Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 23.10.1907, Qupperneq 2
194
Þjóðviljinn.
XXI 49.
línunnar, hefir farið yfir þvert Atlants-
haf á 4 sólarhringum 19 kl.st. og 52 mín-
útum. Það er sú fljótasta ferð, þá leið,
eem enn eru dæmi til.
Gufuskip sokkið.
Gufuskipið Oypress sökk i Eystrasalti.
Allir, sem á skipinu voru, 22 alls, fórust.
J árnb r autar slys.
Járnbrautarlest til Bristol hljóp út af
sporinu í nótt. Þar létust 16 menn, en
margir hlutu meiðsli.
K.höfn 17/10 kl. 320 e. h.
Nýtt verzlunarfólag.
Út af fregnum, sem borizt hafa um
stórt verzlunarfélagsfyrirtæki á Suðui- og
'Vesturlandi, með Copeland og Berry að
bakhjalli, skýrir Dannebrog frá, að reynt
sé að bægja erlendu fjármagni frá þessu
fyrirtæki, er enn sé í reifum.
Frá Bandaríkjunum.
Frá New-York er símað um mikla púð-
ursprengingu, í Fortanet í Indiana, og hafi
16 menn beðið bana, 600 meiðst og 1200
orðið húsvilltir.
Yerzlunarfréítir.
Eptir skýrslu frá verzlunarerindsreka
í Kaupmannahöfn, dags. 5. sept. síðastl.,
eru söluhorfur á íslenzkum varningi, sem
hér segir:
Saltflsknr er í liku verði, sem áður: mal-
fiskur á 75 kr., smáfiskur á 65 kr., og ísa á
55VS kr.; sennilegt þykir, að fiskur hækki
nokkuð í verði, er fram á haustíð líður,
ekki sízt falleg ísa. —
LýSÍ. Þurskaíysi á 33—35 kr. tn., há-
liarlslyd á 35—36 kr., og séllýsi á 35 kr.
Snidmagi á 82V2 eyri pd. —
SÍld, Yerðið mismunandi eptir gæðum.
S'tór síld, átufrí, er þolir geymslu, um 17
kr. tn., eða 20 aur. kíló (2 pd.); en lak-
ari sí!d, er eigi þolir geymslu, hefir seizt
á 7—12 kr. — Milli-síld\ Eptir henni hef-
ir verið mikil eptirspurn, og er hún í
háu verði, allt að 40 kr. tn., sé hún góð,
og hæfiiega stór. —
öll, Nokkuð af sunnlenzkri ull hefir I
selzt á 85 aura pd., vestfirzk á 88 aur., |
og norðlenzk (úr Húnavatns- og Skaga- |
fjarðarsýslum) á 90 aur. pd. — Mislituli
hefir selzi á 70 aura. Svo nefnd „prírna,
norðlenzk ull" er óseld, en líklegt taiið, :
að hún seljist á 96 aura. —
T.íllliilSlnilH: einlifc á 60 aur., mislit á 30
aur., en gölluð lambskinn á 15 aura.
Prjónles, Gráir alsokkar á 90 aur., hvit-
ir á 85 aur. —Gráir hálfsokkar á 70 aur.,
en hvítir á 60 aura. — Sjóvetlingar á 42
aur. parið. —
Salttjít. Fyrir vanalegt saltkjöt er hæzta
verð 58 kr. fyrir tunnuna (224 pd), en
61 kr. f’yrir iinsaltað dilkakjöt. — Kjötið
á að vera gott, og stórhöggvið. — Talið
liklegt, að verðið lækki, ef rnikið berst á
markaðinn. —
Söltuð lærí á 34 aur. pd. —
RlíllllDÍlSIir á 50 aur. pd.
Saltaðar gærdr. Verðið verður að líkind-
um 7 kr. 50 a. vöndullinn, rniðað við 16
punda þyngd.
Fyrirhuga^ar lánveitingar úr landsjóði.
Fjárlögin gera ráð fyrir að veita megi
ýms lán úr landssjóði á næstk. fjárhags-
tímabili og eru þau þessi:
1. Til stofnunar mjblkurbúa 10 þús. kr.,
gegn ábyrgð sveita-, sýslu- eða amts-
félaga, og eptir meðmælum búnaðarfé-
lags Islands. — Lánin ávaxtist með
3°/0) sé afborgunarlaust fyrstu 5 árin,
og endurgreiðist síðan á 15 árum.
2. Til þurrabúðarmanna, utan kaupstaða,
til jarðræktar og húsabóta, 10 þús. kr.
gegn ábyrgð sýslufólaga, eptir tillögum
hreppsnefnda, og (eigi hærri upphæð,
en 400 kr. fyrir þurrabúðarmann hvern.
3. Til bryggju frá Torfanefi á Oddeyri, sem
veitt geti skipum vetrarlegu i Oddeyr-
arbót, allt að 40 þús. kr. gegn ábyrgð
Akureyrarkaupstaðar. Lánið ávaxtist
með 4°/0, sé afborgunarlauot 5 fyrstu
árin, og endurgreiðist á næstu 15 árum.
4. Sýslufélögum má veita allt að 60 þús.
kr. lán til landsímalayninga, og ávaxtist
með 4°/0, og endurborgist á 18 árum.
5. Til stórskipabryggju í Stykkishólmi rná
lána 10. þús, kr., gegn ábyrgð hrepps-
nefndar í Stykkishólmslirepps, og ,,fram-
farasjóðs Sty^kkishólms11. Lánið ávaxt-
ist með 4°/0, sé afborgunarlaust fyrstu
5 árin, og borgist síðan á 15 árum.
6. Stórkaupmanni 7hor. E. Tulinius veittur
ur gjaldfrestur á 9449 kr. 09 a., sem
hann skuldar fyrir staura o. fl. til
sima milli Eskifjarðar og Egilsstaða,
gegn tryggingu í línunni. — Lánið
greiðist á 15 árum, og ávaxtast með 4%.
7. Verksmiðjunni ^lðunni" veittur gjald-
frestur um næstu 5 ár á láni hennar
úr viðlagasjóði.
Því miður mun hæpið, að viðlagasjóð-
ur geti veitt öll þessi lán, er til keniur,
eins og fjárhagnum er háttað.
Bæjarsímakerfin
á Akureyri, og í Seyðisfjarðarkaupstað,
er gert ráð fyrir, að landssjóður kaupi á
næsta ári, og komi einnig á stofn tal-
símakerfi í Isafjarðarkaupstað.
I þessu skymi voru á fjárlögunum
veittar alls 34 þús. króna.
Fjárveitingar til landsímalagninga.
Á fjárlögunum eru til nýrra landsíma
veittar þessar fjárupphæðir:
1. Tilsíma-álmufrá llrútufirði,
um Steingrimsfjörð, til Isa-
fjarðar................... 142,200 kr.
2. Til talsíma frá Vatneyri til
Isafjarðar, auk 20 þús. króna,
sem Vestur-Barðstrending-
um og Vestur-Istirðingum
er ætlað að legg|a fram . 68,500 kr.
3. Til landsíma frá Grund (eða
Varmalæk) til Borgarness
árið 1909, auk 4,400 kr. frá
hlutaðeigandi héruðum . . 8,800 kr.
4. Til talsíma frá Hafnarfirði
til Keflavíkur, auk 7 þús.
króna frá héraðinu . . . 14,000 kr.
Enn frernur til þess að
komasímaþessum tilB-eykja
-----~~ - . —:-----1 ------------
víkur, eða kaupa, og endur-
bæta, talsímann milli Hafn-
arfjarðar og Reykjavikur .
5. Til talsíma frá íteykjavík að
Eystri-Grarðsauka, auk 12
þús. króna frá Arnesingum
og 8 þús. króna frá B,ang
vellingum...................
6' Til talsíma frá Breiðumýri
til Húsavíkur árið 1909 auk
7 þús. króna frá hóraðinu .
j 7. Til talsima milli Fáskrúðs-
j fjarðar og Beyðarfjarðar árið
! 1909, auk 6 þús. króna frá
j héraðinu.......................
Á fjáraukalögunum fyrir árin 1906 og
i 1907 eru enn fremur veittar til staura-
| kaupa: til linunnar frá Borðeyri til ísa-
i fjarðar 41250 kr., frá ísafirði tilVatneyr-
j ar 15 þús. króna, og til linunnar fráBeykja-
I vik til Eystri-Garðsauka 15 þús., sem og
j 6750 kr. til varastaura.
í fjáraukalögunum eru og veittar alls
i 36575 kr. til sórstaks ritsíma á linunum
í frá Seyðisfirði til Akureyrar, og frá Sauð-
I árkrók til Akureyrar, með hliðarspottum
! til Dalvikur og Hjalteyrar.
Til að rannsaka nýjar símaleiðir, og
| setja á fót nýjar stöðvar, eru í fjárauka-
lögunum veittar 4 þús. króna, en á fjár-
I lögunum alls 17,500 kr;
Úr Jökulljörðum (í Norður-ísafjarðarsýslu)
eru helztu tíðindi 8. okt. þ. k.: „Heyskapur
varð hór almennt í meðal-lagi, enda ])ótt hann
gengi seint, með því að siðsprottið var. — Haust-
róðrar hyrjuðu um iniðjan sept., og hefir siðan
verið dágóður afli, og skolfiskur notaður til beitu,
með því að smokkfiskur aflaðist enginn, þótt vel
væri um hann í ísafjarðardjúpi. — Odland, hval-
veiðamaður á Hesteyri, veiddi alls 90 hvali.
í norðanhretinu 3.—B. okt. fennti fé á nokkr-
um hæjum, en ófrétt enn, hvað margt hefir
drepizt11.
Frá Ísaíirði
er „Þjóðv.“ ritað 12. okt. þ. á.: „Norðanhret,
með brimróti, og all-mikilli fannfergju, gerði
hér 3.—5. okt. — í hreti þessu sleit upp mótor-
hát á Hnífsdalsvík, eign Hálfdáns Hálfdánssonar
í Búð, og brotnaði hann i mél. — Á Skötufirði
sökk og mótorbátur, sem Bjarni kaupmaður Sig-
urðsson á ísafirði átti, og annar mótorbátur brotn-
aði nokkuð.
Haustróðrar lítt stundaðir enn, meðfram sak-
ir gæftaleysis, en nokkur fiskreita í Bolungar-
vík á haldfæri (4—6 kr. hlutir á dag), er ró-
ið er.
Ouðrn. skáld Quðmundsson er nú ráðinn sýslu-
skrifari hjá Magnúsi sýslumanni Torfasyniíl.
Skipstrand.
Selveiðaskip frá Tromso, „Fridtjöf“ að nafni,
bilaði í ís á leið rttilli Jan Meyen og Langaness.
15 menn fórust, en einn komst af.
Forstöðuinaður
Eiðaskóla er ráðinn Bergur Helgason. Fyrver-
andi forstöðumaðurinn, Benedilct Kristjánsson, hefir
sagt af sér, þar eð hann er skipaður ráðanautur
Búnaðarsamhands Austurlands.
j- Nýlátinn er Sigurður Hallgrímsson, frá
Hrafnsgerði, í Múlasýslu. Hann drukknaði í
Grimsá á Héraði.
Húsbruni.
Bærinn Sogn í Ölfusi brann til kaldra kola,
12. þ. m.
Mannbjörg varð, með naumindum, engum
innanstokksmunum varð bjargað. Bóndinn, sem
fyrir skaðanum varð, heitir Ögmundur Ógmunds-
son, og er það tilfinnanlegt tjón, þar sem bær-
inn var nýreistur, on óvátryggður.
5,000 kr.
48,433 kr.
14,000 kr.
12,000 kr.