Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.03.1909, Síða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.03.1909, Síða 2
46 f> J Ó Ð VI L J I N N. XXIII., 12. 3. gr. AUt áfengi, sem flutt er til landsins frá útlöndum samkvfemt lögum þossurn, skal fyrst flytja á land í Reykjavík. Þar skal stjórn- in skipa sérstakan umsjónarmann áfengiskaupa, og hefir hann á höndum umsjón og eptirlit með áfengiskaupum, svo sem nánar er fyrir mælt í lögum þessum. Umsjónarmaður hefir að launum 600 kr. á ári, er greiðast úr landssjóði. Svo fær hann og ókeypis húsnæði fyrir áfengishirgðir, hurðargjald, bréfa og alla nauðsynlega aðstoð. 4. gr. Nú hefir maður heimild til áfengis- ílutnings frá útlöndum eptir lögum þessum, og vill hann neyta þessarar heimildar sinnar, og skal hann þá i tæka tíð segja umsjónarmanni áfengiskaupa til um það, hvors konar áfengi og hve mikið hann vill aðflytja og frá hverju verzl- unarhúsi, svo og raeð hverri ferð frá útlöndum. Hann skal og skýra honum frá um leið, til hvers hann ætli að nota áfengið. Svo skal og tylgja heiðninni flutningskostnaður til Reykjavíkur. Umsjónarmaður sendir þá pöntunina því verzl- unarhúsi eða þeim vínsölumanni, sem hún er Btíluð til, og heiðist þess, að áfengið sé sent til sín. Skal umsjónarmaður, þegar er áfengið kem- ur til hans frá útlöndum, tryggja sér með rann- sókn, að áfengissendingin sé eigi önnur eða meiri en um var beðið. Skal hann þá merkja það með innsigli sínu og segja eiganda til. Eig- anda skal þá heimilt að vitja þess, en gjalda skal hann þá um leið þann sérstakan kostnað; er af aðflutningnum kann að hafa leitt, þó ekki húsnæðisgjald í Reykjavík ('shr. 3. gr.). Nú hirðir sá ekki áfengið, er pantað hefir áður en 3 mánuðir eru liðnir frá því er hann fékk tilkynning umsjónarmanns um aðflutning áfengisins, og er umsjónarmanni þá heimilt að hella niður áfenginu og selja umbúðir þess. All- an ógreiddan kostnað, er leitt hefir af aðflutn- ingnum, má þá taka lögtaki hjá þeim, er áfeng- ið hefir pantað, samkvæmt lögum 16. desember 1885. Umsjónarmaður ber enga ábyrgð á greiðslu andvirðis fyrir það áfengi, sem aðflutt er. 5. gr. Skylt er hverjum skipstjóra, er frá útlöndum kemur, að tilkynna lögreglustjóra um leið og hann sýnir skipsskjölin, hvort hann hafi nokkurt áíengi til flutnings fyrir aðra menn, og þá hve mikið. Hann skal og skýra frá, hvort og hve mikið áfengi hann hafi meðferðis sem skipsforða, en óheimilt skal honura, meðan hann er í höfnum inni eða i landhelgi við ísland, að veita eða selja eða á annan hátt láta af hendi, eða láta aðra skipverja iáta af hendi nokkuð af því áfengi, er til skipsforða er ætlað, til annara manna en þeirra, sem eru lögskráðir skipverjar Skipstjóri er sekur við lög þessi, ef út af. brýtur. Nú hefir skipstjóri meðferðis áfengi, sem ekki er ætlað til skipsforða og skal lögreglustjóri þá á hinni íyrstu höfn, er skipið kemur til, setja innsigli sitt á hin aðfluttu áfengisílát og ábyrg- iet skipstjóri, að innsiglin séu ekki hrotin eða úr ílátunum tekið fyr en skipið er farið alfarið burt frá landinu. 6. Nú strandar skip hér við land og hefir meðferðis áfengi annað hvort til flutnings eða það er skipsforði, og skal strandgæzlumaður þá þegar taka áfengisílátin til varðveizlu og gæta þess, að ekki sé i þau farið. Hann skýrir þeg- ar í sti.ð lögreglustjóra frá, en lögreglustjóri set- ur innsigli sitt fyrir ílátin og kemur þeim til geymslu á óhultum stað. Afengi þetta má lög- reglustjóri ekki selja eða á annan bátt láta af hendi til annara manna, en skýra skal hann með fyrstu ferð réttum oiganda strandmunanna frá björgun áfengisins og senda honum það til ráð- stöfunar á hans kostnað, nema hann kjósi beldur að því sé helt niður. Nú er ókunnugt um eiganda strandgóss og skal þá eptir að lögskipaður auglýsingafrestur er liðinn og eigandi hefir ekki sagt til sín, hella því áfengi niður, er finnast kann meðal strand- munanna. 7. gr. Engan áfengan drykk má flytja um landið hér innanlands, hvorki á sjó né landi, annan en þann, sem annað hvort er merktur inn- sigli umsjónarmanns áfengiskaupa, svo sem fyr- ir er mælt í 4. gr. laga þessara, eða þá þann drykk, sem um getur í 5. og 6. grein og merkt- ur er með innsigli lögreglustjóra þess er í hlut á. 8. gr. Hverjum þeim manni, sem heimitaður er aðflutningur áfengis samkvæmt lögum þessum, skol óheimilt að veita, gefa, selja eða látaáann- an hátt af hendi til annara manna nokkuð af því áfengi, er hann hefir aðflutt. Þó mega lyf- salar Játa áfengi af hendi eptir skriflegri lækn- isforskript, og þó að eins einu sinni eptir sama læknisseðli (recept). Svo er og um alla dropa, duft, kökur eða lyfjablandanir, sem hafa í sér fólgið meira en 21U°jo af vinanda. Heimilt er að deila mönnum messuvín við altarisgöngu. ' (Niöurl. síOar). Ritsímaskeyti. til „Þjóðv.u —o— KaupinanDahöfn 13. marz 190y. Frá Danmörku. Bæjarstjórnarkosning í Kauptnanna- höfi : 20 jafnaðarmenn, 16 hægrimenn (og telst þar með umbótaflokknrinn) 5 gjör- breytingamenn, og einn, sem var á heiroa- trúboðsskrá. Sex kvenDmenn. (I stað þess er jafnaðarmenn og gjör- breytingamenn (frjálslyndir vinstrimenn) hafa áður starfað sainan við bæjarfull- trúakosningarnar, þá fór nú hvorþes9ara flokka sinnar leiðar. — Hægrimenn og umbótaflokkurinn unnu saman við kosn- ingarnar að þessu sinni. Telja má víst, að jafnaðarmenn og gjörbreytingamenn fylgist að rnálum í bæjarstjórninni, sem að undanföruu.) Mjög ósæmilegt athæfi erþað,sem „Reykja- víkin“ gerir sig seka í 12. marz þ. á., er hún kallar „Fjallkonuna11 „leka- byttu“ „ísafoldar11, og segir ritstjóra „ísafoldar11 hafa látið hana „flytja níðgrein umkonung vorn“. — Tilefnið eigi annað, en það, að „Fjallk.11 hafði komizt óheppilega, og ómaklega, að orði um konung, er hún minntist þeirra ummæla kon- ungs, að honum „félli miður“, að verða að veita Hafstein ráðherra lausn. „Reykjavíkin“ vill fyrir hvern mun, að rit- stjóra „Isafoldar11 sé eignað þetta, enda þótt öll- um sé vitanlegt, að ritstjóri „Fjallkonunnar11 annast sjálfur ritstjórn blaðs síns að öllu leyti. Er nú þessu skrökvað upp, til að birta það síðan í dönskum blöðum, sem heilagan sann- leika? Það er ekki óþekkt, að ýms ósannindi „Reykja- vikur“ hafa verið hagnýtt á þann miður göfug- mantilega hátt. Síðar í „Reykjavíkur“-greininni segir um frumvarpsandstæðinga yfirleitt, án þess nokkur þeirra sé undan skilinn, að þeir hafi „móðgað og sært konung vorn“. Fyrir það, að leyfa sér, að bera á horð fyrir almenning jafn ósvífin, tilhæfulaus ósanuindi, ætti höfundurinn að hýðast á þingi, ef hann væri eigi kominn yfir þann aldur, og hýðingar mjög orðnar íátíðar. Iregnir frá alþingi. --COO- IV. Fellt frumvarp. Frv. stjórnarinnar um dánarskýrslur, sem efri deild hafði samþykkt, varfellti neðri deild 9. marz, með 13 atkv. gegn 10, mun hafa þótt baka almenningi ó- þarfa kostnað i sumum tilfellum, og litlar líkur til, að skýrslurnar yrðu réttar úr þeim kirkjusókntim, þarsem enginn læka- ir er búsettur. Fœrsla Kjördags. í frv., sem komið er fram í neðri deild, er það lagt til, að almennar kosningar til alþingis skuli fara fram fyrsta vetrar- dag, en eigi 10. sept., sem nú er. Póstafgreiðsla í Vík. Gunnar Ólafsson ber í efri deild fram þingsályktunartillögu þess efnis, að póst- afgreiðsla verði sett í Vík, og að póst- ferðum verði fjölgað um helming milli Odda og Víkur á þeim tíma árs, er póst- vagn gengur vikulega milli Beykjavíkur og Ægisíðu. „Bókasafn Vesturlands“. Síra Sig. Stef. ber fram í efrideild frv. þess efnis, að flytja amtsbókasafnið í Stykk- ishólmi til Isafjarðar, að undanskildum þeim útlendum bókum, sem út eru gefn- ar fyrir árið 1885. Bókasafn ísafjarðarkaupstaðar, sem nú er, sameinast safni þessu. Þegar sameiningin er komin á, fær Stykkishólmur annað eintak þeirra bóka, er safnið á í tvennu lagi. í stjórn „bókasafns Vesturlands"4 eru þrír menn, kýs bæjarstjórnin á Isafirði einn þeirra, en sýslunefndirnar í Norður- ísafjarðarsýslu og Vestur-ísafjarðarsýslu sinn manninn hvor. Brófhirðing að Dynjanda í Jökulfjörðum. Aukapóstur í Furufjörð. í neðri deild ber Sk. Th. fram þings- ályktunartillögu þess efnis, að stofna bréf- hirðing að Dynjanda í Jökulfjörðum, og að aukapóstur, sem nú gengur að Dynj- anda frá Stað í Grunnavík, sé látinn ganga alla leið í Furufjörð á Hornströndum. Gagnfræðaskólinn á Akureyri. Stefán skólastjóri Stefánsson ber fram í efri deild frv., sem fer því fram, að kennurum við nefndan gagnfræðaskóla skuli fjölgað, séu fjórir alls, og einn þeírra skólameistari. Nemendur, sem hafa heimavist í skólanum, skulu árlega greiða 5 kr. í skólasjóð, en aðrir nemendur eina krónu. — Stjórnarráðið semur skipulagsskrá skóla- sjóðs, eptir tillögum skólameistara. Skipting Sauðárkrókslœknishéraðs. Ói. Briem ber fram í neðrideid frv. þess etois, að skipta Sauðárkrókshéraði í tvö læknishóruð: 1. Sauðárkrókshérað: Skefilsstaðahreppur,

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.