Alþýðublaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 3
VIÐTAL VIÐ GUÐMUND KÆRNESTED RÁN, flugvél Land- hélgisgæzlunnar kom úr einhverri lengstu ferð sinni um kl. 10 í gær- kvöldi, en þá hafði flug- vélin verið í 12 tíma ferð. Hafði vélin aðeins setzt snöggvast á Akureyri til þess að taka benzín. Þe.gar flugvélin settist á Reykjavíkurflugvelli voru þar fyrir blaðamenn frá Alþýðu- blaðinu til þess að hafa tal af skipherranum Guðmundi Kjær- nested um hina sögulegu ferð. Ekkert enn frá opin- berri hálfu Alþýýðublaðið spurðist fyrir um álit utanríkis- ráðuneytisins í gærkvöldi um átökin á Grímseyjar- sundi milli varðskipsins Þór og brezka herskipsins Duncan. Talsmaður utanríkis- ráðuneytisins kvað ekki hægt að láta neitt opinber lega fara frá ráðuneytinu um málið fyrr en það hefði verið athugað nánar. Alþýðublaðið hafði enn fremur samband við for- mælanda brezka sendi- ráðsins um málið. Hann svaraði því einnig til, að ekki væri hægt að segja neitt um málið, fyrr en það hefði verið athugað gaumgæfilega af réttum aðilum. - bjó- Bretinn mótmælti. Guðmundur sagði, að hann hefði mælt brezka togarann Northern Queen GY-124, tvær mílur íýrir innan 12 mílna mörki'n um kl. 14.30 í gær. Var það norðvestur af Grímsey. Hafði Guðmundur samband við skipstjórann á togaranum og skýrði honum frá því, að hann væri að veiðum í landhelgi ea brezki skipstjórinn mót- mælti. Það er undarlegt sagði Guðmundur, að Bretarnir skuli' inótmæla þvi, að þeir séu að veiðum í landhelgi, þar eð venju lega segja þeir að þeir séu í full um rétti að veiðum þar. Þórsmenn um borð. ekki sáum við hvort þeir voru vopnaðir. Báturinn fór margar ferðir með brezka sjóliða um borð í togarann og mun hafa sett allt að 20 manns um borð. Ekki' kom til neinna átaka um borð. Eftir nokkurt þóf fóru her skipsmenn með Þórsmenn um borð í Þór aftur. 13 togarar í landhelginni. Guðmundur sagði, að á svip- uðurn slóðum og Northern Queen var á hefðu verið 12 aðr- ir togarar að veiðum. Hefðu því verið þarna 13 togararað veiðum í landhelgi. Alþýðublaðið spurði Guðmund hvort herskipið hefði ekkert skipt sér af forezku tog- urunum, er þarna voru að veið- um í landhelgi. Sagði ‘hann, að svo hefði ekki verið og virti'st sem brezku herskipin hefðu nú tekið upp þá aðferð að látast ekki sjá landehlgisibrot togar- anna. En eins og menn muna skipuðu herskipin forezku tog- urunum út fyrir 12 míhaa mörk- in fýrst eftir að brezkir togara- eigendur ákváðu að halda tog- urum sínum fyrir utan mörkin í 3 mánuði. Sagði Guðmundur, að nú væru herskipin steinhætt að gefa slíkar fyrirski'panir. Svo virðist því sem nú fari í gamla farið aftur. — Bj. G. ÞRÍR B'ILAR í ELDI MIKIÐ tjón varð af völdum elds í fyrrinótt í áklæðisdeild | Bílasmiðjunnar h.f. að Lauga- vegi 176. Brann deildin öll að innan og ennfremur urðu mikl- ar skemmdir á þrem bílum sem þar voru. ! Maður nokkur sagði slökkvi- liðinu um klukkan 4.30 í fyrri- nótt, að mikill reykur væri í húsi Bílasmiðjunnar h.f. Slökkviliðið fór þegar á vett- vang og var þá mikill eldur og reykur í áklæðisdeildinni. Tókst að hindra, að eldurinn kæmist í fleiri deildir. Þarna voru þrjár nýlegar bifreiðir, sem verið var að vinna við. Nýlendur Studeba- kerbíll, R-11120, mun nær ó- nýtur eftir brunann og mun verst farinn. Þá skemmdist mikið bíll Ólafs Jóhannssonar, læknis, sem er af Chevrolet- gerð, R-5412. Minnst skemmd- ist bíllinn R-4326, sem er eign Guðna Þórðarsonar. Slökkvistarfinu lauk um klukkan 6 um morguninn. Myndin sýnir bílana eftir brunann. Guðmundur kvaðst þegar íhafa haft samband við varðskip ið Þór, er var statt þarna skammt frá. Fór Þór þegar á vettvang. Kl. 15.30 var Þór kom inn að togaranum og sendi mannaðan bát að honum. Það var ekki dónalegur bátur, er þeir Þórsmenn höíðu til um- ráða. Yar það hraðbáturinn Eld- ing, eitt si'nn eign Flugmála- stjórnarinnar en báturinn hafði verið á svipuðum slóðum og Þór og var þegar fús til að leggja í oruþtuna við Bretaim. Þcirs- menn voru snöggir að fara um foorð í brezka togarann og Bret- arnir sýndu engan mótlþróa. — Voru togaramenn að hífa í ró- legheitum á meðan, sagði Guð- mundur. En Þórsmenn réðu ekki lengi ríkjum um borð í Northern Queen, þar eð hálf- tíma síðar var brezka herskip- ið Duncan komið á vettvang. Ife , A 25 milna hraða. Duncan var um 3 mílur frá okkur, sagði Guðmundur, þegar Þór setti menn um borð. En 'herskipið kom íbrunandi á 25 mílna hraða á (klukkustund) og var komið að Northern Queen eftir 20-30 mínútur. Skipti' það engum togum, að herskipið setti út bát með mönnum. Sumir mannanna voru með fojálma en HWWWWW%WMWWMWWMMMWWW»MW»W»«MWIWMWMWWWWWW»%WWWiM*WiMiMiWlWWWMt»WIWWMiWWWWWWWWWWWW»Mi ÞAÐ ER AÐEINS EITT HAB! [ Sex bíla happdrætti Aiþýðublaðsins - Dregið 7. júlí % 5 S i iWWWMWWVWWWMWWVMWMMWHWtWMWVWWVWtWWWa iVVWnWWWWWVVWVWWWWWWWUWVWAWWWVlWWWWWWW Alþýðublaðið — 29. júní 1960 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.