Alþýðublaðið - 29.06.1960, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 29.06.1960, Qupperneq 14
Minningarorö Framhald af 13. síðu. var Helga bókhneigð mjög og las allt er hún mátti, einkum þjóðlegan fróðleik og það, sem að ættfræði laut, á henni hafði hún mikinn áhuga og vissi furðu mikið um ættir í Suður-Þingevjarsýslu. Á efri árum eignaðist hún mikið af ágætum bókum, er hún las með mikilli kostgæfni og jafn- an hafði hún yndi af að ræða um bækur við mig, þegar fundum okkar bar saman og hún hafði lesið eitthvað nýlega, sem tók hug hennar fanginn. Helga var sérlega félags- lvnd og mannblendin. Hafði yndi af að blanda geði við aðra og skiptast á skoðunum. Hún rækti það boðorð sérstaklega vel að gleðjast með glöðum og iíiryggjast með hryggum. Hún hafði unun af söng og tók drjúgan þátt í sönglífi þorps- ins, meðan röddin entist og kunni ógrynni af ljóðum og lögum. Hún gekk í Kvenfélag Húsavíkur fyrsta árið, sem hún var hér búsett og var fé- lagi þess til æviloka; síðustu árin heiðursfélagi. Hún vann þar mikið starf og var lengi fulltrúi þess í stjórn Ekkna- sjóðs Húsavíkur. Þegar Helga fluttist til Húsavíkur fyrir 64 árum var Húsavík lítið en vaxandi þorp, þar sem almenningur lifði á sjóskn og lítiisháttar landbún- aði. Fólkið skiptist í tvennt. Annars vegar nokkra menn, er stunduðu verzlun og fáeina, embættismenn. Hins vegar al- þýðu fnanna, er varð að vinná" hörðum höndum til að afla sér lífsbiargar, sem oft var af skornum skammti. Þessi hóp- ur leit upp til hinna og fannst eðlilegt að hann réði öllu, — enda voru völdin í þeirra hönd um. Helga var alþýðukona í þess orðs beztu merkingu. Hún fann fljótt í hvorurn flokkin- um hún átti heima og skipaði sér þar. En hún gerði það ekki með neinni gremju eða hatri til hinnar svonefndu yfirstétt- ar, eins og ýmsum hættir til, heldur af hinum næma skiln- ingi á aðstöðu sinni í þjóðfé- laginu. Hún gat skemmt sér með háum og lágum og brosað við öllum, og bros hennar var hlýtt og gott. Þegar Verkakvennafélagið Vonin var stofnað hér í Húsa- vík 1918 var hún ein af stofn- endum þess. Hún átti sæti í stjórn þess um fjölda ára og var um skeið formaður. Síð- ustu árin var hún þar heiðurs- félagi, og lengi þóttu þar ekki ráð ráðin, nema umsagnar hennar væri leitað. Hún vann mörg ár með núverandi for- manni félagsins og var sam- vinna þeirra jafnan ágæt, þótt ekki fylgdu þær sama flokki. Þegar verkalýðshreyfingin klofnaði hér á landi eftir 1930 fylgdi Helga Alþýðuflokknum og stóð þar jafnan föstum fót- um. Þrátt fyrir öll hin póli- tísku gerningaveður síðari tíma, enda var hún kjörin heið ursfélagi Alþýðuflokksfélags- ins hér. Afkomendur Helgu eru nú hartnær 90 á lífi, og mun hún hafa verið kynsælasta konan hér í bænum er hún féll frá. Karlmennirnir stunda flestir sjómennsku, þeir sem aldur nafa til. Yfirleitt er þetta hið mesta atorku og myndarfólk. Geðprýði Helgu og gott við- mót olli því, að hún átti vini ágæta í öllum flokkum. Það var engum erfiðleikum bundið að ræða hitamál dagsins við bana, því öll hennar ræða mót- aðist af hógværð og stillingu. Hún hafði óbeit á öllu stóryrða glamri og æsiskrifum, hver sem í hlut átti. Þegar menn deildu leitaðist hún við að bera klæði á vopnin, ef því varð við kom- ið. Aldrei heyrði ég hana hall- mæla nokkrum manni öll þau ár, sem kynni okkar stóðu, og jafnan reyndi hún frekar að milda og draga úr dómum rnanna um náungann. Mann sinn missti Helga fyr- ir 11 árum og fylgdi honum til grafar með sömu stillingu og þreklund, sem hún hafði jafn- an sýnt. Fám dögum áður en hún lézt, heimsótti ég hana í sjúkrahúsinu. Eg sá, að henni var mjög brugðið frá síðustu samfundum. Bæði vissum við, að hverju fór, en ræddum það ekkert. í ásýnd hennar var sama sólskinið og sama róin og jafnan áður. Við ræddum hin ýmsu vandamál mannlegs lífs og viðbrögð einstakling- anna við þeim, eins og við höfðum svo oft gert áður. — Þegar ég fór, sagði hún: „Eg stytti mér nú stundir við að rifja upp og þakka for- sjóninni alla mína hamingju- daga. En eitt er það, sem ég aldrei get fullþakkað henni, það er, að ég skyldi eignast þann mann, sem ég hlaut.“ Um leið þrýsti hún hönd mína og brosti sínu innilega og hjartnæma brosi. Eg hefi í línum þessum leit- ast við að lýsa Helgu Þor- grímsdóttur nokkuð af viðhorfi hennar til vandamála hins dag lega lífs. En ekkert hygg ég að lýsi henni betur en eftirfar- andi saga, er ég vil enda mál mitt með. Þegar Helga var 82 ára, kenndi hún þrymils í öðru brjóstinu og fór að læknisráði til Reykjavíkur til frekari rannsóknar og aðgerðar. Þegar hún fór, gerði hún alveg eins ráð fyrir að hún kæmi ekki aftur heim lifandi. Læknar töldu, að hér væri um illkynj- aða meinsemd að ræða og ekki um annað að gera en nema brjóstið burt, og var það gert. Aðgerðin tókst ágætlega, og eftir fáa daga fréttist, að Helga væh farin af sjúkrahús- inu út í bæ til vina sinna. — Nokkru síðar kom hún heim ’ furðu hress og aldrei hafði ég ! séð hana glaðari. Þá sagði hún , við mig þessi ógleymanlegu orð: „Þetta var nánast allt eins og skemmtiferð. Allt var gert fyrir mann, sem hægt var. All- ir voru svo góðir, og allt svo yndislegt.“ Hvað eru þeir margir, sem hafa þann sálarstyrk, að geta gert sjúkrahússvist og hættu- legan uppskurð að skemmti- ferð? Hvað eru þeir margir, sem þrátt fyrir ýmsa örðug- leika á lífsleiðinni, geta gert langa ævi að skemmtiferð? Þetta gat Helga Þorgríms- dóttir og því er hún svo minn- isstæð. Jóhannes Guðmundsson. Þeir óttast i Framhald af 13. síðu. Willy Brandt, hinn vinsæla borgarstjóra í Vestur-Berlín til að hafa forustu í kosningabar- áttunni. Jafnaðarmenn juku fylgi sitt í síðustu kosningum í 'Vestur-Þýzkalandi og er tal- ið, að Brandt eigi ríkan þátt í að auka fylgi flokksins. Almenn ingur í Þýzkalandi er farinn að ræða um að kjósa ungan, dug- mikinn mann í kanzlaraemb- ættið. Afstaða Brandt í Berlín- armálinu og ósveigjanleg stefna hans bæði þar og í utanríkis- 'i málum er mjög lík stefnu Ad- enauers. Kjósendur þurfa því ekki að óttast neinar breyting- ar í utanríkismálum þótt Brandt verði kanzlari, enda þótt Kristilegir Demókratar spili á þá strengi. Helzta vandamál Kristilegra Demókrata er einfaldlega það, að Adenauer fæst ekki til að ræða um hugsanlegan eftir- mann sinn. Erhard gaf sjálfur í skyn, að nú hefði Adenauer ekki neitt á mótj sér sem vænt anlegum ,,krónprins.“ En vafi leikur á, hvort honum skjátl- ast þar ekki. Það lítur út fyrir að miðstjórn Kristilegra Demó- krata setji þá jafna á yíirborð- inu, Adenauer og Erhard. Það á sem sagt að koma því inn hjá kjqfeendum, að ‘bessir tveir menn hafi í sameiningu gefið Þjóðverjum efnahagslegt og pólitískt jafnvægi. En þeir eru margir í flokknum, sem vilja kynna Erhard sem hinn kom- andi mann flokksins. Enda þótt Adenauer sé 84 ára, er hann ennþá dugmikill stjórnarformaður, en óttinn við Brandt veldur því, að 'Kristilegir Demókratar telja sig knúða til þess að setja Er- hard gegn Brandt. Aldux Aden- auers veldur þeim kvíða og þeir vita, að hætta er á, að stjórnarandstaðan græði á hin um unga manni. Og nú er út- litið fyrir Erhard bjartara en það var fyrir ári síðan, enda bendir margt til þess, að hinn ungi borgarstjóri komi til með að bítast um forustuhlutverkið í þýzkum stjórnmálum á næstu árum, en Adenauer fari að draga sig í hlé. |_4 29. júní 1930 — Alþýðublaðið miðvikiulagur Slysavarðstofan er opin allan sólarhringinn. Læknavörður fyrir vitjanir er á sama stað kl. 18—8. Síml 15030. o-----------------------O Gengin. Kaupgengi. 1 sterlingspund .... 106,65 1 Bandaríkjadollar .. 38,00 1 Kanadadollar .... 39,93 100 danskar kr. .... 551,40 100norskar kr. .... 532,80 100 sænskar kr...... 734,70 100 vestur-þýzk mörk 911,25 o----------------------o Rafnkelssöfnunin: Frá Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna, kr. 10.000.00 Frá íslenzka vöruskiptafélaginu, kr. 10. 000.00. — Kærar þakkir F. h. Söfnunarnefndarinnar, Björn Dúason. Flugféiag íslands h.f,: Millilandaflug: Gullfaxi fer til Glasgow og K- mh. kl. 08.00 í dag. Væntan- leg aftur til R- vk kl. 22.30 í kvöld Hrím- faxi er væntan legur til Rvk kl. 16.00 í dag frá Stokkhólmi og Oslo. Flugvélin fer til Glas gow og Kmh. kl. 08.00 i fyrra málið — Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils- staða, Helu, Hornafjarðar, Húsvíkur, ísafjarðar, Siglu- fjarðar og Vestmannaeyja (2 ferðir). — Á morgun er á- ætlað að fljúga til Akureyr- ar (3 ferðir), Egilsstaða, ísa- fjarðar, Kópaskers, Patreksfj. Vestmannaeyja (2 ferðir) og Þórshafnar Loftleiðir h.f.: Snorri Sturluson er vænt- anlegur kl. 6.45 frá New York. Fer til Amsterdam og Luxemburg kl. 8.15. Leifur Eiríksson er væntanlegur kl. 23.00 frá Stafangri. Fer til New York kl. 00.30. Listamannaklúbburinn: — í kvöld verða í Listamanna- klúbbnum í baðstofu Nausts ins urr.ræður um hina nýaf- stöðnu litshátíð Þjóðleik- hússins. Málshefjandi er Guðlaugur Rósinkranz þjóð leikhússtjóri. — Gagnrýn- endum og fulltrúum Ferða- málafélagsins er boðið á fundinn.. Þetta verður sein asta klúbbkvöld fyrir sum- arleyfið, en síðan verður Listamannaklúbbnum lokað til hausts. Styrktarfélag vangefinna: — Minningarspjöld félagsins fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík; Bókabúð Æsk- unnar, Bókabúð Braga Bryn jólíssonar, Bókaverzlun Snæbjörns Jónssonar, Verzl uninni Laugavegi 8, Sölu- turninum við Hagamel og Söluturninum í Austurveri. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er væntan- leg til Kmh. árd. á morgun á leið til Gautaborgar.f Esja fór frá Rvk í gær austur um land í hring- ferð Herðubreið er væntan- leg til Siglufjarðar í dag á autsurleið. Skjaldbreið er á Vestfjörðum. Herjólfur fer frá Rvk kl. 21 í kvöld til Vcst mannaeyja og Hornafjarðar. Jöklar h.f.: Drangajökull fór frá Ant- werpen 25. þ. m. á leið til Rvk. Langjökull er í Vents- pils. Vatnajökull kom til Len- ingrad í gær, fer þaðan til Kotka. Skipadeild S.Í.S.: Hvasafell fór frá Rvk 25. þ. m. til Arehangelsk. Arnar- fell fer í dag frá Reyðarfirði til Archangelsk Jökulfell er í Rostock Dísarfell losar á Austfjarðarhöfnum. Litlafell er á leið til Rvk frá Norður- landshöfnum. Helgafell fór 27 þ. m. frá Þorlákshöfn til Ventspils, • Gevlé, Kotka og Leningrad. Hamrafell fer í dag frá Aruba til Rvk Minningarkort kirkjubyggingarsjóðs Lang holtssóknar fást á eftirtöld- um stöðum: Verzl. Anna Gunnlaugsson, Laugavegi 37. Langholtsvegi 20. Sólheimum 17 Vöggustofunni Hlíðar- enda. Bókabúð KRON, Banka stræti. Miðvilcudagur 12.55 „Við vinn- una“. 19.30 Óper- ettulög. 20.30 Upp lestur: „Jól við miðjarðarlínu“, smásaga eftir Jak ob Paludan, í þýð ingu Málfríðar Einarsdóttur —■ (Lárus Pálsson leikari). 21.05 Einleikur á fiðlu: Wolfgáng Schneid erhan leikur lög eftir Kreisl- er og Saine-Saens. 21.15 Um glímulög og glímudóm; Síð- ara erindi (Helg Hjörvar rit- höfundur). 21.45 Þjóðdansar frá ísrael eftir Marc Lavry. 22.10 Kvöldsagan: „Vonglað- ir veiðimenn", eftir Óskar Aðalsteinsson; IV. (Steindór Hjörleifsson leikari). 22.35 „Um sumarkvöld" (Létt tón- list). 23.00 Dagskrárlok. LAUSN HEILABRJÓTS: Úr 8 1 ílátinu er 3 ] ílátið hellt fullt. Því er síðan hellt yfir í 5 1 ílátið. 3 1 ílátið er nú fyllt aftur, og 5 1 látið fyllt með því. Nú hella þeir úr 5 1 dlátinu, sem nú er fullt. yfir í 8 1 ílátið, og þessum 1 1, sem eftir er í 3 1 ílátinu, er hellt yiir í 5 1 ílátið. Að lokum er 3 I ílátið fyllt og Iþví hellt yfir í 5 1 ílátið, sem hafði' inni að halda einn 1. Þá hafa þeir hvor um sig 4 1.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.