Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.05.1908, Page 2
98
f> J Ó £> V L J 1 N .
XXII., 25.
f 24. apríl þ. á. andaðist prófessor
Poul la Cour, kennari við lýðháskólann í
Askov, fæddur 18. apríl 1846. -- Munu
ýmsir íslondingar, ekki sízt þeir, er nám
hafa stundað á Askov, kannast við nafn
hans
A þingi Dana hefir nú stjórnarflokk-
urinn komið sér saman við „moderata“
og „frikonservatíva“, að því er toll-laga-
frurnvarpið snertir, og nær það því sam-
þykki þingsins.
Látinn er nýskeð Herman Fr. Ewald,
prófessor, fæddur 13. des. 1821, nafnkunn-
ur skáldsagnahöíundur. — Hann var faðir
Carls Ewalds, skáldsagnahöfundar, er and-
aðist á síðastl. vetri. — — —
Noregur. Játvarðitr Breta konungur,
og Alexandra, drottning hans, sem voru
í kynnisför hjá Hákoni, konungi, lögðu
af stað þaðan heimleiðis 2. maí, og er í
ráði, að Alexandra, drottning, heimsæki
konungshjónin í Noregi aptur siðar í
sumar.
EpLir tillögu norska dómsmálaráðherr-
ans, hefir Hákon konungur nýlega fallizt á
það, að embættismenn í Noregi hætti að
bera einkenningsbúning, nema lögreglu-
þjónar, og dómarar við leikmannadómana.
Svíþjóð. í rikisþingi Svía hefir verið
borin fram tillaga þess efnis, að veita
sveitarfélögum, og einstökum mönnum,
5 millj. króna lán á næstn 5 árum til að
koma á fót berklaveikishælum.
Frumvarp um kosningarrétt kvenna
var fellt á þinginu.
Vilhjálmur prinz, næst elzti sonur fínst-
afs konungs, kvæntist í Pétursborg 2. maí
Maríu Pautowmi, dóttur Páls stórfursta.
— Hún er dóttur-dóttir Georgs, (Irikkja
konungs, og fær Yilhjálmur prinz með
henni, sem heimarimund, 3,5C0,C00 rúblur.
A 8Íðustu sjö árum hafa alls verið '
greiddar 55,435 kr., sem verðlaun fyrir j
völsku-dráp, enda alls verið veiddar 1
714,274 rottur.
Aðfaranóttina 2. mai urðu ryskingar j
milli stúdenta og ýmsra borgarar í Lundi.
— Skárust lögreglurnenn í leikinn og
eegja stúdentar þá hafa brugðið sverðuuj,
og urðu ýmsir stúdentar sárir.
Játvarður konungur, og Alexandra,
drottning hans, heimsóttu Gustaf konung
26. apríl. — — —
Bretland. I baðstaðnum Bournemouth
valt rafmagnssporvagn nýlega ofan hæð
nokkra, og biðu 7 menn bana, en 8 hlutu
meiðsli.
Síðustu dagana i april gengu rigu-
ingar mikiar í Englandi, og hlupu vatna-
vextir miklir í ána Thames ofarlega, svo
að þeir, sem í grennd bjuggu, urðu að
fiýja hús sín á bátum.
2. maí voru 15 þús. trésmiða, er starfa
á skipasmíðastöðvum, sviptir atvinnu, með
þvi að ýmsir þeirra vildu eigi ganga að
skilyrðum vinnuveitanda.
25. apríl gekk svo afskaplegur storm-
ur á Englandi, að iíkt veður hefir eigi
komið þar, síðan 1881. — Féil þá og 8
þutnl. djúpur snjór.
Nýi verzlunarmálaráðherrann Winston !
ChurchUl beið nýÍ9ga ósigur við þing-
kosningar í Manchester, en hefir nú verið
boðin kosning í borginni Dundee.
Herskipið „Gladíator“ rakst nýlega á
flutningagufuskip í grennd við eyjuna
Wight, og er mælt, að 35 menn hafi
drukknað.
Eins og „Þjóðv.“ mun þegar hafa
getið um, andaðist CampheU-Bannerman,
fyrrum forsætisráðherra Breta, 22. apríl
síðastl. kl. 9*/4 f. h. — Hafði hann erft
miklar eignir eptir föður sinn, er var
borgmeistari i Grlasgow, og síðar eptir
Henry Bannerman, móðurföður sirm, og
tók hann sér nafn hans, eptir ósk hans.
— Hann var í fyrsta skipti kjörinn þing-
maður 1868, og var opt ráðherra í ráða-
neytum Gladstone’s. Foringi frjálslynda
flokksins varð hann 1899, og forsætis-
ráðherra 10. des. 1905. — Hann fékk slag
á fundi, er haldinn var i Bristol 13. nóv.
siðastl., og fékk lausn frá embætti 5. apríl
þ. á., er eigi þótti lengur nein batavo-n.
Frakkland. Bæjarstjórnin í Toulouse
þykir orðin uppvís að því, að hafa dregið
sér ali-mikið fé úr bæjarsjóði, og verður
því höfðað mál gegn henni. — Jafnaðar-
menn liafa haft þar öll ráðin síðustu tvö
árin.
Nýlega var tekinn fastur maður, er
var á leið til Þýzkalands, með því að í
vörzlum hans fundust uppdrættir af köstul-
unum við" Belfort, og telja menn líklegt,
að hann hafi ætlað sér, að selja Þjóðverj-
um uppdrættÍDa.
Fallié) es, iýðveldisforseti, ætlar að bregða
sér tii Lundúna 25. maí, og vera þar við-
staddur, er „olympisku leikirnir“ hefjast.
Þýzkaland. „Automobíl“-brautarvagn
vait um koll í Berlín 20 apríi, og hlutu
9 menn mjög mikil meiðsli.
ý Látinn er nýlega sagnfræðingurinn
Iheodor von Sickel, fæddur 1826.
í þýzkum blöðum er þess getið, að
Walter Wiltman hafi í huga nýja norður-
för, eða tilraun, til að komast til norður-
heimskautsÍDS, árið 1909.
ý LátÍDn er nýlega Schönaich Carolaih,
prinz, eitt af beztu ijóðskáldum Þjóðverja.
— Hann var fæddur í Breslau 1852. —
Rússland. Áin Oka flóði um 20. april
j j'fir bakka sína, og olli miklu tjóni. —
Stóðu 900 hús í Orel undir vatni, um
350 í Suiolensk, og um 3000 i Moskva. —
Mikið af fénaði fórst, og yfirieitt hafa
mikii bágindi staíað af vatnavöxtum þess-
um. — Nefndir hafa því víða verið skip-
aðar, til þess að hjálpa þeim, er fyrir
skaða hafa orðið.
f Látina er ný skeð Lenewitsch hers-
höfðingi, er var yfirhersböfðingi rússDeska
hersins í Mandsjúríinu, er Rússar áttu i
ófríðinum við Japana.
I borgirmi Lublin var nýlega n'yrtur
hermaður, og tveir iögregluþjónar, og
einn iögregluþjónn varð sár. — Margir
menn hafa verið teknir fastir, um 300;
en morðingjarnir náðust þó ekki. — Mik-
ið af skotfærum, og spreDgiefnum, kvað
hafa verið gjört upptækt.
Mælt er, að uppvíst sé orðið, að ýmsir
embættismenn, er önnuðust um kaup á
vistum, og ýmsum herbúnaði, í ófriði
Rússa og Japana, hafi dregið sér ólög-
lega fé úr ríkissjóði, Rússa, er nemur alls
um 100 millj. rúblna.
Sagt er, að fulltrúar Póiverja í rúss-
neskaríkisþinginu muni leggja niður þing-
mennsku, með því, að þeir geti ekkert á-
unnið Póilandi til hagnaðar.
AðfaraDÓttina 25. apríl brann stál-
smiðaverksmiðja í Pétursborg. — Yerk-
smiðja þessi var eign ríkisins, og er skað-
inn met-inn 5—7 miilj. rúblna.
1 borginDÍ Lodz réðú byltingamenn
þrem hermönnum bana 26. apríl.
I grennd við Hrmía hafa Kurdar ný-
lega rænt ýms þorp, og kveikt í húsun-
um. — Drepið hafa þeir og mörg hundruð
manna. — — —
Portugal. I Lissabon voru nýíega
teknir fastir sjö stjórnleysingjar, sem sagt
er, að hafi ætlað sér að myrða Manuel
konung, er hann færi til þinghússins. —
Spánn. 6 bómullarverksmiðjur í Barcel-
ona og þar í grenndinni, hafa orðið gjald-
þrota, og nema skuldir þeirra alis um 18
millj. króna. — Hafa gjaldþrot þessi bak-
að bönkum á Spáni mikið óhagræði, og
fjártjón. — — —
Ítalía. Nasí, fyrrum kennslumálaráð-
herra, hefir verið endurkosinn þingmað-
ur í Trapaní á Sikiley, með 2691 atkv.,
þrátt fyrir dóm þann, er kveðinn var upp
nýskeð, og dæmdi hann sekan um ó-
hlutvanda meðferð ríkisfjár. — Tvö önn-
ur þingmaDnaefni, er buðu sig fram í
kjördæminu, hlutu að eins samtals 581
atkv.
EDdfjallið Etna á Sikiley er að gjósa,
og öskufall mikið í borginni Cataniu. —
Jarðskjálftar hafa og verið öðru hvoru.
20 þús. verkmanna í grennd við Parma,
er starfað hafa að landvinr.u, og fénaðar-
hirðingu, hjá bændum, hafa gjört verk-
fall. — Bændur hafa því viljað koma skep-
um sínum fyrir anDars staðar, en verk-
fallsmenn reynt að aptra því, og jafn vel
gjört tilraunir til þess, að koma sýkÍDg-
arefni í skepnur. — — —
Tyrkland. Á landamærum Kákasus
og Litlu-Asíu hafa Armeningar, og gyð-
ingar, verið drepnir hrönnum saman, og
hafa því margar þúsundir manna flúið
úr héruðum þessum til Jelissawetpol, og
annara rús9neskra borga. — — —
Bandaríkin. 1. maí réðu ræningjar á
járnbrautarlest, sem fer milii New-York
og St. Louis, bundu brautarþjónana, og
rændu 4 ijeDÍngapokum.
Seint í apríl olli hvirfilbylur miklu
tjóni í suð- og suðvestanverðum Banda-
rík jum, og kvað nokkur þorp liafa hruDÍð
og 10 menn beðið barra. — í Richland
í Louisíana biðu og 4 menn bana, en um
100 hlutu meiðsli.
19. npríl hvolfdi eimskipinu „Maríon“
frá Arkansas, og biðu 15 menn bana.
24. apríl gengu ákafir stormar yfir
suðurríkin, og er mælt, að í borginni
Mississippi hafi 300 beðið bana, en um
um 1000 hlotið meiðsli. — lýmsumöðr-
um borgum beið og fjöldi manna bana,