Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.03.1909, Síða 6
42
ÞjÓÐVILJTNN
1000 kr. styrk til þess að veita fátæklingum
ókeypis tannlæknishjálp.
30. Beiðni frá mótorfélaginu „Stígandi“ í Borg-
arnesi um 10,000 kr. styrk í g ár til ferða
um Hvítá og Norðurá.
31. Beiðni frá stjórn Slátursfélags Suðurlands um
G0,000 kr. lánveitingu.
32. Beiðni frá Ólafi Jónssyni um 1800 kr. styrk
í 2 ár til þess að læra að biia til myndamót.
33. Beiðni frá Vilhjálmi Binsen um 1500 kr styrk
næsta ár til fullnaðarnáms í loptskeytaað-
ferðum.
34. Beiðni frá Iðnaðarfélagi ísafjarðar um að
minsta kosti 600 kr. styrk næstu 2 ár til
þess að geta haldið uppi kvöldskóla.
45. Beiðni frá Guðni. G. Bárðarsyni um 12J0 kr
styrk á ári til náttúrufræðisrannsókna.
36. Beiðni frá Guðm. Hávarðarsyni um 2500 kr
upphót á símstauraflutningi 1906.
37. Áskorun til alþingis frá 163 kjósendum í
Rangárvallasýslu um að veitt verði úr lands-
sjóði nægilegt fé til að brúa Ytri-Rangá á
Ægisiðuhöfða.
38. Beiðni frá Böðvari Jónssyni pósti um 100—
200 kr. árlegan ellistyrk.
39. Beiðni frá hreppsbúum Neshrepps utan Ennis
um fé til að gera Krossavík við Hellissand
að bátakvi.
40. Erindi frá forstöðumanni Forngripasafnsins
um aukin fjárframlög til fornmenjaverndunar
og Forngripasafnsins.
41. Beiðni frá Einari Hjörleifssyni um 2000 kr
Styrk i 2 ár til ritstarfa.
42. Simskeyti til þingmanna Múlasýslna um 2000
styrk til mótorbátakaupa á Lagarfljót.
43. Beióni frá Karli Sveinssyni um 300 kr. styrk
í næstu 2 ár til að stunda rafmagnsfræði,
44. Beiðni frá Lárusi Bjarnasyni um 700 kr. styrk
til þess að stunda nám á kennaraskóla.
45. Beiðni frá Höfðhverfingum umlOOOkr. styrk
til að byggja sjúkraskýli í héraðinu.
46. Kaupfélagið Ingólfur á Stokkseyri sækir um
100,000 kr. lán, er afborgist á 10—15 árum
47. Beiðni frá Kristni Daníelssyni um hæfilega
fjárhæð til að byggja vita á Öndverðarnesi.
48. Beiðni frá Kristni Daníelssyni um nægilegt
fé til þess að mæla og rannsaka talsimaleið
frá næstu talsimastöð að Stað í Súgandafirði.
(JFramhald síðar).
Af síðustu dönsku blððum, Hem
hingað hafa borizt, sézt, að enn er haldið áfram
■ árásum á ritstjóra „ísafoldar“, og dylst auðvitað
engum, hver tilgangurinn er.
Ekki erum vér i neinum vafa um það, að
árásir þessar eru gerðar að tilstuðlan manna
hér á landi, sem boita þvi taki undirferlinnar,
að leynast sjálfir, til þess að geta komið sér enn
betur við, og brosa óefað, tala víngjarnlega, eða
kunningjalega o. S. frv., eigi þeir tal við ritstjóra
„Isafoldar11 sjálfan.
Hve svívirðilegt slíkt atbæfi er, þarf eigi að
geta.
En eigi höfum vér orðið þess varir, að neitt
stjórnarblaðanna hér í Reykjavik hafi vítt þetta
atferli, sem er íslenzku þjóðerni til háðungar.
Jferzlunartf réttir.
—o—
Frá Kaupmannahöfn er „Þjóðv.u ritað
22. febr. síðastl., að verðlag á helztu út-
lendu vörutegundum só þar á þessa
leið:
RÚGUE', bezta tegund, á 6 kr. 90 a.,
RÚGMÉL á 6 kr. 60 a., BANKABYGG
á 8 kr., HEIL HRÍSGRJÓN á 10 kr. 75
a., GOTT AMERÍSKT HVEITI á 9 kr.
til 9 kr. 50 a., eptir gæðum, ALEX-
ANDRA-HVEITIMÉL á 11 kr., allt mið-
að við 100 pd.
XXIII., 10.—11.
KAFFI hefir hækkað í verði, og er
nú á 36 a. pd. (líklega vanaleg meðal-teg-
und), MELÍS á 14% a. pd., og KANDÍS
á 15 aur pd.
JÁRNVÖRUR og VEFNAÐARVÖR-
UR yfirleitt í heldur lægra yerði od í
fyrra,
SALTFISKUR er í afar-lágu verði;
vel verkaður MÁLFISKUR varla yfir 50
kr. skM SMÁFISKUR 32 kr. og ÍSA á
26 kr. sk$5. — Sé hann eigi vel verkað-
ur, selzt hann ekki. — Vonandi, að fisk-
veið hækki eitthvað.
Að því er ULL snertir, verður hún
að líkindum í nokkuð hærra verði, en í
fyrra.
Straridasýsla (Árneshreppur) 21. febr. ’09:
„Umhleypingasöm tið, síðan á nýári, ýmist
vestan blota-hroði, eða norðan eða austan bleytu
kaföld. Yfirleitt frostalítið, nema nokkra daga
um miðjan janúar (15. janúar var 11 stiga frost).
— Það, sem af er þ. m., hefir verið óvanalega
frostalítið, mest 5 stig, enda ekkert spurzt til
hafíss, og vonandi, að hann sé ekki í nánd.
Hákarlsafli enginn í vetur, enda aldrei á sjó
gefið, sakii' storma.
Heilsufar yfirleitt gott, enda nú eigi læknis-
hjálpar að leita nær, en á Isafirði, eða að ; Mið -
húsum i Barðastrandarsýslp, og má því hver
deyja hér án læknishjálpar, að minnsta kosti
um hávetrartímann.
Prestkosning
er nýlega um garð gengin í Saurbæjarþingum
í Dalasýslu, og hlaut uppgjafaprestur Sveinn
Gwðwundsson meginþorra atkvæða.
Háskólapróf í læknisfroeði.
Læknisprófi lauk nýskeð við háskólann Valde
mar Erlendsson, og hlaut I. einkunn.
112
korn í sömu sporum, en sneri svo við, og gekk til gisti-
húss Raffl.es.
X. kapituli.
Maggy kom fyr heim úr morgungöngunni, en hún
var vön, og var gremjuleg á svipinn.
„Varstu ekki hjá Zeke?“ spurgi Raffles, all-forviða,
er hún kom inn í herbergið.
„Nei, pabbi!“
„Hví ekki?“
Fallbyssubáturinn hefir varpað atkerum í grennd við
Kitty Howk, og hugði eg, að þú vildir fá vitneskju um
það, þar sem þór hafið eigi talað um annað síðustu dagana“.
.Tæja! Það var rétt gert af þér, að segja mér það!
Sástu annars nokkuð markvert? Vissirðu, hvað fallbyssn-
báturinn var að erinda?“
„Liðsforinginn var sóttur út á skip, og —“
Hún þagnaði, því að það, sem gorzt hafði um nótt-
ina, var rétt komið fram á varirnar á henni. — Hafði
Frank ekki verið svo auðvirðilegur, að brigða lofórð sitt?
Var henni þá skylt að efna það, sem hún hafði lofað?
fiana sárlangaði til að heÍDa sín, en eitthvað hélt þó í
hana. Átti hún að dæma hann hart, áður en hún vissi,
hvað haDn kynni að hafa sér til afsökuDar? Gat ekki
verið, að hann hefði verið skyldur að fara.
Henni fannst hún verða að fá að vita, með hverju
hann réttlætti sig, enda gat hún síðar skýrt föður sínum
frá ölln.
„Nú?“ sagði Raífles, sem beið þess, að hún endaði
setninguna.
117
allt er til, kalla jeg á yður. — En ef móðir min fer að
rugla oitthvað —“
„Verið óhræddur!“ greip Frank fram í. „Jeg veit,
hvernig þarf að taka veslings gömlu konuna. — Betra
að vera vingjarnlegur við sjúklinga, oins og hún er, en
að beita hörku“.
Frank gekk nú inn í gestaherbergið, en Raffles fór
ofan í fjöru, til að búa bátinn.
Frank settist nú við borð í gestaherberginu, til þess
að vekja engan grun, og beið þess með óþreyju, að Maggy
kæmi irm.
Rétt á eptir kom unga stúlkan inn, og setti þegj-
andi glas með vatni í á borðið.
„Maggy“, mælti hann lágt, og tók í hönd hennar.
„Þér rnegið ekki vera mér reið! I sama bili, sem eg
ætlaði til fundar við yður, var mér skipað að koma út á
„Mosquito“.
„Og urðuð þór að hlýða þeirri skipun?“ spurði hún.
„Já, Maggy! skyldan bauð mór það!“
„Það er gott!“ mælti hún. „Jeg trúi yður!“
Hann tók innilega í höndina á henni.
„Þakka yður fyrir, Maggy!“ mælti hann. „Jeg er
fús á, að efna orð mín, hve nær, og hvar, sem þér viljiðö
„Á rnorgun urn þetta leyti!“ hvislaði hún.
Hún setti nú fyrir hann romm og sykur, og flýtti
sér út.
„DaD, drengurinn minn!“ sagði nú gamla konan.
„Þú mítt ekki tala leynilega við Maggy; — Það er ekki
rótt! Hvað segði Kata um þið?“
„Kata? Það eF'nafn-'móður minnar!“ mælti Frank,
all-forviða.