Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.07.1909, Page 2
130
Þjóbviljinn
XXIII., 33.
etjórn þeirra á Iodlandi. Sjálfur vill
hann engar upplýsingar gefa um það efni.
Bússland. 29. f. ra. kom saman í
Pétursborg nefnd finnskra og rússneskra
manna, er átti að gera út um takmörkin
milli sórmálalöggjafarvaldsins fínnska og
og hins rússneska alríkislöggjafarvalds.
Af Rússa hálfu var því haldið fram að
Finnland væri samkvæmt rússneskum
grundvallariögum óaðskiljanlegur hluti úr
Rússlandi, en Finnar vildu að sjálfsögðu
halda sér við sín grundvallarlög, var svo
fundum frestað fram í september, til þess
að Finnar gætu lágt fyrir nefndina skrif-
lega skýrslu um málið.
Nýskeð er látinn Fr. Martens heims-
frægur þjóðréttarfræðingur og íriðarvinur
mikill Hann var háskólakennari í Pét-
ursborg í þjóðarrétti og hefir ritað margt
í þeirri grein. Þegar Rússakeisari 1899
boðaði til friðarfundatins í Haag fól hann
hoDum undirbúningsstarfið, sömuleiðis
undirbjó hann friðarfundinn 1907, og sat
á báðum þessum fundum, sem hinn þjóð-
réttarfróði fulltrúi Rússlands. Hann var
af þýzkum ættum, var fæddur 1845, og
og því að eins 64 ára gamall.
Tyrkland. All-agasamt er enn þar j
i landi, og gengu jafnvel sagnir um það !
hér á dögunum, að her stjórnarinDar hefði j
beðið ósigur fyrir Albanningum, er upp-
reist hefðu gert, en það er ekkert að vita
nema það sé uppspuni einn.
Til mestu vandræða horfir út úr eyjuDni
Krít, sem löngum hefir unað íllayfirráð-
um Tyrkja, og fyrir nokkrum árumfékk
sjálfstjórn svo víðtæka, að það var ekki
nema að nafninu sem hún stóð undir
tyrkneskum yfirráðuro. Nú vilja eyja-
skeggjar helzt að Krít santeinist Grikk-
landi, en það vilja Tyrkir með engu móti
leyfa, og stórveidin verða því að reyna
að miðla málum. Þau hafa haft setulið
í eyjunni, og flota við hana, en ætluðu að
kveðja það heiœ 1. júli, en nú var sagt
um daginn, að þau hefðu séð sig um hönd,
og ætiuðu að lá'ta flotann vera kyrran, og
á hann að gæta þess að hin DÚverandi
stjórnarfarslega staða eyjarinnar hald-
ist óbreytt.
Egyptaland. Sagt er að félag það er
á Suezskurðinn sé um þessar mundir að
semja við Egypta um framlenging á einka-
leifi sínu, og ætli ef samningar takast, að
grafa aDnan skurð jafnhliða hinum gamla
og hækka um leið upphæð hlutafjárins.
ivíviFðilcgar getsakir.
—o —
Osvífni sumra minnihluta málsvaranna
keyrir nú úr hófi fram.
Stöðugt stagast þau á þeim tilhæfu-
iausu ósannindum, að meiri hlutinn —
sjálfstæðismennirnir — hafi í fyrra sumar
flekað og tælt kjósendur. Öll þeirra mót-
spyrnu gegn frumvarpinu hafi verið af
þvi sprottin, að þeir hafi viljað Dota sam-
bandsmálið til þess að komast að völdum.
Það er undarlegt með þessaimenn, að
þeiin virðist það með öilu óskiljanlegt, að
nokkrum mótstöðumanna þeirra^ gangi
annað til afskipta sinna af landsmálum,
en valdafikn og persónuleg hagsmuna-
von. -v" MJS
Það er undarlegt að heyra þá menn
vera að bregða mótstöðumönnum sínum
um, að þeir hafi flekað og tælt kjósendur,
sem í guðslaDgt fyrra sumar héldu að
þjóðinni röngum skýringum á uppkast-
inu, og gylltu það á allar lundir, til þess
að reyna að fá hana á sitt mál.
Og það bæri vott um stórkostlega sið-
epilling, ef íslenzka þjóðin tii lengdar
léti mönnum haldast uppi jafn svívirði- j
legt atferli.
-Það er líka dirfska í meira lagi ef þeir
gera sér von um að telja þjóðinDÍ trú, að
allir þeir meiri hluta menn, sem eitt- j
hvað kveður að, séu sannfæringar- og sam-
vizkulausir þorparar, er að eins hugsi
um völd og persónuleg arðsvon.
Finnast mönnum jafn svívirðilegar
getsakir eiga nokkra mildi skilið?
Finnst mönnum samvizkusemin öll
vera og verið hafa „heimastjórnarinnar1*
megin?
Yæri ekki mál til komið fyrir almenn-
ing að fara að taka í taumana, ætlar ís-
lenzka þjóðin að láta innlimunarmönnum
haldast uppi að vera að spilla hennar
málstað utan lands og ÍDnao?
Og hvemig halda menn að innræti
þeirra manna sjálfra sé, sem aldrei geta
álitið að mótstöðumönnunum gangi annað
til en persónuleg bagsvon? L.
Ritsímaskeyti.
til „Þjóðv.u
—o—
Khöfn 17. júlí 1909.
Frá Þýzkalandi.
Bethmann-Hollweg, innanríkisráðherra,
orðinn kanzlari Þýzkalands.
Frá Persalandi.
I Teheran er uppreist. Shahinn flú-
inn á náðir rússneska sendiherrans.
Frá Danmörku.
Christensen er ósveigjanlegur. Nefnd-
in í, landvarnarmálinu er 5 klofin og
ráðalaus.
“Khöfn 21. júlí 1909.
Frá Frakklandi.
Flotarnálaþref hefir steypt ölemen-
ceau skyndilega.
Frá Marocco.
Kabylar í Marocco berja á Spánverjum.
Frá Grikklandi.
Ráðaneytisskipti á Grikklandi. Rhallys
tekinn við stjóm.
Frá Persalandi.
KrÓDprioz Persa tekinn þar við ríkis-
stjórn eptir föður sinn.
(I síðasta blaði „Þjóðv.“ var skýrt frá
því, hvernig á því stendur, að kanzlari
Þýzkalands, Billow, hefir sagt af sér, að
það er sökum þess, að meiri hluti þings-
ins er honum andvígur í skattamálinu,
hefir nú Bethmann-Hollweg tekið við
þe3su vandasama embætti.
Þessi ósveigjanleiki Christensens er
sjálísagt gegn landvirkjatillögum stjórnar-
innar, og það, að nefndin er timm-klofin,
bendir til að ekki einu sinni Neergaards-
vinstrimönnum (stjórnarliðum) og hægri-
mönnum hafi tekiat að verða að öllu leyti
sammála. Er nú útlit fyrir, að ekkert
nái fram að ganga i hervarnarrnálinu nema
tillögur Christensens og hans manna, ef
hægrimenn og stjórnarmenn heldur kjósa
að fallast á þær, en að málið ónýtist með
öllu, eÍDs og skeytið helzt virðist be.uda
til.
Clemenceau hefir verið forsætisráð-
herra Frakka síðan haustið 1906, eða hátt
á 3. ár, og er það sjáldgæft á Frakklandi
að ráðaneyti verði svo langlíft.
Krónprinzinn í Persíu sá er við völd-
um hefir tekið heitir Hussein Ali Mirza
og er að eins 14 vetra gatnali, faðir hans
sem orðið hefir að láta undan uppreisD-
armönnum og segja af sér heitir Muhain-
ed Ali Mirza og hefir hann að eins ríkt
í rúm 2 ár.)
Aöaf-fundur íslandsbanka.
—o—
Ár 1909 hinn 16. júlí var haldinn aðal-
fundur i Islandsbanka og fór þar fram:
1. Landritari Kl. Jóns9on skýrði fyrir
hönd fulltrúaráðsins frá starfsemi bank-
ans síða9tl. ár og útlistaði helztu atriðin
Úr reikningi bankans það ár. Lýsti hann
því jafofrarot yfir fyrir hönd tulltrúaráðs-
ins, að bankinn hefði unnið mikið Og lof-
samlegt starf árið sem leið, sem banka-
stjórnin ætti þakkir skilið fyrir af hálfu
fulltrúaráðsins.
2. Framlögð endurskoðuð reiknings-
uppgerð með tillögu um, hvernig verja
skuli arðinum fyrir árið 1908 og var með
öilum greiddum atkvæðum samþj'kkt að
verja arðinum á þann hátt, sem lagt er
til á 4. bls. reikningsins. Fá hluthafar
þá 61/2°/o í arð af hlutafé sínu fyrir árið
1908.
3. Framkvæmdastjórn bankans var í
einu hljóði gefin kvittun fyrir reiknings-
skilum.
4. Statsgældsdirektör P. 0. A. Ander-
sen, sem fara átti úr fulltrúaráðinu af
bluthafa hálfu, var í einu hljóði endur-
kosinn.
5. Endurskoðunarmaður var í einu
hljóði endurkosinn amtmaður J. Havsteen.
6. Kaupmaðnr Ásgeir Sigurðs^on
stakk upp á, að hluthafar vottuðu banka-
stjórninni þakkir sínar fyrir mjög góða
frammistöðu sína í þarfir bankans árið
sem leið. Var það samþykkt með lófa>
klappi.