Alþýðublaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 29.06.1960, Blaðsíða 11
 IÍÍ5 ■:ilp il| iisiiliiií |§|1I|11|I|1| iiii .... .. • :•••••.••::•.•.•. ::: •;•.••;•.: •:•:.•.• •••.• .:••.• . -i' 'ip:;- ÍÍ;;Í WmamMmSm; Sundfólkið gerir víðreist í GÆRMORGUN f óru Hraf n- fcildur Guðmundsdótti'r og Guð mundur Gíslason ásamt Jónasi Halldórssyni þjálfara áleiðis til Noregs. Hrafnhildur á að taka jþátt í Norðurlandameistaramóti Danskur stökkvari í Reykjavík í GÆR kom við hér í Rvík á leið frá Bandaríkjunum til Khafnar danski stang- arstökkvarinn Björn An- dersen^ en hann hefur dvalið við nám í háskólan- um í Maryland síðan haustið 1957, en það sum- ar keppti hann í lang stökki og stöng í Reykja- vík. Fréttamaður íþrótta- síðunnar brá sér út á veit- ingstofu Loftleiða, en þar sat Andersen að snæðingi. Hann lét vel yfr sér og spurði strax um Þorláks- son, hvort hann væri góð- ur nú — ég býst við að keppa við hann í Osló 20. júlí, sagði Andersen og brosti. Við skýrðum hon- um frá því, að Valbjörn hefði stokkið 4,40 m og væri líklegur til meiri !af- reka. Það er ágætt, sagði Andersen, ég hef stokkið 4,42 m utanhúss í vor og 4,45 inni í vetur og býst einnig við að bæta mig, svo að keppnin ætti að geta orðið skemmtileg milii okkar. Anderson sagðist hafa æft mikið með bandaríska st'angarstökkvaranum Mel Schwarz, sem varð annar á bandaríska meistaramót- inu nú um heigina með 4,59 m. Hann ætlar að dvelja í Kaupmannahöfn í sumar og sagðist vonast til að komast til Rómar. — Fyrsta keppni hans hér í Evrópu í sumar verður í Kaupm-höfn 7. júlí nk. unglinga, sem fram fer í Gjövik en sá bær er um 100 km ftá Os- ló. Hrafnhildur keppir í 100 m skriðsundi og 200 m bringu- sundi' í Gjövik. Dagana 5. og 6. júlí fer svo fram stórmót í Osló tilefni 50 ára afmælis norska sundsam- bandsins og þar keppa Hrafn- hildur, Guðmundur og Sigurður Sigurðsson frá Akranesi, en hann mun koma beint frá Ro- stock í A-Þýzkálandi, þar sem hann tekur jþát't í aliþjóðlegu Ft'amhald á 2. síðu. Þ E S S I M Y N D var tek in af Jóni Péturssyni á EÓP-mótinu í vor, en þá var hann mjög nálægt því að stökkva yfir 2 metra. — Sumir hérlendir frjálsí- þróttaunnendur eru nú komnir á þá skoðun, að Jón gæti jafnvel náð ennþá eftirtektarverðari árangri í tugþraut og gaman væri að sjá hann keppa í þeirri erf- iðu grein. Awwwvwwwwmwvvww KR-mótib FRJALSIÞROTTAMOT KR, sem fresta varð á fimmtudag- inn var vegna óhagstæðs veðurs fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld og hefst kl. 8,30. Flestir beztu frjálsíþrótta- menn l'andsins taka þátt í mót- inu, en keppt verður í eftirtöld um greinum: spjótkasti, stang- arstökki, langstökki, kúluvarpi, 100 m. haulpi, 400 m. hlaupi, 1500 m. hlaupi, 400 m. grinda- hlaupi, 100 m. hlaupi sveina og 1000 m boðhlaupi. leikur Eng- taseP lendinga 7. júlí EINS og skýrt var frá á íþróítasíðunni í gær eru vænt- anlegir hingað til lands þrír af þekktustu knattspyrnumönnum Englands í boði Akraness. Þeir leika aliir með Arsenal og munu taka þátt í nokkrum leikjum hér í liði Akurnesinga, en sá fyrsti fer fram gegn íslands- meisturunum KR 7. júlí n. k. Þetta má telja miklnn knatt- spyrnuviðburð. Eftirtaldir leikmenn koma hingað; JACK KELSEY markvörður er frægastur þessara kappa. — Hann hefur leikið um 30 lands- leiki með Wales og einn leik með Stóra-Bretlandi gegn úr- vali frá meginlandi Evrópu. — Keisey er talinn einn af beztu markvörðum heimsins og lék' t. d. í marki Wales í heimsmeist- arakeppninni í S'víþjóð 1958. BILL DODGIN er miðframv. Arsenal. Hann er ekki fljótur leikmaður, en tekniskur og ör- uggur. Faðir Dodgins lék með Fulham á sínum tíma og sonur- inn byrjaði með því félagi, en var keyptur til Arsenal. DANNY CLAPTON er hægri útherjt Arsenal. Hann lék í landsliði Englands í fyrra. Ilann er mjög fljótur og skemmtileg- ur leikmaður. Hvað getur Jón Pét ursson í tugþraut? MARGIR frjálsíþróttaunnend ur eru nú farnir að velta því lýrir sér hvað Jón Pétursson há- stökkvari gæti fengið mörg stig í tugþraut, en hann er ahtaf að koma á óvart í ýmsum greinum. Á föstudaginn tók Jón þátt í ■kringlukasti og langstökki í- þróttavikunnar, en meðal and- stæðinga hans í kringlukasti var Friðrik Guðmundsson. Jón sigr- aði með 47,94 m kasti, sem er hans langbezti árangur og mjög gott afrek. Friðrik kastaði 47,89 m. í langstö'kkinu var Jón sér- staklega óheppinn. Hann stökk þrívegis og öll stökkin voru hár- fínt ógi'ld, en það lengsta mæld- ist 7 metra slétta. í fyrradag reyndi hann svo aftur við lang- stökkið og náði þá 6,80 m. Eins og flestir vita er Jón á- gætur kúluvarpari, hefur kast- að tæpa 15 metra og ekki þarf að spyrja um hástökkið. Maður, sem stekkur eins langt og Jón, hlýtur að geta hlaupið 100 m á a. m. k. 11,5 sek. Árangur hans í 400 og 1500 m munu geta orðið allgóður, því að það voru þær greinar, sem hann 'hóf fyrst •æfingar og keppni í. Þá eru að vísu efti'r þrjár erfiðar greinar, I R - ingurinn Valgarður Sigurðsson dvelur nú við nám í Kaupmannahöfn og æfir þar af fullum krafti. Ilann hefur keppt þrisvar sinnum í stangarstökki og náð 3,80 — 3,85 — 3,90 og 3,80 m. Er hann því með næstbezta árangur íslend- ings á þessu sumri í stang- arstökki. stangarstökk, 110 m grinda- hlaup og spjótkast. Ekki er gott að segja hvað Jón getur í þess um greinum, en stöngin og spjct kastið hlýtur þó að vera sæmi- legt. Það er enginn vafi á því að gaman yrði að sjá þá saman i tugþraut, Björgvin Hólm, Pétur Rögnvaldsson og Jón Pétursson og vonandi verður slí'kri keppni komið á í næsta mánuði. Iþróttafrétti r. í STUTTU MÁLI POLVERJINN Krzyszkowiak setti heimsmet í 3000 m. hindr- unarhlaupi um helgina hljóp á 8:31,4 mín. Annar í hlaupina var Rússinn Sokolov, 8:32,4 mín., sem er rússneskt met. — Mótið fór fram í Tula í Rússlandi. Gamla heimsmetið átti Pólverjinn Chromik, 8:32,0 JAPANSKI sundmaðurinn Yamanaka setti japanskt met í 100 m. skriðsundi á sunnudag- inn, 56,0 sek. Hans gamla met var 56,4 sek. BARTENJEV hefur sett rúss- neskt met í 100 m. hlaupi, náði 10,2 í Kiev á sunnudag. Ganila metið átti Sukahrev, 10,3 sek. ERIK UDDEBOM setti sænskt og Norðurlandamet í kúluvarpi á móti í Stokkhólmi um helgina, kastaði 17,16 m. Pettersson stökk 2,10 m. VALKAMA stökk 7,65 m. og Manninen 7,61 m. í langstökki á móti í Helsingfors á sunnudag- inn. Alþýðublaðið — 29. júní 1960 \\

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.