverkum, sem og við ýmsa embættis-
icenn sína, eDda er hann talinn vitskert-
ur. — —
Maroeco. I hafnarborginni Casablanca
böfðu þarlendir menn drepið nokkra Norð-
urálfumeun, og brugðu þá Frakkar, og
Spánverjar, við, og sendu þangað herskip,
er skutu á borgina, eins og áður hefir
verið getið um i blaði þessu. — Eptir
skothríðina mátti heita, að borgin væri í
rústum, og er mælt, að um 600 þarlendra
inanna hafi fallið, og var ógeðslegt um-
horfs i borgarstrætum, enda höfðu ræn-
ingjar, og morðingjar, notað tækifærið, til
að fremja ýmsa óknytti.
„Beeöi r'ils.iiA’L
Eins og leseDdum „Þjóðv.u er kunn-
ugt, komst FriÖrik konungur VIII. svo
að orði, í ræðu, er hann héit að Kol-
viðarlióli, að hann talaði um „bæði rik-
inu (Danmörku og ísland).
PSí' Dönskum blöðum hefir orðið skraf-
drjúgt um þetta, og komast að þeirri nið-
urstöðu, að konungi muni hafa orðið mis-
mæli, og hafi ætlað að segja „bæði lönd-
inu.
íslendingar kjósa að sjálfsögðu, að hér
sé ekki um mismæli að ræða.
IVtilli ^viþjóðax* <>u íslands
má að líkindum gera ráð fyrir, að bráð-
lega hefjist eimskipaferðir. — Meðeigandi
eins af stærstu verzlunarhúsum í Stokk-
hólmi, Otto Ameln, að nafni, var staddur
hér í sumar, og segja sænsk blöð, að hon-
um hafi litizt hér vel á verzlunarhorfur,
og býst bann við, að Sviar muni einkum
flytja hingað járn, korn og timbur.
Kirkjuþing Vestur-Í sl endinga
var hafdið i Winnipeg, i kirkju Tjald-
búðarsafnaðar, 20.—23. júní þ. á.
Söfnuðir í kirkjufélaginu eru nú alls
43, og sóttu þingið alls 50erindsrekar trá
söfnuðunuro, 8 prestar, féhirðir félagsins,
og 5 guðfræðisnemar, er starfað hafa að
heimatrúboði fyrir félagið
Á liðna árinu hafði félagið alls varið
öOd1/^ dollara, og unnu að því 6 guð-
fræðisnemar. — í heiðiugja-trúboðssjóði
át-ti félagið 1185 dolla.ra; en ekki er ætl-
ast til, að fé verði veitt úr þeim sjóði,
fyr en árið 1910, á 25 ára afmæli félags-
ins, ef félagið getur þá fengið hæfan ís-
lending til þess st-arfa.
Enn fremur var rætt um skölamál kirkju-
félagsins 0. fl.
Sira Björu B. Jónsson flutti fyrirlest-
ur um „hina postullegu trúarjátningu“,
sira Runblfur Marteinsson um „kristin-
dóminn og skynseminau, og síra FricJrik
Berrjmann um „postullega stefnuskráu.
Ákveðið var, að næsta ár skyldi kirkju-
þingið haldið i Sélkirk.
Ritsímaskeyti
til „Þjóðv.u
KaupmaDnahöfn 3. sept. 1907.
Frá Danmörku.
Húsasmiðir tóku eigi til starfa 2. sept-.,
svo sem félag vinnuveitandanna hafði
krafizt. — Tilraunir enn gerðar, til þess
að miðla málum. svo að komist verði hjá
vinnuteppu. — Lögreglumenn fá ekki
haldið á reglu.
(Sama símskeyti getur þess einnig, að
Pétar Brynjólfsson, Ijósinyndari í Reykja-
vík, hafi hlotið titilinn konunglegur hirð-
ljósmyndari (kgl. Hoffotograf), liklega ept-
ir meðmælum ráðherra íslands. — Senni-
legt er, að ritsimastofan hefði getað flutt
oss einhver merkilegri stórtíðindi, en
þetta).
Frá Hollandi.
Alvarlegt verkfall i Antwerpen.
(Ritsímaskeyti þetta virðist benda á,
að verkfallið í Antwerpen, sem getið var
í síðasta nr. blaðs vors, sé því fremur að
magnast.)