Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1909, Síða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1909, Síða 5
XXIII. 10.—11., Þjóðvii,jinn. 41 Þingsályktunartiilögu umafnám eptirlauna var víöað til sambandslaganefndarinnar í neðri deild. Gagnfrœðaskóli á ísafirði. Síra Sig. Stef. o. fl. hafa í efri deild borið fram þingsályktunartillögu þess efn- is, að skora á stjórnina, að leggja fyrir næsta alþingi frv. um stofnun gagnfræða- skóla á ísafirði. Pyrirspurn*til ráðherra. Ben. Sveinsson ber fram fyrirspurn til ráðherra þess^efnis, hver orðið hafi árang- urinn af áskorun síðasta alþingis, að land- inu yrði skilað aptur skjölum þeim, og handritum, sem léð voru fyrrum Arna Magnússyni úr ýmsum opinberum skjala- söfnum hór á landi. TÍrskurðarvald sáttanefnda. Sáttanefndum heimilað, að kveða upp fullnaðarúrskurð i skuldamálum, er eigi ntma meira, en 50 kr., ef skuldunautur mætir eigi, og eigi þykir ástæða, til að ætla, að hann hafi haft lögmæt forföll, sem.og er um viðurkennda skuld er að ræða, en ágreiningur um borgunarskil- mála, eða önnur’ auka-atriði. Frv. borið fram af nefndinni í verzl- unarmálinu. Ný bankavaxtabróf. Frv. frá síra Eir. Brim fer því fram, að að Landsbankanum só veitt heimild, til að^gefa út þriðja flokk bankavaxtabrófa, allt að 3 milijónum króna. Sala tveggja þjóðjarða. Frv. frá Birni Kristjánssyni þess efnis, að ráðherra veitist heimiid, til að selja ábúendum þjóðjarðirnar Lambhaga og Hólm i Kjósarsýslu, aðra fyrir 2400 kr., en hina fyrir 2350 kr. Fjárbænir til alþing-is. Alþingi hei'ir þegar borizt fjöldi fjárbæna, eins og venja er, og skal hér getið nokkurra þeirra. 1. Beiðni um ellistyrk frk Gísla Guömundssyni, Ánanaustum Reykjavík. 2. Beiðni frá Birni Jakobssyni um 1000 kr. styrk til leikfimisnáms. 3. Beiðni frá sýslunefnd Skagafjarðarsýslu um fé til fiutningsbrautar frá Sauðárkróki fram Skagfjörð. 4. Beiðni frá Sigurði bóksala Erlindssyni í Rvík um 1400 kr. styrk. 5. Beiðni frá stjórn búnaðarskólans á Eiðum um 1000 kr. styrk til að stofna kvennadeild við skólann. 6. Beiðni frá stjórn búnaðarskólans á Eiðum fyr- ir sína bönd og sýslunefnda Múlasýslna um 9000 kr. styrk. 7. Erindi frá hreppsnefnd Breiðdalshrepps um nð fá veittar 8000 kr. til vegagerðar frá Tinnu- dalsárbrú til Ásmundarstaða. 8. Beiði frá Jóhanni skáldí Sigurjónssyni í Kaup- mannaböfn, um 1000 kr. árl. styrk til þess geta fullgert leikrit, er hann bafi í smíðurn. 9. Beiðni frá Sigurði Jónssyni lækniíKaupmanna- böfn um 1000 kr. árl. styrk í 2 ár til afla sér frekari sérþekkingar í sjúkdómsfræði. 10. Boiðni frá Birni Pálssyni á Tviskerjum í Ör- æfum um 400 kr. styrk árl. til að geta haldist við á býlinu, og veitt ferðamönnum fylgd og fararbeina. 11. Beiðni frá Jónasi Eiríkssyni á Breiðavaði um 1000 kr. styrk i 2 ár til að halda uppi undir búningsskóla fyrir unga pilta. I 12. Beiðni trá Iðnaðarmannafélagi Seyðfirðinga um 400 kr. árl. styrk til að halda kvöldskóla fyrir iðnnema. 13. Beiðni frá Bindindissameiningu Norðurlands um 1000 kr. styrk. 14. Beiðni frá Skriðubreppi um 8000 kr. lán til skólabúsbyggingar. 15. Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu biður um 12000 kr. lán úr viðlagssjóði, til að koma sér upp embættisbústað. 16. Beiðni frá A. J. Johnson, Winnipeg, uœ 7500 kr. styrk á næsta fjárhagstímabili til að efla innflutning Vestur-íslendinga tíl íslands. 17. Áskorun frá Skúla Tboroddsen, þm. Noröur- ísfirðinga, til alþingis um að veita nægilegt fé til að hlaða vörður á Þorskafjarðarheiði. 18. Beiðni um 400 kr. álag á Viðvikurkirkju með vöxtum frá 80. júní 1862. 19. Beiðni frá Jóni Ófeigssyni cand. mag. um 1000 kr. styrk í næstu 2 ár til að semja þýzk-is- lenzka orðabók. 20. Eiindi frá prestinum í Tjarnarprestakalli um að 350 kr. skuld, sem bvíli á prestakallinu, falli niður. 21. Beiðni frá Iðnaðarmannafélaginu á Akureyri um 1000 kr. styrk á ári i 2 ár til þess að halda uppi iðnaðarmannaskóla á Akureyri. 22. Beiðni frá Þorkeli Þorkelssyni um 1000 kr. styrk til rannsóknar á hverurn á íslandi. 23. Beiðni frá Jóninu Sigurðardóttur um 2000 kr. styrk til þess að halda áfram hússtjórnarskóla. 24. Beiðni frá leikfélagi Akureyrar um 800 kr. styrk á ári i 2 ár til þess að geta haldið uppi leikjum á Akureyri. 25. Erindi frá kvennaskólanefnd Austurlands til þingm. Múlasýslna. 26. Beiðni frá héraðslækninum á Akureyri um 600 kr. styrk til að kaupa sóttbreinsunarofn handa sóttvarnarhúsinu á Akureyri. 27. Beiðni fi'á Benedikt Bjarnarsyni um 700 kr. styrk í 2 ár til unglingaskólans á Húsavík. 28. Beiðni frá Jóhannesi Jósepssyni um sem rif- legastan styrk til íþróttakenslu og íþrótta- iðkana hér á landi. 29. Beiðni frá Brynjólfi Björnssyni tannlækni um 118 „En hvað þú ert nú gamansamur! — Jeger mamma þír)!a mælti Grrinty hlægjandi. „Nei, Kata — húnerkon- an þín! En þtí hefir alls ekki spurt að henni!“ Gritty haltraði nú til Franks, og kom sorgarsvipur á andlit hennar. „Þú mátt ekki ver hryggur, Dan — heyrirðu það?“ tautaði hún. „Það er ekki mér að kenna að Kata hljóp brott — nóttina sælu, er komið var heim með Jón alblóðugan, er skipið strandaði! Það var voða- mótt, sonur minn! En þá fékkst mikið af strandmunum — já, fjarska mikið!“ „Hvernig atvikaðist það Gritty?u spurði Frank, all- forvitinn. „Jú!“ mælti gamla koman, er settist á hækjur sinar við fætur Frank’s, og strauk höndinni um ennið, til að glöggva minnið; „það er langt síðan, mjög langt, en jeg man enn glöggt eptir því. — Þú varst á sjónum, en Zeke fór til straudar, ásamt Jóni, — sem og hinir, og höfðu klárinn með sóru. „Klárinn?u „Já, þú þekkir hann, — gamla brúna klárinn hans Muligan’s. — Hann drapst þá um nóttina — morguninn eptir var hann grafinn í skóginum, og gramdist Zeke mjög —; hann var reiður, já afar reiður, drengur minn! Jafin reiðan hefi eg aldrei sóð hann!“ „Það, sem skipherra sagði mér, það er þá engin skröksagau, sagði Frank við sjálfan sig, en varaðist þó að segja nokkuð, til þess að rugla Gritty ekki. „Þú þekkir hann vel, hann Brún!u mælti Gritty „en þér gazt þó ekki að honum, og ætlaðir einu sinni að drepa hann. — Þú ert slæmur drengur, — en þú ert :þó augasteinninn minn —, já, það ertu!“ 111 hann á veðurskeyt', er borizt höfðu, en sneri sér síðan að Myers. „Jeg sigli nú til Osceola,u mælti hann, og þar sem og verð að líkindum optar að heiman, baeði hálfa og heila daga, mæli eg svo fyrir, sem hér segir: „Jafn skjótt er þér komið auga á „Maurinn“, símið þér til Hatteras- höfða, og biðjið þá um að gera „Mosquito“ svolátandi vísbendingu: „Óvinurinn er í nándu. — Morris skipstjóri „Skal verða gjört, liðsforÍDgi!u „Yiljið þér lofa mór að hafa fötin yðar enn um hrið?“ mælti Frank enn fremur. „Það getur verið, að jeg þurfi optar á þaim að halda!u „Gjarna!u Frank varð nú litið út á sjóinn, og sá gufuna úr „Mostquito", er þegar var lagt af stað, og hélt hann síð- an, sem leið liggur til gistihúss Raffles. Við útjaðarinn á skóginura mætti hann Bill, sem enn hafði bindi um höfuðið, en virtist að öðru leyti hafa náð sér. Frank gekk fram hjá honum, og lét. sem hann sæi hann ekki. — Bill nam á hinn bóginn staðar, og leit á eptir honum, all-heiptræknislega. „Bíddu við! Jeg skal einhvern tírra finna þig í fjöru, þrælmenDÍð þitt!“ tautaði hann í barm sór, og gnísti tönnum. „Jeg skal hefna mín, þó jeg verði að neyta þess bragðs, að sprengja stöðvarhúsið í lopt upp!u Þetta var djöfulleg hugsun, sem honuin flaug allt í einu í hug! Hvernig stóð á því að honum skyldi eigi hafa hugsazt þetta snjallræði fyr? Bill hló af kátínunni yfir þessar hugsun sinni, og: horfði á eptir liðsforingjauum. — Hann stóð stundar-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.