Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 11.09.1907, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 11.09.1907, Blaðsíða 2
170 Þ JÓB VIL.TINN. XXI., 43 Kaupmarmahöfn 5. sept. 1907. Trá Noregi. Tónskáldið Edvard Grieg andaðist i gær 1 Bergen. Danmörk. Yerkfall trésmiða heldur enn áfram, en líkur til þess, að samningar takist. Alexandra, Bretadrottning, og Dagmar, keisaraekkja, eru væntanlegar til Kaup- mannahafnar á morgun, en Georq, Grrikkja- konungur, 7. sept. Trá Maroeeo. Enn er barist í Casablanca. í orustu 3. sept. féllu 7 af Frökkum, en 18 urðu sárir. — Af Marocco-mönnum féll margt manna. Norðurför. Mælt er, að skip Michélsen’s, norður- fara, hafi farizt. — I febrúar lagði Mic- helsen af stað frá skipinu, ásamt tveim fylgdarmönnum, og héldu norður á leið á hundasleðum, og hefir ekkert til þeirra spurzb siðan. — Nokkrir af hundunum eru þó komnir aptur. jiregnir frd alþingi. IX. Þingsályktunartillögu flytnr Þór. Jónsson í efri deild, þar sem skor- að er á stjórnina, að selja þrjár þjóðjarðir, sem kaupsbeiðendum hefir þótt stjórnin halda i of hku verði. Tlutningsmaður vill, að jarðirnari sem allar eru i Húnavatnssýslu, séu seldarmeð þessu verði: Sveinsstaðir fyrir 2700 kr.,Kornsá fyrir 4500 kr., og Brúnastaðir fyrir 2200 kr. Aukning hlutafjár íslandshanka. Við 3. umr. málsins í neðri deild 2. sept., var borin fram breytingartillaga við frumvarpið þess efnis, að noti bankinn heimildina, til að auka blutafó sitt um 2 millj. króna, greiði hann 15°/0 af árlegum arði sínum i landssjóð (í stað 10°/0), eins og arðurinn er, þegar hluthafar hafa fengið 4°/0. Tillaga þessi var felld með 15 atkv. gegn 7. j Prestainálanel'nd neðri deildar lagði það til, að frv. um sölw kirkju- I jarðn, um lán úr lamissjoði til byggingar íbúðar- ' húsa á prestssetrum, um umsjón oq fjárhald kirkna, ! um skyldu presta, til að kaupa ekkjum sínum llf- j eyri, um veiting prestakalla, og um ellistyrk presta j ag eptirlaun, yrðu samþykkt óbreytt, eins og þau komu frá efri deild, eða með óverulegum breyt- ingum. Að því er frv. um skipun sóknarnejnda og her- aðsnefnda snertir, vill nefndin á hinn bóginn breyta því í það horf, að sóknarnefndin hafi inn- heimtu sóknartekna á hendi. Sporhraut milli Skcrjafjarðar og Reykjavíkur. Meiri hluti nefndarinnar í neðri deild í því | máli (Jón í Múla og Stefán kennari) leggur það j til, að leyfið sé veitt. „Höfn í Skerjafirði, og járn- J braut þaðan inn í miðjan höfuðstaðinn“, segir j meiri hlutinn, „og allt til sjávar, hlyti að voru j áliti stórum að bæta úr vandkvæðum þeim hin- J um miklu, sem nú eru á öllum fólks- og vöru- flutningum að og frá bænum á sjó, til stórhag- ræðis og hagnaðar fyrir allan almenning. — Auk þess mundi járnbrautin greiða mjög fyrir flutn- ingi inn í bæinn á grjóti, og öðrum innlendum byggingarefnum, svo sem möl, sandi, leir o. fl., sem nú er bæði dýr og örðugur“. Enlandræmu af Skildingarneslandi, sem félagið „Höfn“ hefur eignazt, vill meirihlutinn, að lögð sé undir lög- sagnarumdæmi Reykjavíkur. Minni hluti nefndarinnar (Guðm. Björnsson) telur allt mæla gegn höfn við Skerjafjörð, inn- siglingu hættu meiri, ísalög o. fl. — Höfn að norðanverðu muni ekki fara fram úr 2 millj. | króna, og ekki nauðsynlegt, að vinna allt verkið í einu; bænum myndi „áskotnast mjög stórt, og afardýrmætt, byggingarsvæði, við það, að fylltar verði grynningar næst landi“. Hækkun alþýðustyrktarsjáðsgjaldsins. Frv. stjórnarinnar um hækkun alþýðustyrkt- arsjóðsgjaldanna þannig, að karlmaður greiði 2 kr., en kvennmaður 1 kr. (í stað þess er karl- menn greiða nú 1 kr., en kvennmenn 30 aur.) ▼ar samþykkt í neðri deild 3. sept. — Tillag landssjóðs til sjóðanna, sem stiórnin hafði ætlazt til að væri 50 aur. fyrir hvern gjaldskyldan mann til sjóðsins, var og hækkað upp i 1 kr. fyrir hvern gjaldskyldan karlmann, og 50 aur. fyrir hvern gjaldskyldan kvennmann. — Gjald- skyldir til sjóðanna, sem nú eru nefndir „öryrkja- sjóðir“ eru allir, karlar og konur, sem eru fullra 18 ára, og ekki yfir 60 kra, nema félausir menn, sem fyrir ómaga, eða ómögum, eiga að sjá, þeir, sem njóta sveitarstyrks, og aðrir, sem ekki geta unnið fyrir sér, vegna veiklunar á sál, eða lík- ama, sem og þeir, er hegningarvinnu sæta. Ritstjóri blaðs þessa vildi hafa alþýðustyrkt- arsjóðsgjaldið óbreytt, sem nú er (1 kr. af karl- manni, en 30 aur. af kvennmanni), taldi það ' mundu verðaalþýðumönnumofþungbært, að gjald- ið væri 2 kr. af karlmanni, en 1 kr. af kvenn- manni; það yrði all-tilfinnanlegur beinn skattur á heimilum, enda hefðu þeir, sem gjaldið ættu að greiða alls enga tryggingu fyrir því, að vei’ða nokkurn tíma nokkurs styrks aðnjótandi. — Um styrkinn ætti að sækja til hreppsnefnda, og myndu þær veita styrkinn gamalmennum, er ella þörfn- uðust sveitarstyiks, og ákvæði frumvarpsins yrðu þvi til þess, að létta á sveitarsjóðunum á þann hátt, að færa nokkuð af gjaldabvrgðinni yfir á einstaklinga, sem nefskatt. — En væri þess að gæta, að aukaútsvörunum væri jafnað niður eptir efnum og ástæðum, þar sem alþýðustyrktarsjóðs- gjaldið hvilir jafnt á öllum. — Hér væriþví verið að létta á efnamönnum með því að leggja bein gj'óld 1 Afátœklingana; þetta væri óeðlileg, og ranglát meginregla. Engu að síður var þó hækkun gjaldsins, sem fyr er getið, samþykkt; en nú er eptir að vita, hvað efri deild gerir. Felld frumvörp. Frv. um löggilding verzlunarstaðar við eystri enda Viðeyar var fellt í neðri deild 30. ág. — Það var þm. Reykvíkinga, Guðm. Björnsson, sem andmælti mjög frumvarpinu, taldi það mundu draga verzlun frá Reykjavík, ekki sízt kola- verzlunina. Frv. um dánarskýrslur, sem áður hefir verið getið í blaði þessu, var og fellt í efri deild 30. ágúst. Lausameun og þurrabúðarmcnii. Nefndin í neðri deild (Jóhannes Ólafsson, Pét- ur Jónsson og Skúli Thoroddsen) vill gera þá broytingu á frumvarpi efri deildar, að öllum, j sem eru 16 ára að aldri, sé heimilt að leysa lausamennskubréf, í stað þess er efri deild ákvað aldurstakmarkið 21 ár. — Að öðru leyti gerir nefndin eigi verulegar breytingar á frumvarpinu. Væntanlega flytur „Þjóðv.“ lesendum sínum ágrip af lögum þessum, sem leyfa, meðal annars, húsmönnum og þurrabúðarmönnum, að setjast að, hvar sem þeir vilja, án þess að þurfa leyfi hreppsnefndar, eða bæjarstjórnar —, þegar málið er leitt til lvkta á þinginu. Kosuingalagufrumvarpið — l'allið. 3. umræða um kosningalagafrumvarp stjórnar- innar fór fram í neðri deild 31. ág. Síra Ólafur Ólafsson bar fram rökstudda dagskrá í þá átt, að skora á stjórnina, að' gefa kjósendum kost á, að kynna sér málið til næsta þings, en tillaga þessi var felld, með 12 atkv. gegn 12, enda virt- ist ráðherranum vera það mjög mikið áhugamál, að málið næði fram að ganga á þinginu. En er rökstudda dagskráin var fallin, urðu úrslit málsins þau, að frumvarpið var fellt, með 12 atkv. gegn 12. Fossa-frumvurpið. Nefnd sú, or neðri deild alþingis skipaði, til • að íhuga stjórnarfrumvarpið um takmörkun á eignar- og umráðarétti á fossum á íslandi, eign- arnám o. fl., lauk eigi störfum sínum, fyr en 30. ág., svo að sýnilegt er, að málið nær ekki fram að ganga á þessu þingi. — Nefndin telur nauð- synlegt, að reistar séu skorður við fossakaupum erlendra manna; en þar sem stjórnin vildi, að allir, sem búsettir eru „í Danaveldi“, gætu keypt fossa hér á landi, vill nefndin, að krafist sé heimilisfangs hér á landi. Frv. um breytingu túngirðingalaganna. — Fellt. Ofan greint frv., er getið var um í síðasta nr. blaðs vors, og efri deild hafði samþykkt, um 100 þús. króna lánveitingu úr viðlagasjóði til gadda- vírskaupa o. fl., var fellt í neðri deild 4. sept., með 11 atkv. gegn 10. Stjðrn landsbúkasafnsins. Nefnd í neðri deild, er fjallaði um stjómarfrum- varpið, varð eigi á eitt mál sátt. — Öll vildi nefndin að vísu, að skipuð væri 5 manna nefnd, landsbókaverði til ráðaneytis við kaup bóka og bandrita, og sitja í henni einn kennari frá hverj- um embættaskólanna, einn kennara hins almenna menntaskóla, og landsskjalavörðurinn. — Að því er launin snertir, féllst meiri hlutinn (síra Þór- hallur og Guðl. Guðm.) á ákvæði frumvarpsins, en minni hlutanum (Sk. Th.) þótti nægja, að hafa laun landsbókavarðar 2400 kr. (í stað 3000 kr.), og fyrri aðstoðarbókavarðar 1200 kr. (ístað 1500 kr.), 'taldi engan hörgul myndu verða á hæfum umsækendjum, þóttlauninværuekkihærri. Meiri hluti deildarinnar samþykkti þó hærri launaupphæðina. Almennur kosningaréttur. Meiri bluti nefndar þeirrar, er efri deild al- þingis skipaði, til þess að ihuga stjórnarfrum- varp þess efnis, að afnema útsvarsskyldu, sem skilyrði fyrir kosningarrétti til alþingis (Guðjón Guðlaugsson og Þór. Jónsson), ræður frá því, að frv. sé samþykkt, þar sem vinnumönnum sé eigi jafnhliða veittur kosningarréttur (en til þess þarf stjórnarskrárbreytingu). , Minni hluti nefndarinnar (Jóhannes Jóhann- esson) vill á hinn bóginn, að frv. þetta, sem neðri deild hefir samþykkt, verði að lögum, tel- ur ranglátt, að binda kosningarréttinn við vissa fjáreign, eða gjaldhæð, og ekki rétt, að fresta þessari rýmkun kosningarréttarins, unz stjórnar- skrár breyting sé samþykkt. Gjiil'asjúður Júns Sigurðssonar t'orseta. Á fundi sameinaðs alþingis 7. sept. kaus a.l- þingi 3 menn, til þess að taka á móti ritgjörð- um, og útbýta verðlaunum úr sjóðnum, ef til kemur. I nefndina voru kosnir: Björn M. Ol- sen, ritstjóri Björn Jönsson og Eir. Briem. — Hlutfallskosning var við höfð. Framkviemdarstjóri söfnunarsjöðsins var á fundi sameinaðs alþingis 7. sept. kosinn Eiríkur Briem, með 31 atkv. Ytirskoðunarinaður landsbankans var kosinn Jón Jakobsson, landsbókavörður, er hlaut 21 atkvæði. Stjórnarandstæðingar kusu alþm. Bj'örn Kristj- ánsson, er hlaut 10 atkvæði. — B. M. Olsen fékk tvö atkvæði, og 2 seðlar voru auðir. Ferðakostnaðarreikninganefnd. Til þess að úrskurða ferðakostnaðar i-eikninga þingmanna voru kosnir, á fundi sameinaðs al- þingis 7. sept.: Guttormur Vígfússon, Guðl. Guð- mundsson, Magnús Stephensen, Olafur Briem og Sig. Stefánsson. Hlutfallskosning var við höfð. Lög', aígreidd aí all>ingi. XXIII. Lög um breytingu á 1. gr. laga 3. okt 1903, um hafnsögugiald í ísafjarð- arkaupstað (Fiskiskip, innlend ogútlend, undanþegin hafnsögugjaldi). XXIV—XXV. Lög um löggilding verzl- unarstaða: að Króksfjarðarnesi í Geira-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.